Þjóðviljinn - 13.04.1973, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 13.04.1973, Qupperneq 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 13. aprll. 1973. Ljósmynda- samkeppni til eflingar trimminu Akveöið hefur verið að efna til ljósmyndasamkeppni til að auka skilni'ng og glæða Shuga almennings fyrir nauðsyn þess að huga að heilsu sinni með hæfilegri hreyfingu og útivist. Framkvæmdaaðili að þessu er Trimm-nefnd ISI I samstarfi við Ljósmyndarafé- lags tslands. Myndirnar eiga að vera frá hvers kyns útilifi og iþróttum sem höfða til ánægjunnar eða gagnsins sem fylgir þvi að trimma. Myndirnar mega ekki hafa brizt áður. öllum er heimil þátttaka, en þó má hver og einn ekki senda nema 10 myndir. Myndirnar mega vera hvort heldur svart/hvitar eða litskugga- myndir. Stærö svart/hvitu myndanna á að vera 13x18 crr upp i 30x40 cm upplimdar á pappaspjald. Litskuggamynd- irnar i ramma 5x5 cm eða 7x7 cm ramma. Verðlaunin eru glæsileg myndavél. Skilafrestur er til 31. ágúst. Borð- tennis Frestur til að skila þátttöku- ilkynningum rennur út kl. 14 augardaginn 14. april. Greiða >arf þátttökugjald um leið og ilkynningu er skilað. Mótið íefst 27. april, en þvi lýkur 1. nai. Sigurveg- arar í meistara- móti UMSK Meistaramót UMSK i frjáls- ím iþróttum fór fram i Baldurs- íaga dagana 5. og 9. aprtl. Keppt var i 8 greinum, og /oru sigurvegarar þessir: Langstökk kvenna. I. Hafdis Ingimundardóttir, Jreiðablik 5,09 m. Langstökk karla. 1. Karl West, Breiðablik 6,32 m. Hástökk kvenna. L. Kristin Björnsdóttir, Sreiöablik 1,55 m. Hástökk karla. L. Karl West, Breiðablik 1,80 m. 50. hlaup kvenna. L. Hafdis Ingimarsdóttir, 3reiðablik 7.2 sek. 50 m. hlaup karla. 1. Karl West, Breiðablik 6.2 sek. 50 m. grindahlaup kvenna. 1. Kristin Björnsdóttir, Breiðablik 8,0 sek. Þristökk. L. Helgi Hauksson, Breiöablik 13,44 m. Nú kom leikreynslan V alsmönnum til bjargar Þegar taugarnar brugðust tók leikreynslan við, og r Valur sigraði Armann 21:10, og hefur aftur tekið forustuna í 1. deild. Aldrei fyrr í vetur hefur Vals-liðið mætt eins taugaspennttil leiksog að þessu sinni, og það var heppið að Ármenningarn- ir skyldu standa í þeirri meiningu að þeir gætu ekki sigrað Val: að öðrum kosti hefði það tekið af skarið og náð afgerandi forustu í fyrri hálfleik þann kafla sem verst hefur verið leikinn hjá Val í vetur. Það var ekki fyrr en Valsmenn höfðu, fyrst og fremst leikreynsl- unnar vegna, náð forustu 6:3 og síðan 7:3 að taugar leikmanna komust í lag og liðið fór að leika eins og það gerir vanaiega. Þegar þar var komið stóð auðvitað lítið fyrir hjá Ár- manni, þannig að bilið breikkaði jafnt og þétt það sem eftir var leiksins. Ég er anzi hræddur um að Vals-liðið verði að leika betur gegn IR á sunnu- daginn kemur,ef það ætl- aö að vinna þann leik og þar með mótið, en það gerði að þessu sinni. Hæp- ið er að leikreynslan ein dugi gegn IR eins og hún gerði gegn Ármanni. Ofan á það hvað Valsmenn voru taugaslappir til að byrja með, bættist svo það að Ar- menningarnir léku af krafti framan af fyrri hálfleik. Ar- Eins gott að forða sér þegar svona stendur á. En kannski er þetta nú ekki alveg rétt farið að við markvörzlu, þótt Ágúst sé skotfastur. (Ljósm. Gunnar Steinn) menningarnir jöfnuðu 1:1, 2:2, og 3:3 þegar um 15 mlnútur voru liönar af leik, og þegar 18 min- útur voru liðnar náði Agúst ög- mundsson forustu fyrir Val 4:3 og Ólafur bætti um betur 5:3, og þar með var taugaspennan rok- in út i veður og vind, og Vals-liö- ið fór i gang og lék eins og mað- ur hefur séð það gera i flestum leikjum þess i vetur. 1 leikhléi var staðan oröin 8:4 Val i vil. I siðari hálfleik héldu Vals- menn áfram að breikka bilið, komust I 10:4 og 11:15, 14:8 og skoruðu svo 4 mörk i röð án þess að Armenningum tækist að svara fyrir sig, og staðan 18:8, og voru þá 24 minútur liönar af siðari hálfleik. Lokatölurnar urðu svo eins og áður segir 21:10. Það er ekki ónýtt fyrir lið að hafa 7 leikmenn með frá 10 til 57 landsleiki að baki og þann 8. með nær 400 deildarleiki. Þessi mikla leikreynsla var það sem fyrst og fremst bjargaði Vals- mönnum að þessu sinni. Aöeins 3 menn léku allan leikinn eins og þeir gera bezt, þeir Agúst ög- mundsson og Ólafarnir Jónsson og Benediktsson I markinu,, En er liða tók á leikinn tóku þeir Bergur, Stefán Gunnsteinn, Jón Karlsson og siðast en ekki sizt Gisli Blöndal, sem átti mjög góðan leik að þessu sinni, viö sér, og maður kannaðist við leik þeirra. Hjá Armanni áttu þeir Olfert og Höröur beztan leik, enda leikreyndustu menn liðsins, þeir einu sem ekki gáfust upp fyrir Valsmönnum fyrirfram. Þá átti Ragnar Jónsson allgóöan leik sem nafni hans Sigurðsson I markinu sem varði m.a. 3 vita-. köst i leiknum og 2 þeirra tvisv- ar, þar eð þau voru tvitekin. Mörk Vals: Ölafur 5, Gisli 5, Agúst4, Bergur 3, Gunnsteinn ?. Jón K. og Stefán 1 mark hvor. Mörk Armanns: Olfert 4, Vil- berg 3, Ragnar, Þorsteinn og Hörður 1 mark hver. —S.dór Þetta fær hvert sérsamband í sinn hlut frá ÍSÍ Fundur haldinn i Sambands- ráði I.S.I., 6.-7. april 1973, sam- þykkir eftirfarandi skiptingu á milli sérsambandanna, svo og utanfararstyrkjum, sem inni- faldir eru i þeim upphæðum, sem tillaga þessi gerir ráð fyrir að komi i hlut hvers sérsam- bands: Badmintonsamband lslands kr. 165.000,00 Blaiksamband Islands kr. 100.000,00 Borötennissamband Islands kr. 100.000,00 Fimleikasamband tslands kr. 250.000,00 Frjálsiþróttasamband Islands kr. 400.000,00 Glimusamband Islands kr. 150.000,00 Golfsamband Islands kr. 110.000,00 Handknattleikssamband Islands kr. 400.000,00 Judosamband Islands kr. 100.000,00 Knattspyrnusamband Islands kr. 125.000,00 Körfuknattleikssamband Islands kr. 180.000,00 Lyftingasamband Islands kr. 100.000,00 Skiðasamband tslands kr. 175.000,00 Sundsamband íslands kr. 250.000,00 Samtals: kr. 2.605.000,00

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.