Þjóðviljinn - 13.04.1973, Síða 13
Föstudagur 13. aprn. 1973. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13
Eftir Whit Masterson
Andy mótmælti þvi ekki, en
Bonner var i skapi til að rökræða.
Hann fór að rifast við Bake um
meðferð málsins. Bonner kom
með nokkrar mjög nærgöngular
spurningar i sambandi við kunn-
ingsskap Bakes við látnu konuna.
Bakeásakaði hann um að vera að
leita að forsiðufrétt, og áður en
samtalinu lauk, sagði Bonner
Bake að gæta tungu sinnar, ef
hann vildi ekki lenda i fangelsi —
hann minntist þó ekki á hver hin
hugsanlega ákæra yrði.
Litla gula
hœnan sagði:
Glöggar löggur.
íslenzkir rannsóknarlögreglu-
menn voru að leita að þýfi, meðal
annars rúmfatnaði og klæðum
nokkurra stúlkna, en svo segir i
annálum:
,,Þá fór að gruna konu eina. . .
Hún neitaði lengi vel öllum ásök-
unum, en þegar lögreglumenn
bentu henni á að hún væri i fötum
einnar stúlkunnar, brustu allar
varnir og hún játaði allt”.
Forsiðufrétt i Alþýðublaðinu 11.
april 1973.
Skákþraut
No. 25.
Þessi staða kom upp i skák
þeirra Réti og Tartakower i Wien
1910.
Hvitur leikur og mátar i 3 leikj-
um.
Lausn á dæmi 24.
1. DxR HxD 2. He8 Hd8 3. HxH
mát. Eða.l. DxR Kb8 2. DxH Ka7
3. DxH og vinnur.
I rifrildmu miöju hringdi sim-
inn. Enginn sinnti þvi. Það virtist
ekki liklegt að ræningjarnir settu
sig svo fljótt i samband við þá.
Þeim skjátlaðist. Hub tók simann
og sagði i skyndi: — Herra
Paxton það er til yöar. Western
Union.
— Ég skal, sagði Bonner og
teygði út handlegginn. Hub gekk
til hliðar og stóð af tilviljun i veg
17
fyrir Bonner — eða þannig leit
það að minnsta kosti út. Hvað
sem þvi leið varð Andy á undan i
simann.
— Herra Paxton? Andy þekkti
rödd Moss ritsimastjóra. — Ég
hef hérna annað skeyti til yðar.
Ég er búinn að hringja á hótelið
og þeir gáfu mér upp þetta núm-
er...
— Sáuð þér hver afhenti skeyt-
ið núna? greip Andy fram i.
— Þaö afhenti það enginn. Það
var hringt inn fyrir fáeinum min-
utum. — Moss hikaði. — Satt að
segja er það á reikning viötak-
anda.
— Það skiptir ekki máli. Hvað
stendur i þvi?
Moss las skeytið. Andy sá bein-
linis fyrir sér hvernig það leit út
með gamalkunnu upphafsstöfun-
um: VEL GERT KANARIFUGL
KOMIÐ MEÐ PENINGANA 1
HORTON STRÆTI MARANJA
STRÖND BIÐIÐ A STtFLU-
GARÐINUM - KOMIÐ EINN
ENGAR LÖGGUR. Það var engin
undirskrift fremur en fyrri dag-
inn.
Þegar Andy lagði frá sér tólið
og var búinn að þakka Moss fyrir
skjóta afgreiðslu, sá hann að þeir
hinir horfðu á hann i ofvæni. —
Jæja hvað sögðu þeir? spurði
Bonner.
— Þetta tókst. Þeir vita að ég
er með peningana. Hann sá ekki
lengur eftir þvi að hafa sungið
vögguvísuna. Það hafði þjónað
tilgangi sinum, þótt áhrifin hefðu
veriðóhagstæð fyrir sjálfan hann.
Hann stóð ögn nær þvi að geta
bjargað syni sinum.
— Jæja. Hvernig og hvenær á
afhendingin að fara fram?
— Þér eruð ekki boðinn, full-
trúi. Ég á að koma einn.
Bonner sprakk ekki af reiði.
Augnaráð hans varð ihugult. —
Gerið það sem yður sýnist. Þér
vitið ef til vill hvað þér eruð að
gera. En kennið mér ekki um það
sem kann að gerast. Aður en
hann fór, leit hann hyggnum aug-
um á Hug. — Þakka yður fyrir að
ganga i veg fyrir mig. Ég skal
muna það seinna.
— Afsakið, sagði Hub. — Ég er
vist fæddur klunni.
Andy tók frakkann sinn. — Ég
ætla að fara á hótelið og sækja
pehingana. Heldurðu að Bonner
ætli að elta mig?
— Hann er vist með einhverja
hugmynd, sagði Hub. — En hvað
segirðu um að aka til baka i
Kádilljáknum og leggja honum
við aðaldyrnar. Bake getur svo
komið i hinum bilnum og stöövað
hann hjá eldhúsinnganginum. Þá
sloppið út bakdyramegin eins og
einu sinni.
Þetta virtist skynsamlegt og
Bake bjóst til að gera það sem
honum bar. Hub var sarrit ekkert
að flýta sér. Hann beið þar til þeir
voru einir eftir i búningsherberg-
inu. — Mig langar til að tala ögn
við þig, herra Paxton. Ég veit
ekki hvað stóð i skeytinu nema að
þér áttuð að koma einn. En ég
get næstum getið mér til um hitt.
Þeirhafa valið eyðilegan stað, er
ekki svo? Andy kinkaöi kolli. —
Mér datt það i hug.Herra Paxton,
má ég ekki fara i þinn stað.
— Hub, það er ekki hægt. Ég
þori það ekki.
— Kannski hefurðu meiri
ástæðu til að vera hræddur en þig
grunar. Ég hef hugboð um að hér
sé um meira en peningana eina að
ræða. Það er einhver sem hatar
þig. Þú ferð einn i eitthvert
skuggalegt skúmaskot, og hver
veit hvað getur gerzt? Þyngsla-
legt andlitið á Hub var mjög
alvarlegt. — Þessir náuhgar eru
búnir að fremja eitt morð. Annað
til skiptir kannski ekki öllu máli.
— Þetta á lika við um Drew.
Þess vegna er enn meiri ástæða
til að fylgja fyrirmælum þeirra.
Andy tók um þreklegar herðarnar
á lifverði sinum. — Þakka þér
fyrir, Hub. En ég held ekki að ég
sé i lifshættu. En ef ég er það —
tja, þá verð ég að taka áhættuna.
— Þú ert húsbóndinn. En gerðu
sjálfur þér einn greiða. Svo að .ú
sért ekki alveg eins einn. . .
Andy horfði á framrétta hönd-
ina. Hub var að bjóða honum
skammbyssu sina.
6
Veccio hafði komið lausnar-
gjaldinu fyrir i peningaskáp gisti-
hússins. Nú sat hann i anddyrinu
og beið eftir frekari fyrirmælum,
en Andy sendi hann i rúmið. Hann
var búinn að gera sittj nú var röð-
in komin að Andy.
Og þó ekki að honum einum.
Hann náði i ferðatöskuna og hélt á
henni upp i herbergi Lissu. Hann
var feginn að sjá, að hún virtist
hafá fulla stjórn á sér, þótt hún
væri óvenju föl. Hún heilsaði hon-
um rólega. — Ég var að vona að
þú kæmir.
— Ég vil að þú fylgist með þvi
sem gerist. Það er bezt fyrir alla.
— Ég er með á nótunum. Ed
Thornburg leit inn. Lissa hikaði.
— Mig tekur þetta sárt með söng-
skemmtunina i kvöld. Það hlýtur
að hafa verið hræðilegt.
— Þessa stundina finnst mér
það ekki skipta nokkru máli.
Hann opnaði ferðatöskuna á
rúminu. Þau stóðu sarrian og
horfðu á snyrtileg seðlabúntin.
Lissa tautaði: — Allir þessir pen-
ingar. Þetta er næstum óraun-
verulegt.
— Við megum vist prisa okkur
sæl fyrir, að ég skyldi geta fengið
þá i hendur.
— Ég get ekki varizt þeirri
hugsun, að ef við ættum ekki alla
þessa peninga, hefði Drew legið
öruggur i rúmi sinu núna, sagði
hún bitur i bragði. — Það rænir
enginn barni fátæks manns.
— Hub hefur bugboð um að það
sé meira saman við þetta en pen-
ingarnir. Hann heldur að einhver
hati mig.
— Þaðheldégekki. Ég get ekki
imyndað mér, að neinn hati þig,
Andy.
— Þetta var fallega sagt. Mér
hefur stundum dottið i hug að þú
gerðir það.
— Það er ekkert hatur okkar i
milli. Það hefur komið fyrir, að
ég bæri ekki sérlega mikla virð-
ingu fyrir þér, en sökin er ef til
vill ekki siður min en þin. Nú
skiptir það engu máli.
— Það er rétt hjá þér. Andy leit
á úrið sitt. Klukkan var næstum
tvö. — Ég verð vist að fara að
koma mér.
FÖSTUDAGUR 13. apríl
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.00
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og 1010.
Morgunbæn kl. 7.45. Morg-
unleikfimi kl. 7.50. Morgun-
stund barnanna kl. 8.45:
Benedikt Arnkelsson les
sögur úr Bibliunni (5). Til-
kynningar kl. 9.30. Þing-
fréttir kl. 9.45. Létt lög á
milli liða. Spjallað við
bændur kl. 10.05. Til um-
hugsunar kl. 10.25: Þáttur
um áfengismál I umsjá
Arna Gunnarssonar. Morg-
unpopp kl. 10.40: Lög eftir
Woody Guthrie. Fréttir kl.
11.00. Tónlistarsaga
(endurt. þáttur A.H.S.)
Tónleikar kl. 11.35: Josef
Suk yngri og Tékkneska fil-
harmoniusveitin leika
Fantasiu I g-moll fyrir fiðlu
og hljómsveit op. 24 eftir
Josef Suk; Karel Ancerl stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.30 Með sinu lagi, Svavar
Gests kynnir lög af hljóm-
plötum.
14.30 Siðdegissagan: ,,LIfs-
orrustan” eftir óskar Aðal-
stein.GunnarStefansson les
(12).
15.00 Miödegistónleikar:
Dönsk tónlist. Bodil Göbel,
Lone Koppel, Claus Lembek
og Kurt Westi syngja lög
eftir Peter Heise. Telmányi-
kvartettinn leikur Strengja-
kvartétt i G-dúr op. 60 eftir
Carl Nielsen.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar.
16.25 Popphornið.
17.10 Þjóðlög frá ýmsum
löndum.
17.40 Tónlistartimi barnanna.
Sigriður Pálmadóttir stjórn-
ar þættinum.
18.00 Eyjapistill. Bænarorð. “
Tónleikar. Tilkynning-
ar.18.45 Veðurfregnir. Dag-
skrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.20 Fréttaspegill.
19.35 Þingsjá. Ingólfur Krist-
jánsson sér um þáttinn.
20.00 Sinfóniskir tónleikar. a.
„Leonora”, forleikur nr. 2
op. 79 eftir Ludwig van
Beethoven. Filharmóniu-
sveit Berlinar leikuri Her-
bert von Karajan stj. b.
Pianókonsert i f-moll op. 114
eftir Max Reger. Robert
Szidon og ,útvarpshljóm-
sveitin I Frankfurt am Main
leika; Hermann Michael
stj. c. Sinfónia nr. 29 i A-dúr
(K201) eftir Wolfgang Ama-
deus Mozart. Hátiðar-
hljómsveitin i Bath leikur:
Yehudi Menuhin stj.
21.25 Éndurheimt týndrar
hjónabandshamingju. Sæ-
mundur G. Jóhannesson rit-
stj. þýðir og flytur erindi
eftir dr. John R. Rice.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passlusálma (45).
22.25 Utvarpssagan: „Ofvit-
inn“ eftir Þórberg Þórðar-
son. Þorsteinn Hannesson
les (27).
22.55 Létt músik á siðkvöldi.
Flytjendur: Kirstie Spar-
boe, Los Indios Tabaj-
aras og Ray Conniff og
félagar hans.
23.50 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Föstudagur 13. apríl 1973
20.00 Fréttir.
20.25 Veður og auglýsingar.
20.30. Norrænt skemmtikvöld i
Háskólabió. Siðari hl.
21.40 Sjónaukinn.Umræöu- og
fréttaskýringaþáttur um
innlend og erlend málefni.
22.45 Kátir söngvasveinar.
Bandariskur skemmtiþátt-
ur. Kenny Rogers og
„Frumútgáfan” leika og
syngja. Gestur þáttarins er
B.B.King. Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir.
22.50 Dagskrárlok.
“i&£csicir> ht
C/ ivnvriíSK nvnn avi.’dai r» '
INDVERSK UNDRAVERÖLD
Nýjar vörur komnar, m.a. ilskór,
útskorin borð, vegghillur, vegg-
stjakar, könnur, vasar, borðbjöllur,
öskubakkar, skálar og mangt fleira.
Einnig reykelsi og reykelsiskerin I
miklu úrvali.
Gjöfina sem veitir varanlega ánægju
fáið þér I
JASMÍN
Laugavegi 133 (viö Hlemmtorg)
FÉLAG mim HLJÓllSIHRMMi
útvegar yður hljóðfœraleikara
og hljómsveitir við hverskonar tœkifœri
Vinsamlegast hringið í 202SS milli kl. 14-17