Þjóðviljinn - 13.04.1973, Qupperneq 16
WOBVIUINN
Almennar upplýsingar ura
læknaþjónustu borgarinnar
eru gefnar i simsvara Lækna-
félags Reykjavikur, simi
18888.
Föstudagur 13. apríl. 1973.
Helgar-kvöld- og nætur-
þjónusta apótekanna i Reykja-
vik vikuna 13.-19 april er i
Laugarnesapóteki x)g i Apóteki
Austurbæjdi'.
Slysavarðstofa Borgarspital-
ans er opin allan sólarhring-
inn.
Kvöld-, nætur og helgidaga-
vakt á heilsuverndarstöðinni.
Simi 21230
Einn og einn fær neista, — en yfirleitt
óttalegur ræfill
Talsvert minna magn at
bolfiski hefur borizt á land
það sem af er vertið en
undanfarið, og er afli neta-
báta yfirleitt rýr, með
fáeinum undantekningum
þó.
Nokkuð hefur verið gert af þvi
að blása upp þorskafla Grinda-
vikurbáta undanfarna tvo daga,
en i gær fékk hæsti bátur þar,
Grindvikingur, 73 tonn af einnar
nætur fiski, og dagsaflinn þar
varð 850 tonn. Dagsaflinn á
þriðjudag varð 700 tonn i Grinda-
vik. 85 bátar leggja upp afla i
Grindavik, svo meðaltalsveiði á
bát er ekki há, og sagði vigtar-
maður þeirra Grindvíkinga að al-
gengt væri að 2-300 tonna bátar
kæmu ekki með meiri afla úr
róðri en svo sem 6 tonn.
Keflavik
Mjög léleg aflabrögð hafa verið
hjá Keflavikurbátum, en þaðan
hafa aldrei róið fleiri bátar en nú,
en þar leggja að jafnaði upp 55-60
bátar. begar bezt fætur kemst
aflinn hjá einstaka bát upp i 10-15
tonn, en yfirleitt er hver bátur
ekki með meira en 3-6 tonn i
róðri. Aðeins einh bátur af Suður-
nesjum er ennþá á loðnu, að sögn
vigtarmannsins i Keflavik. Um
siðustu mánaðamót var bolfisk-
aflinn, sem borizt hafði á land i
Kelavik, 2000 tonnum minni en á
sama tima i fyrra, og munar þar
mest um Snæfellsnesbátana, sem
Frh. á bls. 15
Um helgina var efnt til sýningar á verkum Kjarvals i félagsheimilinu Valaskjálf við Egilsstaði. Myndina tók Sibl. við opnun sýningarinnar og
sést aö þar hefur verið mikill fjöldi fólks.
Ofsareiði
Araba
vegna
árásarinnar
Beirut 12/4.
Miklar fjöldagöngur
voru farnar i dag i höfuðborg-
um Arabarikjanna til að mót-
mæla skyndiárás, manndráp-
um og mannránum Israels-
manna i höfuðborg Libanons
s.l. þriðjudag. Þá hefur Liban-
on farið fram á að öryggisráö
Sameinuðu þjóðanna haldi
fund um árásina.
Allsherjarverkfall var i öll-
um borgum Libanons i dag
vegna árásarinnar og öllum
verzlunum, skrifstofum og
skólum var lokað. Talið er að
20 manns hafi verið vegnir i
árás lsraelsmanna, þar af þrir
kunnir skæruliðaforingjar
Palestinuaraba. Hinir föllnu
voru jarðsettir i dag.
Fundur öryggisráðs Sam-
einuðu þjóðanna um árásina
verður að likindum haldinn á
föstudagsmorgun. Ambassa-
dor Libanons hjá Sameinuðu
þjóðunum sagði að Israeis-
menn hefðu gerzt sekir um
beina ofbeldisárás og brotið
alþjóðalög og allar alþjóðleg-
ar siðferðisreglur.
Ambassador Israels sagði
hins vegar i orðsendingu til
öryggisráðsins að ekki væri
hægt að virða rétt Libanon-
manna til yfirráða á eigin
landi, þar sem þeir leyfðu
skæruliðum að hafa aðstöðu i
landinu.
1 mótmælagöngunum i
Arabarikjunum i dag bar mik-
ið á and-bandariskum áróðri,
en bandariska leyniþjónustan
er sökuð um að hafa átt hlut-
deild i undirbúngingi árásar
Israelsmanna.
12 ár frá
geimferð
Gagaríns
Moskvu 12/4. — ,,Dagur geim-
ferðanna” var haldinn hátið-
legur i Sovétrikjunum til
minningarum fyrstu geimferð
manna fyrir 12 árum. bað var
hinn 12. april 1961 að Júri
Gagarin fór íyrstur manna i
ferð út i geiminn.
Geimfræðingar og aðrir
visindamenn minntust dags-
ins með ræðum og fyrirlestr-
um, og margir geimfarar
sögðu frá reynslu sinni i fjöl-
miðlum. Margir höfðu búizt
við að mönnuðu geimfari yrði
skotið á loft á þessumafmælis-
degi, en svo var ekki. En i sið-
ustu viku skutu sovézkir
visindamenn á loft ómannaðri
geimstöð, Saljut 2., og gera
menn ráð fyrir að mannað
geimfar verði látið tegnjasl
geimstöðinni. Sovétmenn hafa
ekki sent mannað geimfar á
loft siðan 1971, en þá fórust
þrir geimfarar i lendingu eftir
langa dvöl i geimnum.
Geimfarinn V.A. Sjatalov
sagði i viðtali i dag að mönnuð
geimferð hæfist bráðlega.
Málverk í eigu
Picasso
Paris 12/4. — Erfingjar hins
heimskunna listmálara, Pablo
Picassos sem lézt i siðustu
viku, hafa arfleitt
Louvre-safnið i Paris að safni
Picassos af málverkum ann-
arra nútimamálara.
Hér er um að ræða málverk
eftir marga kunnustu listmál-
ara aldarinnar, svo sem Modi-
gliani, Braque, Matisse.
Renoir, Cézanne o.fl.
Einróma samþykkt norska Stórþingsins
270 milj. króna aðstoð
vegna eldgoss í Heimaey
Norska fréttastofan
NTB tilkynnti i gær, að
norska Stórþingið hefði
einróma samþykkt að
veita islandi 14,4
miljónir norskra króna
aðstoð vegna eldgossins
i Heimaey. Upphæðin
nemur um 270 miljón-
um isl. króna.
Ætlunin er að hluti aðstoðarinn-
ar verði veittur með þvi að láta
tslendingum i té hús sem smiðuð
eru i Noregi. Aage Sögard úr
Verkamannaflokknum hafði orð
fyrir tillögunni og lagði áherzlu á
samstöðu Norðmanna með Is-
Heimsmet í
skattsvikum
Washington 12/4. — Kunnur
bandariskur fjármálaspekingur,
Edward Krock að nafni, hefur að
likindum sett heimsmet i skatt-
svikum. Hann er sakaður um að
hafa svikizt um að greiða 1.5
miljónir dollara (um 150 milj.
kr.)
Dómstóll i Boston gefur Krock
að sök að hafa svikið 2.5 miljónir
króna tekjur undan skatti á árun-
um 1966-1968. Verði hann sekur
fundinn, getur hann búizt við allt
að 27 ára fangelsi og 50 þús. doll-
ara sekt.
lendingum. Hann sagði að það
væri alvarlegt áfall fyrir Norður-
lönd ef tsland fjarlægðist á ein-
hvern hátt samfélag Norður-
landaþjóðanna. bað er i okkar
þágu og allra Norðurlandaþjóð-
anna að tilverugrundvöllur ts-
lendiga sé tryggður á landi þeirra
i framtiðinni, og með þá grund-
Paris 12/4 Þjóðfrelsis-
hreyfingin í Suður-Vietnam
sakaði í dag stjórnina um
að undirbúa innrás í
Kambódíu i samráði við
Bandarikjamenn.
Talsmaður Þjóðfrelsis-
fylkingarinnar sagði að slik
innrásmyndi hafa alvarlegar af-
leiðingar einnig fyrir ástandið i
Vietnam. Talsmaðurinn viðhafði
þessi orð eftir fund með’fulltrúum
Saigon-stjórnarinnar i Paris en
þar þinga þessir aðilar til aö
reyna að koma á eðlilegu stjórn-
málaástandi i Suður-Vietnam.
Talsmaður Þjóðfrelsis-
vallarskoðun i huga veitir Stór-
þingið tslendingum þessa opin-
beru aðstoð til viðbótar þeim
frjálsu framlögum sem áður hafa
safnazt meðal norsku
þjóðarinnar.
Þessi fjárhagsaðstoð er hlutur
Noregs i þeim 75 miljónum
króna, sem Norðurlandaráð sam-
fylkingarinnar, Ly Van Sau,
sakaði einnig Bandarikjamenn
um stöðuga ihlutan i innanrikis-
málum Vietnama og að póli-
tiskar viðræður við Saigon-
stjórn myndu ekki bera árangur
fyrr en ihlutuninni létti.
Hann sagðist hafa fengið um
það fréttir að her Saigon-stjórn-
arinnar ætlaði að ráðast inn i
Kambódiu með stuðningi Banda-
rikjamanna. Slikar hernaðarað-
gerðir gegn kambódisku þjóðinni
væru skýlaust brot á friðar-
samningunum um Vietnam.
Fulltrúar Saigon-stjórnarinnar
og Þjóðfrelsisfylki. héldu
fund i Paris i dag til að ræða
horfurnar á þingkonsingum i
þykkti að hvetja hin Norður-
löndin til að greiða tslandi til
hjálparvegna eyðileggingarinnar
á Heimaey. Aður höfðu Noregur
Finnland, Sviþjóð og Danmörk
veitt Islendingum 25 miljónir
norskra króna aðstoð vegna eld-
gossins og eyðileggingar þess.
Suður-Vietnam en enginn
árangur náðist. Eigi að siður ætla
þessir aðilar enn að ræðast við
hinn 18. april.
Haig kominn heim
Alexander Haig , útsendari
Nixons, er kominn til Washington
eftir sendiför til Inddkína. Nixon
kallaði strax saman öryggis-
málaráð sitt til þess að ræða á-
standið i Kambódiu. Haig átti
stóran þátt i undirbúningi friðar-
samninganna i Vietnam. Hann er
sagður álita að 1000 norðurviet-
namskar loftvarnarbyssur séu i
Suður-Vietnam og um 500
bryndrekar.
Þjóðfrelsisfylkingin segirz
Innrásin í Kambodíu
að undirlagi USA