Þjóðviljinn - 27.04.1973, Qupperneq 1
MOfiS
IPÓTEK
OPIÐ ÖLL KVÖLD TIL KL. 7,
NEMA LAUGARDAGA TIL KL. 2.
SUNNUDAGA MILLI KL. 1 OG 3
SlMI 40102
Framleiðsluaukning
í iðnaði á 8.1. ári
Niðurstöður „Hafsveifluvogar
iðnaðarins” fyrir árið 1972 liggja
nú fyrir. Framleiösluaukning
varð talsverð i iðnaðinum á árinu
1972 miðað við árið 1971. 1 könn-
uninni kom i ljós að hjá fyrirtækj-
um með helming mannaflans
hafði oröið framleiðsluaukning.
Er hér um að ræða heldur betri
útkomu en á fyrra ári, þegar
fyrirtæki með liðlega 41% mann-
aflans greindu frá framleiöslu-
aukningu. Sölumagn iönfyrir-
tækja vareinnig meira á sl. ári en
árið áður.
Þetta kemur fram i skýrslu
stjórnar Félags isl. iðnrekenda,
sem birt var á ársþingi þeirra i
gær. Þar kemur ennfremur fram
að nýting afkastagetu i árslok
1972 hafi verið talsvert betri en
árið áður.
HVER ER STAÐA
IÐNAÐARINS?
Þeirri spurningu er svarað í ræðu
Magnúsar Kjartanssonar á opnunni
Magnús Kjartansson, iðnaðar- Magnúsar er birt i heild á opnu.
ráðherra, flutti á ársþingi iðnrek- Meðflygjandi mynd er frá árs-
enda i gærmorgun itarlegt erindi þingi iðnrekenda. Fremst á mynd-
um stöðu iðnaðarins i dag. Erindi inni nokkrir gestir þingsins.
Erlendur Patursson
Mjög veröur vandaö til
hátiöahaldanna 1. maí að
þessu sinni. Er þaö gert í
tilefni þess að 50 ár eru nú
liðin frá þvi aö fyrsta sinni
var efnt til kröfugöngu
þann 1. mai i Reykjavik.
Ætla Bretar að
beita kafbátum?
Á þriðjudaginn var kom flugvél
landhelgisgæzlunnar TF Sýr að
brezku herskipi með einkennis-
stafina F38 rétt utan við 50 mílna
landhelgismörkin austur af Hval-
bak, nánar tiltekið 52 sjómilur frá
landi. Skammt austan við her-
skipið var þyrla á sveimi en engin
önnur skip sáust, en greinilegt
kjölfar eftir skip sást um 5 sjómil-
ur frá skipinu og telur landhelgis-
gæzlan að um kafbát hafi verið að
ræða. Herskipið er búið tækjum
til kafbátaleitar.
Þá varð flugvélin vör við 2
kyrrstæða togara s-a af Hvalbak
um 2 sjómilur innan fiskveiðitak-
markanna en skömmu áður en
flugvélin kom að þeim settu þeir á
fulla ferð. Þegar flogið var yfir þá
kom i ljós aö þeir voru með óbúlk-
uð veiðarfæri og hlerar i gálgum
utanborðs. öðrum togaranum var
gefið stöðvunarmerki, sem hann
sinnti ekki, og sigldu báðir togar-
arnir til hafs og sögðust ekki hafa
verið að ólöglegum veiðum innan
fiskveiðimarkanna.
1 þessari sömu ferð taldi TF Sýr
erlendu togarana sem voru að
veiðum við.landið. Kom i ljós að
flestir þeirra voru s-a af Hvalbak.
Einnig voru erlendir togarar á
Selvogsbanka, útaf Reykjanesi og
i Hornál. Samtals voru um 60 er-
lendir togarar að veiðum við
landið. _ s dór
Guðmundur J. Guðmundsson
Þjóöviljinn ræddi i gær viö
Guðmund J .
Guðmundsson, varafor-
mann Verkamanna-
Viðræðum
lokið
í gær lauk í Edinborg
tveggja daga viðræðum
milli Breta annars vegar
og Dana og Færeyinga
hins vegar um veiðar
utan við 12 mílna land-
helgi Færeyja. Náðist
samkomulag um að
hvetja til verndunar
fiskistofna við Færeyja.
Verður þeim tilmælum
komið á framfæri við
fund Norðaustur-Atlanz-
hafsnefndarinnar sem
haldinn verður í London
í næsta mánuði. Báðir
aðilar vildu leggja til við
allar þær þjóðir sem
sækja á miðin við
Færeyja og Færeyinga
einnig að veiðar þar
verði takmarkaðar. Þó
eiga Færeyingar að
njóta einhverra sérrétt-
inda en ekki var kveðið
nánar á um þau í yfir-
lýsingunni sem gefin var
út í lok viðræðnanna.
hátíðarhöld
ltúnar Hachmann
félagsins Dagsbrúnar, en
hann á sæti i 1. maí nefnd
Fulltrúaráðs verkalýðs-
félaganna i Reykjavík.
Reykjavík
Pétur Sigurðsson
Guðmundur sagði:
Dagurinn er mjög i merki
sögunnar. Þeir sem þátt tóku i
kröfugöngunum fyrstu 10 árin
munu safnast saman i portinu við
Mjólkurstöðina. Þaðan halda þeir
i blysför niöur á Hlemm og þar
verður tekið á móti þeim með
ræðu sem Sigfús Bjarnas. form.
Sjómannafélags Reykjavikur,
flytur. Þeir munu siðan ganga
fyrir kröfugöngunni niður allan
Laugaveg með blys og undir kröf-
um 1. mai-göngunnar 1923.
Laugavegurinn verður allur
skreyttur með borðum og
áletrunum þar sem minnzt
verður merkra áfanga i baráttu
verkalýðsins. Þá verða að sjálf-
sögðu bornar i göngunni kröfur
dagsins og svo framtiðarkröfur
einsog „Maðurinn i öndvegi”, en
sú krafa verður strengd yfir
Útvegsbankahúsið á Lækjartorgi
þar sem útifundurinn fer fram.
1 göngunni verður talkór undir
stjórn Péturs Péturssonar, út-
varpsþuls, og á Lækjartorgi mun
trió leikara flytja söngtexta og
annað efni. Iðnnemar eru nú i
fyrsta sinn aðilar að 1. mai-
nefndinni og i göngunni munu
þeir draga hestkerru gamla og
aflóga en hún á að vera tákn um
hið úrelta meistarakerfi.
Frh. á bls. 15
Yegleg
1. maí
í
Virðisaukaskattur í stað söluskatts
Meöal iðnrekenda er
mikill áhugi á að komið
veriö á virðisaukaskatti
hérlendis. Kom þetta skýrt
fram i ræðu Gunnars J.
Friðrikssonar, formanns
Félags ísl. iðnrekenda, á
ársþingi félagsins sem
haldinn var i Rvík i gær-
dag. Taldi Gunnar að
virðisaukaskattur skapaði
iðnaði betri samkeppnisað-
stöðu en venjulegur sölu-
skattur.
Framkvæmd virðisaukaskatts
er yfirleitt þannig að hann er
lagður á allar vörur og alla
þjónustu, en þegar fyrirtæki gerir
upp sinn viröisaukaskatt fær þaö
frádreginn allan þann virðis-
aukaskatt sem það hefur áður
greitt öðrum. Þegar iðnfyrirtæki
gerir upp sinn virðisaukaskatt við
rikissjóð fær það frádreginn þann
skatt sem það hefur greitt öðrum
af rekstrarvörum og vélum.
Áhugi iðnrekenda á virðisauka-
skattinum kom m.a. fram i þvi að
skattrannsóknarstjóri ölafur
Nílsson flutti á ársþingi iðn-
rekenda erindi um virðisauka-
saktt.