Þjóðviljinn - 27.04.1973, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 27.04.1973, Qupperneq 3
Föstudagur 27. aprn 1973. ÞJ6ÐVILJINN — SÍÐA 3 Þrjár stofnanir í eina starfsemi þeirra stofnana rikisins er vinna að sérfræðilegum rannsóknum og tækniaðstoð við iðnaöinn, i eina allsherjar tækni- stofnun.” Nefndin hefur fyrir nokkru skilað áliti og er i upphafi þessarar fréttar sagt frá megin- atriði i tillögum nefndarinnar. Ein helzta nýjungin i tillögum iðnþróunarmiðstöð i nefndaráliti um tækni- stofnanir iðnaðarins er gert ráð fyrir, að þeim þremur stofnunum sem nú vinna að tæknimálum iðnaðar verði steypt saman i eina. Hér er um að ræða Iðnþróunar- stofnun Islands, Rannsóknarstofnun iðnaðarins og Rannsóknar- stofnun byggingar- iðnaðarins. Er i tillögum nefndarinnar gert ráð fyrir að þær renni saman í eina stofnun er beri heitið Iðn- þróunarmiðstöð Islands. betta kom fram á ársþingi iðn- rekenda i Rvik i gær. Það var i mai 1972 að Magnús Kjartansson, iðnaðarráðherra, skipaöi nefnd til þess aö „vinna að þvi að samhæfa nefndarinnar er sú að stofnuð verði fræðsludeild, sem hafi það verkefni að þjálfa og mennta starfsfólk iönaöarins og sæki sú deild kennsluliö sitt að mestu i aðrar deildir lðnþróunarmið- stöðvarinnar. Deildir Iðn- þróunarmiðstöövar eiga aö skiptast i skorir sem gert er ráð fyrir að þjónað geti sérstökum af- mörkuðum greinum iönaðarins. Hekla bætir við sig Frá og með mánaöamótunum verður P. Stefánsson h.f. einka- umboðsaðili fyrir Austin, Morris, M.G., Triumph, Jaguar, Land Rover, Range Rover og Rover bifreiðar. P. Stefánsson h.f. var stofnað 1906, en 1953 keypti Sigfús Bjarnason i Heklu fyrirtækið. bað er British Leyland Motor Corporation sem framleiðir ofan- nefndar bifreiðar. Útflutningur iðnaðarvara án áls nam árið 1972 1.164 milj. kr. sem er aukning um-31% frá fyrra ári. bá nam útflutningur iðnaðar- vara 889 milj. kr. Mest varð aukningin i prjónavöruiðnaði og fatnaði eða um 102 milj. kr., i skinnavörum 79 milj. kr. og niðursuðuvörum 53 milj. kr. Landburður af fiski á Suðurlandshöfnum Huginn 2. kom með 91 lest til Þorlákshafnar sem er mesti afli á bát yfir vertíðina Þrjú varðskip í höfn i fyrradag er við áttum leið um höfnina voru þrjú varðskip samtimis i höfn eins og Ijós- myndin hér að ofan sýnir. Margir hafa hringt eða haft samband við okkur með öðrum hætti hér á Þjóðviljan- um og látiö i Ijós undrun sina og sumir reiði yfir þvi hve oft varðskipin eru i höfn og oft fleiri en eitt i einu, mcðan brezk og v-þýzk skip gera sifelt meiri usla á miöunum innan 50 milna markanna og átökin á miðunum liarðna. Það væri þvi kannski ástæða til að spyrja hvers vegna varðskipin eru svo oft i höfn sem raun ber vitni og hvort ekki væri hægt að breyta þvi. —S.dór. 183 í FÍI Það kom fram á ársþingi Félags. isl. iðnrekenda i gær að 183 fyrirtæki eru nú aðilar að félaginu. 1 gær og fyrradag var land- burður af fiski á flestar hafnir við suðurströndina, þótt mest bærist til Þorlákshafnar og Grindavfkur að venju þegar mikið veiöist. i fyrri nótt og fram til hádegis I gær var landað úr 55 bátum i Þorláks- höfn og var slik örtröð við höfnina og hafnarvogina að menn þar eystra muna ekki annaö eins. Úr þcssum bátum komu á land 1325 tonn og var ekkert lát á löndun i gærdag. Þcgar við höfðum sam- band við Þorlákshöfn um miöjan dag i gær var verið að landa úr 5 bátum og sögðu þeir á hafnar- voginni að stanzlaus löndun yrði allan daginn. „Þétta hefur verið alger örtröð hjá okkur við höfnina dag eftir dag. Höfnin i Þorlákshöfn þolir þetta alls ekki og við hér i hafnar- skúrnum erum að verða vitlausir á öllu argaþrasinu. Skúrinn okkar er miðstöð alls hérna þessa dagana. Og allir vilja hafa for- gang og verða vondir ef þeir hafa hann ekki. Við erum bara tveir á vigtinni og höfum ekki orðið tima til að borða né sofa. Þetta helviti getur ekki gengið svona til lengur, það verður að laga að- stöðuna hér ef stefna á öllum flotanum hingað eins og gert hefur verið i vetur”. Þetta voru orð annars vigtar- mannsins i Þorlákshöfn, og er greinilegt á þeim að mikið hefur gengið á þar eystra þvi að þeir eru vist orðnir ýmsu vanir á vigtinni i Þorlákshöfn. Aflahæstur þeirra báta sem lönduðu i Þorlákshöfn var Krist- björg með 63 tonn en svo kom Kópur með 56 tonn, nokkrir höfðu milli 40 og 50 tonn en eins voru margir sem fóru niðurfyrir 10 tonn. Meðalaflinn var um 20 tonn á bát. Ekki lá nærri að undan hefðist að vinna aflann i Þorláks- höfn og var honum ekið þaðan til ýmsra staða m.a. uppá Akranes. En það sem gerir þessa fisk- flutninga mjög erfiða er að um þessar mundir eru i gildi öxul- þungatakmarkanir á vegum viða og tefja þær mjög mikið fyrir þessum fiskflutningi. 1 Grindavik var einnig mikið um að vera i gær og fyrrakvöld við löndun úr bátum. Þar gerðist það að Huginn 2. kom að landi með 91 lest af fiski eftir tvær lagnirog þess má raunar geta að allur þessi afli, sem bátar hafa verið að koma með til Þorláks- hafnar og viðar, er afli eftir tvær lagnir þannig að helmingur aflans er 2ja nátta fiskur. Annars sögðu þeir i Grindavik að aflinn þar i gær og fyrradag hefði ekki verið neitt sérstaklega mikill utan hjá þeim bátum sem komu af Eyjamiðum. Hinir voru bara með sæmilegan afla. Flestir þeirra báta sem komu af Eyja- miðunum voru með 40 til 60 tonn af góðum fiski. Þess má að lokum geta að jafn mikill afli er nú kominn á land i Grindavik og á allri vertiðinni i fyrra og i Þorlákshöfn er hann nær tvisvar sinnum meiri en þess bera að geta að Eyjaflotinn landar nú i þessum verstöðvum i stað heimahafnar eins og var i fyrra. —S.dór. SAGA — nýtt skip í íslenzka flotann I gær kom til Reykjavfkur flutningaskipið SAGA, sem fyrir- tækið Sjólciðir hf. keypti nýlega I Finnlandi. Skipið, sem er smfðað i Sviþjóð árið 1963, er 1856 lestir og kostaði um 50 miljónir króna. Skipstjórinn, Sigurður Markús- son, sagði fréttamanni blaðsins að skipið hefði verið afhent i Lu- beck i V-Þýzkalandi 21. marz s.l. Þaðan var siglt til Rotterdam og teknar mjólkurvörur, sem fluttar voru til Grikklands. Frá Grikk- landi var haldið til Túnis og þaðan i Sigurður Markússon, ” skipstjóri kom skipið með saltfarm til Is- lands, sem búiö er að losa á nær- liggjandi höfnum. Næst siglir skipið saltfisk til Portúgals. Skipið, sem gengur 12 sjómilur, reyndist i alla staði mjög vel i ferðinni. Það er búiö öllum nýj- ustu siglingatækjum. Ahöfnin er 11 manns og hafa allir skipverjar eins manns klefa. 1 stjórn Sjóleiða hf. eiga sæti Sigurður Markússon, skipstjóri. Jóhannes A. Markússon, flug stjóri og Halldór Jónsson, loft skeytamaður. SAGA við bryggju l i Reykjavík '

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.