Þjóðviljinn - 27.04.1973, Síða 5

Þjóðviljinn - 27.04.1973, Síða 5
Föstudagur 27. apríl 1973. ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 5 Úr skjalasöfnum stríðsáranna: Trygve Lie vildi leggja Fœreyjar undir Noreg Bauð Bretum og USA herstöðvar til langframa Trygve Lie: hann lofaöi herstöövum I Noregi til iangframa. Trygve Lie, utanríkis- ráöherra norsku útlaga- stjórnarinnar i London á stríðsárunum, virðist hafa verið einn af þeim fyrstu, a.m.k. á Norðurlöndum, sem hafði bug á þvi að stofna eins konar NATO. Þegarárið 1941 bjó hann til áætlun um varnarsáttmála á Norður-Atlanzhafi milli Bretlands, Bandaríkjanna og Noregs. í áætluninni var gert ráð fyrir þvi að Dan- mörku yrði haldið utan við slíkt samstarf, að island yrði sjálfstætt ríki og að Færeyjaryrðu norskt land. Um leið áttu Bretar og Bandarikjamenn að fá her- stöðvar í Noregi til lang- frama. Frá þessu segir i nýlegri grein eftir Jan Tystad i norska Dag- bladet. Tystad segir aö á þessum tima hafi verið útbreiddur á Bretlandi fiandskapur i garð Dana og hafi Trygve Lie leikið á þá strengi. Andúðin á Dönum stafaði af þvi að þeir hefðu ekki snúizt til varn- ar er Þjóðverjar gerðu innrás i Við þorum þegar hinir þegja Aðeins 11 dönsk blöð fengu heimild prentarasambandsins danska til þess að koma út meðan verkfalliö stóð yfir i Danmörku. Þessi blöð eru: Aktueit, Land og Folk, Information, Börsen, Mini- avisen, Folkebladet, Randers, Sönderjyden, Bornholmeren og Ny dag i Nakskov. Það er alsiða á Norður- löndunum að þau blöð sem styðja verkalyðshreyfinguna i kjarabar- áttu hennar fá að koma út enda þótt prentarar séu i verkfaHi. Þetta á þó ekki við um lsland. Bidstrup skopteiknarinn snjalli teiknaði meðfylgjandi mynd þar sem hann gerir grin að blöðunum sem bannað er að koma út. t text- anum undir myndinni segir Bid- strup: „Lesendur siðdegisblað- anna sem nú fá ekki að koma út vegna verkfallsins, sakna áreiðanlega nakins sannleikans. Til þess að auðvelda þeim að fara að lesa Land og Folk birtum við til huggunar þessa mynd”- og auðvitað er fyrirsögnin með myndinni „Við þorum þegar hinir þegja’,en það er slagorð Extra- blaðsins danska. landið og afhent þeim árið 1941 sex tundurskeytabáta i stað þess að sökkva þeim. Það er sagt að Trygve Lie hafi búið til það orðatiltæki sem siðan fór viða i klúbbunum i London um þetta leyti: „Danmörk á ekki að fá leyfi til að ferðast á fyrsta farrými i lest bandamanna út á annars flokks farmiða. Danmörk verður að vera á öðru farrými þar til landið hefur greitt mismuninn á miðaverði.” Vandamálið Færeyjar Fyrstu viðbrögð Breta við áætl- un Lies má finna i athugasemd- um Johns Dashwoods, deildar- stjóra i utanrikisráðuneytinu, frá 5. april 1941. Skýrslan byggir á samtali milli Cecil Dormers (fyrrum sendiherra Breta i Osló) og Trygve Lie. Þar er það m.a. haft eftir Trygve Lie að það „réði úrslitum um frið á Atlanzhafi að Stóra-Bretland, Bandarikin og Noregur bæru i sameiningu ábyrgð á loft- og sjóvörnum Grænlands, Islands og Færeyja með þvi að koma upp herbæki- stöðvum i löndum þessum. Island mundi óska eftir sjálfstæði, Nor- egur vildi gjarna eignast Færeyj- ar og bæði Bretland og Bandarik- in áttu að fá herstöðvar i Noregi.” Flotamálaráðuneytið var beðið um að láta i ljós álit sitt á þessum málum. Um leið vakti brezka ut- anrikisráðuneytið athygli á þvi að það yrði erfitt að ráðstafa Fær- eyjum með þessum hætti, nema þá að ibúarnir bæðu um samein- ingu við Noreg, sem óliklegt var talið. Flotamálaráðuneytið svar- ar þvi til, að það beri að taka und- ir hugmyndir Trygve Lies vegna þess að „það sé enginn vafi á hernaðarlegri þýðingu Islands, Grænlands og Færeyja” — eins og þar stendur. John Dashwood mælir með þvi að Dönum sé það gert alveg ljóst að hvaða banda- maður sem væri eigi að hafa rétt til að koma á til langframa her- stöðvum i Færeyjum. Hann er mjög harðorður um slælegt fram- lag Dana til styrjaldarinnar. Iðinn við kolann Hvað eftir annað kemur Trygve Lie að þessari áætlun sínni i við- ræðum við Breta. Hitt er svo ann- að mál,,að þegar hann síðar reit endurminningar sinar, „Með Englandi i eldlinunni” og „Heim á leið,” lét hann þess ógetið, að hann hefði lofað Bandarikja- mönnum og Bretum herstöðvum i Noregi gegn þvi að fá Færeyjar og að Dönum yrði haldið utan dyra. Hann nefnir þar aðeins þær áætlanir, sem norska útlaga- stjórnin lagði fram opinberlega, en þær voru mjög almenns eðlis. En Norðurlandadeild brezka ut- anrikisráðuneytisins visaði þeim reyndar á bug þann 12. nóvember 1941. Þar segir i yfirlýsingu frá þáverandi deildarstjóra, C.F.A. Warner: „Viðgetum ekki fallizt á að Færeyjar verði eftir strið af- hentar Noregi vegna þeirra lof- orða sem við gáfum þegar við hernámum Island. Ég efast um að hægt sé að fylgja þessu máli lengur eftir nú...” En sem fyrr segir þá lét Trygve Lie sig ekki. Hann tekur málið upp við Eden utanrikisráöherra i desember sama ár. Eden segir i skýrslu, að Lie hafi heimsótt sig og mælt með ensk-norsku varnar- bandalagi eftir strið og megi Bandarikin gjarna vera með. „Samkvæmt slikri áætlun verða norskar herstöðvar fengnar okk- ur til umráða og yrðu löndin al- gjörir bandamenn og hvort öðru háð”. Eden tekur ekki illa undir þetta og spyr um Sovétrikin. Lie svarar þvi til, að hann hafi ein- mitt þau i huga m.a. i sambandi við slika áætlun. Mál þetta kemur svo aftur upp árið 1942. Þá ræðir norska útlaga- stjórnin um að þörf sé á að fá Breta og Bandarikjamenn i varn- arsamstarf og siðar er Svium bætt við einnig. Trygve Lie vill fara til Bandarikjanna i nóvem- ber það ár til þess að bjóða þeim herstöðvar i Noregi, en aðrir ráð- herrar i útlagastjórninni hika við: „Við ættum ekki að ganga lengra nú en að koma okkur sam- an um að rannsaka allar tillög- ur,” segja þeir. Eftir þetta heyrist ekki meira um tillögur Trygve Lies. Ekki er framar gert tilkall til Færeyja, svo mikið er vist. Hitt er svo ann- að mál, að norskir sósialdemó- kratar og ekki sizt Trygve Lie urðu einhverjir hatrömmustu Natósinnar þegar það bandalag kom á dagskrá — og þeim var einmitt óspart hampað þegar freista átti tslendinga til inn- göngu. (áb. tók saman.) Yiljum fullan samningsrétt Aðalfundur Félags Islenzkra simamanna var haldinn laugar- daginn 7. april s.I. i Reykjavik. Formaður fclagsins, Agúst Geirsson, flutti skýrslu fram- kvæmdastjórnar félagsins fyrir liðið starfsár, en þar kom fram m.a.: Á siðasta starfsári hafa launa- mál simamanna aðallega ein- kennzt af málarekstri vegna ágreinings og framkvæmdar á siðasta kjarasamningi, einkum varðandi röðun bæði einstaklinga og starfshópa i launaflokka. Félagið sendi Kjaranefnd kærur fyrir um 160 starfsmenn Pósts & sima. Samkomulag náðist um launaflokka um 30þessara starfs- manna, án þess að mál þeirra færu til dóms. Kjaranefnd hefur fellt dóm í málum samtals 87 félagsmanna FIS, þar af fékk 51 enga úrlausn, en 36 fengu viður- kenningu á kröfum sinum að fullu eða að einhverju leyti. Þannig féllst Kjaranefnd á kröfur 7 starfsmanna, en dæmdi 29 starfs- mönnum einhverja launaflokka- hækkun. Enn hefur Kjaranefnd ekki fellt úrskurð i málum u.þ.b. 40 félagsmanna FIS. En BSRB og samninganefnd rikisins hafa nú tekið upp viðræður um þessi óloknu mál til að reyna að ná samkomulagi um þau á grundvelli þeirra úrslita, sem fengizt hafa i öðrum málum. A siðastliðnu ári voru tekin i notkun 4 ný orlofshús (fjölskyldu- hús) á landi FIS. við Apavatn. Nýlega ákvað félagið að festa kaup á 2 orlofshúsum i Munaðar- nesi, en þar á félagið eitt hús fyrir. Ályktanir fundarins Eftirfarandi ályktanir voru samþykktar samhljóða á aðal- fundi Félags isl. simamanna 7. april s.l.: Samningsréttur: „Aðalfundur FIS haldinn 7. april 1973 harmar, að ekki hefur verið staðið við gefin fyrirheit um fullan samningsrétt til handa opin- berum starfsmönnum. Telur fundurinn að frumvarp það til laga um kjarasamninga opinberra starfsmamna, sem nú liggur fyrir Alþingi, verði til að tefja enn framgang málsins um fullan samningsrétt. Verði frumvarpið að lögum, telur fundurinn, að athuga beri, hvort 3. grein þess kveði ekki á um rétt félagsins til að fara með allan samningsréttinn”. Lifeyrissjóðsmál: „Aðalfundur FIS skorar á BSRB af gefnu til- efni að standa traustan vörð um Frh. á bls. 15

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.