Þjóðviljinn - 27.04.1973, Qupperneq 16
JOmiUINN
Almennar upplýsingar unj
læknaþjónustu borgarinnar
eru gefnar i simsvara Lækna-
félags Reykjavikur, simi
18888.
Helgar-kvöld- og nætur-
þjónusta apótekanna i Reykja-
vík vikuna 13.-1« april er i
Laugarnesapótekiog i Apóteki
Austurbæjdi'.
blysavarostofa Borgarspital-
ans er opin allan sólarhring-
inn.
Kvöld-, nætur og helgidaga-
vakt á heilsuverpijarstöðinni.
Simi 21230.
Hlekktist
geimrann-
sóknarstöð-
mni ar
WASHINGTON 26/4. —
Bandarískir geimsér-
fræðingar héldu því
fram í gær, að f lest benti
til þess að alvarlegt
óhapp hafi hent sovézku
geimrannsóknarstöðina
Saljút 2.
Telja sérfræðingar að
stöðin hafi orðið fyrir því
tjóni að ekki sé lengur
mögulegt að senda á loft
geimfara til að manna
hana. Líklegt er talið að
óhappið hafi gerzt þann
14. arpíl, elleftu dogum
eftir að Saljút 2 fór á
loft.
STOKKHÖLMI 26/4 — Lagt
hefur verið fram á sænska
þinginu stjórnarfrumvarp um
breytingu á lögum um prent-
frelsi. Felur hún i sér að bann við
auglýsingum á áfengi og tóbaki
gangi i gildi i Sviþjóð á næsta ári.
Dœmi um rányrkju
Samkvæmt löndunarskýrslum Breta lönduSu eftirtaldir
togarar fiski í Grimsby af íslandsmiðum dagana 9. - 13. april:
Dags. Nafn. Þor skafli (Kits) Þar af ókynþroska smáþorskur(codling) (Kits) % ókynþroska smáþorsks í þorskaflanum
9/4/73 B. ROVERS 606 378 62. 37
II BARNSLEY 811 563 69.42
II ALDERSHOT 309 223 72. 16
11 N. EAGLE 410 257 62. 68
10/4/73 ROSS KHARTOUM 916 674 73. 58
II KANDAHER 659 448 67.98
11 HULL CITY 1082 489 45. 19
11/4/73 N. CHIEF 474 l?.l 68. 14
tl B. BOEING 739 398 53.85
12/4/73 C-Y. TOWN 681 548 80.46
II VIANOVA 817 560 68. 54
13/4/73 ROSS KELVIN 445 244 54.83
II PORT VALE 649 403 62. 09
Eldflaugaárás á flug-
völlinn við Phnom Penh
PHNOM PENH 26/4 —
Sveitir Þjóðfrelsishersins í
Kambodju gerðu í dag eld-
flaugaárásir á stöðvarand-
stæðinga sinna í nánd við
flugvöll höfuðborgarinnar.
Eldflaugarnar, sem draga
um 12 km, grönduðu nokkr-
um skotfærageymslum og
olíutönkum en flugvöllinn
sjálfan skaöaði ekki.
Þjóðfrelsisherinn heldur höfuð-
borginni i herkvi sem fyrr og
virðast loftárásir Bandarikja-
manna á stöðvar þeirra litt hafa
stoðað her Lon Nols i við
leitni til gagnsóknar.
Reyndi hann i gær að endur-
heimta þorp eitt um 17 km frá
borginni en urðu þær sveitir aftur
að snúa eftir all snarpa viöureign.
Eldflaugaárásin er hin fyrsta
siðan i janúar.
Fréttir herma og, að Þjóð-
frelsisherinn hafi gert árásir á
eina af útborgum Phnom Penh og
slegið hring um hana.
Víða er Þjóðfrelsisherinn að-
eins i þriggja kilómetra fjarlægð
frá höfuðborginni og nokkur hluti
hans er enn i grennd við aðalflug-
völl borgarinnar.
Hersveitir Lon Nols hafa fengið
skipun um að búa sig undir enn
eina gagnsókn.
Viðræður
Ákveðið hefur verið að
viðræður milli fulltrúa
ríkisstjórna Islands og
Bretlands um land-
helgismálið fari fram í
Reykjavík dagana 3. og
4 maí n.k.
Deilt um
aðsetur
Mirage-
flugvéla
JERÚSALEM 26/4. — Abb.
Eban, utanrikisráðherra lsra-
els, sagði siðastliðinn fimmtu-
dag, að israeisstjórn hefði
afhent frönsku rikisstjórninni
óhrekjandi sannanir fyrir þvi,
að Egyptar hefðu fengið
Mirageorustuþotur frá Libýu-
mönnum. En þotur þessar
fengu Libýumenn hjá
Frökkum með þvi fororði, að
ekki mætti afhenda þær striðs-
aðilum i Palestinu.
Joseph Comiti, upplýsinga-
málaráðherra frönsku ríkis-
stjórnarinnar sagði, að bæði
Libýumenn og Egyptar hefðu
fullvissað frönsku stjórnin um
að staðhæfingar ísraelsmanna
væru uppspuni.
Á blaðamannafundi i
Jerúsalem sagði Eban, að
hann hefði afhent sendiherra
Frakka i Israel upplýsingar
um, hvaða daga hinar ýmsu
flugvélar hefðu verið afhentar
Egyptum , hvaða libýskum
flugvöllum þær hefðu lagt upp
frá og til hvaða flugvalla i
Egyptalandi þeim hefði verið
flogið.
Alls hafa Frakkar selt
Libýumönnum 111 Mirage-
þotur.
Enn vex
Missisippi
ST. Louis 26/4. — Að minnsta
kosti sex manneskjur drukknuðu i
fyrrinótt, þegar flóðgarðar brustu
við neðra hluta Missisippiárinnar
i Bandarikjunum, og þúsundir
hektara af akurlendi fóru i kaf.
Þetta eru mestu flóð, sem orðið
hafa i ánni i meir en tvær aldir.
Rikisstjórnin i Illinois hefur beðið
Nixon forseta að lýsa yfir neyðar-
ástandi i rikinu.
Þúsundir manna urðu að flýja
allt hvað af tók, þegar flóðgarð-
arnir brustu, en fjöldi manna
hafði um alllangan tima unnið við
að styrkja þá. Talið er að
verðmætatjón af völdum fióðanna
nemi nú þegar mörgum miljónum
dollara.
Visindamenn telja, að flóðið
muni ná hápunkti laugardags-
kvöld. Margir telja að þá verði
yfirborð vatnsins hærra en
nokkru sinni fyrr.
Hermaður úr liði Lon Nols dregur fallinn félaga sinn á byssu sinni frá
bardaga skammt frá höfuðborginni.
Munchenarsamning-
urinn endurskoðaður
PRAG 26/4. — Fréttir frá Prag
herma, að samningaviðræður
Tékka og Vestur Þjóðverja um (
eðlileg samskipti rikjanna hefjist
i Prag þann 7. mai.
Akvörðun um viðræður var
tekin i Bonn fyrir hálfum mánuði,
en þá höfðu fulltrúar rikjanna
ræðzt við nokkrum sinnum.
>
Bohuslav Chnoupek, utanrikis-
ráðherra Tékka, sagði á blaða-
mannafundi i Prag i dag, að við-
ræðurnar byggðust á þvi, að
kröfur beggja aðila væru
sveigjanlegar. En af tillitssemi
við Vestur-Þjóðverja vildi hann
ekki gefa nánari upplýsingar um
viðræðurnar.
Undirstaða viðræðnanna, er sú
yfirlýsing Bonnstjórnarinnar, aö
hún sé fús til að falla frá
Munchenarsamkomulaginu frá
1938. En þá fékk Þriðja rikið
væna sneið af Tékkóslóvakiu með
samþykki Vesturveldanna.
Chnoupek sagðist meta mikils
afstöðu Bonnstjórnarinnar i
þessum málum og kvaðst vona,
að viðræðurnar i Prag yrðu jati.-'
vinsamlegar og undirbúningsvið-
ræðurnar i Bonn.
Karlakórinn Vísir:
SÖNGSKEMMTUN í HÁSKÓLABÍÓI í KYÖLD
Karlakórinn Visir frá Siglufirði
sem verið hefur i söngferðalagi
hér sunnan fjalla siðustu daga
heldur söngskemmtun i Háskóla-
biói i Reykjavik i kvöld og hefst
hún kl. 19. Þetla er fyrsta söng-
skemmtun kórsins i Reykjavik að
þessu sinni. en á morgun mun
kórin aftur halda skemmtun i
Háskólabiói og hefst hún kl. 15.
í gærkveldi söng kórinn i sam-
komuhúsinu Borg i Grimsnesi og
komust færri að en vildu en svo
hefur verið á öllum þeim stöðum
sem kórinn hefur haldið söng-
skemmtanir á i þessari ferð.
Annað kvöld heldur svo kórinn
árshátið sina að Hótel Loftleiðum
og verður þar mikið um dýrðir
eins og vera ber. Þangað eru allir
velunnarar kórsins hér syðra vel-
komnir meðan húsrúm leyfir. Er
ekki að efa að burtfluttir Sigl-
firðingar komi þangað og
skemmti sér með þessum vinsæla
karlakór. —S.dór.
Skipti á
pólitískum
föngum
SAIGON, 26.4. — Fulltrúar
Saigonstjórnarinnar og Þjóð-
frelsisfylkingarinnar upplýstu i
gær, að þeir hygðust skipta á 1387
borgaralegum föngum á morgun.
Samkvæmt vopnahléssáttmálan-
um i Vietnam eiga allir fangar að
vera lausir fyrir þennan tima.
Saigonstjórnin ætlar að láta 750
pólitiska fanga lausa, en Þjóð-
frelsisfylkingin 637 fanga. Báðir
aðilar hafa sakað hvor annan um
aðhafa miklu fleiri fanga i haldi.
Og fjölmargir aðilar hafa stað-
hæft, að pólitiskir fangar Saigon-
stjórnarinnar skipti þúsundum.
FréttirfráParis
herma, að samningavið
ræðum fulltrúa Saigon-
stjórnarinnar og Þjóðfrelsisfylk-
ingarinnar um pólitiska framtið
Suður-Vietnam miði litt eða ekk-
ert áfram.
1 Saigon er sagt, að nálægt 23
þúsundum manna hafi látið lifið i
bardögum eftir að vopnahlés-
samningarnir gengu i gildi þann
28. janúar siðastliðinn.