Þjóðviljinn - 05.05.1973, Síða 15
Föstudagur 4. mai 1973 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 1
Útvarpsannáll
Framhald af bls. 4.
Sumir kaffigestir hafa verið að
reka hnýflana i Passiusálmana
og vilja leggja lestur þeirra niður.
Ég get ekki tekið undir þetta.
Passiusálmarnir eiga enn svo
mikil itök i hugum fólks, hvort
sem það er litiltrúað, eða brenn-
andi i andanum, að það er ekki
timabært að taka þá út af dag-
skrá, hvað sem siðar kann aö
verða. Hinsvegar ættu prestar
ekki að fikta við Passiusálmalest-
ur. Þeir eru með allskonar leik-
aratilburði, að útvatna þá og gera
úr þeim nútimaguðfræði.
Viljum við njóta Passiusálm-
anna, eigum við að koma til Hall-
grims, en lofa honum að vera
kyrrum á sinni 17. öld.
Engum hefir tekizt þetta betur
en þeim Magnúsi i Skörðum og
Jóni Helgasyni prófessor.
I listaþættinum „Glugginn”,
sem fluttur var á skirdag, var frá
þvi sagt, að einhver náungi, sem
ég kann ekki að nefna, væri búinn
að semja ný lög við Passiusálm-
ana, og svo söng tónskáldið eitt af
þessum lögum. Það var við sálm-
inn um útleiðslu Krists úr þing-
húsinu, og það spilaði auk þess
undir á eitthvert hljóðfæri.
Það setti að mér hroll, þegar ég
heyrði þennan söng. Hann minnti
mig á eitthvað, sem ég hafði ein-
hvern tima heyrt talað um eða
lesið um i bókum og þótti ekki
fallegt athæfi. Ég braut iengi
hugann um, hvað þetta var, sem
söngurinn minnti mig á. Og loks-
ins kom það. Það var kallað að
snúa Faðirvorinu upp á Andskot-
ann og var talinn frekar óhugnan-
legur verknaður.
Tímasprengjur
i fréttunum
Fréttir þær, sem útvarpið
flytur okkur dag hvern, geta verið
bæði illar eða góðar, sorglegar
eða gleðilegar.
En stundum gerast atburðir,
sem i sjálfu sér eru hvorki góðir
né vondir, aðeins skemmtilegir,
nokkurs konar krydd út á bragð-
lausan hversdagsleikann. Þá
reynir á hæfni fréttamanna, að
koma slikum atburðum til skila,
þannig að þeir njóti sin i eyrum
hlustendanna eins og efni standa
til. En við slik tækifæri setja
fréttamennirnir venjulega upp
heilagra manna ásjónur og með-
höndla fréttina likt og þeir væru
að gera óvirka hættulega tima-
sprengju.
Svo var það til dæmis i haust er
leið, þegar Helgi Hóseasson sletti
skyrinu á handhafa hins timan-
lega og eilffa valds.
Svo var það einnig hér á dögun-
um, þegar konurnar að austan
stálu senunni frá kynsystrum
sinum i höfuðstaðnum, sem
ætluðu að fylla þingpallana til
þess að mótmæla búvöruverðs-
hækkuninni.
Úr þessu hefði mátt gera bráð-
skemmtilega sögu, án þess að
halla nokkurs staðar réttu máli
eða hvika frá staðrevndum.
Svo var það nokkru seinna, að
nokkrar af þessum útistöðu-
konum sóttu að Gunnari Guð-
bjartssyni i þættinum Bein linaog
lögðu fyrir hann hinar fávis-
legustu spurningar.
Gunnar varðist þessum
bardagaglöðu konum vel, en hefði
þó gjarna mátt vera dálitið harð-
skeyttari.
Það kom fram hjá Dagrúnu
Kristjánsdóttur, sem heyrzt hefur
einnig i blöðum, að þessu
upphlaupi reykviskra húsmæðra
hafi ekki verið beint gegn
bændum. Um slika fullyrðingu
má segja það sem Hallgrimur
kvað:
Afsökun ei mun stoða,
andsvör né spurningar,
Þaö hefði verið hægt að mót-
Vnæla dýrtiðinni á margan annan
hátt. En það ofurkapp, sem lagt
hefur verið i að sanna búvöru-
framleiðendum, að upphlaupinu
hafi ekki verið stefnt gegn þeim,
sannar aðeins eitt: Konur þær,
sem fyrir þessu stóðu, hafa
fundið, að þær hafa hlaupið á sig.
Og það er útaf fyrir sig virðingar-
vert.
Svo er annað, sem þessir mót-
mælendur hafa sér til afsökunar:
Það er búið að telja fólki trú um
það, og þá einkum og sérilagi af
Alþýðuflokknum, að búvöru-
framleiðslan eigi að vera nokkurs
konar öryggisventill gegn verð-
bólgu.
Kaupgjald má og á að hækka,
erlendur varningur má hækka, en
búvörur mega ekki hækka, þá
fara vixlhækkanirnar i gang og
launaskirðiö eykst.
Þvert á móti eiga búvörur að
lækka, vegna aukins tæknibúnað-
ar við búrekstur.
ógeöfelldar mjaltir
Það er gömul saga, að i hvert
sinn sem búvörur hækka i verði,
upptendrast brennandi umhyggja
hjá barnfáum eða barnlausum
húsfreyjum i höfuðstaðnum fyrir
hinum fátæku og barnmörgu kon-
um i þeirri borg, en við aðrar
verðhækkanir láta þær litið á
þessari umhyggju bera. Er harð-
ýðgi þeirra, sem standa að þvi að
svipta fátæku börnin mjólkinni,
stundum lýst á hinn átakanleg-
asta hátt.
I einum Morgunblaðsleiðara,
fyrirskömmu, var vitnað i grein,
sem nafngreind hjúkrunarkona
hafði skrifað i blaðið. Konan
komst meðal annars þannig að
orði, samkvæmt þvi er leiðarinn
hermdi, að konur væru blóð-
mjólkaðar, þessvegna væru þær
hættar að trúa tölum.
Ekki varð það beinlinis ráðið af
orðum leiðarans, hverjir stæðu
fyrir þessum ógeðfelldu mjöltum.
En maður gæti látið sér detta i
hug, að það væru bændurnir, sem
hækkuðu mjólkina úr kúnum sin-
um i verði.
Útvarpið sagði frá þvi einhvern
daginn, að á fimmta hundrað
manns hefði brugðið sér til suð-
rænna sólarlanda nú um páskana.
Það væri gaman aö vita, hvort
nokkur af hinum blóðmjólkuðu
konum heföi haft ráð á að veita
sér slikan munað.
Að endingu sendi ég svo konun-
um að austan, þeim er stálu sen-
unni frá Húsmæðrafélagi Reykja-
vikur, kveðju guðs og mina, með
ósk um gleðilegt sumar.
I Dymbilviku 1973
Skúli Guðjónsson
Að hugsa lengra
Framhald af bls. 9.
að leggja formann verklýðsins á
dívan hjá sálfræðingi, get ég
fengið hann til að skýra frá þvi,
undir hvað verklýðshreyfingin er
höll i dag. Stundum sósfalisma,
stundum kapftalisma. Leikhúsið
leitar uppi áhorfendur, það fer út
á vinnustaðina og þvi ber mér
skylda til að vera skemmtilegur
og að byggja á stöðu verka-
fólksins. En um leið hef ég mögu-
leika á að láta skoðun mina i ljós.
— Þú ert leigubilstjóri sem
getur skrifað i blöö, skrifað bækur
og leikrit og tekið til máls i út-
varpi og sjónvarpi. Finnst þér þú
vera forréttindamaður sem
slikur?
— Það fyndist mér ef ég gæti
lifað eins og Klaus Rifbjerg. En
þaðgetég ekki. Til að lifa verð ég
að gripa i stýrið öðru hverju. Það
er kostur að hafa fótfestu i verk-
lýðsstéttinni, og ef ég gæti lifað af
penna minum mundi ég ef til vill
ekki hugsa og finna til sem verka-
maður. I þrjú ár var ég yfirmaður
i minu verklýösfélagi og hvað
eftir annað lenti ég á öndverðum
meiði við félaga mina.
Viðbrögð
— Ert þú orðinn að skemmti-
krafti i kaffihléum, sem hvorki
verklýðshreyfingin né fjölmiðlar
þurfa að taka alvarlega?
— Það vildi ég ógjarna. Ég hef
fengið mörg viðbrögð við þvi sem
ég skrifaði i Information svo
dæmisé nefnt. En nú, þegar ég er
orðinn fastur dálkahöfundur, er
ég stundum afgreiddur sem
„maðurinn með skoðanirnar”.
En á hitt er og að lita, að allir
sem vinna á vinstra armi stjórn-
málanna hafa þörf fyrir stöðugar
upplýsingar og rökleiðslur. Þaö
sem mestu skiptir fyrir mig er að
hafa eitthvað að segja, og það er
skemmtilegra en að keyra fólk
um bæinn.
— Er nauðsynlegt að gera
rannsóknir á verklýðsstéttinni?
— Það er nauðsynlegt, svo
marga strauma og stefnur sem
hún rúmar. Sósfalisminn er ekki
eitthvert fastmótað ástt heldur
hin stöðuga uppreisn. Eftir að
sósíalisma hefur verið komiö á
verða alltaf einhverjir eftir sem
hafa forréttindi og þvi verður
baráttan að halda áfram. Já, það
þarf að rannsaka, en það má ekki
gera verkamenn að tilrauna-
dýrum.
— Hvernig geta menntamenn
sýnt samstöðu með verka-
mönnum i hinni daglegu baráttu?
— Sumpart i beinni baráttu við
atvinnurekendur, sumpart með
pólitiskri samstöðu — með þvi að
stuðla að þvi að verkamenn séu
meira metnir. Það geta þeir
vegna þess, að þeir hafa yfirlit
yfir vandamál samfélagsins. Og
það gæti einnig gerzt með þvi að
opna verklýöshreyfinguna fyrir
alla framsækna og framleiðandi
samfélagshópa. Ég er ekki
hræddur við þá tilhugsun að
menntamenn verði aðilar að nýju
Alþýðusambandi.
(AB tók saman)
ÍBV - Valur
Framhald af bls. 11.
vikaðist þannig að örn óskarsson
átti fast skot af stuttu færi sem
Sigurður Dagsson varði snilldar-
lega.en missti boltann frá sér til
Tómasar sem renndi honum i
netið.
Eftir þetta var sótt og varizt á
vixl, en hvorki gékk né rak, og
siðustu 15 minúturnar sóttu Vals-
menn stift. Var allt liðið komið i
sóknina um tima en IBV-vörnin
stóð allar sóknarloturnar af sér
og sigurinn varð Eyjamanna.
Fram-linan er sem fyrr betri
hluti IBV-liðsins með þá örn
Óskarsson, Asgeir Sigurvinsson,
Harald Júliusson og Tómas
Pálsson sem aðalmenn.
Hjá Val bar mest á þeim
Jóhannesi Eðvaldssyni og bak-
verðinum Vilhjálmi Ketilssyni
sem er að verða okkar bezti bak-
vörður. Þegar liðið verður full-
skipað, enn þá vantar þá Róbert
Eyjólfsson og Hörð Hilmarsson,
verður það eflaust i hópi okkar
beztu liða.
Víkingur
Framhald af bls. 11.
skáli Vikings brann til kaldra
kola, en gestir björguöust naum-
lega. Vikingar létu þó ekki hug-
fallast. Með 300 þúsund krónur i
bankabókinni hóf skiðadéildin
byggingu nýs skála á grunni hins
gamla. Nýi skálinn i Sleggju-
beinsskarði er nú nær fullgerður
og i hann hafa verið lagðar um
þrjár miljónir króna.
A aðalfundi knattspyrnufé-
lagsins Vikings, sem haldinn var
fyrir nokkru, baðst Gunnar Már
Pétursson undan endurkjöri, en
hann hefur verið i fararbroddi
Vikings i mörg ár mikilla umsvifa
og framfara. Gunnari Má voru
þökkuð fórnfús störf i þágu
Vikings, en eftirmaður hans var
kosinn Jón Aðalsteinn Jónasson.
Aðrir i stjórn Vikings eru þeir
Hjörleifur Þórðarson, Freyr
Bjartmars, Siguröur óli
Sigurðsson, og örn Guðmunds-
son. Formenn deildanna eru þeir
Sigurður Jónsson, handknatt-
leiksdeild, Kristján Pálsson,
knattspyrnudeild, og Björn
Ólafsson, skiðadeild.
Vikingar taka á móti gestum i
dag á Hótel Esju, og eru eldri
félagar hvattir til að koma, sem
og aðrir Vikingar. Samkoman aö
Hótel Esju hefst klukkan 15.
Samningarnir
Framhald af bls. 1
tslenzka nefndin hefur einnig
haldið fast við, að aöeins yröi
samið til tveggja ára um undan-
þágur, en Bretar vilja fá samn-
inga til lengri tima og ákvæði um
hvað við taki að samningstiman-
um loknum. öllum slikum ákvæð-
um hafa islenzku samninga-
mennirnir harðlega neitað.
Á það er rétt að leggja áherzlu,
að tilboð islenzku nefndarinnar
um 117.000 tonn á ári, sem eitt sér
felur i sér nær 40% lækkun á afla
Breta sé miðað við árið 1972 og
nær 50% sé miðað við árið 1971, —
þýðir ekki að Bretum sé tryggöur
réttur til að veiöa hér áfram rúm-
an helming af fyrri afla næstu tvö
árin. Byggist þetta á þvi,að til-
boðið hámark aflamagns er sett
fram með þeim skilyrðum aö
jafnframt veröi skipunum fækkaö
verulega og ákveðnum veiði-
svæðum lokað.
Fari svo að Bretar fallist á til-
boð Islendinga siðar kynni þvi vel
svo aðfara, að þeir næðu alls ekki
þeim hámarksafla, sem i tilboð-
inu felst.
Blaðamanna fundurinn.
Að samningaviðræðunum lokn-
um efndu ráðherrarnir 3, sem
þátt tóku i samningaviðræðunum,
þeir Einar Agústsson, Lúðvik
Jósepsson og Magnús Torfi Ólafs-
son.til fundar með innlendum og
erlendum fréttamönnum. Flest af
þvi, sem rakið hefur verið hér að
ofan kom fram á fundinum. Ráð-
herrarnir voru spuröir um, hvort
þeir væru bjartsýnir á framhaldið
og vildu þeir ekki margt um það
segja til eða frá, en tóku fram að
bilið hefði heldur minnkað. Þeir
lögðu áherzlu á að ekkert hefði
verið ákveðið framhald, en báöar
rikisstjórnirnar myndu nú athuga
málin nánar.
Einar Agústsspn sagði, að við-
ræðurnar hafi verið gagnlegar, og
Bretar hafi nú fallizt á aö ræða
um takmarkanir á skipaf jölda og
veiðisvæðum, sem þeir neituðu
jafnan áður. Spurningu frá er-
lendu blaðamönnunum um það,
hvað nú myndi gerast á miðunum
svaraði utanrikisráðherra á þá
leið, að það væri undir Bretum
komið, tslendingar muni i engu
hvika frá rétti sinum til að verja
landhelgina. Einar var einnig
spurður af einum brezka blaða-
manninum um skoðanaágreining
milli ráðherranna og sagði hann
engan slikan skoðanamun vera
fyrir hendi, — þvert á móti væru
þeir eins og beztu bræður.
att
232
Trúnaðarmenn og
aðrir félagsmenn
Félags
j árniðnaðarmanna
Munið námskeiðið er hefst7. mai kl. 20.30 i
Lindarbæ uppi.
Hafið samband við skrifstofu félagsins,
Félag járniðnaðarmanna.
Ferðastyrkur
til rithöfunda
í fjárlögum fyrir árið 1973 er 90 þús. kr.
fjárveiting handa rithöfundi til dvalar á
Norðurlöndum.
Umsóknir um styrk þennan óskast sendar
stjórn Rithöfundasjóði íslands, Garða-
stræti 41, fyrir 3. júni 1973. Umsókn fylgi
greinargerð um, hvernig umsækjandi
hyggst verja styrknum.
Reykjavik, 2. mai 1973
Rithöfundasjóður íslands
KRR ÍBR
MELAVÖLLUR
Reykjavikurmótið — meistaraflokkur.
í dag kl. 14.
ÞRÓTTUR —VALUR
Mótanefnd
Fóstrur athugið
Stjórnunarnámskeið verður haldið dag-
ana 10. til 17. mai 1973. Þær fóstrur sem
ekki vinna hjá barnavinafélagi Sumar-
gjafar en áhuga hafa á námskeiðinu, gjöri
svo vel að hringja i Þorbjörgu Sigurðar i
sima 35884 eða 32766 fyrir þriðjudag 8.
mai.
Fóstrufélag íslands.