Þjóðviljinn - 25.05.1973, Side 5

Þjóðviljinn - 25.05.1973, Side 5
Föstudagur 25. mai 1973 1>.JÓÐVIL.HNN — SÍOA 5 Ofbeldisinnrás Breta mótmœlt Hér birtum við mótmælaálykt- anir vegna ofbeidis Breta i is- lenzku landhelginni: INSÍ „I framhaldi af fyrri ályktun Iðnnemasambands Islands um landhelgismálið, vill stjórn INSI nti fordæma harðlega þá grófu hernaðarihlutun Breta, þar sem þeir hafa sent herskip inn I is- lenzka fiskveiðilögsögu. Þegar svo er komið, er full ástæða fyrir islenzk stjórnvöld að endurskoða nú þegar veru tslands I Atlanzhafsbandalaginu, með úr- sögn fyrir augum. Mjög óeðlilegt hlýtur að vera að Island sé i slíkum tengslum við riki, sem I skjóli herstyrks reynir að knésetja smáþjóð, sem vill vernda náttúruauðlindir sinar. Eins er það skoðun okkar að Is- lenzkum stjórnvöldum beri án tafar að kæra árás Breta fyrir allsherjarþingi og öryggisráði Sameinunu þjóðanna”. Múrarar Eftirfarandi tillaga var sam- þykkt á félagsfundi i Múrarafé- lagi Reykjavikur, sem haldinn var mánudaginn 21. mai, 1973. „Félagsfundur i Múrarafélagi Reykjavikur, haldinn 21. mai 1973, fordæmir þær árásar- og of- beldisaðgerðir, sem Bretar hafa Alþýðuflokkurinn: Staða okkar sterkari en nokkru sinni Þingflokkur Alþýðu- flokksins fordæmir innrás brezka flotans í fiskveiði- landhelgi (slendinga og hvetur þjóðina til einhuga mótmæla. Þingf lokkurinn telur þessar aðgerðir Breta sönn- un fyrir þvi, hve árangurs- rík starfsemi landhelgis- gæzlunnar hefur verið, og lýsir þakklæti til allra starfsmanna hennar. Staða íslendinga i land- helgismálinu er nú sterkari en nokkru sinni, og allar aðgerðir ber að miða við að tryggja hagstæðan árangur af hafréttarráðstefnu Sam- einuðu þjóðanna. Þingf lokkurinn telur sjálfsagt að íslendingar grípi til gagnaðgerða á veftvangi Sameinuðu þjóð- anna, Atlanzhafsbanda- lagsins og annarra alþjóð- legra samtaka, þar sem Bretar verða sóttir til saka. Jafnframt verður að hefja nýja sókn til að kynna málið á alþjóðlegum vettvangi og vinna fylgi við þann málstað, sem íslend- ingar berjast fyrir. (Fréttatilkynning frá Al- þýðuf lokknum) HÚSMÆÐRAFELAGH) SNÝST GEGN BREZKUM YÖRIJM Framkvæmdanefnd Hús- mæðrafélags Reykjavikur vill taka fram eftirfarandi: Það er álit nefndarinnar að mótmælaaðgerðir húsmæðra sem hófust 26. marz s.l. hafi borið mun meiri árangur en haft er á orði. Nefndin vekur athygli á þvi, að fyrirhugaðar eru áframhaldandi aðgerðir i verðlags- og neytenda- málum, og minnir á sparnaðar- vikuna 1. og 3. viku hvers mánað- ar. Nefndin skorar á Framleiðslu- ráð landbúnaðarins að það hlutist til um að nautakjöt i verzlunum sé merkt og flokkað. Ennfremur itrekar nefndin fyrri kröfur um betri kartöflur og bendir á nauðsyn þess að selja kartöflur til neytenda i þannig umbúðum að neytandinn sjái hvaða vöru hann kaupir. Vill nefndin vekja athygli á netaum- búðum. Hvað viðkemur mjólkurum- búðum skal bent á nauðsyn þess að dagstimplar umbúðanna séu greinilegir. Ennfremur itrekar nefndin framkomna tillögu frá fundi Húsm. fél. Rvk. 15. marz s.l. þar sem þess er farið á leit við Mjólk- ursamsölu Rvk. að unnt verði að fá keypta mjólk i 10 litra umbúð- um. Ennfremur telur nefndin æskilegt að neytendur fái tæki- færi til að velja um afurðir frá framleiðendum. Með þvi myndi skapast eðlileg samkeppni um gæði og vöruval milli framleið- enda landbúnaðarafurða. Nefndin vill vekja sérstaka at- hygli á þvi, að verð og vörugæði nauðsynjavara er hagsmunamál, sem varðar öll heimili jafnt til sjávar og sveita. Minnugar þess að neytandinn er bezta verðlags-og gæðaeftirlit sem völ er á, skorar nefndin á aII- ar húsmæður i landinu að standa vörðum hag heimilanna og sýna i orði og verki samstöðu um sann- gjarnar kröfur þess efnis, að nauðsynjavörum heimilanna sé haldið i jþeim verðflokki að öllum sé gert kleift að njóta þeirra. Nefndin telur eðlilegt að á með- an Bretar beita ofbeldisaðgerðum innan islenzkrar fiskveiðilögsögu þá ættu isl. neytendur að sneiða hjá brezkum vörum. Áskriftarsimi Þ.ióðviljans er 18081. nú I frammi i Islenzkri fiskveiði- lögsögu. Fundurinn lýsir yfir fullum stuðningi við aðgerðir rikisstjórn- arinnar i þessu máli, og bendir á að hún hefur einhuga þjóð að baki sér”. Víetnamnefndin Vietnamnefndin á Islandi gerði á fundi sinum 23/5/73 eftirfarandi ályktun: Innrás Breta I islenzka land- helgi er heimsvaldasinnuð árás stórveldis á smáþjóð. Fram hefur komið af fréttum, að það hern- aöarástand, sem nú rikir við strendur landsins, er til komið með vitund NATÓ. Ljóst er, að Bretar framkvæma þessa árás i trausti þess, að Atlanzhafbanda- lagið sé til þess stofnað, að tryggja stórveldum og auðstétt- um yfirráð yfir auðlindum heims- ins. Af þessu sést að tslendingum er engin vörn i bandariskum her- stöðvum né heldur i aðild sinni að NATÓ. Þvi krefjumst við þess, að bandariska herstöðin á Islandi verði lögð niður og Island gangi tafarlaust úr NATÓ. Einnig átelj- um við að helztu oddvitar árásar- stefnu og efnahagslegrar yfir- drottnunar, Nixon og Pompidou, fái hér húsaskjól undir þessum kringumstæðum. Vietnamnefndin á íslandi OPIÐ TIL KL. 10 í KVÖLD ☆ Mjög falleg sett á drengi úr burstuðu denim ☆ Frotteskyrtur á drengi og fullorðna ☆ Bolir í úrvali á börn og fullorðna ☆ Dömublússur, peysur og vesti i úrvali ☆ Fjölbreytt úrval i matvörudeild ☆ Munið viðskiptakortin OPIÐ TIL KL. 10 í KVÖLD I lsKEIFUNNI15ll INNLENT LÁN RÍKISSJÓÐS ÍSLANDS 1973 1.FL SALA OG AFHENDING AogB SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS HEFST MÁNUDAGINN 28.MAÍ Skírteinin eru verðbætt í hlut- falli við breytingar í byggingar- vísitölu og eru skatt- og fram- talsfrjáls eins og verið hefur. Er nú í fyrsta sinn hægt að velja á milli tvenns konar skír- teina: A SKÍRTEINI eru lengst til 14 ára, en eftir 5 ár getur eigandi fengið þau innleyst að fullu ásamt vöxtum og verðbótum. Meðaltalsvextir allan lánstím- ann eru 5% á ári. Eru þetta óbreytt kjör frá því sem verið hefur. B SKÍRTEINI eru alveg ný af nálinni og eru sérlega heppileg fyrir þá, sem þurfa árlegan arð. Þau eru til 15 ára og endurgreiðast með jöfnum árgreiðslum afborgana og 5% ársvaxta (annuitet) auk verðbóta. Draga má innlausn árgreiðslumiða og fá verðbæt- ur áfram, ef eigandi óskar. Sérprentaðir útboðsskilmálar liggja frammi hjá söluaðilum, sem veita allar nánari upplýs- ingar. Reykjavík, 23. maí 1973 SEÐLABANKI ÍSLANDS

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.