Þjóðviljinn - 25.05.1973, Side 6

Þjóðviljinn - 25.05.1973, Side 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVlLJiNN Föstudagur 25. mai 1973 UOÐVIUINN MÁLGAGN SÓSíALISMA, VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Ritstjórar: Kjartan Ólafsson Svavar Gestsson (áb.) Auglýsingastjóri: Heimir Ingimarsson Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Skólav.st. 19. Slmi 17500 (5 llnur). Askriftarverö kr. 300.00 á mánuði. Lausasöluverð kr. 18.00. Prentun: Blaðaprent h.f. VIÐ MUNUM SIGRA Það var einbeitt og baráttufúst fólk, sem streymdi á Lækjartorg i gær. Mann- f jöldinn kom úr öllum áttum, en allra leið- ir lágu að sama marki. Baráttufundur Alþýðusambands ís- lands bar einhug islenzku þjóðarinnar glæsilegt vitni og mönnum varð ljósar en áður, hvert afl er fólgið i órofa samstöðu heillar þjóðar. Fundurinn varð fjölmennari en hér hefur áður sézt, og trúlegt að aldrei hafi svo stór hluti nokkurrar þjóðar i veröld- inni safnazt saman á einum fundi. Undir- tektir mannf jöldans við kröfur um að lúta aldrei ofbeldi stórveldisins en berjast til sigurs voru ekki siður ótviræðar og kraft- miklar. Flestir ræðumenn véku að hlut NATO varðandi herskipainnrásina og leyndi sér ekki, að þvi grimmari sem ræðumenn voru i orðum gagnvart hernaðarbanda- laginu, þeim mun betri undirtektir mann- fjöldans áttu þeir visar. Sú staðreynd blasir við, að Bretar hafa með heimskulegu athæfi sinu kennt þeim, sem áður létu sig skoplega veru okkar i hernaðarbandalagi litlu skipta, — að þátt- taka okkar i svokölluðu varnarbandalagi, sem lætur nota herskip sin til innrásar i is- lenzka landhelgi, er bæði vansæmandi og likari fjarstæðu en veruleika. Geir Hallgrimsson sagði í ræðu sinni, að Atlanzhafsbandalagið ætti að vera þess megnugt að tryggja okkur gegn árás aðildarrikis, ekki siður en gegn árás ann- arra. Jú, mikið rétt — auðvitað er Atlanzhafs- bandalagið þess megnugt, máttinn vantar ekki — en það vantar annað, það vantar viljann til að tryggja rétt smáþjóðarinnar gegn ránum og ofbeldi stórveldisins, hvað sem dauðum bókstaf hins fyrirlitlega NATO-sáttmála liður. Það var ánægjulegt að heyra yfirlýsingu Jóns Skaftasonar, sem talinn hefur verið beztur vinur NATO meðal stuðnings- manna rikisstjórnarinnar, en Jón sagði, að ef Atlanzhafsbandalagið beiti ekki áhrifum sinum til að reka eigin herskip út úr landhelgi okkar hljóti menn að endur- skoða afstöðu sina til bandalagsins. — Auðvitað munu Islendingar hér eftir telja þá stjórnmálamenn ekki eiga mikið erindi, sem kynnu að halda áfram að hjala um NATO sem verndara smáþjóða gegn ofriki stórvelda. En stundum dugar mönn- um ekki bara að sjá, heldur verða þeir að þreifa á lika og finna eldinn brenna á sjálfum sér. En það eru ekki bara ummæli Jóns Skaftasonar, sem sýna hvaða straum- hvörf eru að verða á Islandi varðandi af- stöðu manna til þátttöku okkar i hern- aðarbandalagi með brezku rikisstjórninni og öðrum ofbeldisforkólfum. Úr f jölda dæma skal hér minnt á yfirlýs- ingu, sem Samband ungra sjálfstæðis- manna sendi frá sér i vikunni ásamt öðrum pólitiskum samtökum ungs fólks, en þar segir m.a. að ef NATO liði Bretum þessar ofbeldisaðgerðir hljóti Islendingar að endurskoða veru sina i þeim félags- skap. Má þvi vissulega segja að siðustu vigi NATO á íslandi riði nú til falls. Það,sem Nixon og stjórn Bandarikjanna tókst til hálfs með blóðferli sinum i Indó-Kina og sýníkennslunni i NATO-Jýðræði i Water- gate, er brezki forsætisráðherrann nú að reka smiðshöggið á með innrás NATO-herskipa sinna. Þvi ef Bretar hafa haldið að takast mætti að berja Islendinga til ásta, þá er það misskilningur. Land- helgismál okkar setjum við aldrei i hend- ur NATO, sagði Lúðvik Jósepsson sjávar- útvegsráðherra og mannfjöldinn á Lækjartorgi og i nærliggjandi götum tók undir. Látum daginn i gær visa okkur leið til sigurs, leið einingar og baráttu. Þá mun sá dagur skammt undan að siðasti veiði- þjófurinn hverfi úr 50 milna landhelginni og herskipin fylgi með skömm. Bílatryssinsar hœkka urn aðeins 15% í stað 39% sem trrssinsafélösin kröfðust HALDIÐ í VIÐ TRY GGINGAFÉLÖG Osannindum Morgunblaðsins mótmœlt i ráðuneytistilkynningu Skæruliðar bcygjaFord DETROIT 24/5 — Bandaríski Ford-auðhringurinn mun láta Argentinu i té ýmsan útbúnað og þjónustu að upphæð ein miljón dollarar á næstunni. bessi aðstoð er til komin vegna ógnana bæjarskæru- liða i Argentinu við fulltrúa hringsins i landinu. Fyrir þrem dögum voru tveir starfsmenn auðhringsins skotnir til bana i Buenos Aire: og samtimis bárust hringnum ógnanir þess eðlis að fleiri slikir atburðir myndu gerast ef hann gæfi ekki 22 sjúkrablla til hvers af sjö héruðum lands- ins og styrkti auk þess sjúkra- hús með fé. bá hafa skærulið- ar hótað að nema á brott Frank Herdman, yfirmann Ford i landinu, greiði hringur- inn ekki eina miljón dollara i lausnargjald fyrir hann innan sólarhrings. Uppreisn AbENU 24/5 — Uppreisnartil- raunir voru gerðar i gær á þremur griskum herskipum og voru allar bældar niður. Sagði talsmaður stjórnarinnar að tveir fyrrverandi hershöföingjar og nokkrir sjóliðsforingjar hefðu verið fangelsaðir. bjóðviljanum hefur borizt eftir- farandi ályktun miðstjórnar Sjálfstæðisflokksins um innrás Breta i landhelgina: Miðstjórn og þingflokkur sjálf- stæðismanna álykta: 1. Að mótmæla harðlega þvi of- beldi Breta, að senda herflotu og flugvélar inn i fiskveiðilandhelgi Islands til þess að hindra lög- gæzlustörf islenzkra varðskipa. 2. Að kæra beri framferði Breta nú þegar fyrir Norður-Atlants- hafsbandalaginu og öryggisráði Rikisstjórnin hefur fallizt á að leyfa 15% hækkanir á iðgjöldum bílatrygginga frá næstu mánaðamótum, og er þannig svarað hinni ósvífnu hækkunarkröfu um 39% sem tryggingafélögin ætluðu að þvinga i gegn með ofbeldi. Enn hefur ekki verið tekin afstaða til tillögu Magnúsar Kjartans- sonar tryggingaráðherra um það, að ríkið tæki að sér þessa lítt ábatasömu grein tryggingastarfseminnar sem trygginga félögin kvarta svo yfir að þurfa að annast. Frétt Morgun- blaðsins í gær um að til- lagan hefði verið felld í Sameinuðu þjóðanna og krefjast þess, að þessir aðilar hlutist til um, að Bretar hverfi þegar á brott með herafla sinn úr is- lenzkri fiskveiðilandhelgi. 3. Að samningaviðræður við Breta séu útilokaðar meðan her- skip þeirra eru i islenzkri fisk- veiðilandhelgi. 4. Að auka skuli af fremsta megni kynningu á málstað Is- lands meðal annarra þjóða og vinna að þvi á allan hátt, að tryggja sigur á hafréttarráð- stefnu Sameinuðu þjóðanna. 5. Að efla landhelgisgæzluna ríkisstjórn er úr lausu lofti gripin, eins og fram kemur í eftirfarandi fréttatil- kynningu heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis. Hinn 20. febrúar s.l. skrifuðu sex tryggingafélög, sem annast bifreiðatryggingar, verðlags- nefnd og óskuöu staðfestingar á hækkun iðgjalda af ábyrgðar- tryggingum ökutækja um 39% og á hækkun iðgjalda af hústryggingum um 28.6% að meðaltali. Erindi þessu fylgdi greinargerð um afkomu bifreiðatrygginga hjá fimm þessara félaga á árinu 1972 ásamt fleiri athugasemdum. Greinargerð þessi var send hag- rannsóknadeild framkvæmda- stofnunar rikisins til könnunar og umsagnar. með fjölgun varðskipa og bættum búnaði. 6. Að leggja áherzlu á, að öllum verði gert ljóst, að íslendingar muni hvergi hvika frá 50 mflna fiskveiðilandhelgi og að 50 mil- urnar eru aðeins áfangi að þvi markmiði islenzku þjóðarinnar, að allt landgrunnið út að yztu mörkum þess verði islenzk fisk- veiðilandhelgi. Sjálfstæðisflokkurinn telur það þjóðarnauðsyn, að þjóðin öll hafi samstöðu um allar þessar að- gerðir og sýni algeran einhug sinn út á við. Hagrannsóknadeild taldi nauð- synlegt, að athugaðir yrðu betur ýmsir þættir i rekstri bifreiða- trygginga, áður en komizt yrði að ákveðinni niðurstöðu um hækkun iögjalda að nokkru marki. Deildin taldi hins vegar ljóst, að veita þyrfti tryggingafélögunum sem fyrst einhverja lágmarksaðlögun iðgjalda vegna kostnaðar- hækkana að undanförnu og fyrir- sjáanlegra hækkana á næstu mánuðum. Að þessu athuguðu hefur rikis- stjórnin á fundi sinum 22. þ.m. fallizt á að heimila allt að 15% hækkun á iðgjöldum af trygging- um ökutækja hjá umræddum tryggingafélögum og gildir sú hækkun frá og með 1. júni n.k. 1 tilefni af frétt i Morgunblaðinu i gær, skal það fram tekið, að rikisstjórnin hefur hvorki fellt né samþykkt tillögu tryggingaráð- herra um að sérstakri rikis- stofnun yrði falið að reka þessar tryggingar. Hugmyndir þessar hafa eingöngu verið fluttar til kynningar ennþá. Frétt Morgun- blaðsins er þvi tilhæfulaus með öllu. Hins vegar er nú unnið að þvi i þessu ráðuneyti að semja frum- varp til laga um breytt fyrir- komulag ábyrgðartrygginga öku- tækja i þá veru, sem fjölmiðlar hafa áður greint frá. Neydd til að lenda KAIRÓ 24/5 — Belgisk farþega- flugvél á leið frá Paris til Nairó- bi var i dag neydd til að lenda á flugvellinum i Kairó. Egypzk yfirvó'ld neyddu hana til lending- ar þar sem flugmaðurinn hafði ekki aflað sér leyfis til að fljúga yfir egypzkt landsvæði. Rœkju- veiðar hefjast í dag Rækjuveiði við Eldey hefur verið leyfð frá 25. maí til 15. september. Verð á rækju var ákveðiö um áramótin 31 króna kilóið af stærri rækju og 18 krónur kílóið af þeirri minni fram til mánaðamóta maí-júni, en fyrir þann tima mun verðlags- ráð sjávarútvegsins ákveða nýtt verð. KAUPM ANNAHöFN 24/5 - Danska þjóðþingið samþykkti i dag ný lög sem kvæðu á um frjáls- ar fóstureyðingar innan tólf vikna frá getnaði. Atkvæði féllu þannig að 95 voru samþykktir, 56 á móti, 17 sátu hjá og ellefu voru fjarver- | andi. Sosialistisk folksparti var eini flokkurinn sem var óklofinn i atkvæðagreiðslunni — allir 17 þingmenn hans voru fylgjandi frumvarpinu. Ósæmilegt Fréttaritari norsku frétta- stofnunnar NTB i Reykjavík hefur stundum sent frá sér undar- leg fréttaskeyti. En i gær keyrði gjörsamlega um þverbak. bar gefur hann i skyn I frétt, að ástæðan til þess aö rikisstjórnin hafi ckki enn tekið endanlega ákvörðun um aðgerðir i land- helgismálinu vegna ofbeldisinn- rásar Breta sé sú, að innan stjórnarinnar sé ekki samstaða. Hverjum þjónar slik frétta- mennska? Bretum? Um það þarf ekki að hafa mörg orð, en slikt er að sjálfsögðu algerlega ósæmi- lcgt, að ekki sé fastara að orði kveðið. bá er það gefið i skyn i skeyti þessu, að Bretarnir hafi af tillits- semi við tslendinga haldið sig á lélegum miðum þessa siðustu freygátu-sólarhi-inga!! Sjálfstæðisflokkurinn: Mótmæla harðlega ofbeldi Breta

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.