Þjóðviljinn - 25.05.1973, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 25.05.1973, Qupperneq 7
Föstudagur 25. mai 19731 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 7 Avarp til Islendinga vegna komu Nixons og Pompidous Þessa dagana beinist athygli heimsins að landi voru vegna við- ræðna, sem forseti Bandarikja Norður-Ameriku, R.M. Nixon, og forseti Frakklands, G. Pompidou, munu eiga með sér i Reykjavík um næstu mánaðamót. Vissulega væri ánægjulegt, ef ættjörð vor væri friðlýst land, sem af þeim sökum væri eftirsótt sem mótstaður til umræðna um margvíslegustu hagsmunamál mannkyns. Hitt fær Islendingum engrar gleði, að lands þeirra sé getið hvarvetna um hedm sem gististaðar tveggja af kunnustu fulltrúum hernaðarl. misgerða við mannkynið, auðdrottnunar og félagslegs ranglætis. Bætir þá ekki úr skák, að þeir eru hingað komnir til að ræða efnahags- og hernaðarmál og eru hvor i sinni álfu forvigismenn þeirra afla, sem fslendingar eiga i höggi við um brýnustu lifshagsmuni sina og Sjálfstæði. Þegar Islenzk stjórnvöld féllust á að hleypa bandarisku herliði inn i landið 1941, hét þáverandi for- seti Bandarikjanna þvi, að þetta lið skyldi allt á brott við lok styrj aldarinnar. 1 28 ár hafa fslendingar átt nær samfeildum svikum að mæta af hálfu banda- riskra valdhafa i þessu efni. Gegn hörðum mótmælum mikils hluta islenzku þjóðarinnar gerðist Islandi aðili að Atlanzhafsbanda- laginu 1949, með þvi fororði, að eigi skyldi erlendur her dveljast hér á friðartimum. Aðeins tveimur árum siðar var þó ódul- búinn bandariskur her setztur hér upp með þeirri höfuðröksemd, að skyldur fslands við NATO krefðust þess. Rikisstjórn tslands hefur ákveðið, að hersetunni skuli loksins aflétt á þessu kjörtima- bili. En skylt er að minnast þess nú, þegar Nixon forseti sækir laod vort heim, að hann og Watergate- mennirnir i kring um hann róa að þvi öllum árum að knýja islenzku stjórnina til vanefnda á þessu stærsta atriði stjórnarsátt- málans. Enn heldur Bandarikjastjórn uppi árásarstriði sinu i Indókina. Nixon forseti er persónulega ábyrgur fyrir loftarásunum, sem dynja á þéttbýlum svæðum Kam- bódiu, og hann heldur þeim áfram þvert gegn samþykktum beggja deilda Bandarikjaþings. Brýnasta lifshagsmunamál tslendinga nú um stundir er land- helgismálið. 011 riki hafa i raun viðurkennt lifsþörf vora á verndun landgrunnsins — nema tvö af aðalrikjum NATO i Evrópu. Bretland hefur gert vopnaða innrás á islenzkt yfir- ráðasvæði með vitund NATO, og i ljósi þessa er aðild tslands að bandalaginu fráleit. Vestur- Þýzkaland neitar einnig að viður- kenna umráð Islands yfir hinni nýju fiskveiðilögsögu. Efnahags- bandalagið hefur snúizt á sveif með andstæöingum vorum og reynt að þvinga tslendinga til undanhalds með þvi að neita þeim um eðlilega viðskipta- samninga, nema þeir lúti brezkum og vestur-þýzkum ofrikisöflum. Pompidou forseti er fulltrúi þessa kúgunarvalds, sem vér eigum nú i harðri baráttu við. En Pompidou hefur fleira og ekki fegurra á samvizkunni. Einmitt um þessar mundir eru Frakkar undir forystu hans að búast til kjarnasprengjutilrauna á Suður-Kyrrahafi. Astraliubúar og aðrar nálægar þjóðir hafa gripið til öflugra mótmæla- aðgerða gegn þessu ódæði, og njóta stuðnings verkalýðs um allanheim. Það er skylda fslend- inga að taka kröftuglega undir þessi mótmæli, ekki sizt vegna þess að enginn veit, hvar næst verður niður borið, ef stórveldun- um liðst, ,,að lita á úthöfin eins og almenning, sem þau megi losa i að vild eiturefni og úrgang eða gera að tilraunasvæðum fyrir gereyðingatæki sin, án þess að skeyta hót um afleiðingarnar i nútið og framtið”, eins og segir i mótmælaályktun ASI. Forsetarnir Nixon og Pompidou eru ekki til Islands komnir i göfugum tilgangi og eru þvi engir aufúsugestir. Erindi þeirra er að ráðgast um skiptingu Bandarikjanna og Efnahags- bandalags Evrópu á þeim ráns- feng, sem iðnþróuð riki slá eign sinni á, meðán tvéir þriðjungar mannkyns svelta. Islendingar eiga enga samleið með þessum herrum. Islendingar eiga i þessum efnum samleið með undirokuðum þjóðum þriðja heimsins, og þeim eigum vér hina Samtök herstöðvaandstæðinga. Viet-nam nefndin á Islandi. Æskulýðssamband islands. stærstu skuld að gjalda. Þær hafa staðið með oss, þegar mest hefur legið við, en erkifjendur vorir eru einmitt þeir menn tveir, sem hér eru að setjast á rökstóla, og þjóð- félagsöflin að baki þeim. Við komu forsetanna og meðan á dvöl þeirra stendur munu Islendingar þvi hafa uppi hin öflugustu mótmæli. Hafa Samtök herstöðvaandstæðinga, Víetnam- nefndin á tslandi og Æskulýðs- samband Islands ákveðið að gangast fyrir mótmælaaðgerðum 31. mai n.k. þar sem m.a. verða bornar fram kröfur. Gegn hersetu Bandarikjanna á íslandi Gegn innrás Breta og yfirgangi tveggja NATO-rikja á íslandsmiðum Gegn liðveizlu Efnahagsbandalagsins við andstæð- inga íslands og tilraunum til að kúga íslendinga til hlýðni Gegn kjarnorkutilraunum Frakka og hvers konar mengun úthafa eða eitrun á umhverfi mannsins Gegn striðsrekstri Bandarikjanna i Indókina Gegn heimsvaldastefnu stórvelda NATO burt frá íslandi Ráðstefna um launajöfnuð og jafnrétti Rœtt við Sigurð Magnússon um fyrirkomulag hennar og tilgang Alþýðubandalagið í Reykjavík efnir til ráð- stefnu um launajöfnuð og jafnrétti nú um helgina. Hefst hún í kvöld og verður fram haldið eftir hádegi á morgun. Fundarstaðurinn er í Þinghóli í Kópavogi. Þjóðviljinn aflaði sér vitneskju um ráðstefnuna, fyrirkomulag hennar og tilgang, hjá Sigurði Magnússyni rafvélavirkja, en hann er varaformaður Alþýðu- bandalagsfélagsins sem undirbýr hana. Sigurður sagði að Alþýðu- bandalaginu 1 Reykjavik væri ljóst, að launajöfnuð og jafn- réttismál bæri mjög hátt meðal þeirra pólitisku mála sem um þyrfti að fjalla og taka afstöðu til á næstu misserum. Það hefði tek- izt fyrir öflugaframgöngu verka- lýðshreyfingarinnar og annarra alþýðusamtaka að fá almenningi aðstöðu til að afla verulegra tekna, en þetta kæmi mjög mis- jafnt niður. I atvinnulifinu væru stórir hópar sem væru afskiptir og byggju við umtalsvert mis- rétti. Augljóst væri sagði Sigurður að samstilla þyrfti krafta margra aðila að þvi verki að skapa meiri jöfnúð 1 tekjum og aðstöðu en nú rikir i þjóðfélaginu. Alþýðu- bandalagið vildi vinna að þvi, og þess vegna boðaði það til ráð- stefnu þar sem áhugafólk og þeir sem starfa að verkalýðs- og félagsmálum gætu borið saman bækur sinar og skipzt á skoðun- um. Ekki er gert ráð fyrir þvi, að ráðstefnan láti frá sér fara ályktanir um viðfangsefni, heldur miðli menn hver öðrum fróðleik og reynslu. A ráðstefnunni verða flutt 13 ör- stutt erindi, stundarf jórðungur er hámarkið hjá hverjum frum- mælanda. Inn á milli erinda eða að loknum nokkrum i syrpu gefst kostur á fyrirspurnum til frum- mælenda. Fundarstjóri veröur Sigurjón Pétursson borgarráðs- maður. Sigurður Magnússon Að lokum tók Sigurður Magnússon fram, að ráðstefnan væri opin öllum stuðningsmönn- um Alþýðubandalagsins og öðru áhugafólki sem vill veita Alþýðu- bandalaginu lið við sósialiska umsköpun þjóðfélagsins. EFTIR ART BUCHWALD Upp hefur komizt að Nefndin til Endurkjörs Nixons sendi þúsundir simskeyta til Hvita hýssins þar sem lýst var yfir stuðningi við það að Nixon lét loka höfninni i Haiphong með tundurduflum. Hvita húsið gat siðan lýst þvi yfir.að bandariska þjóðin væri hlynnt þessum aðförum eftir hlut- fallinu fimm gegn einum. — Halló, miðstöð. Mig langar til að senda simskeyti til forseta Bandarikjanna i Hvita húsinu. Símskeyti til Nixons — Já herra minn. A það að skrifast á reikning Nefndar til Endurkjörs forsetans? — Nei, fjandinn fjarri mér. Ég vil það sé skrifað á sima- númerið mitt. — Augnablik. Ég er ekki viss um að við getum gert það. Ef að þér skrifið það á Endur- kjörsnefndina, þá er hægt að veita sérstakan hópafslátt. — Ég hef engan áhuga á hópafslætti. Ég vil borga þetta skeyti upp i topp. — Þar stendur einmitt hnifurinn i kúnni, herra minn. Ef að við rukkum það um Nefndina þá getum við lika tryggt að skeytið verði afhent. En ef þér sendið það upp á eígin spýtur, þá getur svo farið að það verði nokkra daga á leiðinni. — Hvernig stendur á þvi? — Nefndin safnar saman þeim simskeytum sem hún sjálf sendir og afhendir þau i eigin bil. Auðvitað er það svo, að ef að þér vilduð vera með í slikri þjónustu þá þyrftuð þér að senda skeyti sem kémur sér vel fyrir Nixon forseta. — En það vill nú svo til, að skeytið er ekki hægstætt fyrir Nixon forseta að inntaki. — Ó, kæri vinur, það myndi koma okkur i bobba. Hvita húsið neitað að kvitta fyrir móttöku skeyta sem eru óhag- stæð forsetanum. — Sama er mér hvort þeir skrifa undir eða ekki. Ég vil bara það sé afhent. Hér ég með textann. — Augnablik, herra minn. Mætti ég ekki lesa fyrir yður nokkur skeyti með tilbúnum texta. Þér getið sent hvað sem er af þeim fyrir aðeins 75 sent. — Nei ég vil ekkert heilla- óskaskeyti. Get ég ekki sagt það blátt áfram sem ég vil? — Nefnd til Endurkjörs Nixons verður ekkert hrifin af þvi. — Mér er skitsama um Nefnd til að Endurkjósa for- setann — En okkur er ekki sama. Þeir eru okkar beztu við- skiptavinir. Þeir senda eitt þúsund simskeyti til Hvita hússins á dag. Og þeir eru mjög gramir ef að einhver sendir svona skeyti upp á eigin spýtur. — Heyrið mig, skrifið barasta niður það sem ég segi! — Forsetar eru háðir sinum simskeytum. Það styrkir for- setann að vita, að bandariska þjóðin stendur að baki honum. — En ef að það er Nefnd til Endurkjörs Nixons sem sendir honum öll þessi simskeyti, hvernig veit forsetinn þá að þjóðin stendur að baki hon- um? — Forsetinn veit ekki, að simskeytin koma frá nefndinni,þöngulhaus. — Enþaðer búið að skrifa um það i blöðin. — Forsetinn les ekki blöðin. Hann les bara simskeytin. — Fáið það aldrei simskeyti frá fólki, sem ekki styður for- setann? —• Jú, stundum hringir ein- hver og andmælir einhverri tiltekinni ákvörðun forsetans. — Hvað gerið þið þá? — Við skrifum niður sima- númerið og sendum það til Dómsmálaráðuneytisins. — Hvað gera þeir við númerið? — Þeir hlera simann. — Kannski ég ætti þá ekkert að vera að senda þetta skeyti — Það er yðar mál, herra minn. Þetta er frjálst land.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.