Þjóðviljinn - 25.05.1973, Page 15
Föstudagur 25. mai 1973 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15
Fréttabréf
Framhald af 4. siðu.
aldrei beitt, og þar vir&ast trillu-
bátar byrja þegar þá lystir. Sum-
ir smábátar stunda þar róðra all-
an veturinn með góðum árangri,
sbr. i vetur. Þetta er atriði sem
allir vestfirzkir stórútgerðar-
menn og fiskkaupmenn ættu að
semja um í bróðerni áður en til
vandræða horfir og úlfúð vex. Það
skara auðvitað allir eld að eigin
köku, og það er bara mannlegt.
M/s Ólafur Friðbertsson, eig-
andi Voninh.f.,hætti róðrum með
linu 24. marz. Hann fór strax á
netaveiðar og landaði hér heima
frá og með timabilinu 28. marz til
21. april samtals 121.2 tonnum.
Dagana 23. eða 24. april landaði
hann svo i Rifshöfn 16.3 tonnum
og hélt þaðan á fjarlægari mið
sunnan lands, þar sem frétzt
hafði um betri afla þar suður frá.
Að koma hingaö norður með afl-
ann hefði að sjálfsögðu tafið hann
um sólarhring. 9. mai kom hann
svo aftur hingað í heimahöfn úr
lokatúr. Aflanum sem hann var
með þá, var af einhverjum ástæð-
um ekki iandað hér. Hann sigldi
þvi morguninn eftir til Hnifsdals
og landaði aflanum þar, 6.3 tonn-
um. Hefur hann þvi landað sam-
tals 55.5 tonnum annars staðar á
vetrarvertiðinni. Sagt er, að i
Austurlöndum nær sé talsvert um
skæruhernað og kenni hver aðil-
inn öðrum um. Á meðan Ólafur
stundaði hér róðra með linu tók
Voninh.f. af afla bátsins 86.1 tonn
iherzlu. Meðaltalið var þvi 1.435
kg. i róðri. 26. april byrjaði svo
m/b Jón Jónsson róðra með linu.
Það er 6 brúttósmálesta bátur.
Eigandinn fór fram á löndun hjá
Fiskiðjunni Freyju, en fékk þar
neitun um alla fyrirgreiðslu. Von-
inh.f. keypti þá afhonum fiskinn
um tima og sá honum fyrir beitu
og beitingarplássi i fiskmóttöku
sinni. Sennilegt er að beitan hafi
verið vetrareftirstöðvar frá ólafi.
Þar eðFiskiðjan neitaði um fyrir-
greiðslu varð að senda beittu bal-
ana eitt sinn til Flateyrar með
póstbát, til þess að verja beituna
skemmdum. öðrum sinni tók f
Báran h.f. þá til geymslu. Aftur á
móti keypti Fiskiðjan Freyja
beinin af Voninni, svo ekki þurfti
að senda þau á aðra staði. En frá
16. mai hefur hann svo landað á
Flateyri. Suðeyrarhreppur er 100
þúsund króna hluthafi i Fiskiðj-
unni Freyjuh.f. Hvað skyldi hann
hafa meint með þvi? Kaupfélagið
er lika 100 þúsund króna hluthafi i
sama félagi. Ekki veit ég hvaða
veiðar Ólafur ætlar sér að stunda
isumar. Heyzthefur, aðhann ætli
að stunda landróðra með linu.
Trausti, Kristján og Sigurvon
munu sennilega stunda grálúðu-
veiðar, en Guðrún Guðleifsdóttir
er vist ákveðið að fari á troll.
Einnig mun Gullfaxi 1S fara á
troll. í uppsiglingu mun nú vera
hér á Suðureyri mikill skæru-
hernaður, sem ekki er enn séð
fyrir endann á. M/s Ólafur fór ný-
verið til Keflavikur eftir 100 tonn-
um af salti, auk þess kom hann
með stórar braggahurðir
fyrir Báruna h.f. Haustið 1960
setti Freyja h.f., sem hét þá þvi
nafni, á fót frystihús Fiskiðjunnar
Freyjuh.f. 1968 voru bæði hún og
Isver h.f. sem hafði rekið frysti-
hús fyrir, komin á hausinn. Fisk-
iðjan var endurreist og eignaðist
húsakynni Isvers á svo nefndu
Flateyrarverði. Min hugsun er
sú, að i svo smáu byggöarlagi
þrifist ekki mörg fyrirtæki með
hliðstæðan rekstur. Er máski
annað hrun i uppsiglingu, hver
veit? Timinn sker úr þvi á sinum
tima. Hér er mikil mannfæð, og
fólkið flytur burt. Eitthvað kemur
þó i staðinn. Undanfarið hefur
orðið að flyt ja hér að margt fólk á
öllum árstfmum, til að vinna úr
hráefninu. Er sá mannflutningur
skiljanlega með ærnum kostnaði.
Kaupfélag Súgfirðinga hélt
aðalfund sinn fyrir árið 1972 13.
mai sl. Mættir voru 26 félags-
menn auk stjórnarinnar, en fé-
lagsmenn eru nú fast að 100.
Kaupfélagsstjórinn Guðvarður
Kjartansson, sem senn er á förum
frá félaginu, las upp reikningana
og útskýrði þá. Brúttóvörusala
ársins nam 19.6 miljónum.
Kaupgreiðslur ársins námu 2.117
miljónum og höfðu hækkað veru-
lega frá s.l. ári, eða um 1 miljón
frá árinu 1970. Vörurýrnun nam á
árinu 251 þúsund krónum þ.e.
1.4% og er talið of hátt. Afskriftir
af vörubirgðum voru nú 28%.
Eignir félagsins voru afskrifaðar
skv. lögum. Reksturshallinn á ár-
inu varð 303 þúsund krónur, en
hagnaður i fyrra 76 þúsund.
Skuldir viðskiptamanna voru á
áramótum 764 þúsund; af þeirri
upphæð voru tveir, sem skulduðu
587 þúsund, þar af annar þeirra
500 þúsund, enda hefur hann verið
i stjórn félagsins um árabil.
Reiknaðir voru vextir af skuldum
viðskiptamanna, einnig fá þeir
vexti, sem eiga innistæður. Þetta
er jú spor i rétta átt. Guðvarður
Kjartansson hættir nú senn störf-
um, sem fyrr var sagt. Hann fer
að eigin ósk eftir 2 1/2 árs starf.
Nú hugsar hann helzt um hand-
færaveiðar. Við tekur ungur mað-
ur úr Kópavogi, sem útskrifaðist
úr Samvinnuskólanum i vor.
Heitir hann Jörundur Ragnars-
son, 23 ára, ókvæntur. Sturla
Jónsson hreppstjóri, sem verið
hefur i stjórn félagsins frá stofn-
un þess eða 33 ár, þar af stjórnar-
formaður i 25 ár, baðst nú undan
endurkjöri, enda er hann nú 70
ára gamall. Hugsanlegt er þó, að
ástæðan sé sú, eftir þvi sem kom
fram á fundinum, að á stjórnar-
fundi, sem haldinn var fyrir
skömmu var Sturla sá eini, sem
andmælti þvi að félagið keypti
ibúðarhús Barða Theódórssonar
rafvirkja staðarins. Kaupsamn-
ingar voru þá gerðir og kaupverð-
ið 2.5 miljónir. Barði er á förum
héðan, og þar fer 5 manna fjöl-
skylda, og þar fer lika ómissandi
fagmaður á staðnum. Það eru
lika á förum héðan tvær fjöl-
skyldur til viðbótar. Einnig fer sá
hinn sami og keypti húsið af Giss-
uri Guðmundssyni. Hugir súg-
firzkra fjölskyldna hafa verið,eru
og verða órannsakanlegir.
Byggingarframkvæmdir munu,
ef allt fer að óskum um lán og
þessháttar, verða hér með mesta
móti i sumar. Atta menn hafa sótt
um lóð undir hús, og er þeim nú
öllum úthlutað. Suðureyrar-
hreppur er lika búinn að fit ja upp
á prjóna sina miklar og fjárfrek-
ar framkvæmdir, og svo að
eitthvað sé nefnt á að reisa stórt
og mikið áhaldahús fyrir hrepp-
inn. Húsið verður 15x30 metrar.
Aætlað verð þess er 5 til 6 miljónir
króna. Búið er lika að panta jarð-
ýtu, sem er rétt ókomin til lands-
ins. Verðhennar er 6 til 6 1/2 milj-
ón króna. Vinna á lika að vatns-
og holræsalögnum, það sem eftir
var frá i fyrra og talið er
bráðnauðsynlegt. í bigerð er lika
að leggja varanlegt slitlag á aðal-
götu þorpsins. Vinna á við haf-
skipabryggjuna fyrir 7-8 miljónir
til þess að verja hana falli. Þetta
er það sem efst er á baugi nú, og
virðist aðkallandi. Heimildar-
maður að þessu er oddvitinn Ösk-
ar Kristjánsson. Ég er nú kominn
áþá skoðun, að negldu hjólbarð-
arnir stóreyðileggi bæði steyptar
og malbikaðar götur, sbr.
Reykjavikurgötur og sum gólfin i
Fiskiðjunni Freyju h.f. hér i bæ.
Svo að lokum vottum við sam-
starfsmönnum og flokksbræðrum
samgöngumálaráðherra innilega
samúð við fráfall og pólitiska
jarðarför hans. Ennfremur væri
það heiður fyrir Islenzku þjóðina
að láta þá algjörlega afskipta-
lausa bæði Nixon og Pompidú á
meðan þeir dvelja hér. Það
mundi áreiðanlega ekki skaða
málstað þjóðarinnar út i frá.
Ekki til Nato
Framhald af bls. 16.
fiskveiðilögsögu sina i meira en
12 milur hefur engin þeirra
þjóða, sem hafa talið sig eiga
hagsmuna að gæta, gripið til
vopnaðrar ihlutunar. Hern-
aðarofbeldi Breta nú gegn ts-
lendingum, vopnlausri smá-
þjóð, á sér enga hliðstæðu i
heiminum og er algerlega ein-
stætt i samskiptum þjóða varð-
andi fiskveiðilögsögu.
Fundurinn skorar á rikisstjórn
Islands, að hún hlutist til um að
lögð verði þegar i stað tillaga
fyrir Allsher jarþing og
öryggisráð S.þ. um fordæm-
ingu á þessari ofbeldisárás
Breta.
Vér krefjumst þess að Fastaráð
NATO fordæmi aðgerðir Breta
og fyrirskipi þeim að afturkalla
flota sinn.
Með árás Breta hafa þeir lokað
öllum samningaleiðum. Aðeins
með afturköllun flotans getur
skapazt grundvöllur til fram-
haldsviðræðna um bráða-
birgðasamkomulag. tslenzka
Haraldur Kröyer.sendiherra islands i Washington, afhenti landsstjóranum i Kanada trúnaðarbréf sitt
10. april sl. Myndin er tekin við það tækifæri — frá vinstri: Ilaraldur Kröycr, landsstjórinn. skrifstofu-
stjóri landsstjóra.
þjóðin mun aldrei semja undir
valdbeitingu.
A fundinn bárust skeyti frá
nokkrum aðilum, meðal ann-
arra frá Sambandi ungra jafn-
aðarmanna, sem hvatti til úr-
sagnar úr NATO og burtrekst-
urs bandariska hersins.
t fundarlok tilkynnti fundar-
stjóri að ályktun sú er að lokum
var samþykkt yrði afhent i
berzka sendiráðinu i dag fyrir
hádegi og hélt þá allmikill
f jöldi fundarmanna upp á Lauf-
ásveg. Er sagt frá þeim atburð-
um er þar gerðust á 2. siðu
blaðsins i dag.
Greinilegt var af undirtektum á
fundinum að fundarmenn voru
eindregið þeirrar skoðunar að
ekki ætti að skjóta landhelgis-
málinu til NATO. Það kom bezt
I ljós er sjávarútvegsráðherra
sagði: Skjótum ekki land-
helgismálinu til NATO.
Hneyksli
Framhald af bls. 2.
var flotamálaráðherra og yfir-
aðmiráll sagöi svo af sér i dag. I
bréfi til Heaths segir hannaðþvi
miður sé nokkur fótur fyrir þeim
sögusögnum sem gengið hafa um
samband hans við simavændis-
hring. Lögfræðingur hans hefur
lýst þvi yfir að hann hafi ekki
aðhafzt neitt ólöglegt né nokkuð
það sem skert geti öryggi
rikisins. Það er þvi einungis af
siöferðilegum ástæðum sem
lávarðurinn segir af sér.
Heath forsætisráðherra lýsti
þvi yfir i þinginu i dag að hann
myndi ekki liða neinar tilraunir
til að þagga niður mál þetta.
Brezk blöð segja að þetta sé
mesta hneykslismál sem upp
hefur komið i tiu ár eða siðan
Profumo-málið svonefnda skók
undirstöður hins fallandi heims-
veldis.
Þingmaður
Framhald af bls. 2.
innar áður en útnefning hans var
samþykkt. Lögðu nefndarmenn
mikið upp úr þvi að kanna tengsl
hans við Pentagonmálið svo-
nefnda og komst að þeirri niður-
stöð.u að honum hafi verið
allsendis ókunnugt um innbrotið
hjá sálfræðingi Ellsbergs.
í skoðanakönnun sem Gallup
gerði fyrir sjónvarpsræðu þá sem
Nixon hélt um Watergate-málið
kemur fram að fylgi hans hefur
minnkað um 23% siðan i lok janú-
ar. 45% aðspurðra kváðust fylgja
Nixon að málum, 42% kváðust
vera andvigir og 13% höfðu enga
skoðun á afrekum forsetans.
Sundknattleiks
meistaramót
Islands
fer fram i Laugardalslauginni i
júnimánuði og er úrslitaleikurinn
ákveðinn sunnudaginn 24. júni.
Þátttaka tilkynnist Siggeir Sig-
geirssyni fyrir 1. júni.
Bókauppboð á hjá Knúti
á mánudag
Bókauppboð Knúts Bruuns
verður nk. mánudag, 28. mai,kl.
17,00 i Atthagasal Hótel Sögu.
Verða að venju boðin upp 100
númer og bækurnar til sýnis að
Grettisgötu 8 laugardaginn 26.
mai kl. 14-18 og i Atthagasalnum
á mánudag kl. 10-16.
Ýmsar bækur, sem eftirsóttar
Brandt til
Egyptalands
hafa reynzt að undanförnu, eru
meðal númeranna, eins og td.
Menn og menntir Páls Eggerts
Ólasonar I.-IV., Bréfabók Guð-
brands Þorlákssonar I.-VII. og
Orðabók Fritzners útg. 1867. Af
ferðabókum má nefna Lord
Dufferin 1913 og Ferðabók Þor-
valds Thoroddsens I.-IV. og af
skáldsögum Barn náttúrunnar
eftir Laxness og Mann og konu
Jóns Thoroddsens útg. 1876.
Meðal fornrita eru Kristnisaga
útg. i Khöfn 1773 og Sorö-útgáfa
Konungsskuggsjár frá 1768 og i
timaritaflokknum ma. Iðunn I.-
20., Minnisverð tiðindi I.III. og
Islandica Vol I.-XXXVII.
að ári
KAIRÓ 22/5. — Utanrikisráð-
herra Vestur-Þýzkalands, Walter
Scheel, lauk i dag opinberri heim-
sókn sinni til Egyptalands en þar
átti hann viðræður við helztu
valdamenn, þeirra á meðal
Anwar Sadat forseta.
Scheel sagði á blaðamanna-
fundi i lok heimsðknarinnar að
Willy Brandt kanslari myndi fara
i heimsókn til Egyptalands á ári
komanda. Hann kvað Vestur-
Þjóðverja hafa mikinn áhuga á að
skapa réttláta lausn á deilunni við
Miðjarðarhafsbotn. Einnig
kvað hann þá hafa áhuga á að
gera oliusamninga við Egypta til
langs tima.
Scheel fór frá Egyptalandi i dag
áleiðis til Jórdaniu en þaðan mun
hann fara til Libanon I þessari
hringferð sinni um Austurlönd
nær.
Góður árang*
ur í París
PARtS 24/5 — Henry Kissinger
flaug i gær áleiðis til Washington
frá Paris þar sem hann hefur að
undanförnu átt viðræður við
helzta samningamann Norður-
Vietnama, Le Duc Tho um brot á
vopnahléssamningunum.
Hann lýsti þvi yfir við brottför-
ina að góður árangur hefði orðið
af viðræðuj þeirra i þetta skiptið
og að þeir myndu hittast aftur til
viðræðna þann 6. júni n.k. Sagði
hann það ætlun þeirra að ljúka
viðræðum i þeirri lotu. Kissinger
fór til Washington til að gefa hús-
bónda sinum skýrslu en að sögn
Norður-Vietnama mun Tho biöa
endurkomu hans i Paris.
Kvenfélag Hallgrims-
kirkju
heldur kaffisölu I félags-
heimili kirkjunnar sunnudag-
inn 3. júni. Félagskonur og
aðrir velunnarar kirkjunnar
eru beðnir að senda kökur f.h.
sama dag og hjálpa til við af-
greiðslu. Kaffisalan verður i
fyrsta skipti i stóra salnum i
suðurálmu kirkjubyggingar-
innar.
MINUSUK ÁN
CYCLAMATS!
Enginn megrunarkúr.
Notið heldur
nýtt MinuSuk, sætt
án hitaeininga
Nýtt MinuSuk erframleitt
úr hinum góðkunnu
sætefnum sorbitol og
saccdrin, sem leysast
upp á stundinrll.
Nýtt MinuSuk er laust við
aukabragð og auka
verkanir.
Glas m.
1000 stk.
Vasaaskja
m.100 stk
Byrjið í dag og grennlst
án tára!
minusuk
í kaffi, te og matreiðslu.