Þjóðviljinn - 28.06.1973, Side 3

Þjóðviljinn - 28.06.1973, Side 3
Fimmtudagur 28. júní 1973. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3 Flugfreyjan laus af sjúkrahúsinu Jytta Hjaltested, flugfreyjan islenzka, sem lögð var á sjúkra- hús eftir flugslysiö I Ncw York, hefur nú fengið að halda heim eftir tveggja daga dvöl á spitalanum. í gær var „svarti kassinn” opnaður hér i Reykjavik, en niðurstaða þeirra rannsókna sem fram hafa farið á ástæðum flug- slyssins liggja enn ekki fyrir. Við athugun á svarta kassanum, sem hcfur að geyma öll orðaskipti áhafnarinnar siðustu 30 minútur flugsins, er sennilegt aö ástæðurnar komi i ljós, og ættu þær þá að liggja fyrir seinni part- inn i dag. —gsp 300 norrænir barna- læknar þinga í Rvík Magnús Kjartansson heilbrigðis- Danssýningar verða reglulega í sumar, bæði fyrir íslendinga og ferðamenn I' sumar mun fslenzki dansflokkurinn sýna balletf reglulega á hverjum þriðju- og sunnudegi. Sýn- ingarþessareru í samvinnu við AAenntamálaráð. Þjóð- leikhúsið og AAenningarsjóð félagsheimila. Stjórnandi dansanna er Alan Carter, en ballett- meistari er kona hans, Julia Claire. Islenzki dansflokkurinn er ný- stofnaður og kemur nú fram fyrir áhorfendur með fyrstu dagskrá sina, en sýningar hefjast nú 1. júli. Tilgangurinn er að halda á- fram þar sem listdansskóla Þjóð- leikhússins sleppir. Flokkurinn mun efna til sýninga i Reykjavik Dómsmáiaráðherra hefur skip- að Egil Sigurgeirsson hæsta- réttarlögmann formann mats- nefndar eignarnámsbóta sam- kvæmt 2. gr. laga nr. 11 6. april 1973 um framkvæmd eignar- náms, og Jóhannes L.L. Helgason hæstaréttarlögmann varafor- mann nefndarinnar. og einnig mun hann ferðast um landið og sýna i bæjum, þorpum og skólum Dansarar i flokknum eru þess- ir: Auður Bjarnadóttir, Helga Bernhard, Guðrún Pálsdóttir, Ingibjörg Asgeirsdóttir, Margrét Björnsdóttir, Kristin Björnsdótt- ir, Helga Eldon, Ingibjörg Páls- dóttir, Ólafia Bjarnleifsdóttir, Bjargey Þ. Ingólfsdóttir. Verkefnin sem tekin eru fyrir eru 3. SKÖPUNIN: Þar er sagt frá sköpun jaröarinnar i dansi. Is- lenzkt landslag minnir stöðugt á, að sköpun jarðarinnar er enn ekki lokið, og dansinn leitast við að sýna fram á það. Persónur i leiknum eru Adam, Eva og dans- flokkurinn. BOÐORÐIN: Fjölskyldan sem þar segir frá samanstendur af eftirtöldum aðilum: Faðir, sonur, þjónn, hermaður, móðir, fyrsta dóttir, önnur dóttir, þriðja dóttir. Fjölskyldan brýtur boðoröin og leysist upp undir magnaðri tónlist Mangelsdorfs. Hinir löngu vetur þessa lands eru fullir freistinga, engur síður en hinir stuttu vetur fyrirheitna landsins. JÖNAS: Jónas var maður sem neitaði aö hlýða skipunum drott- ins. Hann hlaut fyrir bragðið hin grimmilegustu örlög og var gleyptur af hval. Tónlist Ravi Shankars hjálpar mönnum að skilja boðskap leiksins og lýsa upp myrkrið sem umlykur Jónas. Persónur eru þessar: - Jónas,þjófur,saurlifur maður, jómfrú, skipstjóri, fyllibytta, hommi, lesbia, morðingi. Hvalurinn birtist meö vinsam- legu leyfi landhelgisgæzlunnar. ATHUGASEMD: 1 undirbún- ingi er aö semja um islenzk efni, sem ekki eru enn fullunnin. Þvi er einkum um aö kenna bernsku ballettflokksins, sem stofnaður var 1. júni 1973. ráðherra setti þingið i gcer XVII. þing norrænna barna- lækna og IX. þing norrænna skólalækna er haldið i Reykjavik dagana 27. - 30. júni 1973. Slik barnalæknaþing eru haldin 3ja hvert ár á vegum Sambands norrænna barnalækna og til skiptis i hinum einstöku Norður- löndum. Þing norrænna barna- og skóla- lækna eru nú i fyrsta skiptið haldin hér á landi Um það bil 300 læknar eru virkir þátttakendur, en auk þess um 200 gestir þeirra — konur og börn. Ýmis fyrirtæki halda sýningai- i tengslum við þingið á framleiðslu sinni — tækjum, lyfjum, barnamat o.s.fr. Félag islenzkra barnalækna stendur að þessy sinni fyrir þing- haldinu, en forseti þings bana- lækna er prófessor Kristbjörn Tryggvason. Forseti þings skóla- lækna er H.J. Svendsen frá Dan- mörku. Þingin eru haldin i Mennta- skólanum við Hamrahlið. Er þaö i fyrsta skipti sem slikt þing fer þar fram. Við setningu þingsins i Þjóðleikhúsinu i gær. Túlka sköpunina boðorðin í dansi °g Herinn burt A aðalfundi Alþýöubanda- lagsins I Neskaupstað, sem haldinn var 25. júni 1973, var samþykkt eftirfarandi ályktun um brottför hersins og endur- skoöun á afstöðunni til NATÓ. Er ályktun þessi hér með send fjölmiðlum með ósk um, að þeir kynni hana: „Aðalfundur Alþýðubanda- iagsins i Neskaupstaö, haldinn 25. júni 1973, lýsir yfir ánægju sinni yfir, að nú skuli hafin framkvæmd á ákvæði stjórnarsáttmálans um brott- för hersins. Heitir fundurinn á rikisstjórnina aö sjá til þess, að allur her verði á brott af landinu fyrir árslok 1974. Jafnframt skorar fundur- inn á rikisstjórnina að endur- skoða afstöðuna til Atlanz- hafsbandalagsins og losa þjóðina úr þvi svo fljótt sem samningar leyfa.” Yilja efla varnir gegn olíu A stjórnarfundi Náttúru- verndarsamtaka Austurlands, sem haldinn var 22. júni 1973 á Egilsstöðum, var einróma samþykkt svofelld ályktun um varnir og eftirlit til að koma i veg fyrir oliumengun: „Með tilvisun til stórfelldrar oliumengunar, sem nýlega hefur orðið i austfirzkum fjörðum með stuttu millibili, beinir stjórn Náttúruverndar- samtaka Austurlands þeim eindregnu tilmælum til Siglingamálastofnunar rikis- ins og annarra ábyrgra aðila, að skipulegu eftirliti verði komið á við meðferð og geymslu brennsluoliu við hafnir og jafnframt verði varnir gegn oliumengun efldar til muna. Sérstaklega verði tryggt nægilegt fjár- magn og tæki til skjótra að- gerða til að hindra oliu- mengun, og aðilar i hverjum landsfjórðungi þjálfaðir til slikra starfa” Skeyti frá Brézhnéf I fyrrakvöld bárust forseta Islands og forsætisráðherra svohljóðandi simskeyti frá Leonid Brézhnéf aðalritara sovézka kommúnista- flokksins: „A leið minni nálægt tslandsströndum sendi ég yöur herra forseti Islands og forsætisráðherra kveðjur minar og beztu óskir. Ég vil einnig nota tækifærið til þess að tjá hinni dugmiklu islenzku þjóð djúpa virðingu mina.” Leið- rétting Vegna fréttar um laxveiðimál i Þjóðviljanum, þann 24. þ.m. óskar undirritaður svofelldrar leiðréttingar: 1. Laxveiði i Laxá i Suður- Þingeyjarsýslu mun stór- aukast með tilkomu laxastiga framhjá virkjunum við Brúar, sem samið hcfur veriö um aö rikið byggi á næsta ári. Veiði mun þvi ekki haldast óbreytt i Laxá, eins og gefiö er i skyn I fréttinni, heldur mun hún aukast að miklum mun við opnun 50-60 kiló- metra fyrsta flokks lax- veiðisvæðis, sem hingað til hefur veriö lokað laxveiði- land. 2. Laxveiðileyfi sagði ég, að væru seld á svipuðu verði til útlendinga og lslendinga i Laxá, þegar frá væri dreg- inn sá ferðakostnaður og þjónusta, scm erlcndir veiöimenn yrðu að kaupa með veiðileyfum sinum, en ég minntist að sjálfsögðu ekki á, að islenzkir veiði- menn hefðu „ævinlega með sér tjöld, mat, hliföarföt o.s.frv.” við veiði I Laxá. 3. Ranglega er eftir undir- rituðum haft, að veiði „hefur þvi ekki minnkað meö tilkomu virkjana”. — Enda væri frálcitt að halda sliku fram, þar sem veiði- félögin við Laxá og Mývatn eiga I stórfelldum skaða- bótamálum við Laxár- virkjun, sem gerðardómur á að skera úr um fyrir mcint tjón á lax- og silungsvciöi félagsmanna bæði fyrir ofan og neöan Laxárvirkjun. Hermóður Guðmundsson

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.