Þjóðviljinn - 28.06.1973, Side 5
Fimmtudagur 28. júni 1973. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Birgir borgarstjóri mælti hin fleygu orö:
Birgir borgarstjóri bauð fréttamönnum um daginn i hringferð um borg-
ina til að sýna þeim helztu framkvæmdir sem i henni færu fram. Litið var á
hraðbrautarframkvæmdir við Kringlumýrarbraut. Þar var verið að vinna
við gerð götueyju, verið var að keyra að mold og sá grasi.
Hróðugur sneri Birgir sér þá að blaðamönnum og mælti:
,,Hér sjáum við hvernig gróðurinn fylgir malbikinu. Um leið og við losn-
um við rykið, er hægt að hefjast handa við ræktunina”.
„Gróðurinn
eltir
malbikið”
Innantóm slagorð borgar-
stjóra eiga sér enga stoð
'V'-
Lundur, sveitabýliö gamla I Kópavogi, gæti hugsanlega þurft aö láta f
minni pokann fyrir hraöbrautarframkvæmdum. Neöar á myndinni sést
landssvæði úr skógræktarstööinni.
Annaö og öilu athyglisverðara
mál en sáning i götueyjar er nú
uppi á teningnum hjá borgar-
stjóra. Nú hyggst hann fjarlægja
skógræktarstööina I Fossvogi,
gjöreyða öllum gróöri i dalnum,
kaupa land af Kópavogsbæ og
leggja siöan heljarmikla hraö-
braut inneftir Fossvogsdal.
Birgir sagði i viötali viö frétta-
mann Sjónvarpsins, aö sú
ákvörðun hefði veriö tekin, að
vernda Elliöaardalinn, en leggja i
stað þess hraðbraut um Fossbog-
inn. Erfitt er að gera sér grein
fyrir forsendum þessarar
ákvöröunar. Reykjavikurborg
hefur þegar byggt alveg niöuraö
landamörkum Kópavogs, og til aö
unnt sé aö leggja hraðbrautina
verður borgin að kaupa land af
Kópavogskaupstað.
Birgir hefur einnig lofað að
Skógræktarstööin fái að standa,
en sllk loforö eru út í hött og
ógjörningur fyrir borgarstjóra aö
efna þau ncma meö þvi einu að
falla frá öllum framkvæmdum i
dalnum. Að visu væri þetta mögu-
leiki með þvi aö kaupa, allt land
Kópavogs og smella hraðbraut-
inni inni bæjrdyr kaupstaðarbúa,
en útilokaö er að þeir gangi aö
slikuni afarkostum.
Bæjarstjórn Kópavogs hefur þó
i skipulagi sinu miðað byggingar-
framkvæmdir i dalnum við það,
að hraðbraut fari i gegnum hann,
og nú standa yfir viðræður milli
Kópavogs og Reykjavikur um
eignaskipti á löndum, þannig að
Reykjavikurborg fái Fossvogs-
dalinn, en Kópavogskaupstaður
aukið land i suðurátt.
tbúar i Kópavogi hafa myndað
með sér öflug samtök til baráttu
gegn framkvæmdum i dainum og
hafa þau þegar leitt til þess aö
bæjarstjórn hefur lofaö að flana
ekki að neinu i samningunum við
borgina og reyna að koma i veg
fyrir eyðilegginguna. Kópavogs-
bær get'ur þvi hindrað þessar
framkvæmdir með þvi að neita að
selja land sitt.
Myndir og texti:
Gunnar Steinn
Furðuleg
ummæli
borgarstjóra
Borgarstjóri sýndi það greini-
lega i viðtali við fréttamann
Sjónvarpsins nú fyrir skömmu að
þekking hans á þessu máli er afar
takmörkuð og að hann er
greinilega alls ekki dómbær á
rétlmæti eða möguleika þessara
framkvæmda i Fossvogsdal.
Aðspurður sagði hann, að þrátt
fyrir að borgin hefði byggt niður
að bæjarmörkum Kópavogs væri
möguleiki á að hraöbrautin gæti
komið þarna án mikilla landa-
kaupa af Kópavogskaupstað.
Skógræktarstöðin mundi einnig ta
að standa. Af meðfylgjandi
myndum sést, að þetta er ekki
möguleiki. Með þvi að sneiða
framhjá skógræktinni yröi
óhjákvæmilegt að fjarlægja
Lund, sem er landbúnaöarbýli i
landi Kópavogs við Fossvoginn,
og einnig að böggla þessari bless-
uðu hraðbraut alveg upp i bæjar-
dyr Kópavogsbúa.
Ekki er möguleiki að leggja
veginn Reykjavikurmegin við
skógræktina, þvi þá yrði að
fjarlægja allar nýbyggingar þar
við dalinn.
Birgir sagði einnig, að til-
gangurinn með eignaskiptunum i
Fossvogsdal væri aðallega sá, að
hraðbrautin lægi eingöngu I öðru
sveitarfélaginu, til dæmis vegna
viðhalds o.fl. þ.h. Brautin mundi
siöan liggja um botn dalsins og
tryggt yrði, aö 90 metra bil yrði
milli byggðar og brautar.
Verndum Fossvogs-
dalinn
t áöurnefndu ferðalagi Birgis
um borgina með fréttamönnum
voru skoðaðir margir staðir þar
sem verið var að aka gróðurmold
i stór svæði, og á að gera þar hina
fegurstu garða og útivistarsvæði.
1 Fossvogsdal er hinsvegar um
6 metra þykkt lag af gróöurmold,
og er þvl upplagt að gera þar eitt
stórt útivistarsvæði fyrir borgar-
búa og Kópavogsbúa. Slíkt þyrfti
ekki að verða mjög dýrt. Grasið
og gróðurmoldin eru næstum
ótakmörkuð. Það yrði einnig mun
ánægjulegra aö sjá yfir friðsælan
dalinn með skógræktarstöð,
skemmtigarða, sparkvelli fyrir
strákana og útivistarsvæði fyrir
börnin, heldur en aö þurfa að
horfa upp á öskrandi biikkbeljuna
geysast þarna um og valda öllum
og öllu leiðindum og óþægindum.
Borgarbúar ættu sem flestir að
slást i lið með Kópavogsbúum og
leggjast allir á eitt um að vernda
dalinn fyrir þessum eyðilegg-
ingareiginleikum ,tækniframfai>
anna.
tlr Skógræktarstöðinni. Þar sem dráttarvélin ekur nú,mun siðar koma geysimikil hraðbraut, sem liggur niðurfyrir húsaþyrpinguna og siðan
inneftir dalnum. Friðsældin innan um trén verður að vikja.