Þjóðviljinn - 28.06.1973, Síða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 28. júní 1973.
Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið
tjutainrxx^
26. júni 1973.
Laust embætti
er forseti Islands veitir
Héraðslæknisembættið i Búðahéraði er
laust til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfs-
manna rikisins.
Umsóknarfrestur er til 27. júli 1973.
Embættið veitist frá 1. ágúst 1973.
Aðvörun:
Aðalskoðun bifreiða i Kópavogi árið 1973
er lokið. Þær bifreiðar merktar Y, sem
ekki hafa verið færðar til aðalskoðunar
fyrir 1. júli n.k. verða teknar úr umferð
hvar sem til þeirra næst.
Bæjarfógetinn i Kópavogi.
Sýning á
1 Hallveigarstöðum stendur
nú yfir sýning á eftirprentunum
ýmissa frægra myndlista-
höfunda, svo frægra, að dóna-
legt væri að telja upp nokkur
nöfn nema nefna þá alla; og þar
sem þeir eru að auki hvorki
meira né minna en 57 talsins,
verður það ekki gert hér.
Sýningin var opnuð 26. þessa
mánaðarogstendurtil lstajúli.
Á sýningunni eru 76 verk i
vönduðum römmum, en
sýningin er fyrst og fremst sölu-
sýning, og verö mynda frá 2
þúsund krónum og upp i 14
þúsund og 200 krónur.
Eftirprentanir þessar eru
geröar i ýmsum löndum.
Meðfylgjandi mynd tók Ari
Kárason og er hún af eftir-
prentun af málverki eftir
Edward Munch. — úþ
Tollstjórar
þinga
19. fundur Norræna tollasam-
vinnuráðsins var settur á Hótel
KEA á Akureyri i gær kl. 10 ár-
degis.
Fundinn sitja aöaltollstjórar
Norðurlandaþjóðanna og starfs-
menn þeirra, alls 28 manns. For-
maður Norræna tollasamvinnu-
ráðsins þetta árið er Björn Her-
mannsson, tollstjóri i Reykjavik.
OPNUM í DAG
i dag aukum við enn þjónustuna við viðskiptavini okkar. Við opnum nýja
benzínstöð við Kleppsveg — á gatnamótum Langholtsvegar.
Á staðnum bjóðum við upp á þvottasvæði, auk verzlunar með margvíslegar
Shell-þjónustuvörur.
Við bjóðum yður velkomin og munum leitast við að veita góða þjónustu á hinni
nýju stöð, eigi síður en þeim eldri.
Olíufélagið Skeljungur hf
eftirprentunum
• 111"111 1 • -
Kennarar álykta um
landhelgi
Fulltrúaþing Landssambands
framhaldsskólakennara var
haldið i Reykjavik i byrjun þcssa
mánaöar, en Landssambandið er
25 ára um þessar mundir.
Við birtum hér 2. myndir frá
þinghaldinu og ályktun sem þing-
ið gerði um landhelgismál:
Ályktun um landhelgismál.
Fjórtánda fulltrúaþing Lands-
sambands framhaldsskólakenn-
ara, haldið i Reykjavik dagana 2.
til 4.júni 1973, skorar á alla Is-
lendinga að standa fast saman
um útfærslu fiskveiðilögsögu við
Island.
Þingið harmar andstöðu stór-
þjóða við það lifshagsmunamál
islenzku þjóðarinnar, að hún
megi vernda og nýta þau fiski-
mið, sem eru á islenzka land-
grunninu.
Þingið lætur i ljós þær vonir, að
þjóðir heims viðurkenni algjöra
sérstöðu tslendinga til yfirráða
yfir miðunum við landið og þakk-
ar öllum, er styðja og kynna mál-
stað okkar.
Þingið átelur harðlega þær að-
gerðir brezkra yfirvalda, að
senda á vettvang flota herskipa,
og freista þess þannig með valdi
að knésetja réttlátan málstað.
Þingið flytur þakkir þeim
mönnum sem hafa með höndum
hin þýðingarmiklu gæzlustörf á
hafinu og óskar þeim velgengni i
miklum vanda.
Þingið lætur í ljós þá vissu, að
senn muni samstillt þjóð fagna
sigri.
Suðurpóllinn er fundinn!
—Það er ekkert sem sannar, að okkar hnöttur sé sá eini
sem byggður er lifandi verum
ÞEGAR DÝRIN^'K„NARh
HÖFÐUMÁL
EFFEL