Þjóðviljinn - 20.07.1973, Side 5

Þjóðviljinn - 20.07.1973, Side 5
Föstudagur 20. júli 1973. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Mikil aðsókn er að tjaldsvæðinu í Laugardal, mest er þar um útlendinga, en íslendingum fjölgar heldur Svisslendingar I Laugardal: Munaöur aö hafa ótakmarkaöan aögang aö heitu vatni. TJALDBÚAR í LAUGARDAL er hópafsláttur, og eins geta fé- litlir námsmenn fengið einhvern afslátt. Við höfðum ekki langa dvöl hjá Arna, þvi að hann var að aðstoða irska stúlku við að ná sambandi við samferðamann sinn, sem hafði allar matarbirgðir í sinni vörzlu, og virtist ganga eitthvað illa að fá úr þvi skorið hvort maturinn væri kominn i gegnum islenzka tollskoðun. Hjólaði til Isafjarðar Við litið tjald rákumst við á mann nokkurn, sem var að binda farangur sinn upp á reiðhjól. Þetta var Tony Oliver, frá Bristol. Hann sagðist vera á leið til Fagurhólsmýrar. Hann hafði aðeins dvalið á tjaldsvæðinu tvær nætur i þetta sinn, en hann lá þar i tjaldi fyrir hálfum mánuði eða svo og kunni þvi ágætlega. I milli- tiðinni brá hann sér á hjólinu sinu til tsafjarðar. Hann var ekki nema 4 daga á leiðinni þangað, en á heimleiðinni varð hann fyrir þvi óhappi að snúa á sér öklann og varð þvi að fara i flugvél frá Þingeyri, Hann var mjög ánægður með tjaldsvæðið. Það eina, sem að mætti finna, væri ef til vill um- ferðarniðurinn, en við þeim vanda væri vist litið unnt að gera inni i miðri borg. Tony virðist sækjast eftir kyrrð, hann hjólar einn um landið, og segist kunna þeim ferðamáta ágætlega. Hann vinnur i rannsóknastofu og fær þarþriggja vikna sumarleyfi, en það nægir honum ekki til að skoða Island. Þess vegna tók hann sér fjögurra vikna kauplaust fri. Þegar við vorum að fara út af svæðinu kom Tony hlaupandi til okkar, og bað okkur fyrir alla muni að geta þess, að mjög margir Bretar vonuðust til að tslendingar fengju 50 milna fisk- veiðilögsögu viðurkennda. Sakna trjánna Næst rákumst við á fjóra Sviss- lendinga. Þau höfðu verið i nokkrar nætur á svæðinu og kunnu þvi mjög vel. Þau sögöust hafa verið á tjaldsvæðum viöa I Evrópu, og þetta væri fyllilega sambærilegt við það/sem annars staðar gerðist. Fyllsta hreinlætis væri gætt á klósettunum, og ; \ s v- a.v Anne og Cathrin nýkomnar frá trlandi. liMbB Um nokkurra ára bil hefur verið opið tjald- stæði inni í Laugardal í Reykjavík. AAjög mikið hef ur verið urh tjöld þarna í sumar. Búið er að setja upp girðingu kringum svæðið, og þar er ágætis snyrtiað- staða. Blaðamaður Þjóð- viljans og Gunnar Steinn Ijósmyndari brugðu sér inn í Laugardal til að líta á mannlífið í tjaldbúðunum. Árni Pétursson, kennari, er eftirlitsmaður tjaldsvæðisins i sumar. Hann hefur bækistöðvar i öðrum enda byggingar, sem stendur við innganginn að svæðinu. 1 hinum enda byggingarinnar er snyrtiaðstaða; klósett, vaskar og speglar og reyndar rafmagn fyrir rakvélar. Tjaldbúðagestir geta svo skolað af sér svitann i sundlaugunum, sem eru rétt við svæðið. Arni sagði, að undanfarið hefðu verið á svæðinu um 100 til 130 tjöld. Langflestir gestanna væru útlendingar, en þó væri alltaf eitt- hvert slangur af íslendingum. Talsvert kæmi af Norðlingum og Vestfirðingum. Við bárum það undir hann, hvort mikil brögð væru að þvi, að islenzkir unglingar trufluðu ró t j a 1 d g e s t a með drykkjulátum, en við höföum heyrt, að nokkuð hefði kveðið að þvi á undan förnum árum. Arni sagðist ekki hafa orðið var við það, en hinu væriekki að neita, að þó nokkuð bæri á, að Reyk- vikingar væru i einhverju sam- bandi við útlenda tjaldbúa. Ekki þyrfti að amast við þvi, ef settum reglum væri hlýtt, en samkvæmt þeim á að rikja ró á svæðinu eftir klukkan 11 á kvöldin. Fram til þessa hafa menn getað tjaldað i Laugardal án þess að borga fyrir það. Nú i sumar var ákveðið að taka 100 króna gjald fyrir nóttina á hvert tjald. Gefinn Rafn Vatnsdal frá Akureyri. Fjöl- skylda hans eltir bliöviöriö. Tony Oliver: Margir Bretar styöja tslendinga i landhelgisbar- áttunni. hvergi hefðu þau komiö, þar sem unnt er að fá heitt vatn ómælt nema hér. Það væri einnig mikill kostur að hafa sundlaug svo til i seilingarfjarlægð. Það eina sem vantaði til að gera lifið i tjaldbúðunum alfull- komið væri verzlun og trjágróður. þó vildu stúlkurnar meina, að tré væru ekki nauðsynleg. Island væri gróðursnautt land og þvi væri eðlilegt, að trjágróður væri með minnsta móti i Laugardal. Við spurðum þau, hvaða staði á Islandi þau hefðu heimsótt, en þau sögðust ekki vita það. Þau litu aldrei á kort, ækju bara eitt- hvað út i buskann og hirtu aldrei um, hvert förinni væri heitið. Anna og Katrín Ann’e Coleman og Cathrin Doyle höfðu verið einn sólarhring á Islandi. Þær komu ásamt 23 manna hópi i för með Gerritt van Gelderen. Hann var hér i fyrra- sumar og gerði þá þátt um lsland fyrir irska sjónvarpið. Hann varð svo hrifinn af landinu að hann safnaði um sig hópi vina og kunningja og hélt til Islands á ný. önnu og Katrinu leizt ágætlega á tjaldsvæðið. Ekki sögðu þær að mikið væri af slikum svæðum á Irlandi og án efa fá, sem væru i grennd við slikan ágætis baðstað og sundlaugin i Laugardal er. Ekki sögðust þær vita, hvort van Gelderen hefði frekari myndatökur i huga, en án efa myndi hann taka einhverjar myndir. Fylgir góða veðrinu Rafn Vatnsdal kom ásamt fjöl- skyldu sinni til Reykjavikur frá Akureyri á sunnudagskvöldið og tjaldaði þá i Laugardal. Hann sagði, að hann kynni ágætlega við sig. Það væri i alla staði mjög þægilegt að hafa næturstað i Laugardal, þegar komið væri til Reykjavikur, að minnsta kosti ef vel viðraði. Ekki sagðist hann vita, hve lengi fjölskyldan dveldi i Reykja- vik. Það færi allt eftir veðri. Þau vildu vera i sólskini, og þvi væri ekkertannað að gera en elta góða veðrið. Ibúar íslands 210.775 1. des. sl. Samkvæmt ibúaskrá sem Hag- stofan vinnur og miðuð er við 1. des. 1972, voru ibúar landsins þá samtals 210.775. A sama tima 1971 var ibúatalan 207.174, og er fjölgunin á árinu 1,74%. íbúar i kaupstöðum landsins voru sem hér segir: Reykjavik . . . . 83.977 Kópavogur Akureyri ....11.182 Ilafnarfjöröur Keflavik Vcstm .cyjar Akranes tsafjörður Húsavik Siglufjörður Sauöárkrókur Neskaupstaður Ólafsfjörður Seyöisfjöröur Fjölmennustu sýslur landsins eru Gullbringusýsla meö 8.952 ibúa, Arnessýsla 8.559 og Suður- Múlasýsla með 5.115. Eftirtalin hreppsfélög (kauptún) hafa yfir 1000 ibúa: Garðahrcppur 3.373 Selfoss 2.506 Njarðvik 1.644 Grindavík 1.353 Borgarnes 1.243 Dalvik 1.093 Ólafsvik 1.057 Stykkishólmur 1.045 Höfn i Hornaf 1.013 Bolungarvik Flateyjarhreppur i S- Þing- eyjarsýslu var sameinaöur Háls- hreppi 1972, en hafði 5 ibúa 1971. Framhald á bls. 15.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.