Þjóðviljinn - 20.07.1973, Síða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 20. júli 1973.
Viðtal við Mario Zagallo, þjálfara landsliðs Brasilíu
Við leggjum ekki
öll spilin á borðið
tökum sóknarfótbolta uppaftur seinna
Fréttaritari austurþýzka
íþróttablaðsins Sportecho
náði eftir mikið stríð viðtali
við Mario Zagallo, sem
hefur verið þjálfari
brasílíska landsliðsins síð-
an i heimsmeistarakeppn-
inni í Mexikó 1970. Fór það
fram i Moskvu skömmu
eftir að Brasilíumenn
höfðu sigrað sovézka lands-
liðið með 1:0.
Sjálfur lék Zagallo með
brasilísku landsliðunum
sem urðu heimsmeistarar
bæði 1958 og 1962 og hann er
þjálfari Flamengo í Rio de
Janeiro auk þess að vera
landsliðsþjálfari.
Zagallo kvaðst helzt keppa að
þvi að lið hans gæti i ró og næði
byggt sig upp til að verja heims-
meistaratitilinn. Hann var mjög
ánægður með keppnisferðina til
Evrópu; þar höfum við náð betri
árangri en i nokkurri ferð áður.
Og mestu skiptir að við höfum
haft tækifæri til að stúdera
Evrópuliðin,kostiþeirra og galla.
Sovétmenn voru mjög drengi-
legir andstæðingar, sagði Zagallo
ennfremur. Þeir eru sem fyrr
sterkir i vörn og á miðjum velli.
Ég get reyndar fátt sagt um
markvörðinn þvi að okkar menn
skutu litt á hann. Menn verða að
fyrirgefa okkur það að við spilum
ekki eins skemmtilega nú og
skyldi. Alit verður að lúta þvi
markmiði að verja titilinn.
— Ætlið þið að blanda saman
ungum og gömlum?
Ég set sem fyrr mikið traust á
reynda leikmenn, einnig þá Ger-
son og Tostao, sem urðu að sitja
heima nú. Ég vona að augnaað-
gerðin sem gera verður á Tostao
gangi vel, þvi við þurfum á hon-
um að halda i sóknina eftir að
Pele fór. Yngri leikmenn munu
hópast um þá eldri, sem ég mun
alla setja i liðið um leið og þeir
verða á lausum kili. bað verður
ekki um neina tilraunastarfsemi
að ræða. En það þýðir ekki að ég
reyni ekki eins og nú i Moskvu
menn eins og Moises og Vendel.
Vendel er allavega ekki lakari
markvörður en Renato og Leao.
En það reyndi litið á hann i
Moskvu þvi að sovézka framlinan
skaut ekki vel. Það er mikil sam-
keppni milli yngri markvarða og
engin getur verið öruggur um sitt
sæti.
Ég verð að segja, að það kom
mér fátt á óvart i leikmáta hinna
evrópsku liða.sem við mættum.
Jafnt hinir hefndarfúsu ltalir,
sem sigruðu vegna rangs dóms-
úrskurðar, og svo Austurrikis-
menn, Vestur-bjóðverjar og
Sovétmenn — þeir spiluðu allir
eins og við höfðum búizt við;
hratt, konsentrerað, af metnaði.
Má vera að vesturþýzka liðið hafi
ruglazt nok"kuð i riminu yfir þeirri
sterku skynsemdaráherzlu sem
við lögðum á vörnina.
Þessi varnarafstaða þýðir alls
ekki að þróun kanttspyrnunnar
gangi þá braut. Brasiliumenn
munu alls ekki ganga fram hjá
þeim áhuga á sóknarfótbolta sem
nú gætir um heim allan. Eg legg
aftur áherzlu á það að þessir leik-
ir hér i Evrópu voru aðeins próf-
un. bað var einmitt Brasilia sem
gerði sóknarfótbolta útbrei ddan i
hans beztu mynd. Við Verðum
bara að koma okkur niður á skyn-
samlegri grundvöll, það er allt og
sumt. Þegar við komum á heims-
meistaramótið þá munuð þið sjá
okkur spila allt öðruvisi fótbolta.
— Þið tókuð nokkuð létt á æf-
ingum i ferðinni. Er það megin-
regla hjá ykkur.
— Við æfðum okkur minna en
venjulega meðan á ferðinni stóð.
Auk þess viljum við ekki sýna öll
okkar spil strax. En það mun
koma á daginn að Lobo — Úlfur-
inn — eins og ég er kallaður, grip-
ur til harkalegri þjálfunar þegar
liður að heimsmeistarakeppn-
inni.
Margir fara hörðum orðum um
núverandi leikmáta ykkar, sem
þeim finnst leiðinlegur.
—- Það hefur ekki minnstu áhrif
hvorki á mig né strákana. Við
þurftum að leika i ferðinni marga
leiki á stuttum tima og þurftum
þvi að fara varlega. Auk þess
vilja margir gleyma þvi, að þótt
við gerðum fáar árásir þá voru
þær vel upp byggðar og alveg
nógu hættulegar. Samt verð ég að
játa að okkur vantaði áhlaupa-
menn eins og Pele og Tostao.
— Hvernig stendur á þvi, að
leikmenn ykkar hafa svona gott
vald á knettinum og um leið sjá
þeir alltaf þann mann sem er
frir?
— Þetta læra menn frá blautu
barnsbeini i Brasiliu. Brasilisk
æska lifir og hrærist i knatt-
spyrnu og þegar ungir menn
koma til Flamengo þá geta þeir
gert næstum hvað sem er við bolt-
ann. Hér fara saman eðlislæg
hæfni og uppeldi.
— Hvað er á döfinni?
— Ég veit að samið verður um
ýmsa leiki i Brasiliu næsta vor.
Við ætlum að koma með vel þjálf-
að lið til heimsmeistarkeppni sem
mun að sjálfsögðu spila skemmti-
legri árásarfótbolta en nú. Meira
vil ég ekki segja. Nema að við
vildum gjarna hitta Hollending-
ana.
Þessi niynd
er úr leik
Brasiliu-
inanna og
Sovétinanna
f y r i r
skömmu og
það er snill-
ingurinn
Paulo Cesar
sem þarna
leikur á
sovézkan
v a r n a r -
mann. Cesar
er einn af
ungu mönn-
unum i iið-
inu.
Mario Zagallo þjálfari brasilfska landsiiðsins
Það er dásamleg tilfinning að
vera þjálfari iiðs á heimsmæli-
kvarða, sem bregst svotil blint
við minnstu bendingu, eins og vel
smurð vél. Eins og ég fyrr sagði,
lifum við Brasiliumenn og hrær-
umst i fótbolta. Það er þess vegna
sem við tökum undirbúninginn
undir næstu heimsmeistara-
keppni svo alvarlega.
Brautirnar
eru bara 6
— Brautirnar eru bara 6 á
vellinum, þannig að tsland
getur ekki fengið að vera með
i keppninni. — Eitthvað á
þessa leið hijóðaði skeyti sem
FRÍ fékk i fyrradag frá
finnska frjálsiþróttasamband-
inu, sem ætlar að sjá um
keppni milli Norður-Finnlands
N-Svíþjóðar og N-Noregs og
islendingar áttu eins og ávallt
áður að vera með i keppninni.
En svo kom skeytið 5 dögum
áður en keppnin átti að
hefjast.
Er þetta kannski hin
Norræna samvinna I verki,
eða hvað. S.dór
Ragnhildur enn
meö nýtt ísl.met
Ragnhildur Pálsdóttir setti enn
eitt íslandsmetið á siðasta degi
Meistaramóts Islands i frjáls-
iþróttum og nú var það metið i
1000 m hlaupi sem féll. Annars
urðu úrslit siðasta dagsins þessi:
Fimmtarþraut karla
1. Stefán Jóhanns.A 2512 st.
2. Guðlaugur Ellerts.IR 2301 ”
3. SigurðurP.Sigmunds.
FH 2242 ”
4. Asgeir Þór Eiriks.lR 1807 ”
Stefán Hallgrimsson KR hætti
eftir 4 greinar.
Helgi Hauksson UMSK hætti eftir
4 greinar.
Valbjörn Þorláksson A hætti eftir
1 grein.
3000 m hindrunarhlaup
1. Halid.Guðbjörnss.KR 9:34,4
min
2. Einar óskarss.
UMSK Drengjamet.
9:54,0 ”
3. Magnús Einarss.lR 11:20,0 .”
1000 hlaup kvenna, aukagrein
1. Ragnhildur Pálsdóttir UMSK
3:01,2min.Nýtt isl. met.
2. Lilja Guðmundsd. 1R 3:06,4
3. Anna Haraldsdóttir FH
3:11,3 min.Telpnamet.
Umsjón Sigurdór Sigurdórsson