Þjóðviljinn - 20.07.1973, Síða 10

Þjóðviljinn - 20.07.1973, Síða 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 20. júli 1973. JON CLEARY: Sendi- fulltrúinn Hvernig vissiröu aö ég var eitt- hvað flæktur i það? — Ég lagði saman tvo og tvo. Þú varst að elta einhvern náunga þegar ég hleypti þér út og þú fórst inn i leigubílinn — tuttugu minút- um seinna varð sprenging spöl- korn frá Astraliuhúsinu — Hann brosti, sýndi gervitennur sem voru of nettar og reglulegar fyrir grófgert og breiðleitt andlitið. — Bilstjóri hefur mikinn tima til að lesa. Ég les kynstur af glæpareyf- urum i hverri viku. — Og þú hefur ekki nefnt þetta við neinn? — Ekki nokkur mann. Þú held- ur svona starfi ekki lengi ef þú getur ekki haldiö kjafti. Ef herra Quentin vill að ég skilji ekkert, þá skil ég ekkert. — Þér likar vel við hann. — Þeir gerast ekki betri. Hann er prins, skilurðu! Malone leit sem snöggvast aft- ur i bilinn. Prinsinn sat og starði út um gluggann, gráleitt og fritt andlitið þreytulegt; tign hans var að fjara út, það átti bráðum að hrifsa hann burt úr virðingarstig- anum. Hann lokaði augunum andartak eins og hann fyndi til sársauka; þegar hann opnaði þau horfði hann beint á Malone. Þeir störðu andartak hvor á annan; þá leit Malone fram fyrir sig á ný og hélt þvi áfram alla leiðina fram- hjá höllinni. Ef til vill hefði kúla tilræðismannsins verið miskunn- samari þrátt fyrir allt; það var á- takanlegt að horfa á mann deyja smátt og smátt. Þeir stönzuðu fyrir framan Lancaster House. Malone steig út og maður kom æðandi i áítina til hans. Malone greip hendinni innfyrir jakkann, greip um byss- una; en maðurinn var forvitinn, ekki ógnandi. — Er þetta ekki Scobie Malone? Malone undirfor- ingi i rannsóknarlögreglunni i Sidney? Malone hikaði, sleppti byss- Kokkurinn mælir með Jurta! unni. Hann kinkaði kolli, vissi af Quentin og þeim hinum fyrir aft- an sig. Hann færði sig fjær og teymdi manninn með sér. — Hver ert þú? — Jim Locke. Ég er frá Sydney Morning Heraid. Magurt, dökk- leitt andlitið með þykkum, svört- um brúnum var mjög forvitni- iegt; hann fann þef af frétt. — 37 Ertu ekki býsna langt frá vakt- inni þinni? Malone komst hjá þvi að stama, vegna þess að Quentin kom aðvif- andi — Er nokkuð að, Scobie? Locke lyfti brúnum. — Góðan daginn, herra minn. Ég var bara að spyrja Malone undirforingja hvers venga hann væri hér. — — Hann er i leyfi, sagöi Quentin. — Og hann býr hjá mér meðan hann er i London. Við er- um gamlir vinir. Ég held hann langi til að gleyma þvi að hann er lögreglumaður i svo sem viku- tima. Ertu ekki sammála, Scobie? Gleymdu þvi lika, Jim. Við skulum leyfa honum að vera i friði. Locke lét sig ekki: — En þegar ég sá hann hér. — — Við höldum aldrei ráðstefn- ur af þessu tagi heima i Astraliu, það veiztu. Hann er bara að vikka sjóndeildarhringinn hjá sér. — Það mætti skrifa um það smáfrétt. — Hllfðu mér við þvi, sagði Malone og ver nú búinn að ná sér. — Strákarnir heima myndu ganga af mér dauðum. Gerðu mér greiða, og hver veit nema ég geti einhvern tima goldið liku likt. Locke hristi höfuðið. — Ég býst ekki við að fara oftar að snuðra hjá lögreglunni. Það er hvers- dagsmatur miðað við þetta. Jæja. — Hann tautaði eitthvað og fór siðan burt. Quentin horfði á eftir honum. — Þú verður að vera fljótari að átta þig, Scobie. Þetta hefði getað orð- ið óþægilegt fyrir okkur báða. — Heldurðu að hann skrifi eitt- hvað? — Ef hann ætlar sér það, þá reynir hann aftur að pumpa þig. Hann er ekki slúöurdálkahöfund- ur. Hann er snobb, hefur aðeins á- huga á stórmálum. Þú heyrðir hvað hann sagði um lögreglumál- in. Hann ætti bara að vita, ha? Hann gekk áfram inn i stóra húsið, kinkaði alúðlega kolli til ljósmyndaranna, maður i full- komnu jafnvægi, fær um að tak- ast á við hvað sem var. Útjaskaði, örþreytti maðurinn sem Malone hafði horft á i bilnum fáeinum minútum áður, var gersamlega horfinn. Larter og Edgar fylgdu á eftir og Coburn kom siðastur. — Ég sá þig fálma eftir byss- unni þegar þessi náungi æddi til þin, sagði Coburn. — Þú getur á- reiðanlega skotið i reiði. Þarna er hann kunningi þinn! Malone leit um öxl, bjóst við að blaðamaðurinn væri að koma aft i SPRUNGUVIÐGERÐIR simi 10382 auglýsa: Framkvæmum sprunguviðgerðir I steyptum veggjum og þökum, með hinu þrautreynda ÞAN-kitti. Leitið upplýsinga. SÍMI 10382 — KJARTAN HALLDÓRSSON. ur. En Coburn greip i handlegg hans. — Nei, þarna yfir frá. A leiðinni inn i blaðamannasalinn. Malone sneri til höfðinu I skyndi og sá Pallain snúa sér við og senda honum bros. Coburn leit upp og sá hvar Quentin, Larter og Edgar voru i þann veginn að ganga inn i fundarsalinn. — Honum vini okk- ar er óhætt næstu tvo timana. Eigum við að tala við pilt? Pallain stóð enn viö dyrnar á blaðamannasalnum og hann brosti þegar þeir nálguðust hann. — Herra Malone, hvernig liður yður. Þér litið ekki sérlega vel út i dag. Það er enska loftslagið. Það á ekki við mig heldur. Malone kynnti Coburn og hann sagði: — Mér skilst að loftslagið i Saigon sé ekki sérlega heilsusam- legt um þessar mundir. Pallain brosti enn breiðar. Hann var ekki sérlega fallega tenntur, tennurnar voru ójafnar og dálitið gular og brosið var ekki notalegt. — Enskir lögregluþjón- ar eru að verða kaldhæðnir, rétt eins og franskir. Ég tók eftir þvi hjá yfirlögregluþjóninum yðar i gærkvöldi. Hann leit i áttina að fundarsalnum sem nú var verið að loka. — Jæja, þarna sitja þeir. Bjartsýnismennirnir. — Þér haldið þá ekki að þeim verði neittágengt? sagði Malone. — Haldið þér það? — Allt er þess virði að reyna það. Eða finnst yður aðveldara að skrifa um strið? — Misskiljiö mig ekki, herra Malone. Ég er mjög hlynntur friði. En hann kemst sjaldan á með málæði einu saman. Aðeins valdbeitingu. Þér eruð með ljótan skurð á kinninni. — Ég vildi gjarnan ná tali af þeim sem á sökina á honum, sagði Malone. — Með dálitilli valdbeitingu. — Ég er hræddur um að ég geti ekki aðstoðað yður I þvi. Pallain. leit af öðrum á hinn. — Ég kemst ekki út úr hótelinu fyrir lögreglu- þjónum sem elta mig. Þeir ættu fremur að hafa gætur á yður. Hann brosti aftur, hneigði höf- uðið litið eitt,sneri sér við og fór inn i blaðamannasalinn. — Mig langar til að kyrkja þennan drjóla, sagði Coburn. — t fjólurauða hálsbindinu minu. Hvað er að? Malone hafði verið að lita i kringum sig i anddyrinu sem nú var fámennara en áður. — Hvar skyldi hann Jamaica kunningi okkar vera I dag? II. — Ég á von á herra Jamaica á hverri stundu, sagði madama Cholon. — En þú ættir ekki að hringja úr Lancaster House, JenaPierre. Það er of áhættu- samt. — Ég hef allan blaðamanna- salinn fyrir mig, sagði Pallain i hinum enda linunnar. — Og hver ætti að vita i hvern ég hringi? — Það gæti verið hlerað. — Kannski i Moskvu eða Washington. En ekki hér. Bret- arnir nenna ekki að standa i sliku. Þeir eiga I nógum erfiðleikum með að halda simakerfinu sæmi- lega gangandi. Hún heyrði hann hlæja illgirnislega; hann hafði tekiöEnglendingahatur föðurins i arf. — Ég var aö tala við hann ástralska vin þinn, herra Malone i morgun. Hann litur ekki vel út. Pham Chinh hlitur að hafa komið honum i uppnám I gærkvöldi. Er búið að koma bilnum fyrir? — Já. Hvað um Quentin? — Með áhyggjusvip. Það varð þögn; svo sagði hann: — Það er ekki mikill timi til stefnu. Þú hlýtur að vera áhyggjufull lika. — Farðu ekki að reyna að sál- greina mig, Pallain! En hún var áhyggjufull; timinn var orðinn naumur. Hún skellti tólinu á. Hendur hennar skulfu og hún var næstum sjónlaus af reiði. Jafnvel sem barn hafði hún átt erfitt með að þola gagnrýni; hún vissi að þegar hún var fjórtán ára hafði móðir hennar verið fegin að losna við hana á hóruhúsið i Cholon. Fyrsta árið þar hafði hún klórað andlit allmargra viðskiptavina, sem kvartað höfðu undan tækni skorti hennar; aö árinu loknu bar hún af öllum stúlkunum i tækni, en sumir karlmennirnir voru enn hræddir við skapofsa hennar og völdu sér rólyndari stúlkur. Siöan voru tuttugu ár og hún hafði for- framast á margan hátt, hafði lært FÖSTUDAGUR 20. júlí 7.00 Morgunútvarp Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.45 Morgunleikfimi kl. 7.50. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Heiðdis Norðfjörð les söguria um „Hönnu Mariu og villingana” eftir Magneu frá Kleifum / Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög á milli liða. Spjallað við bændur kl. 10.05. Morgunpoppkl. 10.25: Hljómsveitin. Fréttir kl. 11.00. Morguntónleikar: Suisse Romande-hljóm- sveitin leikur Noctúrnur eftir Debussy / Vladimir Askenasi leikur „Gaspard de la nuit” eftir Ravel / Hljómsveit Tónlistarskól- ans i Paris leikur „La valse” eftir Ravel. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.30 Með sinu lagi Svavar Gests kynnir lög af hljóm- plötum. 14.30 Siðdegissagan: „Eigi má sköpum renna” eftir Harry Fergusson. Þýðandinn, Axel Thorsteinson les (14) 15.00 Miðdegistónleikar: Gadinger-kórinn syngur Sigaunaljóð op. 103 eftir Brahms, Martin Galling leikur undir á pianó. Hel- muth Rilling stjórnar. Leontyne Price syngur lög eftir Schumann, David Garvey leikur undir á pianó. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. 16.15 Veðurfregnir. 16.25 Popphornið 17.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.20 Fréttaspegill 19.40 Spurt og svaraö Guðrún Guðlaugsdóttir leitar svara við spurningum hlustenda. 20.00 Frá alþjóðlegri hátið léttrar tónlistar i BBC Guðmundur Gilsson kynnir fyrri hluta. 21.00 Bréf frá frændaeftir Jón Pálsson frá Heiði. Höfundur les siðara bréf. 21.30 Utvarpssagan: „Blómin i ánni” eftir Editu Morris Þórarinn Guðnason þýddi. Edda Þórarinsdóttir les sögulok (8) 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir Eyjapistill 22.35 Draumvisur Tónlistar- þáttur i umsjá Sveins Arna- sonar og Sveins Magnús- sonar. 23.35 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. Lausar stöður Við Merintaskólann i Kópavogi eru fimm kennarastööur lausar til umsóknar sem hér segir: Ein staða i islenzku, ein i ensku, ein i dönsku og frönsku, ein i efnafræði, eðlis- fræði og liffræði og ein i stærðfræði. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknum með upplýsingum um menntun og starfsferil skal komið til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 11. ágúst n.k. Umsóknareyðublöð fást I ráðuneytinu, Menntamálaráðuneytið, 16. júli 1973 Styrkveitingar til norrænna gestaleikja Af fé þvi, sem Ráðherranefnd Norðurlanda hefur til ráð- stöfunar til norræns samstarfs á sviði menningarmála á árinu 1974 er ráðgert að verja um 643.000 dönskum krónum til gestaleikja á sviði leiklistar, óperu og danslist- ar. Umsóknir um styrki til slikra gistisýninga á fyrri hluta ársins 1974 eiga að hafa borizt Norrænu menningarmála- skrifstofunni i Kaupmannahöfn fyrir 1. október 1973 á til- skildum umsóknareyðublöðum, sem fást i menntamála- ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik. Menntamálaráðuneytið, 18. júlí 1973. ORLOFSDVÖL Félagsstarf eldri borgara Félagsmálastofnun Reykjavikurborgar I samvinnu við Hjálparstofnun kirkjunnar efnir til orlofsdvalar dagana 7.—18. ágúst að Löngumýri I Skagafiröi. Allar nánari upplýsingar verða veittar næstkomandi mánudag, þriðjudag og miðvikudag (23., 24., og 25. júli) frá kl. 9—12, að Tjarnargötu 11. Félagsstarf eldri borgara.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.