Þjóðviljinn - 20.07.1973, Side 12

Þjóðviljinn - 20.07.1973, Side 12
Dioanum Föstudagur 20. júll 1973. Almennar upplýsingar um læknaþjónustu borgarinnar eru gefnar i simsvara Lækna- félags Reykjavikur, simi 18888. Nætur- kvöld- og helgidaga- varzla lyfjabúöanna vikuna 13. til 19. júli er i Háaleitisapó- teki og Vesturbæjarapóteki. Slysavarðstofa Borgarspital- ans er opin allan sólarhringinn. Kvöld- nætur- og helgidagavakt á Heilsuverndarstööinni. Simi 21230. írar gagnrýna Dani: Gefa leyfi til að hella úrgangi í Atlanzhafið KAUPM ANNAHÖFN 19/7. — trar báru i dag fram opinber mót- mæli viö dönsku stjórnina vegna þess að lyfjaverksmiðja hefur fcngið leyfi til þess að hella úrgangsefnum I Atlanzhafið. Norska stjórnin hafði áður snúið sér til Dana og beöið um frekari upplýsingar um þetta mál. Tvöstærstu blöð trlands, „Irish Independent” og „Irish Press” gagnrýndu Dani mjög harðlega i dag fyrir að gefa þetta leyfi. trski umhverfisverndarráðherrann James Tully, sem berst fyrir þvi aö bannað verði að kasta úr- gangsefnum i Atlanzhafið, sagði við fréttamenn aðþað væri erfitt aö skilja hvernig yfirmenn danskrar umhverfisverndar gætu leyft fyrirtækinu að losa 12000 lestir af úrgangsefnum við vesturströnd Irlands eftir að þvi hafði verið bannað að hella þeim i Norðursjó við strönd Danmerkur. Tully og danski starfsbróðir hans hittust i Brussel i dag og ræddu málið. „Sameiningar- ganga” Líbýumanna er á leið til Kairó KAIRO 19/7 — Meir en 30 þúsund Llbýumenn héldu áfram „sam- einingargöngunni” til Kafró, þar sem þeir hyggjast halda fund til þess aö krefjast sameiningar Kgyptalands og Llbýu. En talið er að cgypzk yfirvöld muni stöðva þá áður en þangað kemur. Eins og kunnugt er ákváðu leiðtogar beggja þjóðanna, Kadafi og Sadat, að þær skyldu Otago 12 mílur frá Mururoa WELLINGTON 19/7 — Nýsjálenzka freigátan Otago, sem stödd er á hættusvæðinu við Mururoa til að mótmæla kjarnorkutilraun Frakka þar, tók i dag stefnuna upp að Mururoa-rifi. Frakkar hafa lýst yfir 72 sjómflna breiðu hættusvæði umhverfis eyjarnar, en sagt er að freigátan ætli að fara alveg upp að mörkum landhelginn- ar, sem er þar aðeins 12 milur. Blaðamaðurinn David Barber, sem er um borð i Otago, sagði að hann sæi nú greinilega loftbelginn, sem sprengjan verður hengd neðan I áður en tilraunin verður gerð. Hann sagði að veðrið væri mjög gott og búizt væri við þvi að tilraunin yrði gerð innan skamms. Norman Kirk forsætisráð- herra Nýja Sjálands sagði i dag, að aðförin að snekkjunni Frjáls 1 gær hefði verið ólög- leg. Stjórn landsins hefur beðið franska sendiherrann i Wellington að ganga úr skugga um að vel sé farið með áhöfn snekkjunnar, en i henni voru margir Nýsjálendingar. sameinast 1. september næst- komandi, en eitthvað babb virðist komið I bátinn, þvi aö samein- ingin hefur ekkert verið undir- búin. Svo virðist m.a. sem Egyptar séu litt hrifnir af skoð- unum Kadafis i menningar- málum, þvi að hann telur að Kór- aninn hafi að geyma lausn allra vandamála og aðrar bækur eða kenningaróþarfar. Aðgerðir hans og yfirlýsingar að undanförnu, m.a. árás hans á kvenfrelsi á fundi i Kairó, hafa mjög hneykslað Egypta. Seint i gær- kvöldi skýrðu e,kypzt yfirvöld frá þvi að Kadafi og Sadat hefðu oröið ásáttir um þaö i gær að fresta sameiningunni um ár, og láta hina endanlegu þjóöarat- kvæðagreiðslu fara fram 1. sept- ember 1974. Þessar fréttir hafa þó ekkert dregið úr sameiningarvilja Libýumanna. Eftir hádegi i dag kom „sameiningargangan” til hafnarborgarinnar Benghazi, og voru þátttakendur fullir af eld- móði og ákveðnir að halda áfram til Egyptalands. Egypzk yfirvöld hafa áform um að stöðva gönguna i hafnarborginni Mersa Matruh, um 190 km fyrir innan landamæri Egyptalands, en i fréttatilkynn- ingu frá Libýsku fréttastofunni stóð að Libýumenn vissu ekki einu sinni hvar sú borg væri. Sagt er að 100 manna sendinefnd muni fara á fund Sadats, forseta Egyptalands og afhenda honum kröfuskjal ritað með blóði. 43 farast í bílslysi GRENOBLE 19/7 — A.m.k. 43 menn létu lifið þegar beigiskur hópferðablll ók út af fjallvegi i grennd við borgina Vizille i frönsku ölpunum i gærkvöldi. Hrapaöi hann 25 m niður i ána Romanche. I bilnum voru 49 belgiskir ferðamenn, og lifðu sex þeirra af slysið. Getur Framkvasmda stofnun stöðvað Seðlabankann ? Rœtt við Ragnar Arnalds, sem er formaður stjórnar Framkvœmdastofnunnarinnar I tilefni af samþykkt stjórnar Framkvæmdastofn- unar rikisins um tilmæli til Seðlabankans, að hann fresti byggingu bankahúss við Arnarhól i Reykjavik, sneri Þjóðviljinn sér til Ragnars Arnalds, sem er formaður stjórnar Framkvæmda- stofnunar og innti hann frétta af málinu. Við spurðum Ragnar — er ekki óvenjulegt að Fram- kvæmdastofnunin gripi inn i mál með þeim hætti sem hér hefur gerzt? — Þetta mál er sérstaks eðlis, sagði Ragnar, cn það er hlutverk Framkvæmdastofn- unarinnar að hafa heildar- stjórn á fjárfestingarmálum. Þó að Framkvæmdastofn- uninni sé ekki beinlínis ætlað það hlutverk að leyfa eða banna einstakar fram- kvæmdir, þá hefur hún afskipti af miklum fjölda framkvæmda bæði beint og óbeint. Yfirleitt verða engar framkvæmdir að veruleika án mikilla lánveitinga og kemur þar mjög til kasta Fram- kvæmdastofnunar rikisins, þar sem hún ræður yfir 2,mjög stórum sjóðum og skipuleggur fjármögnun allra helztu fjár- festingarsjóða. Þarsem Seðlabankinn er, er aftur á móti um aðila að ræða, sem ræður yfir eigin fjár- magni og þarf þvi ekki undir Framkvæmdastofnunina að sækja, hvað lánveitingar snertir. Ég vil minna á það, að i samþykktinni er reyndar ekki Nixon enn í klípu Þingið takmark- ar vald forsetans Ragnar Arnalds fjallað eingöngu um Seðla- bankann, heldur ákveðið að kanna almennt, hvaða fram- kvæmdum á vegum banka- stofnana og annarra hlið- stæðra aðila megi fresta, en byggingaráform Seðla- bankans eru nefnd sérstak- lega, vegna þess að verkið er rétt um þaö bil að hefjast. — Vilt þú einhverju spá um viðbrögð Seðlabankastjórnar? — Af okkar hálfu er þarna um eindregin tilmæli að ræða, og i framhaldi af þeim fara fram viðræður fulltrúa Fram- kvæmdastofnunarinnar og Seðlabankans og munu þær hefjast nú þegar, Ég tel svo ekki óliklegt, að rikisstjórnin muni álykta eitthvað um málið, en fram hefur komið opinberlega, að Lúövik Jós- epsson, bankamálaráðherra er hlynntur frestun. — En vilji nú stjórn Seðla- bankans ekki fallast á tilmæli ykkar, hefur þá ekki einhver aðili stöðvunarvald? — Jú, ég tel i rauninni engan vafa á þvi, að i sam- ræmi viö lögin um Fram- kvæmdastofnun rikisins, þá getum við i stjórn Fram- kvæmdastofnunarinnar sett almennar reglur um það, hvers konar framkvæmdir skuli hafa forgang umfram aðrar, og þvi er hugsanlegt I þvi óvenjulega ástandi, sem nú rikir i atvinnulifi þjóðarinnar, að kveða á um það, að öllum bankabygg- ingum verði slegið á frest. — En hvað um staðsetningu bankans, Látið þið ykkur hana engu skipta? — Samþykkt okkar er fyrst og fremst gerð með hliðsjón af þvi ástandi sem rikir I at- vinnullfinu, þar sem mjög miklum vandkvæðum er nú bundið að fullnægja eftirspurn eftir vinnuafli. Staösetning bankans er aftur mál, sem heyrir undir borgarstjórn Reykjavikur og er ekki i okkar verkahring. Hitt er svo annað mál, að þaö er min persónulega skoð- un, að þessi mörgu stórhýsi eins og stjórnarráðshús, ráð- hús, Alþingishús og Seðla- bankahús, sem ætlunin hefur verið aö troða niður i gamla miðbænum, séu miklu betur komin á nýja miðbæjarsvæð- inu, sem fyrirhugað er i austurhluta borgarinnar við Kringlumýrarbraut og þar i nágrenni. WASHINGTON 19/7 — Þau merku tiðindi voru tilkynnt I dag að Nixon forseti hefði gcfiö leyfi til þess að seguibandsupptökur af samtölum sinum við John Dean og aðra ráðgjafa sina um Vatns- gatsmáliö yrðu birtar. En skömmu siðar bar Sam Ervin, formaður Vatnsgatsnefndar- innar, þessa frétt til baka: ein- hver gárunginn hafði verið að gera gys að honum! Hins vegar er það ekki spaug að enn eru horfur á alvarlegum deil- um milli Nixons forseta og Bandarikjaþings. 1 gærkvöldi samþykkti fulltrúadeildin lög, sem takmarka vald forsetans til að heyja styrjöld fyrir utan landamæri Bandarikjanna. Nixon sem hefur þegar lent i deilum við þingiö, vegna þess að það neitaði honum um fjárveitingu til að kasta sprengjum á Kambodju, hótaði þvi i nótt að beita neitunar- valdi sinu þegar öldungadeildin á að fjalla um lagafrumvarpið I næstu viku. 1 aðvörun sinni til leiðtoga Repúblikana I fulltrúa- deildinni sagði hann, að i frum- varpinu fælist hættuleg tak- mörkun á valdi forsetans, og væri hún i andstöðu við stjórnar- skrána. Samkvæmt lagafrumvarpinu er forsetanum gert skylt aö til- kynna þinginu allar hernaðarað- geröir sinar erlendis innan 72 klukkustunda. Ef þingið sam- þykkir þær ekki verður hann að hætta við þær innan 120 daga, og getur hann ekki beitt neitunar- valdi sinu i þeim málum. P alestínuskæruliði tekur gísla AÞENU 19/7 — Ungur pale- stinuarabi tók i dag 17 gisla á hóteli i Aþenu, en lét þá lausa fjórum stundum siðar, þegar hann hafði fengið loforð um að fá að yfirgefa Grikkland i friði. Palestinumaðurinn, sem er 25 ára að aldri, hafði áður gert til- raun til að sprengja skrifstofu israelska flugfélagsins E1 A1 i loft upp, en óeinkennisklæddum lögregluþjóni, sem var á verði við í Aþenu skrifstofuna, tókst að koma i veg fyrir það, Lögreglan greip palestinumanninn meö góðri að- stoð vegfarenda, en hann sleit sig lausan og komst inn i hótel i grenndinni. Þá var hann vopnaöur handsprengju og vél- byssu. 1 hótelinu tók hann 17 gisla og hótaði að skjóta þá. Meðal þeirra voru tveir lögreglu- foringjar og bandarisk hjón, en Framhald á bls. 11.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.