Þjóðviljinn - 04.11.1973, Side 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 4. nóvember 1973.
FYRSTI VINNINGUR er aö þessu sinni þriggja vikna ferft fyrir tvo til
Rúmeniu. Slík ferö kostar nú um kr. 70.000.00. A siöustu úrum hefur
feröamannastraumur til Rúmenlu aukist til muna. Rúöamenn f
Rúmenfu hafa komiö tii móts viö þarfir feröamanna meö stórfelldum
byggingum glæsilegra hótela og aukinni feröamannaþjónustu, enda er
Rúmenfa aö veröa einn eftirsóttasti áfangastaöur þeirra, er njóta vilja
lifsins viö aö busla i sjónum i sólskini. Svartahafsströnd Rúmeniu er
sannkölluö veöraparadís, mannlif er þar fjölbreytilegt og nýstárlegt
fyrir lslendinga, þvi aö Rúmenar uröu, eins og önnur Balkanlönd, fyrir
áhrifum frá Tyrkjum, þó aö enn þjóöin tali þá tungu, sem rómverskir
hermenn mæltu á til forna.
ANNAR VINNINGUR er ferö fyrir tvo meö Loftleiöaflugvél til Luxem-
burg og aftur hcim. Farmiöar I þá flugferö kosta kr. 50.000.00. Þeir,
sem veröa svo heppnir, aö hreppa farseöla meö þátttöku I happdrætti
Þjóöviljans, geta heimsótt ýmsa sögufræga staöi i stórhertogadæminu
Luxemburg. Landiö hefur löngum staöiö I eldlinunni I margra alda
átökum Frakklands og Þýskalands, nú er þó allt þar meö friöi og spekt.
Frá Luxemburg liggja vegir til allra átta, þvi er hægur vandinn fyrir
þá, scm þangaö cru komnir og vilja skoöa sig um I Vestur-Evrópu, aö
halda til nágrannalandanna.
ÞRIDJI VINNINGUR er fimmtán daga ferö til Miöjaröarhafslanda
meö Feröaskrifstofunni Utsýn, þcir s,em ekki hreppa þennan vinning
þurfa aö greiöa kr. 50.000.00 fyrir þá ferö. Margir tslendingar eru nú
orðnir hagvanir á noröurströndum Miöjarðarhafsins, sérstaklega á
Baleareyjum og suðurströnd Spánar. Veöurblíöan á þessu svæöi er
alveg einstök, enda hefur stór hluti Ibúanna atvinnu af þvf aö veita
veöurböröum og náhvitum fbúum Noröur-Evrópu fyrirgreiöslu.
FJÓRÐI VINNINGURINN er ferö fyrir tvo til Rostock og dvöl á
Eystrasaltsvikunni, verögildi um 50.000.00. Eystrasaltsvikan er haldin
aöra viku i júlf ár hvert og I Rostock. Þangaö sækja fulltrúar allra
þjóöa viö Eystrasalt. Fjöldi þeirra skiptir þúsundum. Undanfarin ár
hafa fulltrúar frá lslandi sótt Eystrasaltsvikuna. Þar er fjallaö um
ýmsa málaflokka: verkalýösmál, mengun og ýmis önnur mál, er
snerta Iff og starf þióöa viö Eystrasalt.
FIMMTI VINNINGUR er flugfar fyrir tvo meö flugvél Fiugfélags
tslands til Osló og aftur heim. Verögildi farseölanna er kr. 43.000.00.
Norðmenn og höfuðborg þeirra Osló þarf tæast aö kynna fyrir tslend-
ingum.
EFLUM
ÞJÓÐVILJANN
Happdrætti Þjóöviljans 1973 er sannkallaö feröahappdrætti. Heildar-
verö vinninga er kr. 414.000.00. Þaö er engu lægra en veriö hcfur undan-
farin ár, er: vinningar skiptast nú i fleiri staöi.
Dregið veröur á Þorláksmessu. Fólk er beöiö aö gera fljótt og vel skil
á Grettisgötu 3 Reykjavik, slmi 18081. Þeir, sem búa úti á landi, eru
beðnir um að snúa sér til umboösmanna Þjóövilians.
NtUNDI VINNINGUR f happdrætti Þjóðviljans aö þessu sinni er
dvöl fyrir tvo i Skiðahótelinu á Hllöarfjalli viö Akureyri. Aö sjálfsögöu
er matur og flugfar frá Reykjavik innifaliö. Verðgildi samtals um kr.
35.000.00.
SJÖTTI VINNINGUR er gisting og matur fyrir tvo I vikutima á Hótel
Höfn, Hornafirði. Innifalin er flugferö frá og til Reykjavikur. Verögildi
kr. 39.000.00. Hornafjöröur er einhver fegursta byggö á islandi og
þaöan er opin leið til margra vinsælla áningastaöa feröamanna, t.a.m.
öræfasveitar. Hornafjöröur hefur allt fram til þessa ekki veriö f
alfararleiö, en án efa á það eftir aö breytast meö tilkomu nýja hring-
vegarins. Þeir, sem hreppa þennan vinning, munu án efa lifa skemmti-
lega og viöburöarika viku.
SJÖUNDI VINNINGURINN er gisting og matur fyrir tvo á Hótel
Reynihliö í vikutima. Innifaliö er flugfar frá Reykjavik til Akureyrar
og bilferö frá Akureyri aö Reynihliö. Mývatn hefur veriö kallaö einn af
gimsteinum islenskrar náttúru. Hvergi á islandi er eins fjölskrúðugt
fuglalif, og stórkostlegar hraunmyndanir setja sérkennilegan svip á
Mývatnssvæöiö. Gróöursæld er og mikil. Um árabil hefur feröalöngum
veriö veittur beini I Hótel Reynihliö. Gistihúsiö er á heppinlegum staö,
gangandi maður getur hæglega fariö þaöan til flestra unaöslegustu
staöanna viö vatnið.
ATTUNDI VINNINGURINN er gisting og matur fyrir tvo á
Sumarhótelinu aö Hallormsstaö I vikutima. Innifalin er flugferö frá
Reykjavik til Egilsstaöa og bilferö þaöan til Hallormsstaða. Verögildi
samtals kr. 37.000.00. Þegar minnst er á Hallormsstað, leitar hugur
flestra án efa i Hallormsstaöaskóg, stærsta skóg á tslandi. Skógurinn
er á syðri bakka Lagarins og í honum eru margir unaösfagrir staöir.
Viö Löginn mætast skóglendiö og vatniö. Þetta gefur landslaginu þann
svip gróöursældar, sem menn eiga frekar aö venjast f suölægari
iöndum.
1 tesl
9 vinningar
Enn á ný er lesendum og
velunnurum Þjóðviljans boðið
að taka þátt i happadrætti á
vegum blaðsins. Happdrætti
Þjóðviljans er nú orðinn ár-
viss atburður og almenn þátt-
taka lesenda i þvi er blaöinu
ómetanlegur styrkur.
Undanfarin ár hefur aðal-
vinningur i happdrættinu
verið bifreið, en nú er brugðið
út af þessari venju. Heildar-
verömæti vinninga er þó ekki
minna nú en áður hefur verið
en þeir eru mun fleiri, og þvi
eru meiri likur til aö hreppa
vinning.
Vinningar eru nú farmiðar
fyrir tvo i niu ferðir, til
fagurra staða á tslandi eða á
vinsælar ferðamannaslóðir
erlendis.Reiknað er með að
lagt sé af stað frá Reykjavik i
allar ferðirnar, þannig eru
ferðir til og frá Reykjavik
innifaldar i vikudvöl á islensk-
um hótelum.
Ahugi á ferðalögum hefur
vaxið jafnt og þétt hér á landi
undanfarin ár. Þessi áhugi
ætti að hvetja menn til að taka
þátt i happdrættinu að þessu
sinni.
En i hug lesenda Þjóðviljans
ætti þó annað atriði að vega
meir en vonin um að komast i
skemmtilegt ferðalag, og það
er stuðningur sá, sem Þjóð-
viljanum er að mikilli og al-
mennri þátttöku i happ-
drættinu.
Það er ekkert launungar-
mál, að Þjóðviljinn ber sig
ekki fjárhagslega, enda hefur
honum aldrei verið ætlað aö
vera gróðafyrirtæki. Hlutverk
Þjóðviljans er fyrst og fremst
að vera vettvangur ákveðinna
skoðanna i daglegri umræðu
um þjóðfélagsmál.
En það kostar mikið fé að
gefa út dagblað á Islandi.
Tekjur islenskra dagblaða eru
ærið misjafnar, og Þjóðviljinn
gefur mun minni tekjur en
stærstu blöðin, bæði af aug-
lýsingum og áskriftargjöld-
um.
Þrátt fyrir það, að tekist
hefur að fjölga áskrifendum
verulega undanfarið, eru
tekjur blaðsins enn mun minni
en gjöldin. Þetta bil verður
einhvern veginn að brúa.
Happdrætti Þjóðviljans er
einn þáttur i tilraunum til
þess.
Þessa dagana er verið að
póstleggja happdrættismiða
til lesenda og velunnenda
blaðsins. Sérhver sá, er fær
happdrættismiða i hendur,
ætti að spyrja sjálfan sig eftir-
farandi spurningar:
Vil ég að Þjóðviljinn haldi
áfram að koma út? Tel ég
a'skilegt. að þær skoðanir og
sú þjöðmálastefna. er móta
skrif i Þjóðviljanum. eigi sér
vettvang i dagblaði? Vil ég
gera Þjóöviljann að hvassara
og beittara vopni i baráttunni
Ivrir umsköpun þjóð-
félagsins?
Það skiptir miklu. aö þeir
sem ákveðnir eru i aö styrkja
blaöiö meö iniðakaupum, geri
fljótt og vel skil, annaö hvort á
skrifstofu Þjóðviljans Skóla-
vörðustig 19, simi 175(1«. eða á
Grettisgötu 3, simi 18081.
ibúar utan Reykjavikur-
svæöisins eru beönir um að
snúa sér til umboösmanna
Þjóðviljans
HAPPDRÆTTI ÞJÓÐVILJANS 1973