Þjóðviljinn - 04.11.1973, Page 16
DWÐVIUINN
Sunnudagur 4. nóvember 19711.
Almennar upplýsingar um lækna-
þjónustu borgarinnar eru gefnar i
simsvara Læknafélags Reykja-
vikur, simi 18888.
Kvöldsími blaöamanna er 17504
eftir klukkan 20:00.
Kvöld-, nætur- og helgarþjón-
usta lyfjabúöanna i Reykjavik
vikuna 2. til 8. nóvember veröur
i Garös Apóteki og Lyfjabúöinni
Iðunn.
Slysavaröstofa Borgarspitalans
er opin allan sólarhringinn.
Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á
Heilsuverndarstöðinni. Simi
21230.
Haustsýning Asgrímssafns opnuð í dag
Asgrimur Jónsson i vinnuslofu sinni.
Vatnslitamyndir
Asgríms Jónssonar
í dag verður hauslsýning As-
grimssafns opnuö. Kr luin 40.
sýning safnsins siöan þaö var
opnaö almenningi áriö 1900.
Aöaluppistaða þessarar
sýningar eru vatnslitamyndir,
lálaöar á hálfrar aldar timabili.
Nokkrar af vatnslitamynd-
inum eru nú sýndar i fyrsta sinn,
neðal þeirra ein af siðustu
myndum Asgrims, llekla.séð frá
Vatnagörðum, máluö i september
1957.
Ííl á l>ingvölluner máluð i októ-
ber 1953. Einnig eru myndir úr
Mývatnssveit og Borgarfirði á
sýningunni.
Eins og undanfarin ár kemur út
á vegum Ásgrimssafns nýtt jóla-
kort. Er það prentað eftir vatns-
litamyndinni úr Skiöadal, sem
Asgrimur málaði i siðustu ferö
sinni til Norðurlands, og er þetta
kort fyrsta kynning kortaút-
gáfunnar frá þeim slóðum.
Asgrimssafn, Bergstaðastræti
74, er opið sunnudaga, þriðjudaga
og fimmtudaga frá kl. 1.30-4.
Aðgangur ókeypis.
Nú geta allir fengið
málverk lánuð heim
Norrœna listabandalagið gengst fyrir slíkri
heimlánasýningu listaverka
Norræua listabandalagiö liefur
tekið upp þá nýbreytni aö lijóöa
listaverk til útlána á alniennings-
bókasöfnum á Noröurlöndum, og
veröa 10 listaverk lánuö út bér á
landi i bókasafni Norræna luissins
og i deild Korgarbókasafnsins i
Itústaöakirkju. Getur fólk liaft
myndirnar i 2 til 4 vikur og kostar
uni eitl þúsund krónur aö fá niynd
lánaöa. I>á gefst fólki
einnig kostur á aö kaupa inynd-
irnar ef þvi likar viö þær aö láns-
tíinanuin loknuin, en þó ekki fyrr
en sýningunni er lokiö, en hún á
aö standa yfir i 3 niánuöi I
Reykjavik, en siöan fer luin til
Akraness, Akureyrar og fsa-
fjaröar.
A þessari sýningu sem kom i
hlut tslands eiga verk eftirtaldir
norrænir myndlistarmenn: Ole
Heerup (D), Preben Jörgensen
(D), Kimmo Jylha (F), Sakari
Marila (F) Benedikt Gunnarsson
(í), Agúst F. Petersen (t), Arvid
Eikevik (N), öystein Selmer (N),
Lizzie Olsson-Arle (S) Alvar
Jansson (S).
Verði góður árangur af þessari
fyrstu tilraun Norræna listbanda-
lagsins verður þessari starfsemi
haldið áfram og þá væntanlega
með stærri sýningum.
Þess má að lokum geta að
samskonar heimlánasýning
stendur nú yfir á öllum Norður-
löndunum og eiga 10 listamenn
frá hverju landi eina mynd hver á
sýningunni.
Eftirtaldir islenskir listamenn
eiga nú verk á þessum syningum:
Agúst Petersen, Benedikt
Gunnarsson, Guðmunda Andrés-
dóttir, llringur Jóhannesson,
llrólfur Sigurðsson, Eirikur
Smith, Jóhannes Jóhannesson,
Steinþór Sigurðsson, Valtýr
Pétursson og Veturliði
Gunnarsson.
llugmyndin er sú að sýningar-
timi þessara fyrstu sýninga taki
yfir fimmtán mánaða timabil, og
fari hver sýning milli fimm bóka-
safna hverju Norðurlandanna, og
séu myndirnar til útlána til
almennings á sama hátt og
bækur, en útlánstimi hverrar
myndar er frá tveim upp i fjórar
vikur.
Sementsverk-
smiðjumálið
fyrir rétti
í gær fóru fram aðrar
vitnaleiðslur i Sements-
verksmiðjumálinu svo-
nefnd, sem snýst um
ásakanir Jóhannesar
Bjarnasonar á hendur
verksmiðjunni fyrir
vörusvik og verðlags-
brot.
8. október fóru fram fyrstu yfir-
heyrslur i málinu. bá var ein-
göngu fyrir réttinum Jóhannes
Bjarnason verkfræðingur.
Hins vegar voru i dag yfir-
heyrðir þrir menn. Voru það Ólaf-
ur Vilhjálmsson verkstjóri, Páll
Indriðason vélstjóri og fram-
kvæmdastjóri verksmiðjunnar,
Svavar Pálsson. Þessar vitna-
leiðslur stóðu óslitið frá þvi
klukkan 10 i morgun til klukkan
rúmlega 5 i gærdag. Mestur tim-
inn fór i yfirheyrslur yfir Svavari.
Með Svavari mætti Guðmundur
Skaftason hrl., en Svavar var
ekki yfirheyrður sem vitni i mál-
inu, heldur fremur í likingu við
það að hann væri sakborningur.
Viðstaddir réttarhaidið voru
Jóhannes Bjarnason og Þorvald-
ur Þórarinsson hrl. Dómari er
Haraldur Henrýsson.
—úþ
Friðsamleg sambúð
merkir alhliða samstarf
segir friðarþingið í Moskvu
APN — Moskvu. f yfirlýsingu,
sem samþykkt var á friöar-
þinginu i Moskvu segir m.a.:
..Þingiö vekur athygli á mikil-
vægi friösamlegrar sambúöar
rikja meö mismunandi þjóö-
skipulag. Friösamleg sambúö
kcmur ekki aðeins i veg fyrir strið
heldur merkir hún einnig alhliöa
samstarf. Hún gerir ráð fyrir
baráttu þjóöanna fyrir félags-
lcgum og efnahagslegum fram-
förum. Friðsamleg sambúö er
bcsti grundvöllurinn aö alþjóö-
lcgu öryggi.
Fiiðarþingið leggur áherslu á
mikilvægi sigra þjóða Vietnam og
Laos. Friðarsinnar ættu að stuðla
að þvi að friðarsamningarnir,
sem voru gerðir i Paris og
Vientane verði haldnir. Þeir ættu
að krefjast þess, að Bandarikja-
menn hætti árásum sinum á
Kambodiu. Mjög mikilvægt er að
sýna þjóðum Indó-Kfna fullan
stuðning.
Nauðsynlegt er að ályktanir
Oryggisráðsins frá 22. og 23. októ-
ber s.l. séu i heiðri hafðar og að
Israelsmenn dragi her sinn til
baka af herteknu svæðunum.
Þingfulltrúar álita, að and-
rúmsloft bættrar sambúðar eigi
að nota til þess að binda enda
vigbúnaðarkapphlaupiö og koma
á algjörri afvopnun. Bætt sambúð
ýtir undir efnahagslega þróun
þriðja heimsins. Þingið hvetur
þróuðu löndin til að auka efna-
hagslega og tæknilega aðstoð við
þróunarlöndin án pólitiskra skil-
yrða.”
Hundrað ór
Bókaútgáfa Menningarsjóðs og
Þjóðvinafélagsins gefur i haust út
bókina Hundraö ár I Þjóöminja-
safni eftir dr. Kristján Eldjárn.
Þetta er ljósprentuð fjórða útgáfa
ritsins, en það kom fyrst út á
aldarafmæli Þjóðminjasafnsins
1962. Efni þess er ýtarleg ritgerð
um sögu og þróun safnsins, svo og
þættir um einstaka hluti, sem þar
eru varðveittir og myndir af
þeim, ennfremur útdráttur bók-
arinnar á ensku. Eru þættirnir
hundrað talsins, einn fyrir hvert
ár, sem safnið hafði starfað til
þess timg, er hún var tekin sam-
an.
AF BÁKNINU
Hafa fyrirmenni nokkurn
tíma svindlað?
I tilefni af þvi að nú eru
hafnar yfirheyrslur vegna
svindls hjá Sementverk-
smiðjunni flettum við i dag
upp á blaðsiðu 135 i kverinu
Stjórnum, nefndum og ráðum
rikisins, en þar er að finna
stjórn þessarar ágætu verk-
smiðju.
Greiðslur til nefndarmanna
eru samtals 416 þúsund krónur
og eru framreiddar i tvennu
lagi. Formaður stjórnarinnar,
sem er sýslumaður og heldur
leitt til þess að vita að slikt
yfirvald skuli tengjast svind-
máli, fær 76 þúsund krónur
rúmar fyrir formannsstörfin.
en aðrir nefndarmenn, sem
eru 4 fá 51 þúsund krónur hver
i sinn hlut. Ferðakostnað fá
þeir kappar greiddan. for-
maður 55 þúsund, en aðrir
nefndarmenn 20 þúsund. Er
það sami ferðakostnaður og
þeirvoru taldir leggja i árið á
undan. HHvernig á þessum
ferðakostnaðargreiðslum
stendur er allsendis óvist, en
harla stutt er samt leið eins
nefndarmanns á
stjórnarfundi, fyrrverandi
memeinlætara og framm-
sóknarmanns Daniels
Agústinussonar. en hannhefur
lengstum atsetur i sama húsi
og stjórnarfundir eru haldnir
Auk þess aðalsvindlmáls
sem nú er rekið fyrir dóm-
stólum og snýst um fram-
leiðslugalla á sementi að yfir-
lögðu ráði, munu veru 6 önnur
mál i uppsiglingu, eða mis-
jafnlega langt á veg komin,
þar sem bornar eru sakir á
verksmiðjuna eins og þær, að
ekki hafi verið réttilega vigtað
sementið i pokana.
Og þátttakendur i öllu
geiminu eru þó ekki minni
menn en eitt stykki sýslu-
maður. prófessor, fyrrum
bæjarstjóri og alþingismaður.
sem eitt sinn var formaður
fjárveitinganefndar alþingis.
Vissulega væri full ástæða
til þess fyrir forráðamenn
rikisins, að koma á einhverju
þvi kerfi, að þeir stjórnar-
og/eða nefndarmenn, sem
sannanlega eiga þátt i ein-
hverskonar svindli sem við-
gengst i fyrirtækjum sem þeir
stjórna, verði hýrudregnir,
svo langt aftur sem svindlið
hefur fengið að liðast.
En auðvitað er eftir að
sanna nokkurt svindl, og
svindl stjórmenna hefur jú
aldrei þekkst á Islandi, eða
hvað?
-úþ