Þjóðviljinn - 29.11.1973, Page 16
mmu/ml Almennar upplýsingar um lækna- þjónustu borgarinnar eru gefr-- r simsvara Læknafélags Reykja vikur, simi 18888. Kvöld, - nætur, - og helga - þjónusta apótekanna 23. — 29. nóvember verður i Ingólfsapóteki og Laugarnesapóteki. ^ _ _ ">
Kvöldsími blaðamanna er 17504 eftir klukkan 20:00.
Fimmtudagur 29. nóvember 1973.
Slysavaröstofa Borgarspitalans
.er opin allan sólarhringinn.
Kvöld-, nætur-og helgidagavakt á
Heilsuverndarstöðinni. Simi
21230.
Watergate-spólurnar:
Var það
slysni hjá
ungfrú
Woods?
WASHINGTON 28/11 — Yfir-
heyrslurnar fyrir sambandsdóm-
stólnum i Washington siðustu
dagana hafa verið fuilkomlega i
stil við Perry Mason, að sögn
fréttamanna, cn að þessu sinni
hcfur einkum verið rcynt að rekja
garnirnar úr Itosc Mary Woods,
einkaritara Nixons. Blessuð
manneskjan fullyrðir að hún hafi
fyrir slysni strokað út langan
kafla af samtölum á segulbönd-
unum frægu varðandi Watcrgatc-
málið.
Framburður Woods þykir harla
tortryggilegur, þar eö átján min-
útna kafli hefur verið strokaður
út af hlutaðeigandi spólu, en sjálf
segist hún aðeins hafa strokað út
svo sem fimm eða sex mínútur.
Sirica dómari lét i ljós gremju yf-
ir að hún skyldi ekki hafa nefnt
þetta meinta slys er hún kom fyr-
ir réttinn fyrr i mánuðinum og
vændi hana um að hafa strokað út
af bandinu af ráðnum hug. Ung-
frú Woods virtist móðgast mjög
við þá aðdróttun.
Ekki berkla-
faraldur á
Akureyri
Sá orðrómur hefur verið á
krciki, að óvenju mörg berkla-
tilfelli hefðu komið upp á
Akureyri.
Við höfðum samband við
héraðslækninn þar, Uórodd
Jónasson, og spurðumst fyrir
um málið. Sagði Uóroddur að
hér endurtæki sig einu sinni
enn sagan um fjöðrina og hæn-
urnar. Sannleikurinn væri sá,
að það sem hefði gerst væri að
óvenju margir hefðu svarað
berklaprufu jákvætt, en eng-
inn hefði veikst. Upphaf þessa
máls mun vera það að sjó-
maður á togara smitaðist af
berklum og mun hal'a smitað
nokkra félaga sina um borð.
Þessir félagar mannsins eru
menntaskólapiltar og hafa
þeir svarað berklaprufu já-
kvætt i vetur, sem er úr þessu
algerlega hættulaust og væri
héðan af aðeins vörn fyrir þá
að hafa fengið bakteriuna.
Enginn þeirra hefði veikst og
enginn á Akureyri utan þessi
sjómaður sem kominn er á
Vifilsstaðahæli.
Það er þvi alger misskiln-
ingur að um berklafaraldur sé
að ræða á Akureyri, eins og
sagan sagði.
—S.dór
Myndirnar sýna borgarhluta i Portland f Bandarikjunum — önnur þegar allt lék i lyndi en hin eftir að rafmagnsskömmtun hófst.
Alsírráðstef nan:
Olíunni áfram beitt
sem pólitísku vopni
ALSÍRBORG 28/11 — Sextán leiðtogar Araba-
rikja, sem i dag luku fundi sinum i Alsirborg,
lýstu þvi sameiginlega yfir i fundarlok að Israel
yrði að láta af hendi öll arabisk yfirráðasvæði,
sem það nú hersetur, svo fremi að ekki ætti á ný
að koma til vopnaviðskipta milli ísraels og
Araba. Einnig yrði að tryggja réttindi Palestinu-
manna.
Arabaleiðtogar þeir sem oliu ráða skuldbundu
sig ennfremur til þess að beita henni áfram sem
pólitisku vopni. Mahmúd Riad, aðalritari Araba-
bandalagsins, sagði að viðskiptalönd oliurikj-
anna myndu fá þeim mun minni oliu þvi vinsam-
legri sem þau reyndust ísrael.
Riad komst svo að orði i gær að Japan og
Filippseyjar myndu i bráð sleppa við að dregið
yrði úr oliuútflutningnum til þeirra, enda hafa
Japanir nú lýst yfir stuðningi við málstað Araba.
Hassan konungur i Marokkó hlaut mikið klapp er
hann komst svo að orði i ræðu að ekki myndi liða
á löngu áður en Arabar gætu á ný beðist fyrir i
Jerúsalem og að fáni Palestinumanna yrði dreg-
inn að hún i þeirri borg.
ENGAR LOÐNUNÆTUR
FÁANLEGAR HINGAÐ
Að þvi er formaður
LÍÚ, Kristján Ragnars-
son, sagði blaðamanni
er ekki lengur hægt að fá
keyptar loðnunætur til
landsins, og verða þvi
útgerðarmenn að búa að
þeim nótum og þvi vara-
efni til viðgerðar sem til
er i landinu á loðnuver-
tiðinni i vetur. Ef fengist
kostar nótin um 4 mil-
jónir króna.
Ekkert loðnuskip mun lengur
notast við háf til að innbyrða
loönuna. Eru þess i stað notaðar
dælur, sem einnig eru svo notaðar
við löndun og er þá loðnunni dælt
á land.
Bátar mikið undir 200 tonnum
eftir gömlu mælingunni fara ekki
til loðnuveiða almennt, þó að frést
hafi af einum og einum niður i 180
tonn að stærð eftir þeirri sömu
mælingu.
Ahafnir loðnubáta eru frá 11
Framhald á 14. siöu.
Herstöðvaandstæðingar
halda fund á Höfn
• Fundur Samtaka herstöðvaandstæöinga á Höfn i Hornafirði
verður haldinn n.k. sunnudag 2. des. og hefst ki. 1.30 e.h.
• Ræðumenn verða Már Pétursson lögfræðingur, Einar Karl
Haraidsson fréttamaður og Torfi Þorsteinsson bóndi I llaga.
Kaupið l.des.
Fjármálaráðuneytið hefur sent frá sér launatöflu ríkisstarfsmanna er
gildir frá 1. desember n.k., en þann dag hækkar kaupgreiðsluvisitalan I
149,89 stig.
Til fróðleiks birtum við hér upplýsingar um mánaðarlaun og timakaup
rikisstarfsmanna samkvæmt þessari töflu:
M Á N A Ð A R L A U N T 1 M A
K A U P
Launa- Byrjunar- Eftir Eftir Yfir- Dag-
flokkur laun 1 ár 6 ár vinna vinna
5 . 25.020 25.020 26.06 3 250,20 150,72
6 . 25.020 26.063 27.356 250,20 150 ,72
7. 26.063 27.356 28.608 260,63 157,01
8 . 27.356 28.608 30.120 273,56 164,80
9 . 28.608 30.120 31.724 286,08 172,34
10. 30.120 31.724 33.328 301,20 181 ,45
11. 31.724 33.328 34.932 317,24 191,11
12 . 33.328 34 . 932 36.696 333,28 200,77
13 . 34.932 36.696 38.941 349,32 210,43
14 . 36.696 38.941 41.187 366,96 221,06
15 . 38.941 41.187 43.432 389,41 234 ,58
16 . 41.187 43.432 45.677 411,87 248 ,11
17 . 43.432 45.677 47.923 434 ,32 261,64
18 . 45.677 47.923 50.168 456,77 275,16
19 . 47.923 5-0.168 52.414 479,23 288,69
. 20. 50.168 52.414 54.659 501,68 302,22
21. 52.414 54.659 56.904 524,14 315,75
22 . 54.659 56.904 59.150 546,59 329,27
23. 56.904 59.150 61.395 569,04 342,80
24 . 59.150 61.395 64.442 591,50 356,33
25 . 61.395 64.442 67.489 613,95 369,85
26 . 64.442 67.489 70.537 644,42 388,20
27 . 67.489 70.537 73.584 674,89 406,56
28 . 70.537 73.584 76.631 705,37 424,92
B1 80.191 80.191 80.191
B2' 85.003 85.003 85.003
B3 89.814 89.814 89.814
B4 94.626 94.626 94.626
B5 100.239 100.239 100.239
Dajan tregur
Viðræður
um vopna-
hléslínu
strandaðar
JERÚSALEM, KAÍRÓ 28/11
— Mosje Dajan, landvarna-
ráöherra tsraels, sagði i dag
að hin fyrirhugaða friðarráð-
stefna fyrir Austurlönd nær,
sem hefjast á í Genf i næsta
mánuði, gæti orðið skref i átt
til varanlegs friðar. Hann
bætti þó við að Arabar væru nú
að reyna að ná þvi við samn-
ingaborðiö sem þá hefði þrotið
karlmennsku til að vinna á
vigvellinum:
1 Kairó herma diplómat-
riskar heimildir að Bandarik-
in hafi lagt mjög fast að Isra-
elsmönnum að láta undan
kröfunum um undanhald til
vopnahléslinunnar frá 22. okt.
Egyptar og í§raelsmenn hafa
ekki náð samkomulagi um
hvar eigi að draga þessa
vopnahléslinu, og hefur það
leitt til þess að viöræöur her-
foringja þeirra eru komnar i
stránd.
Dajan sagði á fundi með
framámönnum bandariskra
Gyðinga i Jerúsalem i dag að
enn væri mikil hætta á þvi að
bardagar brytust út á ný.
Hann kvaðst Bandarikjunum
þakklátur fyrir stjórnmála-
legan og hernaðarlegan stuðn-
ing þeirra við tsrael, en kvaðst
vona að Bandarikin reyndu
ekki að neyða ísrael til þess að
láta af hendi landsvæði að þvi
marki, að rikið byggi ekki
lengur við örugg landamæri.