Þjóðviljinn - 22.12.1973, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 22.12.1973, Blaðsíða 3
Laugardagur 22. desember 1973. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 r Sjö Islendingar til samvinnustarfs í Austur-Afríku Samkvæmt sammngi Norður- landa og Austur-Afríkuríkj a Þann fjórða janúar næst- komandi fara utan sjö ungir islendingar, sem ráönir eru til Lán í þágu Sigöldu- virkjunar Eins og fram kom i frétt Lands- virkjunar hinn 12. þ.m. sam- þykkti stjórn Alþjóðabankans daginn áður lán til Lands- virkjunar að fjárhæð 10 milljónir Bandarikjadollara i þágu Sig- ölduvirkjunar. Hlutaðeigandi lánssamningur var undirritaður hinn 20. þ,m, ásamt rikis- ábyrgðarsamningi. Undirrituðu samningana þeir Haraldur Kröyer, sendiherra Islands i Washington, fyrir hönd Lands- virkjunar og rikissjóðs og Munir P. Benjenk, aðstoðarstjóri fyrir hönd Alþjóðabankans. ! starfa lijá samvinnusamtökunum i tveimur Austur-Afrikurikjum, Keniu og Tansaniu. Þar sem hér veröur um alllanga dvöl að ræöa liafa þeir fjölskyldur sinar með sér, svo að alls veröa i liópnuin tuttugu og fimm manns. Við náöum tali af einum Austur-Afrikufaranna, Ólafi Ottóssyni, aðalféhirði Samvinnu- bankans, og skýrði hann okkur svo frá aö fimm þeirra félaganna færu til Keniu, en tveir til Tansaniu. Sjálfur er Ólafur ráðinn til starfa i bæ að nafni Kisii i Keniu, um sextiu kilómetra austur af Viktoriuvatni. Hann verður þar ráðunautur hjá Rural Banking, en svo nefnast sjóðir til afurðalána, sem verið er að reyna að koma á fót hjá sem flestum samvinnufélögum þar um slóðir. Með Ólafi fer eiginkona hans, Steinunn Árnadóttir, og dætur þeirra þrjár. Ráðning þeirra sjömenning- anna er samkvæmt samningi milli rikisstjórna Keniu og Tansaniu annarsvegar og Norðurlandanna hinsvegar, en milligöngu um ráðningar og fleira annast dönsk stjórnar- stofnun um þróunarmál, Danish Interna tional Development Agency. Ólafur kvað fyrirhugað að hann yrði i Keniu hálft þriðja ár. Kisii er uppi i fjöllum, þar sem hiti er hóflegur á afriskan mælikvarða, eða rúmlega tuttugu stiga meðal- hiti. bar er rigningasamt, og annan hvern dag eða rúmlega það má búast við skúr siðdegis, og verður þá frekar svalt. — Enska er opinbert mál i Keniu ásamt svahili, sem er tunga af bantústofni en hefur orðið fyrir mikilum áhrifum frá arabisku, ensku og fleiri málum. Innflytjendur leggja 21,8% á kaupverð bíla 1 samvinnublaðinu Hlyn er lagningu og álagningu innflutta nokkuð merkileg grein um skatt- bila. Þar segir svo meðal annars: Ein ég sit og sauma Einu sinni áttu þessi orð rétt á sér. En ekki lengur. Þú ert ekki ein með nýju SINGER saumavélina við höndina, SINGER 760, fullkomnari en nokkru sinni fyrr. Verðlagning á fjögurra manna fólksbíl af gerSinni Vauxhall Viva de luxe, árgerð 1973: Innkaupsverð................................. kr. 119.385 Flutningsgjald, vátrygging, uppskipun ....... — 27.227 Ryðvörn og annar kostnaður ............... — 23.441 Álagning .................................... — 26.018 Samtals ..................................... kr. 196.071 Toilar .......................... kr. 166.597 Söluskattur ..................... — 42.483 — 209.080 Samtals útsöluverð ................ .. kr. 405.151 Skattlagning rikissjóðs nemur því 175% af innkaupsverði bifreiðarinnar og 51,6% af útsöluverði hennar hér á landi. t hneykslan sinni yfir þvi hvað rikissjóður fær i sinn hlut, sem þó að dómi undirritaðs er fjarri þvi að vera nóg, gleymdu þeir kaup- félagsmenn að geta þess hver væri álagningarprósenta þeirra innflytjenda af innkaupsverði umrædds bils, en 26 þúsund króna álagning á 119 þúsund króna farartæki er 21,8% álagning, sem undirrituðum finnst yfrið nóg fyrir það eitt að flytja inn eitt slikt farartæki. -úþ Olía fyrir ullarvörur Þann 14. desember s. 1. voru undirritaðir samningar i Moskvu um kaup Sambands isl. sam- Síðustu bátasölur fyrir áramót Siöustu bátasölur fyrir áramót áttu sér stað 18. desember. Þá seldi Viðir AK i Cuxhaven 79,2 tonn fyrir 3 miljónir 652 þúsund, meðalverð kr. 46,10. Gunnar Jónsson VE seldi i Bremerhaven 64,1 tonn fyrir 2 miljónir 815 þúsund, meðalverð 43,90. örvar mun hafa selt sama dag, eöa daginn áður, i Ostende i Belgiu og fékk 67 króna meðalverð. vinnufélaga á 10.000 lestum al gasoliu auk ýmissa matvara frá Samvinnusambandi Sovétrikj- anna. Jafnframt þessum kaupum voru gerðir samningar um sölu til Samvinnusambands Sovétrikj- anna á 20.000 ullarpeysum og 10.000 ullarteppum að verðmæti tæpar 20 milj. króna. Gert var samkomulag um frekari sölu iðn- varnings til jafns við andvirði oliufarmsins. Viðræðurnar fóru fram við V/O „Raznoexport” um hin hefð- bundnu ullarvöruviðskipti fyrir árið 1974. Lýstu Sovétmenn yfir vilja sinum, að halda áfram þessum viðskiptum og verður viðræðum haldiö áfram eftir hátiðirnar. Af hálfu Sambands isl. sam- vinnufélaga tóku þátt i þessum samningum Harry Frederiksen, framkv.stj., Andrés Þorvarðarson, viðskiptafulltrúi og Hjörtur Eiriksson, verk- smiðjustjóri. ,#Algerlega sjálfvirkur hnappagatasaumur. Talan er sett I fótinn og vélin saumar sjálfvirkt rétta stærð af hnappagötum. # Þræðingarspor, allt frá 1/2 cm til 5 cm langt. # Sérstakur fótur fyrir köflótt efni. # Hraðastillir á vélinni sjálfri. # Sjálfsmurð. # Sjálfvirk þræðing. VERÐ 32.802,00. A SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA $ Véladeild ÁRMÚLA 3 REYKJAVÍK, SÍMI 38900 SÖLU- OG SÝNINGARSTAÐIR: Liverpool, Laugavegi 18 a, Domus, Lauga- vegi 91, Gefjun, Austurstræti, Dráttarvélar, Hafnarstræti 23, Véladeild SÍS, Ármúla 3 og kaupfélögin um land allt. Tökum gamlar vélar sem greiöslu upp í nýjar. jjoígatöO

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.