Þjóðviljinn - 22.12.1973, Síða 5
Laugardagur 22. desember 1973. ÞJÓÐVILJINN — SÍQA 5
NORDMENDE
kemur með nýja vidd í ferðasjónvarps-
tœkjum „SPECTRA- DIMENSION 5"
Jólasveinaskemmtun í Austurstrœti
Hœgt oð setjo í tvenns konor stöðu
til þœgindo fyrir óhorfendur
Þcegilegt stjórnborð
Elektróniskor sleðomótstöður tryggjo
betri stjórn ó mynd og hljóði
„Spectro - dimension 5" er fóonlegt
t fimm mismunondi litum:
oronge, hvítu, rouðu, groenu og kolsvörtu
KL. 4 siðdegis á morgun, sunnu-
dag, ætla jólasveinarnir sem eru
hcr i borginni i boði Æskulýðsráðs
Reykja vikur að skemmta
börnum i Austurstræti.
Skemmtunin verður auðvitað i
þeim hluta götunnar sem ætlaður
er fólki en ekki bilum.
Friðuð hús
Alþingishúsið, Dómkirkjan og
Safnahúsið í A-flokki
Samkvæmt þjóðminjalögum
nr. 52/1969 ákveður menntamála-
ráðlierra friðun liúsa og annarra
mannvirkja, að fengnum tillögum
húsafriðunarnefndar og viðkom-
andi sveitarstjórnar.
Friðuðum húsum skal skipta i
tvo flokka, A og B. Ef hús er
friðað i heild, telst það til A-
flokks, en taki friðun aðeins til
ytra borðs húss, skal húsið talið
til B-flokks.
Að fengnum tillögum húsafrið-
unarnefndar og meðmælum
borgarstjórnar Reykjavikur
ákvað menntamálaráðherra hinn
14. þ.m. að friða eftirtalin hús i
Reykjavik:
Samkvæmt A-flokki:
Alþingishúsið,
Dómkirkjuna og
Safnahúsið við Hverfisgötu.
Samkvæmt B-flokki:
Stjórnarráðshúsið,
Hús Menntaskólans i
Reykjavik og
Iþöku, bókhlöðu sama skóla.
Æðstaráðið sovéska
afgreiddi fjárlög
Moskvu.Nýlokið er fundi Æðsta
ráðsins sovéska. Samþykkti það
áætlun um þjóðarbúskap fyrir
árið 1974.
Gerir hún ráð fyrir 6,8% hag-
vexti i iðnaði og 7,5% aukningu á
framleiðslu neysluvarnings. Þá
er gert ráð fyrir þvi að rauntekjur
á mann hækki um 5%. Sérstök
áhersla verður lögð á byggingu
húsnæðis.
Þá samþykkti ráðið fjárlaga-
frumvarp, sem gerir ráð fyrir
rúmlega 194 miljarða rúblna út-
gjöldum. 95 miljörðum verður
varið til að fjármagna þjóðar-
búskapinn, 70,3 miljörðum verður
varið til félags- og menningar-
mála og 17,6 miljörðum til varnar-
mála.
Söluskattur
Dráttarvextir falla á söluskatt fyrir
nóvembermánuð 1973, hafi hann ekki
verið greiddur i siðasta lagi 27. þ.m.
Dráttarvextir eru 1 1/2% fyrir hvern
byrjaðan mánuð frá gjalddaga, sem var
15. desember s.l., og verða innheimtir frá
og með 28. þ.m.
Fjármálaráðuneytið, 20. desember.
FfLAG ISLIiyZKRA IILJU!V1LISTAII\1A\\\
-#TfXA y&ur hljóðfæraleikara
- og hljómsvéitir við hverskonar lækifœri
Vinsamlegast hringið í ZÓ2SS milli kl 14-17
Spectra - dimension 5". Nýja víddin í tœkni og gœðum
. ) Nóatúni sími 23800
Klapparstíg sími 19800
Akiirevri sími 21630
;mgar
kaupmannsins eru
aldrei nauðsynlegri
en einmitt fyrir jólin
Hvort sem þér veljið hangikjöt, svinakjöt, nautakjöt, kjúklinga
eða annað góðgæti i hátiðamatinn, er alltaf fengur i persónulegum
ráðleggingum og þjónustu varðandi gæði og vöruval. Kaupmað-
urinn á horninu gerir sitt til að heimilispeningar húsmóðurinnar
nýtist sem best.
Verslunin Kjöt & Fiskur
45 ár á horni
Baldursgötu og Þórsgötu
Simi: 13828.
Dregiö á morgun — Happdrætti Þjóðviljans