Þjóðviljinn - 22.12.1973, Blaðsíða 10
10 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Laugardagur 22. desember 197:1.
Hestalækningar á íslandi
George J. Houser er
Kanadamaður frá
Montreal, af þýskum
ættum, kann tíu tungu-
mál og er að Ijúka við að
skrifa doktorsritgerð
um hestalækningar á is-
landi. Og ekki nóg meö
það að hann ráðist þarna
i verk, sem lítt hefur
verið sinnt áður og
krefst þvi mikillar
fyrirhafnar og undir-
búnings, heldur lagði
hann einnig á sig að læra
islensku til þess að geta
kannað hérlend gögn og
heimildir og skrifar rit-
gerðina þar að auki á þvi
máli.
Vift náftum á dögunum tali
af Bob, eins og kunningjar
hans kalla hann, en um þessar
mundir er hann flesta daga á
Landhókasal'ninu viö lestur og
heimildakönnun. Ilann helur
viöa leilaö lil aö heyja aö sér
efni i ritgeröina, og segir aö
sér hafi ekki veitt af tungu-
málakunnáttu sinni, sem er þó
óvenjulega mikil, til þess. Auk
islensku kann hann norsku,
dönsku, sænsku, þýsku, ensku,
Iriinsku, læreysku, irsku og
latinu.
Boh Ilouser nam viö Sir Ge-
orge Williams-háskólann i
Montreal og varö þar lektor i
ensku. Kn svo l'ékk ég slyrk
til þess aö stunda nám i þjóð-
fræöi i Sviþjóö, segir hann.
Viö háskólann i llppsölum.
I»ar nam ég þjóöl ræöi og þjóð-
siigulræöi hjá Bo Almíjuist,
sem nú slendur lyrir Irish
KolkloreCommission i Duhlin.
Útfrá þjóölræöináminu lékk
ég áhuga á þessu efni, sem ég
valdi mér til að skrifa um rit-
gerö, siigti hestalækninga á Is-
iundi.
Kru miklar heimildir til
um þær?
I»ær eru ekki miklar á is-
lensku, og sumt af þvi sem lil
er prenlað orkar tvimælis
hvaö sannleiksgildi snertir.
Dar hefur margt verið mis-
skiliö. Ilestala-kningum hér á
landi helur veriö gel'inn gnum-
ur i Danmörku og Dýskalandi,
en svo sem ekkert hér á landi.
íýg hef þvi sótt mikið i heim-
ildir þangaö. Kg hef lika til
samanburðar kannaö róm-
versk rit og grisk, en i þeim
kemur fyrir sitthvaö sem
svipar til islenskra húsráöa
viö hestalækningar.
Hvaöa rit diinsk og þýsk
eru þaö, sem þú heíur einkum
stuösl viö?
l»aö eru einkum ýmis
handrit. Danskur dýralæknir,
Kristian Boers, sendi 1929 frá
ser hók, sem fjallar um alþýö-
legar dýralækningar á hestum
og kúm i Danmörku, og 1925
samdi Svi aö nafni lleurgren
hók, þarsem er aö finna mikið
elni um dýralækningar al-
þýöu, en þvi miður fylgja þvi
ekki nægilegar úlskýringar.
Dessháttar skilgreiningar
vantar mjög viöa i rit, sem
fjalla um alþýölegar dýra-
lækningar. Kg hef reynt aö
salna upplýsingum um aö-
ferðir viö hestalækningar,
sem hændur á íslandi notuöu i
gamla daga.
Ilvernig stóö á þvi aö þú
fékkst áhuga á þessu sérstaka
efni?
l»aö var þegar mér varö
Ijóst hvaö þaö halöi verið
rannsakað litiö og liliö skrilaö
um þaö. I»aö er aö segja hvaö
island varöar. ()g sumt af þvi,
sem hel'ur veriö skrifaö, er
ekki vel ábyggilegt, lil dæmis
sumt hjá Jónasi frá Hrafna-
gili.
()g nú skrifar þú um þetla
á islensku. Ileföi ekki veriö
auðveldara aö nota til þess
mál, sem þú þekktir vel áöur,
lil dæmis ensku?
Detla er islenskt efni, og
þvi ekki rétt aö skrifa um þaö
á ööru máli. Detta er þáttur i
menningarsögu íslands. og
þvi varla viöeigandi aö um
hann sé ljallaö nema á is-
lensku. Kn þetta er ekki eina
ástæöan til þess aö ég læröi
málið. Mér þykir vænt um
máliö og ákvað þess vegna aö
læra aö tala þaö. Aður var ég
orðinn læs á málið.
Ilelur þetta þá ekki allt
saman verið leikna verk, hæði
aö læra máliö og safna i rit-
geröina og skril'a hana?
George .1. Ilouser
— Nokkuð svo. Sumarið 1969
fékk ég styrk úr Visindasjóði
til þess aö fara kringum landiö
og safna efni hjá gömlum
hændum. Kg hef notaö jöfnum
höndum cfni, sem ég hef safn-
aö á íslandi, efni úr islenskum
bókmenntum. úr gömlum
timaritum og endurminninga-
ritum. Kg hef lika boriö sam-
an islenska efniö og efni, sem
ég hef lundið i mállýskusöín-
um og þjóöminjasöfnum i
Danmörku, Sviþjóö og Noregi.
Kg hef að ég held skoðað ílest
þaö, sem skrifað hefur verið á
dönsku, sænsku og norsku um
alþýðlegar lækningar á dýr-
um. l»á varð únnt að bera þaö
saman viö islenskt efni og sjá
aö hvaöa leyti islensk munn-
mæli eru ólik munnmælum á
hinum Noröurlöndunum. Og
þar er um talsverðan mun að
ræöa.
l»ú hefur unnið aö þessu
verkefni stöðugt Irá 1969?
— Já, og unnið að þessu
jöfnum höndum hér á landi og
á öðrum Norðurlöndum. Eg er
svo að segja búinn með rit-
gerðina, á ekki annað eftir en
aö leiðrétta. Kg hef svo hugsaö
mér að verja ritgerðina við
lláskóla islands,ef hún verður
tekin til varnar þar. Kg vona
aö hún veröi fulltilbúin i janú-
ar eöa febrúar.
— tlefurðu fengiö einhverja
styrki til verksins, annan en
þennan úr Visindasjóði?
— Kg fékk styrk úr Visinda-
sjóði i þrjú ár, og þar áður var
ég á styrk frá íylkinu Quebec
til að stunda nám i Sviþjóð. En
Visindasjóður er eini aðilinn,
sem styrkt hefur mig til samn-
ingar ritgerðarinnar. Sem
stendur hef ég engan styrk, og
mér er bráð nauðsýn að ná
mér i einhverja atvinnu til aö
komast af, meðan ég er að
ganga endanlega frá ritgerð-
inni. Mér myndi til dæmis
láta vel að kenna ensku eða
frönsku, svo og að þýða úr
þessum tungumálum og fleir-
um og á þau.
— Hvað tekurðu fyrir ef allt
engur að óskum með ritgerð-
ina. þaö er að segja ef Háskól-
inn tekur hana til varnar og ef
þú stenst doktorsprófið?
— Þá tek ég f.yrir kennslu i
þjóðfræði i Danmörku eða
Kanada. Þvi miöur er engin
þjóöfræðideild viö Háskóla Is-
lands, en ef svo væri vildi ég
gjarnan vera hér áfram. Það
er gott aö vera á tslandi.
Þjóðfræöi er næsta timaírek
visindagrein, og i sambandi
viö rannsóknir sinar hefur Bob
Ilouser orðið aö leggja stund á
margar visindagreinar, orö-
sifjafræði, sögu, bókmenntir,
dýralækningafræði. Meðal
rita, sem hann hefur tint upp-
lýsingar saman úr, eru Bisk-
upasögur og Sturlunga. Rit-
gerðin er 347 bls. að stærð.
Þess má einnig geta að 1971
birtist eftir Houser grein i Ár-
bók Hins islenska fornleifafé-
lags, og bar hún titilinn Hjátrú
eöa reynsluvit. Þessi grein er
fyrsta samantektin, sem
prentuð er á islensku um
hestalækningar, og má segja
að þaö sé ekki vonum fyrr hjá
þjóö, sem lengst af sögu sinn-
ar treysti á hestinn sem sitt
eina farar- og flutningatæki á
landi og kallaði hann réttilega
sinn þarfasta þjón. Verður
varla annað sagt en að við
stöndum i verulegri þakkar-
skuld við erlendan mann, sem
tekið hefur fyrir efni, sem is-
lcndingi hefði staðið næst að
gera skil, og kostað til þess
mikilli vinnu og fyrirhöfn i
fleiri ár.
— i greininni i Árbókinni
lagði ég út af umsögn Jónasar
frá Hriflu, sagði Bob. — Hann
segir einhversstaðar að þvi
hafi verið trúað að fylfullum
merum yrði gott af fjósamoði,
og kallar það hjátrú. En ég
sýni fram á i greininni að
fjósamoð er einmitt hollt fy 1-
ifullum hryssum, og þetta
'þöföu bændur lært af reynsl-
(jnni. Þannig er um margt,
:;em kallað er hjátrú.
Bændurnir, sem ég kynntist
þegar ég var að safna upplýs-
jngum úti á landi, sagði Bob
ijnnfremur, sýndu mér mikla
■/elvild og áhuga. Og þeir voru
imér alveg sammála um að
ll-étt væri að skrifa um þetta á
islensku. — Það er gott að þú
skulir leggja á þig að safna
þessum fróðleik, sem annars
hefði gleymst með okkur,
sögðu þeir. Og það væri leitt ef
bókin þin yrði ekki á islensku.
dþ
Rætt viö George J. Houser, kanadískan lektor í ensku, sem samið hefur ritgerö
til doktorsprófs um hestalækningar á íslandi — og skrifað hana á íslensku
Bréf til
blaðsins
Sunnudaginn 21. nóv. sl. skart-
ar á forsiöu Þjóðviljans furðufrétt
um sundlaugarmál Mývetninga.
Þar sem frétt þessi er mjög vill
andi, vildi ég koma hér i stuttu
máli leiðréttingu á framfæri:
Það er alrangt að hér eigi aö
velja á milli sundlaugar hjá
Reykjahlið og sundlaugar við
barnaskólann á Skútustöðum.
Það er gamalt og nýtt áhugamál
Mývetninga að byggja sundlaug
við jarðhitasvæði hjá Reykjahlið,
og þekki ég engan Mývetning sem
er á móti þeirri framkvæmd.
Ungmennafélagið Mývetningur
hefur um áratugaskei'ð haft það
mál á dagskrá, en það félag hefur
ætið verið frumkvöðull félags-
legra framfara hér i sveit. Ýmis
Ijón hafa þó verið á veginum til
þess að félagið hefði bolmagn til
þessara framkvæmda. Til er
samþykkt almenns hreppsfundar
Starri í Garöi:
Hafa skal það sem
sannast reynist
her fyrir 2 árum aö á vegum
hreppsins skuli byggö sundlaug
hjá Reykjahlið, og var sú fram-
kvæmd miðuð viö plastlaug og
vandaða búningsklefa. Opinber-
um aðilum ber aö styrkja fram-
kvæmdir sem þessa, og verður
auðvitað ekki ráðist i kostnaðar-
sama byggingu nema tryggt sé að
það framlag liggi á lausu. Um það
hefur sveitarstjórn sótt. en lof-
oröið liggur ekki fyrir. enda sjálf-
sagt i mörg horn að lita hjá við-
komandi opinberum stofnunum.
Nú hafa tveir af fimm hrepps-
pefndarmönnum krafist að
ákveðin sé bygging 25 m. laugar
búinnar böðum, hitapottum og
sem vandaðastar aö öllum
búnaði, flisalagðrar i hólf og gólf
o.sv.frv. Er full.vrt að slik sund-
höll kæmi til með að kosta tugi
miljónir kr. Hér er þvi nokkuð
annað og meira á ferðinni en rætt
hefur verið til þessa. Þaö er þvi
eðlileg og sjálfsögö ákvörðun
meirihiuta hreppsnefndar að
skjóta þessu máli enn á ný til al-
menns sveitafundar. en það hefur
verið venja hér. að almennur
sveitafundur taki ákvörðun i
mikilsverðum málum.
Það er vandséð á hverju sú full-
vrðing er byggð, sem kemur fram
i frétt Þjóðviljans að til boða standi
ókeypis heitt vatn til sundlaugar
hjá Reykjahlið. t þaö minnsta er
þaö algerlega ófrágengið mál.
Það hefur þvi ekki komið undir þá
gerðað menn séu ginkevptir fyrir
ókevpis heitavatn i þessu augna-
miði eiða ekki. Það má fullvrða
að enn er eindreginn vilji fyrir
bvggingu sundlaugar hjá
Revkjahlið. Hitt gætu orðið
skiptar skoðanir um. sem eðlilegt
er. hvernig að þessari fram-
kvæmd skal staðið. Það um
stærð, búnað og þá um leið
kostnað. Til að mynda verða Mý-
vetningar að kosta einir það sem
fram yfir er 16 m. laugarlengd, en
önnur byggðarlög og rikari hafa
hingað til látið sér nægja að
byggja innan 16 metra mark-
anna.
Þá er að vikja að sundlauginni
við barnaskólann á Skútustöðum.
í sumar hófst bygging 12 m.
langrar sundlaugar á Álftabáru
rétt við barnaskólann. Auk
steinsteyptra búningsklefa
með böðum. Byggingin
er langt á veg komin. Laugin
verður hituð með afgangs raforku
frá barnaskólanum. en hann er
hitaður upp með rafmagni og nýt-
ir ekki að fullu yfir sumartimann
þau árskilóvött sem hannkaupir.
Að hita laugina með oliu hefur
aldrei komið til tals, né heyrst
fyrr en i tittnefndri fréttaklausu i
Þjóðviljanum.
Segja má fremur að hér sé sami
orkugjafi og við væntanlega
sundlaug hjá Reykjahlið, þ.e.
jaröhitinn við Námafjall. Raf-
magn það sem notað er hér i sveit
kemur frá rafstöðinni i Bjarnar-
flagi. Sundlaugarbygging þessi
kemur til með að kosta á aðra
miljón og er algerlega byggð á
kostnað UMF Mývetninga.
Félagið fékk lán frá Skútustaða-
hreppi. sem greiðist upp um leið
og hreppurinn ræðst i sund-
laugarbyggingu hjá Reykjahlið.
Engir opinberir styrkir koma hér
til. Bygging þessarár laugar
torveldar þvi á eng-
an hátt byggingu sundlaug-
ar hjá Reykjahlið eða get-
ur fyllilega komið i hennar
stað. þvi þessi laug veröur tæpast
Framhald á bls. 14