Þjóðviljinn - 22.12.1973, Qupperneq 15
Laugardagur 22. desembcr 1973. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 15
Kin myndanna á svningunni, Klettar og vötn.
Aðalfundur Félags íslenskra leikara
Aðalfundur Félags fslenskra
leikara var haldinn þann 10.
desember sl. i Iðnó uppi. Fundur-
inn var mjög fjölsóttur, og voru
nær 80 félagar á fundinum, en fé-
lagareru alls 142. þar sem 11 nýir
bættust i hópinn á þessum fundi.
Félagar eru leikarar. söngvarar
og leikmyndateiknarar.
Formaður félagsins, Klemenz
Jónsson, gaf ýtarlega skýrslu um
starfsemina á árinu. 'Þar kom
m.a. eftirfarandi fram: Mikið
hefur á árinu verið unnið að
kjaramálum stéttarinnar, gerðir
voru nýir kjarasamningar við
þjóðleikhúsið og leikfélag
Reykjavikur (þ.e. B og C samn-
ingar). t þeim felst mikið at-
vinnuöryggi fyrir leikara þar sem
20 leikarar verða á þessu ári fast-
ráðnir á leikhúsunum til viðbótar
við þá, sem fyrir voru. Einnig
standa yfir samningsviðræður
fyrir leikara og söngvara, sem
vinna hjá útvarpi og sjónvarpi.
Þá er ennfremur verið að semja
fyrir leikmyndateiknara.
Á þessu ári hefur Leikfélag
Akureyrar fastráðið átta leikara,
og _er þar nú starfandi þriðja at-
vinnuleikhúsið hér á landi. Fund-
urinn lýsti yfir mikilli ánægju
með þetta lofsverða framtak
Leikfélags Akureyrar og skoraði
jafnframt á Akureyrarbæ og Al-
þingi aðauka að mun fjárframlög
til Leikfélags Akureyrar.
Þá var á fundinum mikið rætt
um leiklistarskólamálið
Sigurður Reynir Pétursson hef-
ur verið lögmaður félagsins i s.l.
15 ár og hefur unnið mikið og
margþætt starf að samningamál-
um fyrir félagið, ennfremur að
uppbyggingarstarfi félagsins
Formaður þakkaði honum fyrir
hönd allra félaganna og sæmdi
hann gullmerki félagsins
Úr stjórn félagsins áttu að
ganga leikararnir Klemenz Jóns-
son, sem verið hefur formaður i
s.l. sex ár, og Gisli Alfreðsson rit-
ari félagsins.
Þeir voru báðir endurkjörnir til
þriggja ára. Aðrir i stjórn eru:
Bessi Bjarnason, sem er gjald-
keri. Brynjólfur Jóhannesson,
sem er varaformaður og Guðrún
Asmundsdóttir sem er með-
stjórnandi.
Þýskur listamaður
sýnir á Mokkakaffi
Þýskur listamaður, Alfred
Schmidt, sýnir um þessar
mundis á Mokkakaffi
■andslagsmyndir frá ís-
landi. Hann er hér i f jóröa
Nemendur
í skólanefnd
Rikisstjórnin hefur lagt fram
frumvarp á alþingi um breyting á
lögum um Hótel- og veitingaskóla
tslands. Efni frumvarpsins er að
nemendur fái aðild að skólanefnd,
en óskir hafa komið fram um það
af þeirra hálfu.
t athugasemdum með frum-
varpinu segir, að ráðuneytið áliti
slika stefnu eðlilega og muni
einnig athuga um breytingar i
þessa átt við aðra skóla, þar sem
nemendur eiga ekki nú þegar
svipaða aðild.
Samkvæmt frumvarpinu fá
nemendur 1 af 6 i skólanefnd.
skipti, og hann hélt sýningu
á Mokka fyrir 2 árum.
Alfred sagði i spjalli við frétta-
mann, að hann væri mjög hrifinn
af landi og þjóð og hann reyndi i
myndum sinum að ná fram hinu
einfalda og sterka i náttúrunni án
þess að fara troðnar slóðir i
myndsköpuninni. tslenskt lands-
lag er svo myndrænt og ungt, að
það væri ekki annað hægt en
hrifast af sköpunarverki sem
birtist til að mynda i Surtsey og
Heimaey.
Alfred er myndlistarmaður að
mennt og hefur viða farið. Hann
var um tima þekktur ráðgefandi
á sviði umbúða og hefur skrifað
bók um umbúðir og neytendur.
Hann hefur sem myndlistarmað-
ur kynnst fátækt og velmegun, en
nú er honum efst i hug að starfa
sjálfstætt að myndsköpun. Hann
mun sýna myndir frá tslandi i
Danmörku i mars næstkomandi
og hann hefur einnig sýnt myndir
héðan i Þýskalandi.
Sýning Alfreds stendur yfir til
5. janúar. SJ
F. BJÖRNSSON
adíóverslun - Bergþórugötu 2 - sími 23889
FIDELITY RADIO
ÓDÝRIR STEREO
PLÖTUSPILARAR
MEÐ MAGNARA
OG
HÁTÖLURUM
Jólagjðfin í ár er
kuldaúlpa frá okkur
★ AMERISKAR
★ ENSKAR
★ FINNSKAR
★ ÍSLENZKAR
★ ÚLPUR
Á ALLA
FJÖLSKYLDUNA
1-2-3
0
Verzlanir
fullar
af
nytsömum
jólagjöfum
OPIÐ
til kl. 11 í kvöld
VINNUFATABUÐIN
Laugavegi 76 — Hverfisgötu 26 — Hafnarstrœti 5
ATH. Nýja verzlunin okkar er að Hafnarstrœti 5 Tryaavaaötumeqin
----------------GLEÐILEG JÓL-----------