Þjóðviljinn - 01.02.1974, Blaðsíða 5
Föstudagur 1. febrúar 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
■
Bakhlið húss er oft ærið torkennileg miðaö við framhliðina, og ekki á þetta síður við um húsaþökin. Ekki er vlst að allir borgarbúar kannist viö
húsin á myndinni sem þó eru nálægt hjartastað borgarinnar f gamla miðbænum. Einhverja viðmiðun má þó fá af Engey I baksýn og
höfuðstöðvum Standard Oil á islandi t.h.
Frú
Fjose
kemur í
næstu
viku
Þingmaður Kristilega þjóðar-
flokksins i N'oregi, frú Berglind
Fjose, sem var félagsmálaráð-
lierra i stjórn Korvalds, kemur
hingaö til lands 2. febrúar nk.
Hingað kemur frúin að tilhlutan
áfengisvarnarráðs, Norræan
félagsins og Stórstúku islands.
Mun frúin flytja erindi i
Norræna húsinu og tala á opnum
fundi i Templarahöllinni.
Eins og fram kom í viðtali við
Ingólf Guðmundsson, prest-
menntáðan Kennaraháskóla-
kennara, sem birtist hér i blaðinu
fyrir allnokkru og fjallaði ma. um
nauösyn á stofnun kristilegs
flokks hérlendis, vænta fylgj-
endur þeirrar skoðunar nokkurs
af komu frúarinnar hingað til
lands, og má búast við að þeir
sem huga hafa á stofnun sliks
flokks hugsi sér til hreyfings
meðan frúin dvelur hér og fái hjá
henni upplýsingar um það
hvernig standa beri að slikri
flokksstofnun og rekstri.
Rannsaka þarf efnis
innihald álreyksins
Aukinn áhugi álversmanna á hreinsitœkjum Jóns Þórðarsonar
eftir árangur sem af þeim varð við Mývatn
Nú virðist sem álvers-
mennirnir i Straumsvik
hafi skyndilega fengið
aukna tiltrú á hreinsi-
tækjum þeim sem Jón
Þórarinsson að Reykja-
lundi hefur smiðað og
gerðar hafa verið til-
raunir með i Straumsvik
og i kisilgúrverksmiðj-
unni við Mývatn, þvi
þeir hafa boðist til þess
að gerast umboðsmenn
tækjanna og söluaðilar á
erlendum markaði.
Eins og Þjóðviljinn hefur skýrt
frá áður, gáfu tæki þessi mjög
góða raun við Mývatn, en þar
reyndist hreinsihæfni þeirra vera
99%, Hins vegar hafa niðurstöður
nokkurra rannsókna i álverinu
hvað varðar hreinsihæfni rokkað
frá 20% og að 90%, og telja
kunnáttumenn að kenna megi um
ónákvæmni við sýnatöku af efni
þvl sem sest i tækin.
Álversmenn voru á fundi á
þriðjudaginn með umhverfis-
verkfræðingi heilbrigðiseftir-
litsins og fleirum, en þar var lögð
fram niðurstaða kannananna við
Mývatn.
Einar Valur Ingimundarson,
umhverfisverkfræðingur, sagði
að samkomulag hefði orðið um
það að athuga eiginleika þess
efnis sem færi i gegnum hreinsi-
tækin, þvi vel gæti verið að
einhver kolasalli væri i
álreyknum, og ef svo er þá er
rykið orðið vatnsfælið, en tækin
sem verið er að reyna eru einmitt
grundvölluð á notkun vatns með
ákveðnum hætti til hreinsunar-
innar.
Einar sagði að efnasamsetning
reyksins hefði ekki verið athuguð
til þessa, né heldur athugað með
kornastærð reyksins og dreif-
inguna á þeim, en þetta getur
spilað verulega inn í varðandi
nýtni tækjanna, og þá hvernig
hreinsiúðinn skuli samsettur.
Nú mun liggja fyrir að reyna
enn nýja gerð af hreinsitæki i
álverinu, og mun Einar Valur
hafa eftirlit með þeirri tilraun,
svo og með sýnatökum og efna-
greiningu reyksins og rann-
sóknum á kornastærðinni. —úþ
Hvalur 8. til gœslu-
starfa í byrjun febr.
Sauðárkrókur:
Meira byggt en
nokkru sinni fyrr
Útlit er fyrir að meiri
byggingaframkvæmdir verði hér
á Suðárkróki á þessu ári en
nokkru sinni fyrr i sögu
kaupstaöarins. í fyrra og það sem
af er þessu ári hefur verið
úthlutað lóðum undir S(> íbúðir á
Sauðárkróki. i fyrra var aðeins
byrjað á þremur af þessum
ibúðum, en nú strax með vorinu
munu framkvæmdir við aðrar
ibúðir hefjast. Það eina sem
menn kviða fyrir er að ekki verði
unnt að fá nógu marga iðnaðar-
menn til starfa. Af þessum
ibúðum verða :i(> ibúðir i fjölbýlis-
húsum, 21 íbúð i raðhúsum og 29
einbýlishús.
Þá er unnið að breytingum á
frystihúsi Fiskiðjunnar hér sem
miða bæði að stækkum og endur-
bótun á þvi sem fyrir er. Einnig
er unnið að viðbótarbyggingu við
gagnfræðaskólann fyrir 8 milj.
kr. fjárveitingu, sem veitt var til
verksins. Þá er og unnið að flug-
vallargerðinni, en til hennar voru
veittar 12 milj. og hafnarfram-
kvæmdir verða hér á árinu fyrir
15 milj. kr. A þessu sést að hér er
meiri atvinna en nokkru sinni
fyrr i sögu Sauðárkróks.
Þegar það svo bætist ofan á, að
aldrei hefur önnur eins vinna
verið i frystihúsunum eins og nú
eftir að skuttogararnir komu, en
þeir hafa veitt alveg sérstaklega
vel. Má sem dæmi nefna að
Drangey landaði um siðustu helgi
160 tonnum eftir 10 daga veiði-
ferð, Skafti er að landa hér nú 110
tonnum eftir 9 daga ferð og
Hegranesið er langt komið með
að fylla sig.
Afli þessara skipa skiptist á
milli 3ja frystihúsa, tveggja á
Sauðárkróki og svo frystihússins
á Hofsósi. Þar er nú einnig meiri
en nóg vinna, sem er meira en
verið hefur um áratuga skeið.
tbúum Sauðárkróks hefur
fjölgað verulga á siðustu árum og
munu nú vera orðnir um 1700. Er
öruggt að þeim hefði fjölgað meir
ef húsnæði hefði verið fyrir hendi.
en svo hefur ekki verið. —Hreinn
Litið lagðist fyrir kappana
Eigendur hafa enn ekki afhent
landhelgisgæslunni skipið
Háskólamenn taka
laun eftir kjara-
samningi BSRB
Hvað dvelur orrainn langa
spyrja menn, hversvegna hefur
Ilvalur 8., sem landhelgisgæslan
hefur fengið loforð fyrir til land-
helgisgæslustarfa,enn ekki verið
sendur á miðin?
Að þvi er Hafsteinn Hafsteins-
son blaðafulltrúi hjá landhelgis-
gæslunni sagði okkur i gær hefur
orðið dráttur á þvi að eigendur
skipsins afhentu gæslunni það,
þar eð meira hefur þurft að gera
við skipið en ætlað var i fyrstu. Þó
sagði Hafsteinn að von væri til
þess að skipið gæti farið út til
gæslustarfa i byrjun febrúar.
Hafsteinn sagði að enn hefði ekki
á það reynt hvort erfitt myndi að
manna skipið, um það væri ekk-
ert hægt að segja fyrr en gæslan
hefði fengið það afhent.
Mjög rólegt er nú á miðunum.
Þó eru nú 55 togarar á miðunum
kringum landið, þar af 36 breskir.
Ekki kvað Hafsteinn að vart hefði
orðið við þá togara hér við land
sem sviftir hafa verið veiðileyfi á
Islandsmiðum. Þá gat hann þess
að v-þýsku togararnir hefðu nú
mjög hægt um sig.
Vegna þeirrar fullyrðingar
LONDON 28/1 Lögreglan
breska hefur að likindum komið i
veg fyrir að frönskum ráðherra
yrði rænt með þvi að handtaka
Marokkómann, Pakistana og
ameriska stúlku á Heathrow-
flugvelli i fyrra mánuði.
Þau voru handtekinn fyrir að
reyna að smygla vopnum inn i
samtakana „Seljum landið” að
ekki væri orðið hægt að komast
um hafið umhverfis Island vegna
rússneskra kafbáta spurðum við
Hafstein hvort islensku varðskip-
in hefðu eitthvað orðið vör við
þessa ógnvalda. Sagði Hafsteinn
að hann hefði aldrei heyrt á slikt
minnst. Hefði varðskip oröið vart
við rússneskan kafbát hér við
land hefði það strax verið tilkynnt
viðkomandi ráðuneyti en til sliks
hefði aldrei komið svo hann vissi.
—S.dór
landið. Marokkómaðurinn hefur
viðurkennt, að vopnin hefði átt að
nota við rán á frönskum ráð-
herra, en fyrir hann vildu þau fá
30 fanga i Marokkó úr haldi.
Stúlkan hefur borið, að hún hafi
ekki vitað að skammbyssum
hafði verið komið fyrir i farangri
hennar.
Háskólamenn klufu sig út úr
BSRB á sinum tima vegna þess
að þeim þótti þeir vera snið-
gengnir við kjarasamninga, sem
gerðir voru af BSRB.
Nú hefur BSRB hins vegar náð
samningum við rikisvaldið um
kaup og kjör félagsmanna sinna i
frjálsum samningum, en Banda-
lag háskólamanna hins vegar
ekki, og var mál þeirra tekið fyrir
i Félagsdómi i gær, og fór þá
frant fyrsti málflutningur.
En hvað skyldu hinir vigreifu
kröfugerðarmenn gera meðan
svona stendur á fyrir þeint?
Skyldu þeir taka laun eftir þeim
samningum sem enn eru i gildi
hjá þeim?
Ó. nei!
Nú taka þeir laun eftir
samningum þeim sem mörg stór
orð með litilsvirðingarmerkingu
hafa verið látin falla um.
samningi rikisins og BSRB! —úþ
Atti að ræna ráðherra?