Þjóðviljinn - 23.05.1974, Síða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 23. mai 1974.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ LEGGÚR FRAM TILLÖGUR
UM NÝJA STJÓRNARHÆTTI í REYKJAVÍK
tbúarnir I hverfunum þekkja best sérmál sín. Alþýðubandalagiö vill færa valdiö til fólksins I hverfunum — kjósa hverfastjórnir.
Kjörnar hverfastjórnir fái
vald í mikilvœgum málefnum
Aö tilhlutan vinstri
flokkanna í borgarstjórh
Reykjavíkur var í vetur
hafin endurskoðun á
stjórnkerfi borgarinnar,
en íhaldsmenn hafa lengi
þráast við að gera þar á
nokkrar breytingar til
batnaðar. Nú hefur
viðleitni vinstri manna
borið þann árangur að
íhaldsmenn hafa fallist á
breytingar á skipan
ýmissa nef nda og stjórna á
vegum borgarinnar,
þannig að til þeirra sé
kjörið hlutfallskosningu,
en embættismenn sitji ekki
með atkvæðisrétti í þeim.
Vinstri menn höfðu i
stjórnkerfisnefnd lagt mikla
áherslu á það að draga úr hinum
óeðlilegu áhrifum embættis-
manna hjá Reykjavikurborg, og
sáu ihaldsmenn sér þann kost
vænstan að flytja sjálfir tillögur
um nýskipan að þessu leyti i 12
nefndir og ráð.
Hins vegar ýmist felldu þeir
eða visuðu frá öllum tillögum
vinstri flokkanna um megin-
reglur i þessu sambandi.
Hins vegar treystu þeir sér ekki
til að samþykkja meginreglu um
útilokun embættismanna.
Og að öðru leyti ýmist felldu
þeir meirihlutamenn eða visuðu
frá öllum tillögum vinstri flokk-
anna um bætt stjórnkerfi og
lýðræðislega stjórnarhætti. Þar
var m.a. kveðið á um nýskipan
mála og verksviða milli forseta
borgarstjórnar og borgarstjóra,
að borgarstjóri eigi ekki að vera
úr hópi borgarfulltrúa, um
fjölgun borgarfulltrúa o.fl.
Logi Kristjánsson bæjarstjóri skipar baráttusætið á Neskaupstað
Slegist
Á Neskaupstað hefur
Alþýðubandalagið verið í
meirihluta um þrjá ára-
tugi. Þjóðviljinn hafði
samband við Loga
Kristjánsson bæjarstjóra,
sem skipar baráttusætið
hjá G-lista þar, en það er
fimmta sætið. Við spurð-
um Loga um horfur í kosn-
ingunum.
— Hvaða mál hafa verið efst á
baugi i kosningabaráttunni?
— Segja má, að andstæðinga
okkar hér i Neskaupsstað hafi al-
gerlega skort málefni til árása á
meirhlutann og gripið i þess stað
til lúalegra persónulegra árása,
einkum á fyrirrennara minn i
bæjarstjórastarfinu. Við Alþýðu-
bandalagsmenn höfum hins veg-
ar minnt menn á atvinnuleysið
sem landlægt var hér á Austf jörð-
um á viðreisnartimanum og bent
á hve vel hefur tekist að bægja
atvinnuleysinu frá svo rækilega
um hvert atkvœði
að hér er nú vinnuaflsskortur.
Það hefur verið gert undir forystu
Alþýðubandalagsins. Hér er öll
atvinnuuppbygging félagslegs
eðlis, og með slika félagslega
undirstöðu verður ekki hlaupið á
brott úr bænum, eins og aðflutt
atvinnutæki einkagróðamann-
anna.
— Hafa verið miklar fram-
kvæmdir i bænum?
— Já, hér er unnið að fram-
kvæmdum við fjórðungssjúkra-
húsið, við byggingu barnaskóla,
og verið að undirbúa byggingu
gagnfræðaskóla. Mikið hefur ver-
ið um húsbyggingar eða eins og
iðnaðarmennirnir hafa getað
annað, auk þess risu hér átta við-
lagasjóðshús. Þá fékkst gott lán
til gatnagerðar á Austurlandi, og
hafa bæir hér eystra fengið á sig
annan svip.
— Hvað hafið þið gert i dag-
heimilismálum?
— Ég vil gjarnan geta þess að i
vetur starfræktum við i fyrsta
sinn dagheimilið allt árið, en áður
hafði það verið lokað yfir vetrar-
timann. Dagheimilið rúmar 80
börn og er ég þess fullviss að ekk-
ert bæjarfélag á landinu hefur
jafn mörg dagvistunarrými fyrir
börn miðað við ibúatölu.
— Ertu bjartsýnn á úrslitin á
sunnudaginn?
— Ég hef nú ekki verið neinn
sérstakur bjartsýnismaður, og ég
vil minna á, hve úrslitin voru tvi-
sýn siðast. Þá fengu kratarnir 77
atkvæði og engan fulltrúa, fram-
sókn tvo á 155 atkvæði þ.e. unnu
fulltrúann af krötum með hálfu
atkvæði, ihaldið fékk 199 og tvo,
en Alþýðubandalagið 390 atkvæði
og fimm fulltrúa en það gerir 78
atkvæði á fimmta mann. Það
verður þvi slegist um hvert at-
kvæði, og eitthvað eru andstæð-
ingar okkar ragir við að fara gegn
okkur á framboðsfundi, þvi hing-
að til hefur samkomulag strandað
á formsatriðum og þvi enn óvist
hvort af framboðsfundi verður.
Logi Kristjánsson bæjarstjóri
HERINN BURT X-G