Þjóðviljinn - 11.07.1974, Page 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 11. júli 1974.
í'APRirHO^ m I 1 \ 1 1 1 V/ V# KENJAR
’Mynd: Franrwisco Goya y Lucientes Mál: Guðbergur Bergsson
76.
Er yðar náð?...
Nú, eins og ég
segi: Lí-hurnm!
Varlega! Annars...
Uppgjafaryfirhershöfðinginn er Ifklega
kominn á það, eða kannski hefur hann
ruglast dálitið í höfðinu á vigvellinum.
Hann er að þvælast á öörum ókræsilegri
vettvangi, klæddur undarlegu samblandi
af einkenni' búningi og nærbuxum, innan
um betlara og óaldarlýðinn, sem litur
valdsmanninum undrunar. tortryggnis-og
hæðnis-augum. Helst litur út fyrir, að
farlama og fátæki lýðurinn átti sig ekki
algerlega á, hvers vegna striðshetjan er
komin á meðal hans.
Hershöfðinginn er annað hvort ruglaður
eða drukkinn, nema hvort tveggja sé. Um
leið og hann kemur auga á mann, sem
gengur við hækju og staf, heldur hann
aumingjann vera uppgjafarhermann,
sem fórnað hefur heilsunni og limunum á
vigvellinum. Hershöfðinginn les honum
örlitinn ræðustúf meðhefðarhósta, eins og
þegar hann hvatti liðið til framgöngu. Ég
sé ekki betur en hann haldi á dálitlu i
lófanum, liklega heiðursmerki, sem hann
ætlar að hengja á undirmanninn, eins og
gert er við hetjur vigvallanna, eftir að
dáðirnar og blóðið hefur dropið úr þeim i
ástkæru fósturmoldina. Betlarinn að baki
hans veit betur. Auminginn gengur við
hækju og staf, vegna þess að hann fék einu
sinni lömunarveikina. Af þeim ástæðum
hlær hann að hershöfðingjanum og orðu-
veitingunni, og hann tekur fyrir munninn.
Spænskar bókmenntir, einkum suður-
ameriskar, eru troöfullar af þannig
hershöfðingjum.
Stefán Karlsson9 félagsfrœðinemi:
Þannig forðar þú þér
frá frekari vansœmd
Vegna greinar Baldurs Hermannssonar
Laugardaginn 29. júni birtist i
Morgunblaðinu grein eftir Baldur
nokkurn Hermannsson sem nefn
ist „Um tjáningafrelsi og sorp-
blaðamennsku”. Maöur sá er hér
um ræðir hefur verið staðinn að
þvi undanfarin ár að skrifa grein-
ar i Morgunblaðið, þar sem fjall-
að er á yfirborðslegan og reyfara
kenndan hátt um alls konar efni.
Hafa þessi skrif spannað all viö-
tækt tilfinningasvið höfundar, allt
frá hinni megnustu mannfyrir-
litningu og kynþáttahatri til
dýpstu samúðar hins „kristilega
mannkærleika” með ófullburða
fóstrum.
Nú bregður svo við að maður
þessi læst snúast öndverður gegn
sinni fyrri iðju, og talar i um-
ræddri grein með vandlætingar-
tón um yfirborðsleg og lýð-
skrumskennd skrif ýmissa blaða
um menningar- og þjóðmál (og
sorpblaðamennsku almennt), og
það einmitt i þvi málgagni, sem
þekkt er fyrir að fjalla á yfir-
borðskenndan og forheimskandi
hátt um þjóðfélagsmál yfirleitt —
á þann hátt sem greinarhöfundur
lýsir vanþóknun sinni á. t um-
ræddri grein lýsir höfundur enn-
fremur umhyggju sinni fyrir
tjáningar- og skoðanafrelsi, og
birtist sú umhyggja i þeirri ósk að
réttvisin tukti blaðamenn Þjóð-
viljans til fyrir að nota tjáningar-
frelsi sitt til að segja skoðun sina
á athæfi þeirra vl-manna.
Þannig er merkingu hugtaka
gjörsamlega umsnúið. Enda
kemur fljótlega i ljós að greinar-
höfundi gengur annað til með
grein sinni en umhyggja fyrir
menningarlegri blaðamennsku,
þvi að i margnefndri grein kemur
fram mjög svo lúaleg árás á
Einar Braga rithöfund. Þar kem-
ur fram sú skoðun að Einar Bragi
sé litilmenni, sem þori ekki að
standa gegn dómstólum landsins
en flýi á náðir Rithöfundasam-
bands tslands.
Jafnframt segir i greininni að
Einar Bragi hafi „svivirt tján-
ingarskoðanafrelsi annarra ein-
staklinga” eins og það heitir á
máli greinarhöfundar. En út yfir
tekur þó þegar maður þessi skor-
ar á Einar Braga — mann sem
hefur stolt fyrir land sitt og þjóð
— að knékrjúpa fyrir hinni ömur-
legu lágkúru vl-manna, sem hafa
biðlað um ævarandi hersetu þjóð
sinni til handa. Ég spyr: er hægt
að svivirða og niðurlægja mann á
borð við Einar Braga meira en
hér er gert?
Kæri Baldur! Afskipti þin af
þessu máli og hinar lúalegu árás-
ir þinir á Einar Braga hafa orðið
þér til vansæmdar. Þú hefur með
þessum árásum ráðist á mann,að
hætti sorpblaðamanna, sem
stendur þér langtum framar að
andlegriog menningarlegri reisn.
Ég skora á þig að rétta fram
höndina til sátta og biðja Einar
Braga opinberlega afsökunar á
ummælum þínum. Þannig forðar
þú þér frá frekari vansæmd.
Alþjóða-
ráðstefnu
um Chile
lauk í
París
PARIS 8/7 — Alþjóðleg ráðstefna
um samstöðu með Chile lauk i
Paris um helgina með hvatningu
til alls heims um að unnið verði að
endurreisn lýðfrelsis i Chile.
Að ráðstefnunni stóðu fulltrúar
verklýðssambanda og vinstri-
flokka i átján Evrópulöndum.
Þeir einbeittu sér sérstaklega að
gerræði herforingjastjórnarinn-
ar, réttarmorðum og grimmilegri
meðferð á pólitiskum föngum.
Meðal þátttakenda voru og
fulltrúar andspyrnuhreyfingar-
innar i Chile, m.a. Altamirano,
formaður Sósialistaflokksins, og
ekkja Allende forseta, Beatriz.
Altamirano tók fram, að fjölda-
morðin i Chile eftir valdatöku
hersins ættu sér ekki hliðstæðu i
hinni blóðugu sögu Rómönsku
Ameriku.
Verðlaunanefnd
Gjafar Jóns
Sigurðssonar:
Styrkir
útgáfu
merkra
heimildar-
rita
A fjárlögum fyrir 1974 er veitt
ein miljón króna til sjóðsins Gjaf-
ar Jóns Sigurssonar. Um úthlutun
þessa fjár voru settar nánari
reglur með þingsályktun 29. april
s.l. Er verðlaunanefnd sjóðsins
heimilað að úthluta þvi i sam-
ræmi við ákvæði um vexti sjóðs-
ins, en þó má viðurkenna við-
fangsefni og störf höfunda, sem
hafa visindarit i smiðum. 1 regl-
um sjóðsins frá 1911 segir, að
vöxtum skuli verja til „verðlauna
fyrir vel samin visindaleg rit, og
annars kostar til þess að styrkja
útgáfur slikra rita og til þess að
styrkja útgáfur merkilegra heim-
ildarrita. — 011 skulu rit þess lúta
að sögu íslands, bókmenntum
þess, lögum, stjórn og framför-
um.
Verðlaunanefnd Gjafar Jóns
Sigurðssonar auglýsir hér með
eftir umsóknum um fjárveitingar
úr sjóðnum. Skulu þær stilaðar á
verðlaunanefndina, en sendar
menntamálaráðuneytinu fyrir 1.
september n.k. Umsóknum skulu
fýlgja rit eða ritgerðir eða
greinargerðir um rit i smiðum.
Verðlaunanefndin mun skipta
fjárveitingu þeirri, sem Alþingi
hefur veitt, ef ástæða þykir til,
þegar umsóknir hafa verið kann-
aðar. 1 verðlaunanefnd Gjafar
Jóns Sigurðssonar eru: Gils Guð-
mundsson, Magnús Már Lárus-
son, Þór Vilhjálmsson.
Trésmiðir —
T r ésmiðameist ar ar
Vegna sumarleyfa verða engar uppmæl-
ingar framkvæmdar á timabilinu frá 19.
júii til 5. ágúst að báðum dögum meðtöld-
um.
Trésmiðafélag Reykjavíkur
Meistarafélag húsasmiða
Stefán Karlsson
Barnlaust par vantar
litla ibúð
helst i eða nálægt miðbænum.
Hringið i sima 30749 milli kl. 17 og 19.