Þjóðviljinn - 25.08.1974, Síða 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 25. ágúst 1974.
DIOÐVIUINNX
MÁLGAGN SÓSÍALISMA
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS.
(Jtgefandi: (Jtgáfufélag Þjóöviljans
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann
Ritstjórar: Kjartan ólafsson
Svavar Gestsson (áb>
Ritstjórn, afgreiösla, augiýsingar:
Skólavörðust. 19. Simi 17500 (5 linur)
Prentun: Blaöaprent h.f.
ÞEIR BRÝNA RÁNFUGLSKLÆRNAR
Þegar þessi orð koma fyrir augu les-
enda verður e.t.v. búið að tilkynna um
myndun nýrrar rikisstjómar. Fyrir liggur
að samkomulag hefur tekist milli Sjálf-
stæðisflokksins og Framsóknarflokkiins
um öll atriði, nema skiptingu ráðuneyta,
sem enn er deilt um nú siðdegis á föstu-
degi.
Málgögn Sjálfstæðisflokksins fara þessa
dagana hamförum til að telja þjóðinni trú
um að allt sé i kaldakoli nú við stjórnar-
skiptin og dagblaðið Visir lýsir reyndar
yfir þjóðargjaldþroti. Greinilega er það
ætlun áróðursstjóra Sjálfstæðisflokksins
að æra upp i þjóðinni skelfingu við hrun
sem við blasi, svo að auðveldara verði
fyrir afturhaldsstjórnina að koma fram
áformum sinum um verulega kjaraskerð-
ingu verkalýðsins. I þessum þokkalega til-
gangi er einskis svifist.
Talsmenn Sjálfstæðisflokksins segja að
þjóðin sé gjaldþrota, en staðreyndin er sú
að islenska þjóðarbúið er i dag rikara en
nokkru sinni fyrr, ekki sist vegna hinnar
miklu atvinnuuppbyggingar, sem átt
hefur sér stað siðustu þrjú ár fyrir for-
göngu vinstri stjórnarinnar.
Þjóðartekjur á mann eru nú hér ein-
hverjar þær allra hæstu i heimi og hafa
hækkað mjög verulega á undanförnum ár-
um.
Þjóðarframleiðsla á manna i dollurum
var á siðasta ári 4750 dollarar og voru ís-
lendingar þá i þriðja hæsta sæti meðal
þjóða heims samkvæmt viðurkenndum
aíþjóðlegum skýrslum. Þá hafði þjóðar-
framleiðslan hvorki meira né minna en
tvöfaldast á þremur árum, mælt i dollur-
um.
Þróunin varðandi þjóðarframleiðslu á
mann siðustu sex ár hefur verið á þessa
leið:
1968 2269 dollarar
1969 1929 dollarar
1970 2377 dollarar
1971 2940 dollarar
1972 3635 dollarar
1973 4750 dollarar
Það er að visu gert ráð fyrir þvi, að
nokkuð muni draga úr vexti þjóðartekna á
þessu ári vegna versnandi viðskiptakjara,
en samt er yfirleitt ekki reiknað með þvi
að þjóðarframleiðsla og þjóðartekjur fari
lækkandi á þessu ári frá metárinu i fyrra.
Þá er einnig á það að lita, að á siðasta
ári þurftu íslendingar að greiða lægri
hluta af útflutningstekjúm sinum i afborg-
arnir og vexti af erlendum lánum en um
fjöldamörg undanfarin ár.
Kenning talsmanna Sjálfstæðisflokksins
er sú, að hér hafi verið blómlegt bú fyrir
fjórum árum, en nú blasi við þjóðargjald-
þrot, þegar þjóðarframleiðslan hefur tvö-
faldast að verðgildi, mælt i dollurum, og
greiðslubyrðin af erlendum lánum nemur
lægri hluta af útflutningstekjum en um
áraraðir.
Sem sagt stóraukin þjóðarframleiðsla
og tvöföldun þjóðartekna þýðir sam-
kvæmt kenningum Visis og annarra spá-
manna Sjálfstæðisflokksins, hreint og
klárt þjóðargjaldþrot!
Leiðin til að forða þjóðargjaldþroti er þá
væntanlega sú samkvæmt röksemda-
færslu þessara sömu vitringa að skera
þjóðarframleiðsluna niður um helming.
„Sársaukafullur uppskurður” — „veru-
leg skerðing á lifskjörum þjóðarinnar”.
Þannig hljóða hótanirnar, sem nú birtast
daglega i ritstjórnargreinum ihaldsblað-
anna. Það ætti svo sem ekki að vera vandi
að skilja, hvar fiskur liggur undir steini,
og hvað að baki býr þeirri öfugmælakenn-
ingu að tvöföldun þjóðarframleiðslu leiði
til þjóðargjaldþrots.
Það eru ránfuglsklær Sjálfstæðisflokks-
ins, sem nú er verið að brýna til að hrifsa i
hendur fésýslubraskaranna stóraukinn
hluta þjóðarteknanna, og til þess á að nota
þau skuggaöfl i hægri armi Framsóknar,
sem jafnan ná að marka stefnu þess
flokks, þegar hann stjórnar með Sjálf-
stæðisflokknum.
Þjóðviljinn vill biðja menn að muna það
vel, að þeir erfiðleikar sem við er að glima
i islensku atvinnulifi stafa ekki af þvi að
verakfólk, sem nú hefur innan við 50.000,- i
dagvinnutekjur á mánuði hafi of hátt
kaup. Það er fjarstæða að hér þurfi að
skera niður kaup lágtekjufólks. Þvert á
móti er það tvimælalaust of lágt miðað við
þær háu þjóðartekjur, sem okkur hafa
verið tryggðar.
En það er annað sem þörf væri á að
skera niður i þessu eyðsluþjóðfélagi, það
er braskaralýðurinn, sem mergsýgur
bæði undirstöðuframleiðslugreinar þjóð-
arinnar og islensk alþýðuheimili. í þeim
efnum gekk vinstri stjórnin þvi miður
alltof skammt, enda þótt Morgunblaðið
ætti jafnan varla nógu sterk orð til að lýsa
þvi hve harðleikin vinstri stjórnin væri við
verslunarstéttina og hvers konar milliliði.
Og nú hyggst þessi lýður, sem séð hefur
ofsjónum yfir bærilegum kjörum verka-
fólks og ekkert er heilagt utan illa fenginn
gróði, ryðjast að kjötkötlunum á ný i skjóli
afturhaldsstjórnar.
Bardagalaust mun það ekki ganga.
Það hefur verið verkefni Alþýðubanda-
lagsins innan vinstri stjórnar að tryggja
verkafólki og öðrum láglaunahópum
kjarabætur i raun. Það verður nú verkefni
Alþýðubandalagsins að standa við hlið
verkalýðshreyfingarinnar i baráttunni
sem íramundan er gegn ránfuglunum,
sem nú hugsa sér til hreyfings.
Hr eindýr av eið ar n ar
standa nú sem hæst
Leyfilegt er að fella 850 dýr í haust
Hreindýraveiðarnar á Austur-
indi standa nú sem hæst, og
efur menntamálaráðuneytið,
em veitir leyfi tii veiðanna og
kveður fjölda þeirra dýra sem
;Ila má, heimilað að felld verði
850 hreindýr i ár. Vaiðitiminn
hófst 15. ágúst sl. og stendur hann
til 15. september nk.
Veiðarnar eru háðar leyfum
trúnaðarmanns rikisins. Er reynt
með þessu eftirliti að koma i veg
VG n o ^ f
Þegar vopnin
snúast í höndum
manna
I Þjóðviljanum 22. ágúst 1974
ritar S.dór umsögn Ingólf Guð-
brandssonar, forstjóra ferða-
skrifstofunnar (Jtsýn, um gjald-
þrot bresku ferðaskrifstofunnar
Horizon og afleiðingar þess. 1
samtali þeirra Ingólfs og S.dórs
kemur fram, að fjöldi Islendinga
hafi skaðast fjárhagslega og ýmis
óþægindi hafi skapast vegna
þessa gjaldþrots, en það kemur
glöggt fram I greininni, að þessir
ferðamenn hafi verið á vegum
ferðaskrifstofunnar Otsýnar.
Ingólfur fer ekki I grafgötur
með, að ástæða gjaldþrotsins sé
sú, að eitt af hinum „vafasömu”
leiguflugfél. sem skotið hafa
upp kollinum viða um heim, hafi
tekið að sér rekstur umræddrar
ferðaskrifstofu og klúörað svo
rækilega málum að til gjaldþrots
kom. en honum láist að geta þess,
að ferðaskrifstofan var orðin
gjaldþrota þegar fráfarandi
rekstraraðilar tóku við rekstri
hennar, I von um, að geta ráðið
fram úr þáverandi örðugleikum
fyrir að aðrir fari á hreindýra-
veiðar en þeir sem vel kunna með
byssu að fara og mega teljast
sæmilegar skyttur. Að öðrum
kosti er mikil hætta á að illa takist
til og dýrin særist og veiði-
og finnst mér Ingólfur skjóta
þarna á skakkt mark.
1 samtali Ingólfs og S.dór varar
Ingólfur fólk við, að ferðast með
ferðaskrifstofum sem eiga sinar
eigin flugvélar, þ.e. reka vafa-
samt leiguflug, eins og hann segir
I greininni og bendir jafnframt á,
að það sé mun öruggara að ferð-
ast á vegum ferðaskrifstofa sem
versla við virt flugfélög. í fram-
haldi af þessum ráðleggingum
Ingólfs langar mig til að vita.
Hvað er vafasamt leiguflugfélag?
Er það flugfélag sem einhver á og
þú öfundar hann af, eða er það
eitthvað sem þú ert hræddur um,
að taki viðskipti frá þér vegna
þess, aö það getur boðið betri kjör
og þjónustu en þú gerir?
Ég er þeirrar skoðunar, aö ef
draga ætti fram hvað sé vafasamt
og hvað sé ekki vafasamt, sé afar
vafasamt, að versla við ferða-
skrifstofu sem verslar við vafa-
samar ferðaskrifstofur.
Reykjavik, 22. ágúst ’74
Elias V. Einarsson.
mennirnir missi af þeim. Hefur
stundum borið við að klaufar
kæmust á veiðar, en allt er reynt
sem hægt er til að koma i veg
fyrir það.
í júni sl. voru hreindýr hér á
landi talin, og eftir þvi sem næst
verður komist er talið að þau séu
nú 3395, þar af 624 kálfar.
Talningin fer fram eftir myndum
sem teknar eru úr flugvél, og er
þvi eins nákvæm og frekast er
mögulegt. Þó segja talningamenn
að hún sé ekki nákvæmari en þaö
að reikna megi með að stofninn sé
10% stærri en kemur fram við
talningu.
Mikil ásókn er I hreindýraveið-
arnar og fá færri en vilja leyfi.
Hreindýrakjöt hefur unnið mjög á
hér á landi á undanförnum árum
eftir að veitingahús fóru að bjóða
gestum sinum það. og þykir kjötið
hið mesta lostæti. En þótt mönn-
um þyki kjötið gott, þá munu
flestir stunda hreindýraveiðarnar
af „sportlegum” áhuga frekar en
ágóðavon vegna kjötsölunnar. —
S.dór
Vladivostok, (APN). Flokkur
eftirlitsmanna með villidýrum á
Kamtjatka á austurströnd Sovét-
rikjanna hefur verið á refaveið-
um að undanförnu. Þar er þó ekki
um að ræða venjulega tegund
refa, heldur afbrigði, sem
einungis finnst á Kamtjatka og
hefur vakið athygli loðfeldasala
sökum þess hve feldur refanna er
fallegur. Feldurinn er nær eld-
rauður, enda hefur refurinn hlotið
Sumargleði
á Mallorka
og Costa
del Sol
í frétt frá Sunnu segir að ferða-
skrifstofan muni efna til Sunnu-
gleöi fyrir farþega sfna á Mall-
orka og Costa del Sol dagana 29.
og 30. ágúst, en þá verða yfir 1000
Sunnufarþegar á þessum stöð-
um. Þótti sjálfsagt I tilefni þjóð-
hátiðarársins og hinna fjölmörgu
velheppnuðu þjóðhátiða I byggð-
um landsins að taka smásyrpu
einnig utan landsteinanna og þá
þar sem flestir landar dveljast
ytra á þessum tima.
Sunnugleðin á Mollor'ka 29.
ágúst verður i hinum kunna
næturklúbb Jack E1 Negro, sem
söngflokkurinn Valdemosa rekur.
nafnið „ognjovka”, en ogn á
rússnesku er sama og eldur.
Refirnir sem veiddust voru
sendir með flugvél til Veiðimáia-
stofnunarinnar I Kirov vestan
Úrais. Fyrstu ,,eld”-refirnir, sem
stofnunin fékk i fyrra, hafa reynst
vel fallnir til uppeldis. Þeir hafa
lagað sig ágætlega að breyttu
loftslagi og hegða sér fullkomlega
eðlilega.
Eldrauður refur
frá Kamtjaka