Þjóðviljinn - 25.08.1974, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 25.08.1974, Blaðsíða 15
Sunnudagur 25. áglíst 1974.ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15 SJÓNVARP Óperuhúsiö í Sidney kynlíf sænskra og fleira Utzon hafi sent dóm- nefndinni mjög ófull- komið riss um hug- myndir sinar — en á- kveðið var að veita honum verðlaunin og verkefnið, þótt ýmsir þættust ekki skilja, hvernig hægt væri að framkvæma óvenju- legar og ævintýraleg- ar hugmyndir Dan- ans. Einn þeirra, sem i dómnefndinni sat, og vildi velja hugmynd Utzons, var Finninn Alvar Aalto, sá er teiknaði Norræna húsið i Reykjavik. Þrumuveöur (A Distant Thunder) heitir breskt sjón- varpsleikrit, sem sýnt verður á mánudagskvöldið. Leikrit þetta er eftir Maurice Edelman, og segir þar frá Sir Henry nokkrum Barkham, virðulegum borgara, sem unnið hefur sér öruggan sess i lifinu. En skyndilega verður talsverð breyting á lifi þessa fina manns. Siðla á mánudagskvöldið verður sýnd sænsk mynd, sem ber titilinn Unglingarnir og kynlifið. Myndin er sögð lýsa viðhorfum sænskra unglinga til kynlifsins, og einnig er fjallað um getnaðarvarnir. Sá fyndni maður, Fleksnes kemur á skjáinn á miðviku- daginn, og heitir myndin núna: Það fer alltaf lest. A eftir Fleksnes endursýnir sjónvarpið mynd þá sem tekin var af Drangeyjarferð sjón- varpsmanna sumarið 1969. Dagskrá vikunnar lýkur með finnskri mynd á laugar- dagskvöldið. Heitir sú Palmu lögregluforingi gerir skyssu, en myndin er byggð á sögu eft- ir Mika Waltari. Fylgir og sögunni, að mynd- in sé i léttum tóni, og greinir frá starfi lögregluforingja eins og aðstoðarmanna hans er þeir reyna að leysa morðgátu. Lögregluforinginn er snilling- ur á sinu sviði, segir i dag- skránni, en hefur þó sinar veiku hliðar, einkum gagnvart kvenfólki. Bless... Þetta er bara venjuleg vasatölva. Sagan segir að Gylfi Þ. Gislason hafi haft svona tölvu með sér þegar hann sat viðræðufundi um hugsanlega vinstristjórn. Hann notaði tölvuna til að reikna út ýms dæmi sem á góma bar, þegar rætt var um efnahagsmálin. Einu sinni var Gylfi á við- ræðufundi, og lagði saman nokkrar tölur. Þegar hann hafði stimplað dæmið inn á tölvuna, leit hann á útkom- una: 17055378. Eitthvað fannst Gylfa út- koman grunsamleg. Hann ýtti þvi tölvunni frá sér — en leit á hana aftur af tilviljun, og þá á haus. Þá kom útkoman heim 15 SÍÐAN Umsjón: GG og saman við það sem formað- urinn Alþýðuflokksins hafði gert ráð fyrir! ístO N 0 * 0 e Z I 9 9 Í7 6 8 L Ö L £ 8 5 Ö Lt Fleksnes tekur sér far meö lest á miövikudagskvöldiö. Adrienne Corri, heitir þessi föngulega leikkona, en hún leikur Eiinor Barkham, konu aöalpersönunnar i breska sjónvarpsleik- ritinu „Þrumuveöur”, tem sýnt veröur á mánudagskvöldiö. Paimu lögregluforingi hinn kvensami sést hér aö störfum. OLIJO ER SLÆMUR En hvernig væri aö þjóönýta Sambandið? Ég kaus Geir I vor. Og það var nú auðvelt að ákveða það. Pabbi kaus alltaf hina sjáU- slæðiskarlana, og svo vinn ég nú i þessari gotterisgerð hans Geirs. Mér finnst lika sjálf- sagt mál að kjósa Geir. Hann á steypuna og bilana sem á henni keyra, strætó og bens. Hann vill lika efla atvinnu- fyrirtækin, iðnaðinn og það. Þess vegna var það nú, sem ég kaus hann Geir. Svo kom þessi ólijó. Geir var búinn að segja mér það, bæði i Mogganum sinum og sjónvarpinu og öllum bréfun- um sem hann lét senda heim til min, að ólijó vildi bara vera með kommum og væri að setja landið á hvinandi kúpuna og senda þjóðina út i rauða mýri. Geir veit hvað hann syngur. Svo fór Geir að reyna að bjarga landinu. Og það fannst mér skritið, þegar hann bað ólajó að hjálpa sér við að mynda rikisstjórn. Ekki varð ég hissa, þegar ólijó vildi ekki hjálpa Geir. Undarlegur þessi Óli. Svo fór Óli að reyna sjálfur að búa til nýja stjórn. Þegar hann var alveg að verða búinn að þvi, skipaði Geir Gylfa að eyðileggja þá tilraun með þvi að vilja ekki vera með. Og þá hefur Óli nú verið svekktur, að verða að fara aft- ur til Geirs og biðja hann að hjálpa sér við að mynda stjórn! t Geirs sporum hefði ég bara gefið Óla langt nef og farið I enn meiri fýlu. En ég er ekki Geir, og Geir vill bjarga land- inu frá þvi að lenda á vonar- völ. Hann tók Óla bara vel og hætti að vera fýldur. En þá tók ekki betra við: ólijó heimtaði að verða for- sætisráðherra i nýju stjórn- inni. Og Geir hafði lika hugsað sér að verða forsætisráðherra. Og svo fór allt i hund og kött. Það var ljóta ástandið og sér vist ekki fyrir endann á þvi enn. ólijó ætlar að verða alveg dæmalaust erfiður. Og svo er það þessi Gunnar, sem ég skil ekki hvers vegna fær að vera i flokknum okkar Geirs. Hann tekur ekkert mark á Geir, fer jafnvel i sjónvarpið eða Visi Sjónvarpsdagskrá- in fyrir þessa viku, er um sumt forvitnileg. í kvöld verður t.d. sýnd mynd sem fjallar um nýja óperuhúsið i Sidney. Það hús teikn- aði ungur, danskur arkitekt, Jörgen Utzon að nafni. Utzon tók þátt i samkeppni arkitekta um teikningu að hús- inu. Segir sagan að og segir einhverja vitleysu, þannig að Geir lygnir aftur augunum af vonsku og fer að rifast við Óla. Ef ég væri Geir, þá myndi ég hætta að þekkja þennan Óla. Svo ræki ég Gunnar úr flokknum og reyndi að gera samning við komma. Ég myndi bjóða kommum að stjórna landinu með mér. Við Geir myndum náttúrlega ekki leyfa hernum að fara úr landinu, eins og kommar vilja, þvi að þá hættum við að græða á viðskiptum við Kanana. En við myndum hins vegar semja við kommana: Við myndum þjóðnýta Sarhbandið og ESSO. Og þá yrðu nú framsóknar- mennirnir spældir og rikis- sjóður feitur. Sófus. /> meem- íEA/> SHELi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.