Þjóðviljinn - 29.09.1974, Blaðsíða 16
DIOÐVIUINN
Sunnudagur 29. september 1974.
Almennar upplýsingar um lækna-
þjónustu borgarinnar eru gefnar i
simsvara Læknafélags Reykja-
vikur, simi 18888.
Kvöldsími biaðamanna er 17504
eftir klukkan 20:00.
Kvöld-, nætur- og ' helgidagavarsla
lyfjabúðanna i Reykjavik vikuna 27.
sept. til 3. okt. er i Holtsapóteki og
Laugavegsapóteki.
Tannlæknavakt fyrir skólabörn 1
Reykjavik er i Heilsuverndarstöðinni i
júli og ágúst alla virka daga, nema
laugardaga, kl. 9-12 f.h.
Slysavarðstofa Borgarspitalans
er opin allan sólarhringinn.
Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á
Heilsuverndarstöðinni. Simi
21230.
KÖNNUN HEILBRIGÐISEFTIRLITS RIKISINS_______________
Á HOLLUSTUHÁTTUM KÍSILIÐJUNNAR VIÐ MÝVATN BENDIR TIL
HÆTTU Á KÍSILVEIKI
OG GASEITRUN
Heilbrigöiseftirlit ríkisins taldi að
ástæða væri að gera sem gleggsta grein
fyrir vinnuaðstöðu starfsmanna Kísiliðj-
unnar við Mývatn vegna hættu á sjúk-
dómum og eitrunar af völdum kísiiryks
og gastegunda.
í vetur framkvæmdi Einar Valur Ingi-
mundarson, umhverf isverkf ræðingur
umhverfis- og mengunarathugun við
Kisliðjuna og skilaði Heilbrigðiseftirlitið
siðan skýrslu til verksmiðjustjórnarinn-
ar nyrðra og fleiri aðila, þar sem skýrir
frá niðurstöðum athugana Einars Vals.
Þjóðviljinn hefur undir höndum bréf
frá starfsmönnum Kísiliðjunnar, þar
sem þeir fara fram á, að rannsókn á
vinnuskilyrðum og hollustuháttum i
Kisiliðjunni fari fram. Þetta bréf er
reyndar frá árinu 1972 og talsverðar úr-
bætur hafa síðan verið gerðar á hollustu-
háttum við Kísiliðjuna, einkum hvað
snertir rykmengun.
Bréf starfsmannanna fer hér á eftir:
liðandi vitiskvalir"
„Fundur starfsmanna i Kisil-
iðjunni h.f. haldinn 7.4.’72 kemur
þeirri áskorun til Verkalýðsfélags
Húsavikur, að það láti fara fram
svipaða rannsókn á hollustuhátt-
um og vinnuskilyrðum i Kisiliðj-
unni h.f. og á sér stað i Alverinu i
Straumsvik um þessar mundir.
Á undanförnum árum hafa
margsinnis orðið slys i verk-
smiðjunni af völdum gasleka
(HS). Flytja hefur orðið menn
burtu, algjörlega blinda, liðandi
vitiskvalir. Ennfremur er afar-
mikið ryk i verksmiðjunni og um-
hverfis, sem ætla má mjög hættu-
legt lungum manna (samanber
kisilveiki). Fundurinn óskar eftir
að niðurstööur þessara rann-
sókna verði birta starfsmönnum,
og þeim gerð ljós skaðsemis-
mörk, bæði varðandi ryk og gas
(H2S).”
Rykskilja — kisilveiki
Þjóðviljinn spurði Einar Val
hvað hefði helst vakið athygli
hans, þegar hann vann að um-
hvefisathugun sinni i Kisiliðjunni
i vetur er leiö.
„Fyrst og fremst tók ég eftir
hinni geysilegu tæringu innviða
verksmiðjuhúsanna þarna. Það
má segja, að þessi verksmiðja sé
sláandi dæmi um það, hvernig á
ekki að ganga frá efnaverkfræði-
legu mannvirki. Viðhaldskostn-
aður hlýtur að vera geypilegur.
Þarna eru t.d. þykkir bitar, tærð-
ir niður um marga cm i þykkt.
Mér skilst að menn séu blátt
áfram að gefast upp á viðhald-
inu.”
Varla er slikt loft .mjög heil-
næmt að vinna i?
„Menn aðlagast merkilega
fljótt öllum fjandanum og hætta
að taka eftir þvi sem þeim i byrj-
un fannst óþolandi”.
Hvaða mengunarvarnir eru
viðhafðar við Kisiliöjuna?
„Það stendur vist til að setja
rykskiljur Jóns Þórðarsonar á
alla strompana fjóra, sem á verk-
smiðjunni eru. Sem stendur er
rykskilja á einum strompanna.
Sú rykskilja er þar til reynslu, og
ég held að ljóst sé, að sú rykskilja
henti mjög vel. Vissir byrjunar-
örðugleikar gerðu vart við sig, en
nú hefur verið ráðin bót á þeim og
hefur þessi eina rykskilja verið
keyrð hátt á 3. þúsund klukku-
stunda. Með þessum rykskiljum
ætti að vera hægt að ná aftur 98%
af þvi ryki sem út færi ella”.
Hvað er kisilveiki?
„Kisilveiki er sjúkdómur, sem
margs kyns rykefni, sem inni-
halda kisil geta valdið..
Veikinnar verður oft ekki vart
fyrr en mörgum árum eftir að
vinnu i kisiírykinu var hætt.
Kornastærð kisilryksins ræður
miklu um, hve mikið situr eftir i
lungnablöðrum, en ástæða er til
að ætla, að rykið við Mývatn, liggi
einmitt á mjög óheppilegu korna-
stærðarbili. Útþenslugeta lungn-
anna fer minnkandi eftir þvi sem
meiri trefjamyndun á sér stað
(fibrosis). og einkenni kisilveiki
(silicosis) koma i ljós: þurr hósti
og andþrengsli. Kisilveiki á háu
stigi, hefur viða dregið menn til
dauða. Eftirlit er haft með heilsu-
fari starfsmanna, teknar eru
röntgenmyndir og viðast hvar
mæld lungnastarfsemin i heild.
Nú stendur til að hægt verði að
framkvæma fullkomið lungna-
próf á starfsmönnum Kisiliðjunn-
ar næsta sumar, þvi forráðamenn
hennar munu nú hafa fest kaup á
tækjum, sem nauðsynleg eru til
slikra hluta, en hafa hingað til
ekki verið nyrðra.
Gaseitrun
Starfsmennirnir töluðu um
vitiskvalir og blindu af völdum
gasleka. Hvernig lýsir þetta sér?
„Já, ég gerði mælingar á magni
brennisteinsvetnis viðsvegar um
verksmiðjuna, og þær mælingar
gáfu sannarlega tilefni til að at-
huga málið nánar meðal starfs-
manna.
Reyndar skilst mér að loftræst-
ing hafi verið aukin i verksmiðj-
unni, en þó er það svo, að viða er
erfitt að koma loftræstingu viö.
Og ég veit að menn hafa þó
nokkrum sinnum farið til læknis
með bruna i augum. Hinsvegar er
það þannig i sveitum, að þótt
menn kenni sér meins, fái jafnvel
eitrunarkast sem liður hjá á sól-
arhring, þá fara þeir ekki til
læknis, þar eð það er þvilikt fyrir-
tæki. Þegar ég var nyrðra, þá
höfðu starfsmenn engan trúnað-
arlækni. Nú hafa hins vegar verið
gerðar ráðstafanir til að slikur
verði skipaður.
Þegar menn vinna i lofti, mjög
menguðu af brennis.teinsvetni,
fylgir þvi sársaukafullt angur i
augum og timabundin skerðing á
sjón. Það sést aðeins skýrt eins og
út um litinn blett og myndast
baugur i kring um ljós sem horft
er á. Þessu fylgir svo höfuðverkur
og ógleði, menn hætta að finna
lykt, fá hósta, svima, verða sljóir
eða hálfvegis meðvitundarlausir.
Þegar við Jón Þórðarson unn-
um við að koma upp rykskilju
hans, þá leið okkur afar illa eftir
að við komum úr eimyrjunni
þarna á þakinu. Við höföum
augnaangur, þurran hósta,
geislabaugasjón og fundum varla
lykt. Ég var i þrjá dag að jafna
mig”.
2000 tonn af
ryki út í
andrúmsloftið á ári
Er vitað hve mikið magn það er
af kisilryki, sem fer út i andrúms-
loftið ef engin hindrun er á vegin-
um?
„Verksmiðjan getur framleitt
24000 tonn af kisilgúr á ári. Það
hefur verið áætlað að um það bil
2000 tonn sleppi úr sem kisilryk á
ýmsum stigum framleiðslunnar.
Þetta er 8% hráefnistap á ári, og
hlýtur þvi að vera beinn hagnaður
af þvi að setja undir þennan
leka”.
/,Gaseitrunin virðist
úr sögunni"
Við höfðum samband við Ingi-
mar Hjálmarsson, héraðslækni á
Húsavik, sem væntanlega verður
trúnaðarlæknir starfsmanna
Kisiliðjunnar. Ingimar sagði að
bætt loftræsting hefði útrýmt
þeim gaseitrunartilfellum, sem
vart var við fyrst eftir að starf-
semi Kisiliðjunnar hófst. Hann
sagði að engin merki um kisil-
veiki hefðu gert vart við sig.
Sagði Ingimar að starfsmenn
hefðu undir höndum tæki til að
mæla sýrustig andrúmsloftsins,
og ættu þeir að hætta vinnu, ef
sýrustigið færi yfir ákveðið há-
mark. Þá sagði Ingimar að i sum-
ar heföi farið fram allsherjar
Einar Valur Ingimundarson, um-
hverfisVerkfræöingur, sem fram-
kvæmt hefur umhverfis- og
mengunarúttekt á Kfsiliöjunni viö
Mývatn.
rannsókn á heilsufari starfs-
manna Kisiliöjunnar, og jafn-
framt væru þeir röntgenmynd-
aðir árlega.
Við bárum það undir Einar Val
Ingimundarson, hvort sýrumæl-
ingartækið væri nægjanlegt til að
koma i veg fyrir gaseitrun.
Sagði Einar að þörf væri á sirit-
andi mæli. Mælitæki starfsmann-
anna væri oft ekki tekið fram,
þegar sýrumagn loftsins væri
mikið.
,,0g ætli allir starfsmenn þori
að ganga út, þótt þeir viti að sýru-
magn loftsins sé hátt?”
Þjóðviljinn fjallar nánar um
þetta mál næstu daga.
—GG.
íkveikia
hjá
Sjálfstæðis-
flokknum
Brennandi
óánœgja innan
flokksins?
Tilraun var gerð til að
brenna ofan af íhaldinu
nýja húsið í Bolholtinu i
fyrrinótt. Var kveikt i
eldfimum efnum á
fyrstu hæð hússins, en
eldurinn barst þaðan í
uppsláttá efstu hæðinni.
Slökkviliðinu gekk þó
til allrar hamingju vel
að slökkva eldinn og
hlutust því minni
skemmdir af tiltækinu
en efni stóðu til.
Málið er að sjálfsögðu
i rannsókn.