Þjóðviljinn - 04.10.1974, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 4. október 1974.
Rauðsokkar:
Opið hús
að Skólavörðustíg 12
Um mánaðamótin eignaðist
rauðsokkahreyfingin samastað
að Skólavörðustlg 12 i Reykjavlk,
og verður þar jafnframt eins kon-
ar kaffistofa fyrir gesti og gang-
andi, þá sem rabba vilja saman I
góðum félagahópi eða leita til
hreyfingarinnar meö vandamál
sin.
Á hverjum degi milli kl. 5 og 7
siðdegis verður opið hús hjá rauð-
sokkum, og verða þá alltaf tveir
félagar til staðar til að veita upp-
lýsingar um hreyfinguna og veita
ráöleggingar við þeim vanda sem
upp kann að vera borinn. Kaffi og
öl fæst við vægu verði.
t setustofunni liggja frammi er-
lend og innlend timarit. í ráði er
að koma upp visi að bókasafni.
Rauðsokkar vonast til þess að
fólk sem hefur áhuga á jafnréttis-
málum og öðrum áhugamálum
hreyfingarinnar liti við hjá sér að
loknum vinnudegi — eftir þvi sem
tök eru á — og tengist þannig
hreyfingunni.
Á kvöldin og utan hinna föstu
siödegisstunda er húsnæðið vita-
skuld notað til funda og annarrar
starfsemi á vegum rauðsokka.
Simi 2-87-98
Haustfundur hreyfingarinnar
var haldinn i ófrágengnu húsnæð-
inu 23. september sl. Elisabet
Gunnarsdóttirtók þá við af Eiriki
Guðjónssyni i miðstöð, en auk
hennar eru þær Hjördis Bergs-
dóttir, Vilborg Sigurðardóttir og
Erna Egilsdóttir i miðstöðinni.
Hið nýja húsnæði gerir það að
verkum að starfsemi hreyfingar-
innar færist i fastara form, og
nokkrir starfshópar verða varan-
legir. beir eru húshópur sem sér
um rekstur hússins, leiðbein-
endahópur sem sér um að aðstoða
nýliða til starfs, og fjölmiðlahóp-
ur sem sér um útgáfustarfsemi.
Eins og áður eru starfshópar
sem myndast vegna timabund-
inna verkefna, óháðir áhrifavaldi
miðstöðvar ellegar þörfum föstu
hópanna. „Það er þetta starf sem
gefur hreyfingunni lif”, sögðu
rauðsokkar við blaðamenn um
daginn.
Siminn hjá rauðsokkum er
28798, og er svarað daglega milli 5
og 7.
INSÍ hvetur
til uppsagnar
samninga
Sunnudaginn 29. september var
haldinn á Selfossi fundur for-
manna aðildarfélaga I.N.S.t. og
fjallaði hann m.a. um kjaramál
iðnnema. Á fundinum var sam-
þykkt svohljóöandi ályktun um
kjaramálin:
„Fundur formanna aðildarfé-
laga I.N.S.I. lýsir fullum stuðn-
ingi við yfirlýsingu miðstjórnar
og formanna sérsambands ASl
um uppsögn kjarasamninga og
hvetur aðildarfélög I.N.S.l. til að
segja upp samningum.
Formannafundurinn telur að
þær láglaunauppbætur, sem á-
kveönar hafa verið með bráða-
birgðalögum, komi iðnnemum
sem öðru láglaunuöu fólki að tak-
mörkuðum notum þvi þær eru of
lágar og koma of seint. Fundur-
inn lýsir þvi andstöðu við efna-
hagsráðstafanir þær, sem dunið
hafa yfir síðustu daga, og lýsir
fullri ábyrgð á hendur rikis-
stjórnarinnar vegna enn einna
bráöabirgðalaganna I sögu is-
lenskra bráðabirgðaráðstafana,
verkalýðnum i óhag. Fundurinn
mótmælir sérstaklega skerðingu
á samningsfrelsi verkalýðshreyf-
ingarinnar, þar sem með lögum
hefur verið stöövuð greiðsla visi-
tölubóta á laun og vill þess vegna
skora á samtök launþega i land-
inu að auglýsa sem fyrst, nýja
kauptaxta, þar sem reiknaðar séu
að fullu verðlagsuppbætur á laun
samkvæmt samningum.”
Tónleikar
Tónleikar þriðjudag 8. október kl. 21 i
Félagsstofnun stúdenta við Hringbraut.
Einleikari: Manfred Scherzer, fiðlu,
konsertmeistari Gewandhausorchester
Leipzig.
Forsala aðgöngumiða: Bókabúð Máls og
menningar, Laugavegi 18 og Bókabúð
Lárusar Blöndal, Skólavörðustig 2.
TÓNSKÓLI
SIGURSVEINS D. KRISTINSSONAR
Hugheilar þakkir fyrir sýnda samúð og vináttu við andlát
og jarðarför bróður okkar
GÍSLA GUÐJÓNSSONAR
Trésmlðameistara
Hringbraut 60 — Hafnarfirði
Ingunn Guðjónsdóttir,
Ánna Guðjónsdóttir,
Magnús Guöjónsson.
sjónvarp nœstu viku
Sunnudagur
18.00 Stundin okkar Meðal
efnis I Stundinni að þessu
sinni er spjall um réttir og
önnur haustverk, finnsk
teiknimynd, þ áttur um Súsi
og Tuma og teiknimynda-
saga um litinn indiánadreng
og ævintýri hans. Höfundur
þessarar sögu er vestur-
Islenski teiknarinn Charles
G. Thorson, sem lengi vann
I teiknimyndagerð Walts
Disney og átti hugmyndina
aö ýmsum frægum mynda-
sögupersónum, sem þar
urðu til. Umsjónarmenn
Sigriður Margrét Guð-
mundsdóttir og Hermann
Ragnar Stefánsson.
19.00 Hlé
20.00 Fréttir
20.20 Veður og auglýsingar
20.30 Bræöurnir Bresk fram-
haldsmynd. 13. og siðasti
þáttur. t sátt og samlyndi.
þessi geristá árunum um og
eftir 1860 I Liverpool i Eng-
landi, sem þá er ört vaxandi
útgerðar- og verslunarbær.
Aðalpersónan, James
Onedin, er ungur skipstjóri,
harðskeyttur og óvæginn og
ákveðinn í að eignast sitt
eigið skip og afla sér auðs og
metorða, hvað sem það
kostar. James Onedin er
leikinn af Peter Gilmore, en
meðal leikaranna eru einnig
Anne Stallybrass, Edward
Chapman, Brian
Rawlinson, Howard Lang,
Jessica Benton og James
Heyter.
21.25 tþróttir Svipmyndir frá
iþróttaviðburðum helgar-
innar. Umsjónarmaður
Ómar Ragnarsson.
22.00 Söngur Andalúsíu
Heimildamynd frá BBC um
spænska skáldið Federico
Garcia Lorca, ljóð hans og
æviferil. Þýðand og þulur
Óskar Ingimarsson.
23.00 Dagskrárlok.
Dustin Hoffman mun hann heita, maðurinn sem gægist inn á
myndina þessa. Á miðvikudaginn kemur sýnir sjónvarpið
bandaríska teiknimynd sem ber titilinn „Pabbi segir sögu”.
Sagan á að gerast I ævintýraþorpi einu þar sem allir hlutir eru
oddmjóir. Og svo kemur til sögunnar drengur, sem ekki hefur
oddmjótt höfuð... Dustin Hoffman hlýtur að segja söguna vel.
Þýðandi Jón 0. Edwald.
Efni 12. þáttar: Edward
hefur i ferð sinni til megin-
landsins fundið Parker og
komist aðraun um, að fyrir-
tæki hans er á barmi gjald-
þrots. Samkomulagið milli
Edwards og Carters er orðið
óviðunandi, og Edward viil
öllu til kosta að losna við
hann. David og Jill hafa
ákveðið að ganga i hjóna-
band, og nú kemur óvænt i
ljós, að Jill hefur erft mikil
auðæfi eftir föður sinn. Hún
býðst til að lána fyrirtækinu
þá peninga, sem þörf er á,
til að losna við Carter og
komast yfir erfiðleikana i
sambandi við gjaldþrot
Parkers, en bræðrunum er
um og ó að þiggja hjálp
hennar, og David endur-
skoðar vandlega afstöðu
sina til væntanlegs hjóna-
bands.
21.20 Glymur dans I höll
Félagar úr Þjóðdansafélagi
Reykjavikur sýna islenska
dansa og vikivakaleiki
undir stjórn Sigriðar
Valgeirsdóttur. Jón G.
Asgeirsson raddsetti og
samdi tónlist fyrir ein-
söngvara, kór og hljóm-
sveit. Einsöngvar: Elin
Sigurvinsdóttir, Unnur Ey-
fells, Gestur Guðmundsson
og Kristinn Hallsson. Aður á
dagskrá á gamlárskvöld
1970.
21.50 Maður er nefndur Ólafur
Bergsteinsson, bóndi á
Argilsstöðum i Rangar-
vallassýslu. Indriði G.
Þorsteinsson ræðir við
hann.
22.25 Að kvöldi dags. Sr. Páll
Pálsson flytur hugvekju.
22.35 Dagsskrárlok.
Mánudagur
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.35 Onedin skipafélagiðNýr,
breskur framhaldsmynda-
flokkur. 1. þáttur. Blásandi
byr. Þýðandi Óskar
Ingimarsson. Myndaflokkur
Þriðjudagur
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar.
20.30 Bændurnir Pólsk
framhaldsmynd, byggð á
sögu eftir Wladislaw
Reymont. 12. þáttur.
Heimkoman. Efni 11.
þáttar: Eftir greftrun
Boryna bónda kemur fjöl-
skylda hans saman til að
ræða skiptingu arfsins.
Antek er enn i varðhaldi og
Hanka neitar að skipta
búinu, fyrr en hann kemur
heim. Jagna verður stöðugt
að þola ónot og glósur
annarra kvenna i þorpinu,
og illvigust þeirra allra er
Hanka, sem vissulega á
henni grátt að gjalda. Þar
kemur að lokum, að Jagna
hröklast að heiman og sest
að hjá móður sinni.
21.25 Ert þetta þú? Endur-
tekinn fræðslu- og
leiðbeiningaþáttur um
akstur með ljósum og
notkun endurskinsmerkja i
skammdeginu.
21.35 Því fer fjarri. Norskur
skemmtiþáttur með
stuttum, leiknum atriðum.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir. (Nordvision —
Norska sjónvarpið)
22.00 . Heimshorn Frétta-
skýringaþáttur.
Umsjónarmaður Sonja
Diego.
22.30 Dagskrárlok.
Miðvikudagur
18.00 Þúsundþjalasmiöurinn
Foca Sovésk teiknimynd.
Þýðandi Hallveig
Thorlacius.
18.20 Sögur af Tuktu.
Kanadiskur myndaflokkur
fyrir börn. Þýðandi
Jóhanna Jóhannsdóttir.
Þulur Ingi Karl Jóhannsson.
18.35 Filahirðirinn. Breskur
myndaflokkur fyrir börn og
■■■■■■
unglinga, að nokkru
byggður á sögum eftir
Rudyard Kipling. 4. þáttur.
Kápa úr hlébarðaskinni.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
19.00 Hlé
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.35 Pabbi segir sögu (The
Point) Bandarisk
teiknimynd. Ævintýramynd
þessi gerist i þorpi, þar sem
allir hlutir eru oddmjóir.
Eitt sinn fæðist þar drengur,
sem er með hnöttótt höfuð,
en ekki oddmjótt eins og
aðrir þorpsbúar. Þorpsbúar
líta hann hornauga vegna
þessara „likamslýta”, og
loks er hann dæmdur i
útlegð, vegna þess, að i
lögum rikisins stendur, að
allir hlutir skuli vera odd-
mjóir. Þýðandi Heba
Júliusdóttir
21.40 Fyrsta tunglgangan Arið
1969 urðu aldahvörf i sögu
jarðarbúa. Þeir fóru sina
fyrstu ferð til tunglsins.
Þetta er bresk heimilda-
mynd um undirbúning
fyrstu tunglferðarinnar og
fyrstu spor manna á
tunglinu. Þýðandi og þulur
Gylfi Pálsson.
23.05 Dagskrárlok.
Föstudagur
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.35 Lögregluforinginn
Þýskur sakamálamynda-
flokkur. Likið i þyrni-
runninum. Þýðandi Auður
Gestsdóttir.
21.30 Kastljós. Frétta-
skýringaþáttur.
Umsjónarmaður Eiður
Guðnason.
22.00 Jassforum Norskur
músikþáttur. Pianistinn
Paul Bley og tveir félagar
hans leika „nútimajass”.
(Nordvision — Norska sjón-
varpið)
22.30 Dagskrárlok.
Laugardagur
17.00 Enska knattspyrnan
18.00 íþróttir Meðal efnis i
þættinum verður mynd frá
leik Fram og Real Madrid.
Umsjónarmaður Ómar
Ragnarsson.
Illé
20.00 Fréttir
20.20 Veður og auglýsingar
20.25 Læknir á lausum kili.
Breskur gamanmynda-
flokkur. Þýðandi Jón Thor
Haraldsson.
20.55 Sveinn Dúfa Fyrst les
Gisli Halldórsson leikari,
kvæðið um Svein Dúfu eftir
finnska skáldið Johan
Ludvig Runeberg i þýðingu
Matthiasar Jochumssonar.
Siðan verður sýnd finnsk
biómynd frá árinu 1958,
byggð á þessu sama kvæði.
Aðalhlutverk Veikko
Sinisalo;> Þýðandi Kristln
Mantyla. Aðalpersónan,
Sveinn, er finnskur piltur,
yngstur I hópi margra syst-
kina. Hann er hraustmenni
að burðum, en er ekki talinn
stlga I vitið, og er þar að
auki hinn mesti klaufi til
allra verka. Sveini leiðist,
sem vonlegt er, að sæta
sifelldum aöfinnslum og
spéi, og ákveður þvi loks að
ganga I herinn, i von um að
verða þannig föðurlandi
sinu og kónginum að
einhverju liði. Og sú von
bregst honum ekki, þvi þótt
höfuðið sé i sljórra lagi, er
hjartað á réttum stað.
23.25 Dagskrárlok.