Þjóðviljinn - 04.10.1974, Page 3
Föstudagur 4. október 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Karen Erla t.v. og Valgerður aðstoðuðu við æfingu I Iðnó I gær.
Kvenfólkið sœkir fram
Stúlkur senu
menn í Iðnó
Finnst dýrt að lifa í Reykjavík
Sífellt eru konur að teygja sig
meira inn á hefðbundin yfirráða-
svæði karla. Við höfðum spurnir
af þvi að enn eitt virkið væri fall-
ið, að þessu sinni i Iðnó. Þar hafa
tvær stúlkur verið ráðnar i störf
senumanna, þ.e.a.s. til að bera
sviðsmuni og leiktjöld tii á milii
atriða.
Við brugðum okkur á æfingu á
Islendingaspjöllum i gær og hitt-
um þar fyrir stúlkurnar en þær
heita Karen Erla Erlingsdóttir og
ValgerðurErlendsdóttir og eru 18
og 22 ára. Og hvað skyldi hafa
ráðið þvi að þær sóttu um þetta
starf?
Karen: — Ég er utan af landi,
frá Fáskrúðsfirði, og er hér I
menntaskóla. Ég þarf að leigja
mér húsnæði hér i borginni og
þarf þvi á peningum að halda. Ég
var kokkur á bát frá Fáskrúös-
firöi i sumar og hafði að visu
ágætar sumartekjur, en þær
hrökkva skammt upp i niu mán-
aða dvalarkostnað i borginni.
Valgerður: — Ég er myndvef-
ari og það gefur litið af sér fyrir
óþekkt fólk. Maður getur a.m.k.
ekki byggt afkomu sina á þvi. Þvi
þurfti ég að verða mér úti um
vinnu.
— En er enginn áhugi á leik-
húsinu sem rær að baki?
Karen: — Jú, ég vildi kynnast
þessum heimi. Það er ekki mikið
um leikhússtarfsemi á lands-
byggðinni, i mesta lagi að það sé
sett upp eitt leikrit á ári.
— Hvernig er vinnutiminn?
— Aðra vikuna vinnum við tvö
kvöld en hina vikuna fjögur. Svo
þurfum við að vera á minnst
tveimur æfingum fyrir hverja
frumsýningu.
— Og hvernig likar ykkur leik-
húslifið?
— Alveg prýðilega. Þetta er
skemmtilegt starf og ólikt öðru
sem maður hefur reynt.
Þess má geta að Karen Erla er I
6. bekk Menntaskólans i Reykja-
vik. Valgerður lauk námi við
Myndlista- og handiðaskóla Is-
lands fyrir hálfu öðru ári, en i
fyrravetur var hún við fram-
haldsnám I Tékkóslóvakíu.
Við hittum Guðmund Pálsson
framkvæmdastjóra Leikfélags
Reykjavikur og spurðum hann
hvort einhver stefnubreyting fæl-
ist i ráðningu stúlknanna.
— Nei, nei. Þetta er bara i
fyrsta skipti sem kvenfólk hefur
sótt um þetta starf. Svo einfalt er
þaðnú. —ÞH
Athugasemd frá
Jóni Þórðarsyni
Þjóðviljinn hafði i gær eftir Jóni
Þórðarsyni, uppfinningamanni,
að hann teldi sig ekki hafa haft
nægilega langan tima til að full-
komna hreinsitæki þau sem ætlað
var að hann smiðaði fyrir álverið.
Jón Þórðarson hefur ekki sagt
neitt þessu likt við Þjóðviljann —
blaðamaður mun af misgáningi
hafa ruglað saman umsögn Jóns
og Einars Vals Ingimundarsonar,
verkfræðings, sem gjörla þekkir
til hreinsitækja Jóns og tilrauna
hans með þau.
r
Ohugnanlegt
Umsóknarfrestur um sið-
ustu ibúðirnar á vegum Fram-
kvæmdanefndar byggingará-
ætlunar rennur út í kvöld.
Fyrirsjáanlegt er að umsóknir
verða að minnsta kosti 700 um
þær 160 ibúðir sem úthluta á,
sagði Guðmundur J. Guð-
mundsson, sem sæti á I Fram-
kvæmdanefnd byggingaráætl-
unar og úthiutunarnefndinni
fyrir ibúðirnar. Þjóðviljinn
ræddi við Guðmund siðdegis i
gær og spurði biaðamaður
fyrst hvernig ástatt væri hjá
þvi fóiki sem sækti um ibúðir
þessar, en hér er um að ræða
96 þriggja herbergja ibúðir, 64
tveggja herbergja.
— Það er einkum einkenn-
andi að ibúðaleiga hefur
hækkaö gifurlega að undan-
Guðmundur J. Guðmundsson
langstærsti hópurinn, einkum
mjög ungt fólk. Mörg ungu
hjónanna sem sækja um hafa
ekki búið saman fram að
þessu vegna erfiðleika á þvi að
fá ibúðir, mörg búa inni á
heimilum foreldra o.s.frv. Það
er alveg greinilegt að mjög
nauðsynl. er að hefja hið
fvrsta fél.legt átak til þess að
leysa vanda þessa unga fólks
sérstaklega. Nú, i hópi um-
sækjenda, eru mjög margar
einstæðar mæður, og stór hóp-
ur fólks á efri árum, sem
aldrei hefur eignast ibúð, en
hefur varið aurunum til þess
að hjálpa börnunum við aö
byggja eða til skólagöngu
barnanna.
— Nú er hér um að ræða
siðasta áfanga FB-Ibúðanna.
Hvað tekur við?
Segir Guðmundur J. Guðmundsson um
úthlutunarstarfið vegna síðustu FB-íbúðanna þar
sem eru 4-5 umsœkjendur um hverja íbúð
förnu. Siöan I vor virðist hafa
orðið mánaðarleg hækkun.
Fjögurra herbergja ibúðir
kosta um og yfir 30 þúsund
krónur á mánuði, þriggja her-
bergja 20, 25, 27 þúsund,
tveggja herbergja þetta frá 12
og allar götur upp i 20 þúsund.
Fyrirframgreiðslur hafa
færst i vöxt aftur. Krafist er
sex mánaða fyrirfram, eins
árs fyrirfram — og leigu-
samningur fæst ekki nema um
sama tima og fyrirfram-
greiðslan nær yfir.
— Nú hefur mikið verið
byggt á siðustu árum og fólks-
fjölgun I Reykjavik hefur ekki
verið eins mikil og á fyrri ár-
um.
— Hér er um margskonar
áhrif að ræða. I fyrsta lagi
nýtist húsnæði i Reykjavlk
mjög illa. Tvær manneskjur,
einkum eldra fólk, er i fimm
herbergja ibúðum. Fólkið not-
ar spariféö i steinsteypu. Hér
er það verðbólgan. I annan
stað hefur á undanförnum ár-
um litið verið byggt af litlum
ibúðum, og fólk fær siður en
áður leigt i kjallara- eða ris-
ibúðum.
En fleira kemur til: hin al-
menna verðlagsþróun, vaxta-
hækkun og lánsfjártakmark-
anir hafa auðvitað mikil áhrif.
Fólk þorir ekki að leggja i það
að kaupa ibúðir, þeir sem hafa
keupt gefast upp. Allt þetta
fólk leitar út á markað leigu-
ibúðanna. Og þetta hagnýta
leigusalar sér I mörgum til-
fellum. Þeir segja fólki upp til
þess að geta hækkað leiguna
og til þess að fá meiri fyrir-
framgreiðslu — o.s.frv.
En það er rétt að taka fram
að I Reykjavik er allt annað á-
stand á þvi húsnæði sem til er
og fólk verður að sætta sig við
en var 1968 þegar fyrst var út-
hlutaö FB-íbúðum. Þar hefur
orðið gjörbreyting á.
— Er þetta fólk á öllum
aldri, sem sækir um?
— Já, þetta er fólk á öllum
aldri, en með afar mismun-
andi aðstæður. Ungt fólk er
— Þessar 1250 ibúðir FB
hafa gjörbreytt húsnæðisá-
standinu meðal láglaunafólks
I Reykjavik. Þaö sem tekur
við af svipuðu tagi er bygging
verkamannabústaðanna. Nú
er hafin bygging á fyrri hluta
1. áfanga, 114 ibúðum, en alls
eiga að vera 308 ibúðir i þess-
um áfanga og hefur stjórn
Verkamannabústaðanna þeg-
ar sótt um lóð fyrir siðari hlut-
ann. Fyrstu ibúðum verka-
mannabústaðanna á að út-
hluta i júni 1975, þannig að
þetta tengist saman. En mikið
meira þarf til að leysa fram úr
þessum málum.
— Það verður erfitt að út-
hluta 160 Ibúðum þegar um-
sækjendur eru um eða yfir 700.
— Það er best að segja ekki
margt um úthlutunina, en það
verður óhugnanlegt að þurfa
að úthýsa verulegum fjölda
fólks, sem býr við afar bág-
bornar aðstæður og á fyllsta
rétt á þvi að njóta kjara á borð
við þau sem boðin eru I FB-
ibúðunum.
Ungt fóik er langstærsti hópurinn, sem sækir um FB-Ibúöirnar i Breiðholti.
Nýtt hjá Helgafelli
I gær komu út á forlagi Heiga-
fells þrjár bækur: Hcrmann og
Didí eftir Guðberg Bergsson,
Djúpið eftir Steinar Sigurjónsson
og Móðir sjöstjarna lleinesens I
þýðingu Ulfs Iljörvars.
Hermann og Didi er fjórða
skáldsaga Guðbergs Bergssonar.
Bókin er um 150 siður. Djúpið er
liðlega 100 siður og ber á titilblaði
einkunnina „til ragnars — tónlist
i efri árin”. Á kápu bókar Heine-
sens segir um Móður sjöstjörnu:
,,Að stil og samsetningu er Móðir
sjöstjarna einhver skemmtileg-
asta saga Williams Heinesens,
ásamt Slag vindhörpunnar, sem
hún er i tengslum við. Stillinn er
ljóðrænn og glettinn. En likt og
gerist I söguljóði er dýpt sög-
unnar fólgin i þvi hvernig höfund-
ur lætur eilifar goðsagnir og
ævintýri og þjóðsögur samlagast
umhverfi og stund i vitund hins
unga drengs, sem er smám sam-
an að uppgötva lifið, hann sér hið
bráðlifandi sögufólk ganga út og
inn um heim arfsagnanna.”
Þessi umsögn er merkt KK, og
Guðbergur Steinar Heinesen
þess er getið að þýðing Úlfs sé Þjóðviljinn mun að sjálfsögðu
meö ágætum. geta bókanna betur siðar.