Þjóðviljinn - 04.10.1974, Qupperneq 7
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 4. október 1974.
Á ferð
og flugi
Myndavélin
Morguninn eftir keyrði
Sigurður Hlööversson, og siðan
Hannes Bald mig um staðinn svo
ég gæti myndað það sem mér
sýndist. Og það var henst til og
frá, og talsverðar tilfæringar
voru viðhafðar.
Þó voru þessar tilfæringar ekki
neitt hjá þvi sem siðar varð um
daginn, þegar formaður Alþýðu-
bandalagsins, Ragnar Arnalds,
sentist með mig fram allan
Skagafjörð með tilheyrandi
stoppum og útafbeygjum, prili og
klifringum, svo myndirnar mættu
verða sem glæsilegastar. Þvi for-
maðurinn hefur auga fyrir mynd-
rænum hlutum.
En allt þetta erfiði varð til
einskis.
Þegar suður kom, varð sá
hryllilegi raunveruleiki ljós, að
myndavélin sem blaðið hafði
leystmig út með var vita ónýt, og
hafði verið siðan gosið hófst i Eyj-
um á sinum tima!
Og þarna fóru forgörðum
myndiraf formanninum við véla-
viðgerðir á jappanum, af sumar-
húsi ólijós i F'ljótunum, af rústum
heimkynna hinna landsfræðgu
Bakkabræðra og mynd af for-
manninum á svölum hálfbyggðs
húss sins i Varmahlið með Mið-
skitjuskarð i baksýn. Svona mætti
lengi telja eöa þar til geðshrær-
ingin skekur skrokkinn og andinn
liggur marflatur vegna jafnvæg-
isleysis.
Afglapaskarð
Ragnar formaður kann talsvert
af sögum af örnefnum á leiðinni
frá Siglufirði til Varmahliðar.
Hann var þó varla búinn að hita
sig upp þegar við komum að
Strákagöngum. Þar beið ung og
falleg kona við opið og beiddist
fars i gegn. Hún var norsk. Hún
var lfka gift, og hún vildi alls ekki
fara með okkur lengra en gegn
um gatið. Og þegar hún yfirgaf
okkur vestan ganganna hafði ég
logið upp sögu um ægilegan berg-
þursa sem byggi i göngunum, og
eftir að hún var blessunarlega
laus við okkur sagði Ragnar mér
af Afglapaskarði. Og af þvi að ég
var nýbúinn að ljúga að blessaðri
konunni hélt ég lika að hann væri
aö ljúga að mér, svo ég gáði i
þjóösögur Jóns Árnasonar eftir
þvi hvort formaðurinn segði satt,
enda varinn góður þegar um er að
ræða frásagnir stjórnmála-
manna. Ég segi ekkert um það
hvort það hafi komið mér á óvart
eða ekki, að það sem formaðurinn
sagði bar heim og saman við
þjóösöguna af Afglapaskarði. I
sem stystu máli er hún svolát-
andi:
Brún fjallagarðsins, sem skilur
Siglufjörð og Skagafjörð, þar sem
heitir Siglufjarðarskarð, er ,,svo
þunn sem saumhögg”. Þar um lá
almannavegur til Siglufjarðar úr
Skagafirði. Dyr voru höggnar i
brúnina, að likindum af forn-
aldarmönnum. Var skarðið, eða
dyrnar, fjórar hestlengdir og
reiðingsbreitt.
Við skarðið var bundinn illkynj-
aður andi, sem birtist i
„strokkmynduðum skýjastólpa
er kom úr lofti niður ofan yfir
hvað helst sem undir varð”.....
,,og lá það dautt samstundis”. Af
þessu var að sjálfsögðu hin mesta
raun.
A fyrri hluta 18. aldar var þing-
eyskur klerkur mikið fyrir norð-
lenskum kollegum sinum. Sá hét
Þorleifur Skaftason, og er meðal
annars um hann sagt i þjóðsög-
um, að hann ,,var tröllaukinn að
manndómi”. Var Þorleifur feng-
inn til þess að reka hinn illa anda
á brott úr skarðinu fyrir tilstuðlan
Steins biskups.
Hlóð Þorleifur altari úr grjóti
annars vegar i skarðið, messaði
Afleiöingar þriggja ára valdatiöar slöustu rlkisstjórnar uröu meöal annars þær, aö húsby ggingar hófust
aftur á Siglufiröi aö einhverju marki.
~ ..............
Þetta er hiö einstæöa ráöhús siglfiröinga.
og stefndi „vondum öndum i
skarð er sunnar liggur i fjalls-
brúninni, Afglapaskarð, og þykir
siðan iskyggilegt”. Hafa menn
gengið i það i villu og þá bana
beðið.
Fól í Fljótunum
En formaðurinn fór ekki um Af-
glapaskarð, heldur sem leið ligg-
ur um Mánárskriður, þar.sem er
nú erfiðasti þröskuldurinn á sam-
göngum um landveg við Siglu-
fjörð, og siðan eins og leið liggur i
Fljótin.
1 gömlum heimildum segir að
fóli einn bjó eitt sinn á Grindli
hinum minna i Fljótum. Átti
hann son, sem eitt sinn „var að
kyrtja sér af matarleifum”.
Brást fólinn, faðir hans, hinn
versti við, tók dreng og hengdi
hann upp á fótunum i dyragættina
og lamdi með vendi. Svo hart
gekk fólinn fram við hýðinguna,
að þrisvar varð hann að bæta á
vöndinn. Ekki lét hann staðar
numið við flenginguna fyrr en dró
af hljóðum sonarins.
Eftir þetta var drengurinn tek-
inn niður og færður i rúm. Lést
hann samdægurs af völdum hirt-
ingarinnar.
Forfeður Ólijós
En það eru fleiri i Fljótum en
fólar einir. Úr Fljótunum er einn-
ighann ólijó, sem myndaði rikis-
stjórn fyrir annan. Þetta minnir á
Bakkabræður og þeirra vinnu-
brögö.
1 Þjóðsögum Jóns Arnasonar er
þess getið að Bakkabræður séu
annað hvort upprunnir frá Bakka
i Fljótum og kenndir við þann
staö siðan, eða Bakka i Svarf-
aöardal. Heldur hallast Jón þó að
þvi, ab þeir hafi verið úr F’ljótun-
um.
En á þeim tima er Jón lét efa-
semdir i ljós um það, að þeir væru
þaöan, hafði heldur ekki fæðst
neinn Ólafur Jóhannesson. ólijó
er fæddur i Fljótunum. Hefðu
Bakkabræður verið frá Bakka i
Svarfaðadal, hefði Olijó fæðst
sem Svarfdælingur.
En þetta gat Jón Arnason að
sjálfsögðu ekki vitað.
Fljóta-Graður
Þab er ástæða til að taka það
fram, að það var ekki formaður-
inn sem sagði mér sögurnar af
Fljóta-Graði, svo fólk fari ekki að
halda að hann sé dónalegri en
gerist og gengur. Þar komu aðrir
til, enda skagfirskt að vera kven-
samur, og skagfirskt að segja
kvennafarssögur.
Fljóta-Graður var, eins og
nafniö bendir til, stórtækur til
Framhald á 11. siðu.
Siglufjörður — Skagafjörður — Sauðárkrókur
2. HLUTI
Steinar Jónasson, hótelstjóri Höfn Siglufirði:
Bæta þarf þjónustuna
úti á landi
Þegar undirritaöur hafði
lokið við að greiða hótel-
reikninginn á Hótel Höfn
Siglufirði tók hann hótel-
stjórann, Steinar Jónas-
son, tali:
— Hvað ertu búinn að reka
hótelið lengi?
— í sex ár.
— Og nú ætlarðu aö loka i vet-
ur. Er þetta i fyrsta skipti i sex
ár, sem þú verður að loka hótel-
inu?
— F’yrsti veturinn, já.
— Hvað veldur?
— Fjárhagsörðugleikar. Ég
tapaði á rekstrinum 400 þúsund
krónum á siðasta ári af þvi að
hafa opið yfir veturinn, og ég hef
ekki efni á þvi að tapa öðrum 400
þúsund krónum i ár, eða jafnvel
meiru. Raunverulegur rekstrar-
grundvöllur er ekki lengur fyrir
hendi þegar sumartraffikinni lýk-
ur i september, kannski 100
manns sem gista hér fram að
áramótum.
— Hvernig gefur gistinýtingin
verið i sumar?
— Allsæmileg. Allt upp i 80%.
Ég er að visu með annað hótel
lika, Hótel Hvanneyri, yfir
sumartimann, til þess að taka
toppana. Þar er aöeins gistiað-
staða, en hér er einnig matsala
auk gistingar.
— Hvað þyrfti að gerast til þess
að þú gætir haldið hótelinu gang-
andi allt árið?
— Ég veit nú eiginlega ekki
■hvaðá að segjaþviég er á móti öll-
um styrkjum og hef alltaf verið.
En það þarf einhvers konar
breyting að koma til, til dæmis að
leigja þetta hús til gistingar fyrir
skólakrakka, sem hingað koma
viða að til náms i gagnfræðaskól-
anum. Einnig mætti hugsa sér að
sjóvinnuskólinn, þegar hann
kemur hingað, fengi hér þá þjón-
ustu sem til þarf, mat og gistingu.
Þetta held ég að sé besta lausnin.
— Hvað hefurðu boðið bæjar-
yfirvöldum upp á með nýtingu
þennan vetur?
— Ég hef boðið þeim upp á nýt-
ingu húsnæðis hér fyrir skólafólk,
húsnæði og mötuneyti. Þetta hef
ég boðiö þeim i þrjá vetur, en þau
hafa ekki séð ástæðu til þess að
þekkjast boðið.
— Þú ert i þann mund að hefja
stórviðgerð á húsinu. Er við-
haldskostnaður mikill?
— Viðhaldskostnaður á svona
húsi er mikill. Ég býst við að ég
þurfi að leggja út 8-9, jafnvel 10
hundruð þúsund krónur til við-
halds þetta árið.
— Lokaorð?
— Að minu viti þyrftum við að
halda þeim ferðamannastraumi
til landsins sem þegar er orðinn.
Ferðalög hingað mega að minu
viti ekki minnka, en þó þarf að
hafa gætur á þvi, að þjóðin beri þá
böggla, sem fylgja ferðamanna-
straumnum. Til þess að við get-
um haldið þeim ferðamanna-
straumi sem fyrir er, þarf að
bæta gistiaðstöðuna úti á landi og
koma til móts við þá aðila sem
Steinar Jónasson
vilja sinna feröamönnum svo
hægt sé að veita þeim sómasam-
lega þjónustu. — úþ
Föstudagur 4. október 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Sigurður Hlöðversson, tæknilegur framkvæmdastjóri Húseininga hf.
Fyrsti grunnur að Húseininga húsi, grunnurinn að bæjarstjóralbúðinni.
Sigurður Hiöðversson
Timburhús hafa sál
Húseiningar h.f. á Siglufirði eru
nú við það að senda sin fyrstu hús
á markaðinn. Þegar þetta birtist
er væntanlega byrjað á að reisa
fyrsta húsið, en það verður reist
á Siglufirði og er ætlað seni Ivera
bæjarstjórans þar.
Sigurður Hlöðversson tækni-
fræðingur er tæknilegur fram-
kvæmdastjóri Húseininga, og við
spurðum hann eftir þvi hvert verð
væri á húsunum.
— Verðið er mismunandi, frá 2
miljónum og 600 þúsund krónur
og upp i 3 miljónir og 400 þúsund.
— Hvað er þá áætlað að hús-
byggjandinn sé búinn að kosta
miklu til við húsgrunninn?
— Það er nú erfitt að segja
nokkuð til um það, þvi það fer að
sjálfsögðu mikið eftir byggingar-
landinu. Grunnar eru til dæmis
dýrari hér á Siglufiröi en viða
annars staðar, vegna þess aö
byggingarland stendur i miklum
halla, og byggja veröur heilan
kjallara undir húsið.
— Hvað þarf sá, sem kaupir af
ykkur Húseiningarhús, að leggja
fé i annaö en húseiningarnar og
grunninn?
— 1 húsið vantar eldhúsinnrétt-
ingar og skápa, vatnslagnir og
hreinlætistæki, hitalagnir og
kynditæki. Aætla má, að þetta
sem hér er talið kosti um 800 þús-
und krónur. Við þetta bætist raf-
magnsidráttur, en raflagnir eru
allir fyrir i einingum, aðeins
eftir að draga i rörin; eldavél,
vifta, málning og annar frágang-
ur gætu fært viðbótarkostnaðinn
upp um 400 þúsund, svo að hægt
er að reikna með að heildarkostn-
aðurinn auk hússins sjálfs og
grunnsins sé um 1200 þúsund.
Heildarkostnaður við byggingu
stærsta og dýrasta hússins færi
þvi ekki langt yfir 5 miljónir, það
er að segja ef grunnurinn kostar
ekki þeim mun meir.
— Húsnæðismálastofnunin hef-
ur samþykkt þær teikningar og
þann byggingarmáta, sem þið
hafiö á. Hvað er Húsnæðismála-
stjórnarlán hátt á þessum hús-
um?
— Það er sama og lánað er út á
aðrar nýbyggingar, 1060 þúsund
krónur. Við erum búnir að selja 9
hús, og Húsnæðismálastofnunin
er búin að samþykkja, að greiða
lánið til okkar á meðan á fram-
kvæmdum stendur hér hjá okkur.
— Getið þið eitthvað lánað
væntanlegum kaupendum?
— Nei. Það verður að greiða
húsið upp þegar við afhendum
það út úr verksmiðjunni.
— Er uppsetningarverðið inni i
uppgefnu verði húsanna?
— Nei. Það er gert ráð fyrir að
kaupandinn sjái sjálfur um upp-
Húseiningar hf.
ættu að geta
framleitt amk.
60 hús á ári
setningu hússins. Þó mun fyrir-
tækið leitast við að senda að
minnsta kosti einn kunnáttumann
með húsinu til þess að leiðbeina
við uppsetningu. Við gerum ráð
fyrir að það séu 30-40 dagsverk
við að reisa svona hús.
Uppsetning húsanna er mjög
einfalt verk, og getur hvaða tré-
smiður sem er séð um það verk
með litilsháttar leiöbeiningum.
Annar stór kostur, sem dregur
mjög úr kostnaði við uppsetningu
.húsanna er, að ekki þarf krana
eða önnur slik verkfæri við að
reisa einingarnar, þvi þær eru
það léttar að tveir menn eiga auð-
velt með að reisa hverja einingu
og stilla hana af.
— Hvern telurðu vera aðal kost
svona húsa?
— Einn kosturinn er sá, að
byggingartimi þeirra er mun
skemmri en steinsteyptra húsa.
Þetta er mikill kostur á stöðum
þar sem litið er um iðnaðarmenn,
og einnig þar sem erfitt er að
verða sér úti um iðnaðarmenn.
Vegna hins stutta byggingartima
gerum við okkur vonir um að fá
það verkefni að reisa eitthvað af
þeim þúsund leiguibúðum, sem
byggja á viða um land, þvi á
mörgum þeim stöðum þar sem
þau eiga að risa er mikill hús-
næðisskortur, og þvi mikilvægt að
byggingartiminn sé stuttur.
— Standast þessi hús islenska
veðráttu?
— Samsettar einingar og
gluggar hafa verið prófaðar hjá
Rannsóknarstofnun byggingar-
iðnaðarins og hefur sú prófun
komið mjög vel út og lofar sér-
staklega góðu með þéttleika og
þol húsanna.
— Geta kaupendur húsanna
einhverju ráðið um innra og ytra
útlit húsanna?
— Fólk getur ráðið mjög miklu.
Það getur teiknað sitt hús sjálft,
þvi við höfum mismunandi stórar
gluggaeiningar með mismunandi
stórum gluggum og mismunandi
veggjaeiningum. I lofti eru kraft-
sperrur, þannig að enga burðar-
stólpa þarf til að halda lofteining-
unum uppi og engir innveggir eru
burðarveggir. Þvi getur fólk rað-
að innveggjaeiningunum eftir
vild. Það er rétt að taka það fram,
að teikni einhver kaupandi sitt
hús er það að sjálfsögðu hlutverk
arkitekts okkar aðgera hina end-
anlegu byggingarnefndarteikn-
ingu.
Það sem við sendum frá okkur
til kaupendanna eru allar út-
veggjaeiningar til að fullgera út-
veggi hússins, allar þakeiningar,
sperrur og lofteiningar til þess að
fullgera þak og loft, þakjárn,
rennur og niðurföll, allir innvegg-
ir, allar innihurðir og jafnframt
allar útihurðir, isett gler i alla
glugga. Og, eins og ég sagði áðan,
i einingunum er komið fyrir rör-
um fyrir raflögn, dósir, tenglar
og fullfrágengin rafmagnstafla.
— Hver er hugsanleg fram-
kvæmdageta verksmiðjunnar?
— Verksmiðjan er mjög vel bú-
in verkfærum og tækjum, en þó
vantar okkur tvær vélar enn. Eft-
ir aö þær eru komnar til miðast
framkvæmdagetan við þann
mannafla sem við höfum á að
skipa svo og við það húsnæði sem
við höfumyfir að ráða. Hæglega
ættum við aö geta framleitt 60 hús
á næsta ári. Með þvi að framleiða
.60-100 hús á ári gerum við okkur
vonir um að geta lækkað bygging-
arkostnaðinn töluvert mikið.
Það eru ekki bara reykvikingar
sem þurfa að drattast með hina
nýju stétt öreiga á bakinu og sjá
þeim farborða. Vesalingar þessir
virðast viða staðsettir.
t blaði Alþýöubandalagsins i
Norðurlandskjördæmi vestra,
Mjölni, fundum við svolátandi
lista yfir hina nýju öreiga og
öfugar skattgreiðslur þeirra:
Haukur Jónasson kaupmaður:
endurgr. úr rikissjóði kr. 18.319.00
Sigurjón Sæmundsson. prent-
smiðjueigandi: cndurgr. úr rikis-
sjóði kr. 3.350.00
Oddur Thorarensen kaupmað-
—■ Gera brunamálasamþykktir
bæjarfélaganna ykkur ekkert erf-
itt fyrir, með þvi að leyfa ekki
byggingu tréhúsa, eða er sú tið ef
til vill af?
— Brunamálasamþykktirnar
hljóða að ég held upp á það, að
ekki megi reisa timburhús upp á
nema eina hæð, en viðast hvar er
leyfilega að byggja timburhús á
einni hæð. Þessu fylgja önnur
ákvæði um fjarlægð milli húsa frá
lóðarmörkum, en gilda um stein-
hús.
— Hefurðu trú á þvi, að tslend-
ingar fái aukinn áhuga fyrir
timburhúsum, mannfólk, sem á
seinni tið byggir gjarnan ekki
annað en steinsteypt hús utan um
sig?
— Sannast sagna hef ég trú á
að svo verði. En til þess að sú
sama þróun i ibúðabyggingar-
málum geti átt sér stað hér á
landi sem annars staðar á Norð-
urlöndum, þarf hið opinber að
sýna af sér snarborulegri vinnu-
brögð við útborganir lána en nú
tiðkast þar sem byggingartimi
hvers húss styttist mjög mikið
með þessum hætti.
Kostir við að búa i timburhúsi
eru tvimælalausir, og nefni ég
sem dæmi að i slikum húsum er
mun betra loft, og þar af leiðandi
heilnæmara i þeim að búa. Að
sjálfsögðu skal þvi ekki gleymt,
að timburhús hafa sál, sem eng-
um hefur enn tekist aö finna i
steinhúsi.
—úþ
ur: endurgr. úr rikissjóði kr.
14.501.00.
Flgill Stefánsson, verksmiðju-
eigandi: engurgr. úr rikissjóöi kr.
6.715.00
Jóhann Stefánsson, kaupmað-
ur: endurgr. úr rikissjóði kr.
18.500.00
Siðar i greininni er skattrann-
sóknarstjóri boðinn velkominn til
bæjarins til að lita til með afkomu
hinnar nýju öreigastéttar, og er
boðinu hér meö komið á framfæri
við hann, ef svo kynni að vera, að
hann fengi ekki Mjölni sendan.
—úþ
VÍÐA ERU
VESALINGAR