Þjóðviljinn - 04.10.1974, Qupperneq 8
8 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Föstudagur 4. október 1974.
CJ □ * /o' A D ö ))C^2)Öð0[F ■—r' 7> 'O n 0 . r ,
Reykjavíkurmótið í handknattleik:
Fram varði titilinn
sigraði slakt Vals-lið 16: 14 í úrslitum
Reykjavikurmeistarar Fram i handknattleik 1974
Fram varði Reykjavik-
urmeistaratitil sinn með
glæsibrag er það mætti Val
í úrslitaleik mótsins i
fyrrakvöld og sigraði
16:14. Eins og markatalan
gefur til kynna var þetta
leikur sterkra varna en það
sem þó öðru fremur gerði
gæfumuninn fyrir Fram
var einstök markvarsla
Guðjóns Erlendssonar,
sem greinilega hefur
aldrei verið jafngóður og
nú. Hann hreinlega lokaði
markinu langtimum sam-
an og var alveg sama
hversu góð og opin mark-
tækifæri Valsmanna voru,
Guðjón varði af snilld. En
það sem var kannski
furðulegast við þennan leik
var það, að Vals-liðið byrj-
aði af þvi líkum krafti að
maður hélt að það hefði
gert útum leikinn á fyrstu
12 minútum þegar það
komst i5:1. En þá hljóp allt
í baklás hjá því og á næstu
18 mínútunum skoraði það
aðeins eitt mark gegn 6
mörkum Framara.
Það er hreint óskiljalegt
hvernig liðið datt niður i ekki neitt
siðari hluta fyrri hálfleiks, jafn-
vei þótt markvarsla Guðjóns hafi
verið góð, þá er það ekki nema
hálf sagan. Mjög svipað þessu
gerðist í leiknum við tR á dögun-
um, en þá var það bara svo seint
að IR-ingum tókst ekki að notfæra
sér það. Þetta er greinilega atriði
sem þjálfari liðsins þarf að laga
með einhverju móti, þvi ekkert lið
kemst nærri toppnum ef það skor-
ar ekki langtimum saman i
hverjum leik, þótt byrjunin sé
góð.
Hellas-
liðið
kemur
dag
Sænska handknattleiksliðið
Hellas kemur til landsins i dag
og leikur sinn fyrsta leik hér á
landi á sunnudagskvöldið
næsta og mætir þá fslands-
meisturum FH.
Siðan leikur liðið 3 leiki i
viðbót i næstu viku og mætir
þá nýbökuðum Reykjavikur-
meisturum Fram, þá Val sem
varð i 2. sæti mótsins og loks
úrvalsliði HSf, og verður það
fyrsta verkefni landsliðsins
undir stjórn Birgis Björnsson-
ar jálfara.
A morgun munum við kynna
ieikmenn Heilasliðsins og
segja frá ýmsu fleira i sam-
bandi við þetta frægasta
handknattleikslið Sviþjóðar
fyrr og siðar.
Það var aðdáunarvert hve
Fram-liðið lét mótlætið i byrjun
litið á sig fá. Sum lið hefðu brotn-
að við það að vera undir 1:5 eftir
12 minútur, en ekki Fram-liðið.
Það seiglaðist áfram og náði for-
ystunni 6:5 þegar 2 mínútur voru
til leikhlés en á siðustu sekúndun-
um jöfnuðu Valsmenn þannig að
staðan i leikhléi var 6:6.
Snemma i siðari hálfleik var
Björgvin Björgvinsson fyrirliöi
Fram með sigurlaunin.
aftur jafnt, 7:7 en siðan skoruðu
Framarar 3 mörk i röð án þess að
Valsmenn svöruðu fyrir sig, stað-
an 10:7 og þetta þriggja marka
forskot var meira en Valsmenn
gátu brúað. Eftir þetta var mun-
urinn þetta 2 til 3 mörk og var 2
mörk þegar flautað var til leiks-
loka 16:14.
Eins og raunar hefur áður
komið fram er það ljóst að bæði
þessi lið verða með i toppbarátt-
unni i vetur. Margir bjuggust við
að Fram-liðið myndi dala nokkuð
við að missa Axel, en svo virðist
ekki vera. Vörn þess er betri en
nokkru sinni, markvarslan hefur
ekki verið jafn góð siðan Þor-
steinn Björnsson hætti, og þótt
engin stórskytta á borð við Axel
sé i liðinu, þá eru nokkrir þokka-
legir skotmenn sem nú verða að
Með einstakri heppni og
dyggilegri aðstoð annars
dómarans, Ölafs Steingrimssonar
náðu Þróttarar 5. sæti Reykja-
vikurmótsins i handknattleik með
þvi að sigra Armann 18:17.
Ármenningar voru betri aðilinn i
þessum leik og höfðu yfir lengst
af, en undir lokin sleppti ólafur
dómari, sem var svo kallaður
innidómari siðustu minúturnar
þremur augljósum vitum á Þrótt,
þegar gróflega var brotið á
linumanni Ármanns og það sem
meira var, hann dæmdi ekki einu
sinni aukakast. Þetta réð bagga-
muninn og Þrótti tókst að snúa
stöðunni 15:13 Ármanni i vil i
17:15 Þrótti i vil.
treysta á sjálfa sig i stað þess að
treysta á Axel.
Valsmenn hafa i öllum leikjum
sinum i mótinu sýnt frábæra
kafla.cn siðan dottið niður þess i
milli, og i leikjum gegn sterkari
liðunum geta langir slikir kaflar
þýtt tap eins og i þessum leik. Að
visu vantar enn nokkra af fasta
mönnum liðsins frá i fyrra eins og
þá Gisla Blöndal og Ágúst ög-
mundsson sem eru meiddir, og
vissulega styrkist liðið mikið
þegar þeir koma inn aftur sem
verður sennilega mjög fljótlega.
Mörk Fram: Stefán 6, Pálmi 5,
Björgvin 2, Hannes, Kjartan og
Pétur 1 mark hver.
Mörk Vals: ólafur 4 Jón Karls-
son 3, Gunnsteinn 2,Stefán 2, Jón
P. Jóhannes og Bjarni 1 mark
hver. —S.dór
Leikurinn var fremur til-
þrifalitill lengst af. Ármenningar
náðu snemma forystunni og
höfðu yfir i leikhléi 8:7. Siðan
komust þeir I 11:7, 13:9 og 15:13,
Formaður-
inn fórholu
i hoggi
Það bar til tíðinda á
goifmóti hjá GR um siðustu
hclgi að formaður klúbbsins,
Guðmundur S. Guðmundsson
fór holu i höggi. Þetta gerðist
á 11. braut sem cr 135 m. löng
og notaði Guðmundur járn
númer 6.
þegar hörmuleg dómgæsla kom I
veg fyrir nokkur mörk
Armenninga, og i stað þess að
breikka bilið náði Þróttur að
jafna og siðan að komast yfir.
Róður Armenninga i 1. deild i
vetur verður þungur og eins og
liðið leikur nú á það ekki
möguleika á sigri gegn einu
einasta liði nema ef vera
skyldi gegn Gróttu.
Miðað við frammistöðu
Þróttara i Reykjavikurmótinu er
greinilegt að Bjarni Jónsson á
mikið verk fyrir höndum ef hon-
um á að takast að koma Þrótti
upp i 1. deild i vetur en vissulega
munar um minna en Bjarna
Jónsson i einu liði.
Heppnir Þróttarar
hrepptu 5. sætið með því að sigra Ármann 18:17