Þjóðviljinn - 04.10.1974, Page 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 4. október 1974.
FÖSTUDAGUR 4. október
8
A sunnudag ók hann út i sveit.
Hann gekk spölkorn meðfram
ströndinni, þar sem hann hafði
farið i sjóinn um sumarið. Rökkr-
iö féll á áður en hann komst aftur
að bilnum sinum.
Um nóttina dreymdi hann. 1
draumnum sat hann fastur á ein-
hverju. Aðrir gátu komið og farið,
hann ekki. Hann var aleinn og
fann að hann gat ekki fært sig úr
stað. Hvar var hanirt Ljósið kom
frá hólkum i loftinu, hvergi voru
skuggar. Þetta var auðvitað
bankinn, gjaldkerabúrið. Hann
gaf sjálfur engan skugga heldur,
það kom enginn skuggi af fingr-
unum né kúlupennanum sem þeir
héldu um dauðahaldi. — Bíöið
eftir mér, hrópaði hann á eftir
hinum.en enginn beið.
Hann vaknaði. Klukkan var
hálfsex,á náttborðinu stóðu þrjár
flöskur af porter. Þú verður að
hætta að kaupa nema eina i einu,
sagði hann við sjálfan sig. Hann
hresstist smám saman og afpant-
aði simavakninguna.
A mánudag sat hann á sinum
stað hinn hressasti. Hann var aö
enda við að taka næturhólfin á-
samt Cordeliusi.
— Er það nú lika jólunum að
kenna? spurði Cordelius. Borck
kinkaði kolli. Það var þrisvar
sinnum meira en vanalega, laug*
ardagssala og siödegissala á
sunnudag.
Eins og á föstudaginn lagði
Borck fimm hundruð krónu seðl-
ana á bláa nestiskassann sinn að
frátöldum tuttugu. Bill ók út af
bilastæðinu,og það kom i ljós að
enginn stóð fyrir utan jólabasar-
inn. Þetta var allt úr sögunni,
hugsaði hann. En nokkrum min-
útum áður en banklnn var opnað-
ur, gekk hann samt fram að gler-
hurðinni. Hann starði út á torgið
þennan desembermorgun: Eng-
inn jólasveinn. En spölkorn frá
bankadyrunum stóð sænska vél-
hjólið enn á ný.
Slagæðin á hálsinum utanverð-
um fór að hamast þegar hann
gekk aftur að kassanum og settist
á sinn stað.
Þegar leið á morguninn kom
jólasveinninn inn i bankann,' en
þá var hann enginn jólasveinn.
6.
Borck þekkti hann strax og
hann birtist i dyrunum, þrátt
fyrir breytingarnar. Sama hæð
og limaburður, sama ljósleita
hárið, sömu rjóðu flekkirnir i
vöngunum.
Nýi dulbúningurinn var ekki
eins frumlegur. Rykfrakki með
uppbrettan kraga, flókahattur
dreginn fram á ennið svo
að aðeins sást i ljósa háriö
við eyrun. Sólgleraugu með græn-
leitum glerjum. Sömu brúnu
skórnir og áður með nákvæmlega
sama slitfarinu ofaná vinstri fót-
ar skónum.
Það var tilviljun að Borck
skyldi lita upp og koma auga á
hann um leið og hann steig inn i
bankann. Klukkan var hálftólf og
tveir viðskiptavinir stóðu við
kassann hjá Borck. Hinn ný-
komni gekk beint að kassanum og
tók sér stöðu fyrir aftan þá.
Agndofa á rósemi sinni hætti
Borck snöggvast að afgreiða sól-
brennda konu sem var að sækja
tvö þúsund og fimmhundruð
krónur i pesetum, opnaði neðstu
skúffuna og færði bláa nestis-
kassann sinn yfir i skjalatöskuna,
sem hafði allan timann staðið op-
in á gólfinu við fætur hans. Hann
gaf sér meira að segja tima til að
loka töskunni áður en hann hélt á-
fram að afgreiða.
Konan hafði ekki fylgst með at-
höfnum hans, heldur verið að
reikna á blað sem hún var með
fyrir framan sig. Maðurinn bak
við hana starði tómlátlega fram
fyrir sig; hann var með opinn
poka fullan af skiptimynt. Hinn
þriöji horfði niður á skóna sina,
svo að hattbarðið duldi augun.
Hann leit út eins og dæmigerður
bankaræningi, hugsaði Borck.
Meðan konan taldi seðlana vildi
hún fá að vita hve mikið bankinn
tæki þegar gjaldeyrir væri seldur.
Borck hlustaði á sjálfan sig út-
skýra með mestu ró. Hann var
öldungis furðulega rólegur:
Hverju hafði hann að tapa? Kon-
an fékk upplýsingar sinar og fór.
Borck tók við pokum með tieyr-
ingum, tuttugu og fimmeyring-
um, krónum, túköllum og fimm-
köllum.
Hann hafði enga nákvæma hug-
mynd um hve langan tima þetta
tók. Otundan sér sá hann hitt
fólkið, sem virtist frosið á sinum
stað. Engir nýir viðskiptavinir
komu að utan. Maðurinn I ryk-
frakkanum gekk fram, leit ekki af
skónum ~sinum og tók eins og
vænta mátti vinstri hönd upp úr
frakkavasanum og lagði miða á
borðið fyrir framan Borck.
Hviti vaskaskinnshanskinn sem
huldi höndina sjálfa, var einnig
hinn sami. Miðinn var eyðublað
frá bankanum sjálfum: Ottekið
af sparisjóðsreikningi, hvitt með
bláu letri, en það var skrifað á
bakhliðina.
Borck lagði tvo fingur á blaðið
meðan hann las kunnugleg orðin
með kunnuglegu prentstöfunum.
ftG ER MEÐ SKAMMBYSSU 1
VASANUM. FAÐU MÉR SJÓÐ-
INN OG LATTU EKKI A NEINU
BERA
Sami krókurinn á G-inu. Sami
djúpi punkturinn milli setning-
anna tveggja og enginn f lokin.
Utundan sér sá Borck hægri
frakkavasann. Maðurinn stóð svo
sem metra frá honum. Fremsti
hluti vasans var beint fyrir fram-
an opið á lúgunni i glerbúri
Borcks og miðaði á hálsinn á hon-
um.
Vasinn kipptist til þegar
maðurinn uppgötvaði að Borck
leit á vasann. Borck dró út mið-
skúffuna og tók tiu krónu seðlana.
Höndin á hinum ýtti búntunum til
hliðar um leið og Borck varð var
við höfuðhristing sem eiginlega
var utan sjónmáls.
Borck lagði fram hundrað
krónu seðlana. Vinstri hönd
mannsins tók við búntunum jafn-
óðum og þau voru lögð á borðið.
Hann hafði snúið sér eilitið, þann-
ig að likami hans leyndi athöfn-
inni fyrir hinu starfsfólkinu i
bankanum.
Athafnirnar voru einfaldlega
fólgnar i þvi að troða seðlabúnt-
unum I vinstri frakkavasann.
Borck tók eftir þvi að breyting
hafði verið gerð á vasanum. Seðl-
arnir virtust detta djúpt niður i
frakkann, alveg niður i botninn á
fóðrinu, með öðrum orðum fyrir
neðan hné á slða, gamaldags ryk-
frakkanum.
Einhvers staðar að utan — af
torginu eða öllu heldur frá ein-
hverjum öðrum stað I bygging-
unni — heyrði hann lúð'rasveit
leika meðan hann lauk við hundr-
að krónu seðlana og byrjaði á litla
hlaðanum af fimmhundruð króna
seölum, sem hann hafði ekki þeg-
ar flutt i nestiskassann. Um leið
og hönd hans ýtti siðustu seölun-
um i áttina að hanskaklæddri
hönd mannsins með látbragði
sem átti að tákna að nú væri allt
komiö,skaut tveim ljóðlfnum sem
áttu við tónlistina. upp I huga
hans: Nóttin helga hálfnuð var/
huldustnærfellt stjörnurnar. Tón-
listin silaðist áfram. Hægri
frakkavasinn kipptist til. Borck
hristi höfuðið; honum fannst allt i
einu sem Miriam væri að horfa til
þeirra.
— Komdu með afganginn,
sagði óeðlilega djúpa röddin sem
Borck hafði heyrt einu sinni áður.
Borck hristi höfuðið á ný. Hann
hlustaði á sina eigin rödd og undr-
aðist að hún hafði lika færst I
dýpri tóntegund.
— Það er ekki meira. Sjáið
sjálfur.
— Fifl. Næstu skúffu.
Rödd hins hafði hækkað. Miri-
am horfði beint til þeirra. Nokkr-
ar laglinur sem minntu á tilheyr-
andi ljóðlinur: Sögðu fornar
sagnir vlða/sá mun fæðast meðal
lýða...
Borck var kominn með tals-
verðan hjartslátt. Hann dró út
þriðju skúffuna sem var tóm.
Maðurinn i rykfrakkanum hallaði
sér nær glerveggnum sem að-
skildi þá til að gægjast niður.
Miriam var staðin upp.
— Þá efstu.
Borck dró út efstu skúffuna
með skiptimyntinni. Hinn hreyfði
enn á ný hægri vasann.
— Komdu strax með afgang-
inn, sagði hann án allrar festu.
Borck svaraði engu.
Hann mætti loks augnaráði hins
og tók eftir ódulinni skelfingu I
augum hans.Þeir horfðust I augu
og I svip fannst Borck sem milli
þeirra væri óeölilega náiö sam-
band. Ekki tveir' hugir, heldur
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl), 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Haraldur Jóhannsson
heldur áfram lestri þýðing-
ar sinnar á sögunni „Emil
og leynilögreglustrákun-
um” eftir Erich Kástner
(5). Spjallað við bændurkl.
10.05. Morgunpopp kl. 10.25
Morguntónleikar kl. 11.00:
Filharmónlusveit Lundúna
1 e i k u r „Mazeppa”,
sinfónlskt ljóð nr. 6 eftir
Liszt / Julian Bream leikur
á gitar „Noktúrnal” op. 70
eftir Benjamin Britten /
Itzhak Perlman og FIl-
harmóniusveit Lundúna
flytja Konsert í d-moll fyrir
fiðlu og hljómsveit op. 22 nr.
2 eftir Wieniawski.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynning.ar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Slðdegissagan: „Skjóttu
hundinn þinn” eftir Bent
Nielsen. Guðrún Guðlaugs-
dóttir les þýðingu slna (8).
15.00 Miðdegistónleikar. Hy-
man Bress og Charles
Reinar leika Sónötu I G-dúr
fyrir fiölu og planó op. 78
eftir Brahms. Artur Rubin-
stein leikur á pianó
„Andante Spianato” og
„Grande Polonaise brill-
ante” f Es-dúr eftir Chopin.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphornið.
17.10 Tónleikar.
17.30 Páskaferð til Rúmenfu
Sigurður Gunnarsson kenn-
ari lýkur ferðasögu sinni
(3).
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Spurt og svarað. Svala
Valdimarsdóttir leitar
svara við spurningum hlust-
enda.
19.55 Fyrstu tónleikar Sin-
fóniuhljómsveitar tslands á
nýju starfsári. Haldnir I Há-
skólabiói kvöldið áður.
llljómsveitarstjóri: Kar-
sten Andersen frá Björgvin.
Einleikari á selló: Ralph
Kirschbaum frá Houston i
Texas a. Passacaglia eftir
Ludwig Irgens Jensen. b.
Sellókonsert eftir Antónin
Dovarák. c. Sinfónia nr. 4.
„Italska hljómkviöan”, eft-
ir Felix Mendelssohn.
21.25 Utvarpssagan: „Gull-
festin” eftir Erling E. Hall-
dórsson. Höfundur les (2).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Búnaöar-
þáttur: Kartaflan er við-
kvæm matvara.Edwald B.
Malmquist yfirmatsmaður
flytur erindi.
22.35 „Afangar” Tónlistar-
þáttur i umsjá Asmundar
Jónssonar og Guðna Rúnars
Agnarssonar.
23.20 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Brúðkaup
Þann 26. júll voru gefin saman I
hjónabnd af séra Árelfusi Niels-
syni Hafdis Hlöðversdóttir og Sig-
mar Teitsson. Heimili þeirra er
að Vesturgötu 25, Reykjavik.
Þann 20. júll voru gefin saman I
hjónaband I Háteigskirkju af séra
Arngrimi Jónssyni Asta Friðjóns-
dóttir og Erlendur Jóhannsson.
Heimili þeirra er að Vesturvalla-
götu 12.
O cj
20.00
20.25
Frettir.
Veður og
auglýsingar.
20.35 I söngvanna riki. Kór
Menntaskólans við Hamra-
hlið syngur. Stjórnandi Þor-
gerður Ingólfsdóttir. Aður á
dagskrá 4. april 1974.
' 21.05 Kapp meðforsjá.Breskur
sakamálamyndaflokkur.
Þýöandi Kristmann Eiðs-
son.
21.55 Kastijós. Fréttaskýr-
ingaþáttur. Umsjónarmað-
ur ólafur Ragnarsson.
22.30 Dagskráriok.
Indversk undraveröld
Vorum að taka upp mjög glæsilegt og fjöl-
breytt úrval af austurlenskum skraut- og list-
munum, m.a. útskorin borð, vegghillur, vör-
ur úr messing, veggteppi, gólfmottur og
margt fleira.
Einnig úrval af indverskri bómull, batik-efn-
um, rúmteppum og mörgum gerðum af
mussum.
Nýtt úrvai af reykelsi og reykelsiskerjum.
Gjöfina, sem ætíð gleður, fáið þér i
Jasmin
Laugavegi 133 (við Hlemmtorg).
(BI
Bókhaldsaðstoó
meó tékkafærslum
BÚNAÐARBANKINN
REYKJAVÍK