Þjóðviljinn - 04.10.1974, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 04.10.1974, Qupperneq 12
'IOÐVIUINN Föstudagur 4. október 1974. Almennar upplýsingar um lækna- þjónustu borgarinnar eru gefnar i simsvara Læknafélags Reykja- vikur, simi 18888. Kvöldsimi biaöamanna er 17504 eftir klukkan 20:00. Kvöld-, nætur- og helgidagavarsla lyfjabúðanna I Reykjavik vikuna 27. sept. til 3. okt. er i Holtsapóteki og Laugavegsapóteki. Slysavarðstofa Borgarspitalans er opin allan sólarhringinn. Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á Heilsuverndarstöðinni. Simi 21230. 60 þúsund við Kristjánsborg „Danmörk úr EBE! Hœkkandi verðlag og 7% atvinnuleysi hefur snúið dönum til andstöðu við „evrópska einingu” i fyrradag# 2. október, voru tvö ár liðin frá því, samþykkt var í þjóðarat- kvæðagreiðslu í Danmörku að landið gengi í Efna- hagsbandalag Evrópu. Danir minntust dagsins með því að fara i stórar kröf ugöngur þar sem kraf- ist var þess að danir segðu sig úr bandalaginu. Við höfðum tal af Lasse Elle- gárd blaðamanni við Information og spurðum hann um gang mót- mælaaðgeröanna. Hann sagði að 15 þúsund manns hefðu safnast saman á Ráðhústorginu i Kaupmannahöfn Jarð- skjálfti Liraa 3/10 — Mikill jarðskálfti skók höfuðborg Perú i heila minútu i morgun. Ekki er vit- aö um manntjón en fyrstu fréttir hermdu að a.m.k. tveir he:fðu látið lifið og miklar skemmdir hefðu orðið á mannvirkjum. Jarðskjálftinn mældist 7,8 stig á Richterskvarða. Upptök hans voru fyrir utan strönd landsins, á svipuðum slóðum og jarðskjálftinn mikli varð árið 1971, en hann kostaði 67 þúsund manns lifið og olli skemmdum sem metnar voru á 250 miljónir dollara. reuter undir einni kröfu: Danmörk úr EBE! Þaðan var gengið niður að Kristjánsborgarhöll sem er að- setur þingsins. Þegar þangað kom var mannfjöldinn orðinn um 60 þúsund. Þar héldu ýmsir and- stæðingar EBE, innan þings sem utan, ræður og kröfðust úrsagnar úr bandalaginu. Einnig voru farnar mótmæla- göngur i Alaborg, Óðinsvéum, Esbjerg og viðar. Við spurðum Ellegárd hverjar væru helstu ástæðurnar fyrir þvi að álit dana á bandalaginu hefði breyst svo mjög. Hann kvað hækkandi verðlag á matvælum og sivaxandi atvinnuleysi vera helstu ástæðurnar,en menn setja þetta i beina samband við aðild landsins að EBE. Atvinnuleysið er nú talið vera um 7% sem þýðir að um 60 þúsund manns séu at- vinnulausir. — Eru einhverjar horfur á að aðildin verði tekin til endurskoð- unar? — Alls engar eins og er. Rlkis- stjórn Vinstriflokksins er hlynnt aðild og hyggur ekki á neina endurskoðun. Það gæti þó haft einhver áhrif ef englendingar segðu sig úr bandalaginu. Þegar kosið var um aðildina fyrir tveimur árum voru 57% kjósenda hlynntir henni, 33% andvígir og 10% greiddu ekki at- kvæði. Siðan þá hafa danir skipt um skoðun ef marka má skoðana- kannanir. í Gallup-könnun sem gerð var I siðasta mánuði reynd- ust 53% aðspurðra vera andvigir aðild landsins að EBE, 31% voru hlynntir henni og 16% höfðu enga skoðun. — ÞH Stjórnarkreppan bætir ekki á stjórnmálaöngþveitið á italiu. Kristilegir demókratar óttast fylgisaukningu fasista og komm- únista ef til kosninga kemur, en óvist er hvort af þeim verður. Italska stjórnin fallin Róm 3/10 — ítalska rikisstjórn- in sagði af sér i dag. Ekki kom það mönnum á óvart þar sem miklar dcilur hafa orðið milii flokkanna sem aðild eiga að stjórninni. Búist er við að Mariano Rumor forsætisráð- herra afhendi Leone forseta af- sagnarbeiðni sina I dag eða á morgun. Deilurnar risu eftir að sósial- demókratar ásökuðu sósialista um skemmdarverk innan stjórnarinnar og tilraunir til að koma kommúnistum I stjórnar- aðstöðu. Rumor reyndi allt hvað hann gat til að bera klæði á vopnin. Siðasta tilraunin var rikis- stjórnarfundur i dag. Hann stóð I tuttugu minútur og að honum loknum tilkynnti einn ráðherr- anna blaðamönum að stjórnin myndi segja af sér. Stjórn Rumors var 36. rikis- stjórn landsins frá falli fasism- ans árið 1943. Hún komst til valda um miðjan mars og varð þvi ekki sjö mánaða gömul. reuter Portúgql Vinstri menn eflast Lissabon 3/10 — Herforingja- hreyfingin sem stóð að bylting- unni i Portúgal i april sl. er talin hafa styrkt mjög stöðu sina eftir að tilkynnt var að forsætisráð- herrann, Vasco Goncalves, myndi bæta á sig embætti varnarmálaráðherra,en það losn- aði eftir að Spinola sagði af sér á mánudag. í tilkynningu frá stjórninni seg- ir að forsetinn muni áfram gegna stöðu yfirmanns hersins. Þannig er sýnt að ríkisstjórn Goncalves er orðin mjög trygg I sessi. Goncalves til aðstoðar i varnar- málaráðuneytinu var settur Victor Alves, ráðherra án ráðu- neytis. Alves er einn af leiðtogum herforingjahreyfingarinnar. Einnig segir I tilkynningu stjórnarinnar að upplýsingaráðu- neytið verði lagt niður, en upplýs- ingaráðherrann var einn af stuðningsmönnum Spinola og sagði af sér um leið og hann. Með störf ráðuneytisins mun fara Guilhermo Conceicao de Silva flotaforingi og er það enn ein vis- bendingin um það hversu vinstri menn í hernum hafa styrkt stöðu sina. ntb Óþarfa skítkast Fjallkóngur tungnamanna fótbrotnar Aiþýðublaðiið birtir á miðviku- dag viðtal við Einar Guðjohnsen framkvæmdastjóra Ferðafélags tslands þar sem hann sakar ma. leitarmenn úr Biskupstungum um mikinn sóðaskap I skála Ferðafélagsins i Hvltanesi. Einar varpar fram þeirri spurningu hvort leitarmenn séu enn á „moldarkofastiginu” og segir ma.: ,,En aldrei man ég eftir annarri eins aðkomu og i Hvitanesskálanum, þegar við komum þangað i frágangsferð um helgina, en leitarmenn úr Biskupstungum höfðu verið þar nóttina áður og höfðu greinilega sett hundana upp á loft, þvi dýnurnar, sem þar eru, voru allar útataðar I hundaskit. Raunar er umgengni I Hvítanesskálanum alltaf verst.” Við hringdum i Arnór Karlsson bónda á Bóli i Biskupstungum en hann var I hópi þeirra sem Einar talar svo um. Sagði hann að leitarmenn hefðu orðið að iáta fyrirberast i skálanum á annan sólarhring á uppeftirleið vegna sandbyls. Þegar við komum i skálann var hann ansi skitugur. Við tókum til að mestu þegar við fórum,en venja okkar er að gista i skálanum i báðum leiöum þannig að við göngum frá honum á heim- leiðinni. En þeir Ferðafélags- menn komu I millitiðinni og af þvi stafar fjaðrafokið. Arnór sagði að þessi skáli væri alltaf óhreinlegur, ma. af þvi að þar skortir alla hreinlætisað- stöðu, það er ekki einu sinni kam- ar við hann. Hann sagði að hann hefði haft hunda sina inni við Alþýðubandalagið Námshópar um sósialisma og nútima þjóðfélag. Alþýðubandalagið hefur ákveðið að koma af stað námshópum um sósialisma og nútima þjóðfélag, og er ráðgert að þeir taki til starfa um miðjan október I Reykjavik, Hafnarfirði og Kópavogi. Þeir sem áhuga hafa á að taka þátt i námsstarfinu og kynna sér fræöikenningu sósial- ista geta látiö skrá sig I námshóp fyrir 15. okt. á skrifstofu Alþýðu- bandalagsins Grettisgötu 3. Siminn er 28655. vegna þess að þeir hefðu verið ragir við að siga þeim út i óveðr- ið. Hins vegar hefðu þeir ekki hleypt þeim upp á loft, þó ekki væri loku fyrir ”að skotið aö ein- hverjir hefðu kumist þangað. Arnór sagði að honum fyndist þetta ekki rétt leið hjá Einari að rjúka með skitkast i blöð og gestabækur og vera með órök- studdar ásakanir. Nauðsyn væri á góðu samstarfi leitarmanna og Ferðafélagsins i þessum málum. Væri það ekki ætlun hans að svara þessu skitkasti. Við spurðum Arnór hvernig leitir hefðu gengið að öðru leyti hjá þeim tungnamönnum. Hann sagði að þeir hefðu hreppt aftaka- veður I tvo daga á leiðinni uppeft- ir. Tvo menn þurfti að senda til byggða vegna slysfara. Fjall- kóngurinn fótbrotnaði þegar hest- ur hans tók vixlspor i sandbylnum og annar fékk sand i auga. Veður var hins vegar sæmilegt og stundum prýðilegt það sem eftir var. — Það er orðið ansi vetrarlegt inni á hálendinu. Mikið er um snjódila i fjöllum og gerðu þeir okkur erfitt fyrir i leitinni. — Voru góðar heimtur? Maður veit það nú ekki strax,en eitthvaðer þó áreiðanlega eftir af Kosið í Grikklandi Aþenu 3/10 — Griska stjórnin til- kynnti i gær að hún hygðist efna til kosninga 17. nóvember nk. Verða það fyrstu kosningarnar sem haldnar hafa verið I landinu I heilan áratug. Karamanlis hóf hina opinberu kosningabaráttu með sjónvarps- ræðu i dag. Skoraði hann á grisku þjóðina að sýna pólitiskan þroska þegar að kjörborðinu kemur og varaði við þvi að skiptin frá her- foringjastjórn yfir i borgaralega gætu reynst erfiðari en margir héldu. reuter. fé innfrá. -ÞH Enn safnar Hreggviður Það er undirskriftagarpúrinn, Hreggviður Jónsson, sem beitir sér fyrir undirskriftasöfnuninni þar sem krafist er aukins sendi- styrks Keflavikursjónvarpsins á ný. Hreggviður þessi skipulagði sem kunnugt er ásamt fleirum undirskriftasöfnun VL sl. vetur, og i fyrrasumar, 1973, skipulagði hann undirskriftasöfnun um land- helgismálið. Þess má geta að Hreggviður er einn þeirra sem höfða mál gegn blaðamönnum Þjóðviljans og fleirum fyrir meint meiðyrði. Það er ekki Varið land sem stendur fyrir þessari undir- skriftasöfnun, heldur svokölluð „Frjáls menning”. BLAÐ- BURÐUR Þjóðviljann vantar blað- bera í eftirtalin hverfi: Brúnir Nökkvavog Alfheima Skipholt Laugaveg Laufásveg Seltjarnarnes Vinsamlegast hafið samband við af- greiðsluna.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.