Þjóðviljinn - 13.10.1974, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 13.10.1974, Qupperneq 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur. 13. október. 1974. UÚmiUINN má MÁLGAGN SÓSÍALISMA VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS Ctgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórar: Kjartan Ólafsson Svavar Gestsson : Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Skólavörðust. 19. Simi 17500 (5 llnur) Prentiin: Blaöaprent h.f. BREYTINGAR A SUNNUDAGSBLAÐI ÞJOÐYILJANS Sunnudagsblað Þjóðviljans kemur út i dag i nýjum búningi. Ætlunin er að blaðið verði frá og með deginum i dag nokkru stærra á sunnudögum en aðra daga, 20—24 siður, en 12—16 siður aðra daga vikunnar. Þá er fyrirhugað, að sérstaklega verði vandað til efnis i sunnudagsblaðið og hef- ur i þvi sambandi verið leitað til all- margra velunnara Þjóðviljans um að leggja kaupendum til lesefni á sunnudög- um, og jafnframt er ráðgert að auka hlut teikninga og myndræns efnis, svo sem for- siða Þjóðviljans i dag er til marks um. Hér verður ekki rakið i einstökum atrið- um, hvaða ráðagerðir eru helst á prjónun- um i þessum efnum, en von okkar er sú, að nýbreytnin varðandi sunnudagsblaðið verði sem flestum lesenda Þjóðviljans að skapi. Útgáfa Þjóðviljans i bráðum 40 ár hefur verið islenskum sósialistum erfitt en um flest ánægjulegt verkefni, enda þótt fjöl- margir hafi frá þvi fyrsta orðið að taka á sig allverulegar fjárhagslegar byrðar af litlum efnum til að tryggja útkomu blaðs- ins. Útgáfukostnaður hefur vaxið gifurlega að undanförnu og auðvitað kostar það aukið fjármagn, að gera blaðið betur úr garði. Velunnarar Þjóðviljans munu þvi enn sem fyrr þurfa að vera við þvi búnir að leggja nokkuð af mörkum til að tryggja útgáfu Þjóðviljans sem málgagns sósial- isma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis. Oft var þörf en nú er nauðsyn, þegar haft er i huga að Þjóðviljinn stendur að kalla einn i dagblaðaheiminum, gegn samein- uðum blaðakosti helmingaskiptastjórnar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar. Það er við hæfi nú þegar sunnudagsblað Þjóðviljans tekur nokkrum stakkaskipt- um að skýra lesendum frá þvi, að þrátt fyrir fjárhagsþrengingar ráðgerir Þjóð- viljinn að hefjast áður en langt um liður handa um nýbyggingu á húsnæði fyrir blaðið og hefur i þvi sambandi fengið út- hlutað byggingarlóð við Siðumúla i næsta nágrenni við Blaðaprent, þar sem öll dag- blöðin nema Morgunblaðið eru nú prent- uð. Stefnt er að þvi, að þær framkvæmdir geti hafist fyrir lok þessa árs, en fram- kvæmdahraði mun siðan ráðast af undir- tektum stuðningsmanna við málaleitan um fjárframlög i þvi sambandi. Stjómmálahreyfing islenskra sósialista og sá málstaður, sem hún ber uppi, þarf á þvi að halda að útbreiðsla Þjóðviljans aukist verulega. Bætt sunnudagsblað ætti að geta stuðlað að þvi, ekki sist, ef allir þeir sem vilja veg blaðsins sem mestan einsetja sér að leggja sitt af mörkum með þvi að svipast um eftir hugsanlegum nýj- um kaupendum, hver i sinu umhverfi. Að undanförnu hefur kaupendatala Þjóðviljans farið vaxandi, jafnt og þétt, og hefur kaupendum fjölgað hátt á annað þúsund á rúmlega fjórum árum. Þessi aukning er i samræmi við vaxandi gengi Alþýðubandalagsins i islenskum stjórn- málum, en alþingis- og byggðakosningar sem fram hafa farið 1970,1971 og 1974 hafa allar fært stjórnmálasamtökum islenskra sósialista aukinn styrk. En betur má, ef duga skal. Þess vegna þurfa að haldast i hendur á næstu mánuðum skelegg sókn Alþýðubandalagsins á vettvangi stjórn- málanna, m.a. hér i Þjóðviljanum og auk- in útbreiðsla blaðsins. Hver einstaklingur i röðum islenskra sósialista hefur hér verk að vinna. Vonandi fær ..varnarliðið” nú tækifæri til að veria okkur fvrir óvinum sem eru „miög grimmir en vitrir’’ (eins og rússar?') Má Varnarliðið | skjóta höfrunga? Beðið eftir úrskurði frá Washington Loksins kom langþráö tækifæri #/varnarliðsins" til að verja íslendinga/ en þá þarf að biða lengi eftir formlegum leyfum frá Washington. Eina bótin að íslendingar óska mjög ein- dregið eftir vörnum, eða eins og Páll Ásgeir í varnarmáladeild segir: „Við erum tilbúnir að leggja fram beiðnina og hefur ríkisstjórn íslands samþykkt það. Utanrikis- ráðherra hefur sagt að allt verði gert í þessu efni sem unnt er". En það er „beðið eftir úrskurði frá Washington" hvort hreyfa megi vopnin. „Varnarliöiö mun ekkert gera og getur ekkert gert fyrr en form- leg beiöni um aðgeröir hefur bor- ist frá rikisstjórninni” var haft eftir „varnarmálastjóranum” Páli Asgeiri i Margunblaðinu á fimmtudaginn en samkvæmt fimmtudagsfréttum sama blaös var hún (sem betur fer) „tilbúin að leggja fram beiönina”. Þá var hins vegar „verið að fletta upp (i bókum? Nei:) meðal löglæröra manna í Washington hvort bandariskir hermenn hafi leyfi til aö „skjóta” á óvininn! Hvaðerþetta?! Þurfa löglærðir menn i Washington aö fletta upp i sjálfum sér til þess aö úrskuröa hvort leyfilegt sé að verja islend- inga? Ja, það er náttúrlega alltaf spurningin — fyrir hverju á að verja þessa halanegra þarna noröur I Dumbshafi. Þaö hefði náttúrlega veriö allt i lagi ef þaö heföu verið rússar, ekki þurfti neinar uppflettingar við aö freta á vietnama hér um árið. Þaö er nefnilega ekki fólk sem islendingar eru aö biöja drengina okkar að skjóta á(segja þeir lög- læröu) heldur hvalir — og herinn hefur svo takmörkuð leyfi til þess að skjóta á annað en menn. Dýr og menn er jú sitthvað, og dýrin eru vernduð meö löggjöf hjá okk- ur fyrir westan. Og nú kemur hin erfiða spurn- ing: Hvaða skepna er þetta sem islendingar vilja fá varnarlið sitt til þess aö segja strið á hendur (afsakið: á hreifa)? Það er ekki nóg að segja hvalir hvalir (farðu i helviti og hvöiunum ef þú ert meö þennan hvalablástur, Einar!). Hvaða hvalir eru þetta, Páll Ás- geir? A fimmtudegi voru það háhyrn- ingar: „Jú, það er rétt að horn- firðingar hafa farið fram á það við varnarmáladeild að hún hlut- ist til um að hermenn frá varnar- iiðinu verði fengnir til að fara út með reknetabátum og skjóta með vélbyssum á háhyrninga sem koma I veg fyrir slldveiðar við Hrollaugseyjar”. Föstudagur: „Má Varnarliðið (stór stafur samkvæmt rétt óbirt- um reglum um nýja stafsetningu) skjóta höfrunga?” Sem sagt höfr- ungar.Enda Páll Asgeir nú sýnu áhyggjufyllri þar eð það er full- komið álitamál hvort bandariskir hermenn hafi leyfi til að skjóta á höfrunga, en samkvæmt banda- riskum lögum er bannað að drepa hvali og höfrungar teljist til hvala enda spendýr með heitt blóð. Ekki er þó fullvíst að höfrungar falli inn i friðunarrammann, en þessi mál eru mjög viðkvæm i Bandarikjunum (ekki á íslandi sem betur fer!) vegna náttúru- verndarsjónarmiða”. En þetta er sko stórt atriði hvort þetta eru háhyrningar eöa höfrungar. Háhyrningur, það er ekkert annaö en drephvalurinn okkar (segja hinir löglærðu og fletta upp á killer-whale i þeim löglæröasta) og þaö er ekkert annað en púra sérviska i þessum náttúruverndurum að vilja friöa hann (nú en margir þeirra vildu nú lika friða vfetnama). En höfrungur (segja þeir löglærðu og fara nú framarlega i stafrófið), það er sú blessuð skepna sem frakkar kalla dauphin eins og krónprinsinn hjá sér (áður en þeir tóku upp á öllum þessum bylting- um) og er svo sætur i dýra- garðinum, og svo 'er sagt að það sé hægt að kenna honum að bera djúpsprengju. Hann má sko ekki drepa (það gerum við ekki einu sinni fyrir Stóra-Geira, hvað þá litla Geira eða Einsa). Ja, vel á minnst, djúpsprengjur, hornfirðingum er vlst heldur I nöp við þær. Þær höfðu þó vist ansi góð áhrif á há- hyrninga i Faxaflóa á árunum 1955-56, en þá var „varnarliðið” fengið til að stugga við há- hyrningum. Páll Asgeir i fimmtudags-Mogga. Flugvélar kanans „vörpuðu djúpsprengjum sem sprungu svo á vissu dýpi. Höfðu sprengjurnar þau áhrif á háhyrninginn að hann hvarf af sildarsvæðinu i marga mánuði á eftir.... Hornfirðingar eru hins vegar hræddir við að nota djúp- sprengjur þar sem þeir segja að sildin sé á tiltölulega litlu svæði og fariö gæti svo að djúp- sprengjurnar dræpu allmikið af henni”. Það er nefnilega ekki sama hvernig hernaðaraðferðin er, það mega hinir löglærðu i Washington vita. En hitt er annað mál hvort sá sem biður um varnarlið, hefur lika rétt til þess að tiltaka varnar- vopnin. Eiga islendingar að segja okkur fyrir verkum um það (spyr einn af þeim löglærðu) hvort við notum atómsprengju á kvikindin eða bara hvaltönn og gjöldum liku likt: auga fyrir auga og hval- tönn fyrir hvaltönn? En guði sé lof að þessir is- lensku þorskar báðu okkur aldrei um varnaraðgerðir gegn bretan- um hér um árið. Það er nefnilega mjög erfitt lögfræðilegt atriði hvort bretinn er friðaður eða ófriðaður samkvæmt réttum bandariskum lögum. Vorum við alveg hættir að lumbra á bretan- um þegar stjórnarskráin gekk i gildi 1787, eða hvernig var þetta aftur? Mogga-flettari Burt með bláu þokuna Gagnger endurskoðun fer um þessar mundir fram á þeim regl- um um mengun á vinnustöðum hér i Sviþjóð, sem nú eru i gildi. Brátt er væntanleg skrá yfir 150 efni, þar sem segir i hve rikum mæli þessi efni mega finnast i andrúmslofti á vinnustöðum. Verksmiðjueigendur sjá fram á kostnað við þau tæki sem þarf til hreinsunar ioftsins, og bera sig aumlega. Eins og er stendur aðal- striöið um efniö vinylklórið. Þetta efni er notað við plastframleiðslu. Nýlega var staðfest að tveir verkamenn dóu úr lifrarkrabba- meini, sem beint mátti rekja til þessa efnis. Læknar hafa raunar lengi varað við þessu efni og get- ur það að þeirra dómi valdið auk lifrarkrabbameins, lungna- krabbameini, hjartasjúkdómum og þunglyndi, sem getur leitt til sjáifsmorða. Nú siðustu dagana hefur komið enn frekari skriður á málið vegna reglugerðar sem búið er að sam- þykkja i Bandarikjunum. Þar er nú leyfilegt að viny lklóriðinnihald loftsins sé 50 ppm á móti 20 ppm i Sviþjóð (1 ppm þýðir einn hluti af miljón). Nýja reglugerðin banda- riska segir aftur á móti að á kom- andi ári verði magnið aö komast niður i einn ppm. Plastauðféiögin vestra eru auð- vitaö æf út af þessum úrskurði og ætla með málið fyrir dómstóla. Sama er uppi á teningnum hér og kveina forstjórar fyrirtækjanna og segja að hvorki séu til pening- ar, né tæknileg kunnátta til að gera þessar ráðstafanir. Aftur á móti stangast ummæli vara-at- vinnumálaráðherra Bandarikj- anna á við þetta, þvi hann segir að auðvelt sé að koma fyrir slik- um hreinsitækjum. Svo trúi hver þvi sem hann vill. Hið þarfasta verk er þegar fjöl- miðlar taka upp þessi mál, eins og Þjóðviljinn gerði i frétt um að- búnað við Kisilgúrverksmiðjuna 29. september. Um nokkuð langt skeið hefur verið mikið um fréttir og greinar af þessu tagi i blöðum hér. Það vekur nánast furðu is- lendings, að dagblöð borgara- flokka skuli beita sér I þessu máli, eins og stórblaðið Dagens Nyhet- er hefur gert. Maður kemst að þvi að Morgunblaðið er sennilega einstætt fyrirbrigði i Norður- evrópu, þvi að meira aö segja ihaldsblaðið Svenska Dagbladet birtir öðru hvoru greinar um ó- frelsi fólks og harðrétti annars- staðar að en i Sovétrikjunum, til dæmis frá Chile og Vietnam. En svo aftur sé vikið að illri Framhald á bls. 18

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.