Þjóðviljinn - 13.10.1974, Page 9

Þjóðviljinn - 13.10.1974, Page 9
Sunnudagur. 13. október. 1974. Þ.1ÓÐV1I..I1NN — SIÐA 9 bókmenntir OLOFLAGERCRANTZ UM NÓBELSSKÁLDIÐ ^HARRY <MARTINSON Greinarhöfundur, skáld- iðOlof Lagercrantz, segir í leiðara sem hann hefur skrifað í blað sitt, DN, að víst eigi þeir báðir skilið nóbelsverðlaun, Harry Martinson og Eyvind John- sen. Og það á ekki að bera þá saman við aðra hugsan- lega verðlauna- hafa. Skáld eru ekki stang- arstökkvarar né knatt- spyrnumenn og það er ekki hægt að mæla verk þeirra með aðgengilegum sentí- metrum eða markafjölda. Þeir verða ekki bornir saman við neitt. „Netlurnar blómstra” eru tengd- ar ótta við „fóstra” með haröar hendur, við dýr sem sparka eöa bfta frá sér. Hann hatar hunda. Á reki um hafið Lif Harri Martinsons mótast af þessu baksviði Hann fer að lok- um til sjós og kynnist þvi hafi, sem faðir hans hafði siglt um. Hann byrjar sjómennsku um svipað leyti og fyrri heimsstyrj- öldinni lýkur. Alls staðar er veriö að segja frá tugum þúsunda drukknaðra sjómanna, sem fór- ust á timum ótakmarkaðs kaf- bátahernaðar og tundurdufla. í ljóðum hans kemur alltaf öðru hvoru upp á yfirborðið deyjandi sjómaður á reki um hafið eftir að skip hans var skotið niður. Eyvind Johnson og Harry Martinson; ferill þeirra hefur verið likur um Martinson vann um hrið sem margt. Leiö sjálfmenntaðs skálds úr alþýöustétt En það sem ég hef i, segir Lagercrantz, á móti Nóbelsverðlaunum, er, að þau vekja upp mikið sjón- arspil í allri okkar fjöl- miðlaringulreið. Það er gott að verðlaunin vekja athygli á frábærum rithöf- undum, en þau rugla um leið hlutföllum, skapa mis- mun á höf undum sem ekki er raunverulegur, búa til bókmenntalegan sérflokk, sem þeir sem ekki eru inni í málum skoða sem úrvals- flokk í úrvalsflokki. Niðursetningur Harry Martinson var fæddur i Blekkinge árið 1904. Faðir hans hafði verið skipstjóri, en gengið á land og sett upp verslun. Hann dó úr berklum þegar sonur hans var sex ára að aldri. Móðirin stóð ein uppi með mörg börn og réöi ekki við neitt. Hún tók eina af dætrunum með sér og hélt til Ameriku. Harry Martinson var boðinn upp i sókninni i samræmi viö gamalt og grimmdarlegt kerfi. Það var þá enn lenska að halda uppboð á munaðarlausum börn- um, sá bóndi sem sætti sig við minnsta meðgjöf fór heim með ódýran vinnukraft. Harry Matinson var viða i fóstri þvi hann strauk oft. Fyrstu minn- ingar hans, sem hann segir frá i sjálfsæfisöguskáldsögunni kyndari á skipum og virti fyrir sér heimsálfurnar frá sjónar- horni hafnarborganna. í lok þriðja áratugsins gengur hann um atvinnulaus með sjúkdóm föður sins i lungum og lifir lifi flakkara. Artur Lundkvist hefur skýrt frá þvi, að þegar hann hitti fyrst Harry Martinson hafi hann dregið derhúfuna niður fyrir aug- un sem höfðu spillst af þvi að rýna i kolaeldana. Lukkunnar pamfill Harry Martinson vann sina fyrstu sigra með tveim söfnum frásagna frá sjónum, Feröir án fyrirheits, 1932 og Kap FarvhT 1933. Það var tekið á móti honum I bókmenntum okkar með hrifn- ingu sem ekki á sinn lika. Við höfðum áður átt skáld úr alþýðu- stétt, en þá hafði svo illa til tekist, að þeir voru næstum þvi búnir að vera þegar þeir náðu viðurkenn- ingu. Þyrnirósin bleika, sem Almquist kaus að láta tákna sænska fátækt, einkenndi lif þeirra, en miðlimir akademiunn- ar fengu i sinn hlut rósirnar glæsilegu. Harry Martinson var ungur að árum. Hann réði yfir nýju og ónotuðu tungutaki. Hann var að- laðandi persóna, brosleitur undir hárlubbanum sem féll niður á ennið. Sem ijóðskáld notaði hann frjálslegri hætti en aðrir — tók miö af Carl Sandburg og Walt Whitman. Hann hafði mótað sitt eigið lif, neyddur til að gera sem bændum og skipstjórum likaði. Nú opnaði öll Sviþjóð dyr sinar fyrir honum og hann varð lukk- unnar pamfill úr ævintýrinu og gegndi lengi þvi hlutverki. Rósemd hugans Það er ekki hægt annað en að undrast það nú, hve mörg þeirra skálda úr verklýðsstétt sem á þeim tima komu fram, reyndust ráða yfir jafnvægi hugans, birtu og yfirsýn. Vilhelm Moberg sendi frá sér Raskens, þar sem bænda- lif liðins tima var fært i búning hetjusögu. t dásamlegum sögnum sem Eyvind Johnson skýtur inn i sjálfsæfisöguskáldsögu sina um Olof er eitthvað sem i senn er al- býölegt og utan við timann. Skáldskapur Harry Martinson er frá upphafi vega i jafnvægi, vitur og ofar tima. Þegar við hugsum til þess hvernig heimurinn var á þessum árum: fjöldamorð heimstyrjald- arinnar fyrri, byltingin mikla i Rússlandi, ringulreið sú sem gat af sér nasimsa og fasisma i Evrópu, allar þessar nýju bylt- ingarhugmyndir sem á kreiki voru — og við siðan berum þetta saman við verk þessara skálda, þá kemur fram mynd af landi okkar eins og það væri i órafjar- lægö frá öllu þessu eins og ein- angrað heimkynni bjartrar hóf- semdar og „hugsjónastefnu”, þar sem arfleifð hins hamslausa Strindbergs hefði verið gerð upp- tæk. Harry Martinson er öðru fremur klassiskt skáld. Sumarið er hans árstið. En hann hefur hinsvegar andúð á vorinu eins og öllu sem er ýkt, hamslaust, bylt- ingarsinnað. Til þess má i senn rekja að nokkru ástæðurnar fyrir vinsældum hans og þá fhaldssemi sem hann tileinkaði sér snemma. Ljós viskunnar í Netlurnar blómstra lýsir Harry Martinson með miklum hlýhug kennara sinum Stav, sem gætir frá sinum gula kennarastóli ljóss viskunnar og mynda fegurð- arinnar. Harry Martinson hefur reynt að móta sjálfan sig eftir Stav og verða kennari okkar allra i visdómi. Visdómur hans er fólg- inn i þrá eftir ihygli og jafnvægi. Kristindómurinn með endur- lausnarkenningu sinni og hræðslu við syndina er honum einskis virði. Hann leitar i stað uppi kenningu Búdda um sameiningu andstæðnanna. Aðaltáknin i skáldamáli hans er sólin, sem sendir geisla sin i allar áttir og öxulgatiö þar sem allir pilárarnir koma saman. Harry Martinson var furðulega afkastamikill á fjórða áratugin- um. Hann lagði rækt við innilega náttúrulýsingu i anda Linnés i bundnu máli og óbundnu. Hann var næmari fyrir mold, ormi og grösum jarðar en nokkurt annað skáld. Mál hans var auðugt sveigjanlegt og fullt af hlátri. En tvö mestu framlög hans til bók- menntanna eru frá eftirstriðsár- unum. Frásögnin VSgen til Klockrike, 1948, fjallar um Bolle, sem áöur sneri sigarettur en flosnar upp og fer á flakk. Hann er fulltrúi þeirr- ar fátæku Sviþjóðar, sem Martin- son á sjálfur ætt að rekja til, en i honum er ekki til andóf, mótmæli. Hann er vitringur i flakkarabún- ingi, utan við timann og samfé- lagið og skirskotar til hins sam- mannlega. Eftir langa flækings- ævi lýkur Bolle ferli sinum á berklahæli. 1 lokakaflanum lætur Harry Martinson hann stiga niður úr rúmi sinu á hælinu og niður I hinn þrönga farkost Karons. Þessir tveir, ferjumaður dauðans og flakkarinn, róa saman út á fljót dauðans og þá ber aftur að strönd lífsins eftir langa ferð og ágæta samræðu. Bolle endur- fæðist i anda Búdda i litlu brasi- lisku þorpi. Hann er kominn aftur til sælurikis meðvitundarleysis- ins. Bókinni um hann lýkur á orð- unum: „Þetta var i Paradis”. Jafnvægið i hættu En i fremsta verki Harry Martinsons, ljóðfrásögninni um geimskipið Aniara, er það jafn- vægi i hættu sem hann hefur alltaf sóst eftir. Hann hafði orðið að greiða hátt gjald fyrir ihyglis- speki sina um að hið illa væri ekki annað en öfgar. Ljósið logaði á kennarastóli bernskunnar til að fæla burtu skuggann frá grimmd fósturheimilanna og tröllin i skógunum. Bálkurinn um Aniara er skrif- aður eftir að menn fréttu um gas- klefana og eftir sprenginguna i Hirosjima, eftir að ný hætta stefndi að umhverfinu, hætta sem Martinson hafði tekið þátt i að finna, vegna þess að náttúru- kennd hans er svo næm. Aniara lýsir jörðunni á tima kjarnorku- styrjalda framtiðarinnar. Það er verið að flytja ibúa jarðar til Mars. Geimskipið sem á að flytja fólkið, Aniara, lendir út af braut sinni fyrir slysni og út úr sólkerfi okkar og byrjar þúsund ára ferð sina um geiminn. Kvæðið er um fólkið i geimskip- inu þau 24 ár sem það heldur þar lifi. Aðalpersónan er ekki mann- eskja heldur vél, sem heitir miman. Miman er einskonar sjónvarpstæki i mörgum viddum, og heldur uppi sambandi við jörð- ina sem veslings fólkið i geim- skipinu fjarlægist stöðugt. Miman er tákn um kvæðið, um minnið og um samviskuna. Mim- an er Harry Martinson sjálfur eins og hann hefði viljað vera, sá sem sýnir öðrum fegurð náttúr- unnar, boðberi vonarinnar á graf- arbarmi. I kvæðinu deyr miman. Þján- ingarnar á jörðunni verða svo skelfilegar að heimsskipanin fer úr skorðum. 111 öfl birtast sem eru eitthvaðannað en öfgarsem hægt er að kveða niður með skólavis- dómi. Bálkurinn um Aniara er dauðakvæði, eða réttara sagt mikil tilraun til að særa fram dauðann, sem færist að bæði i persónulegum sammannlegum skilningi. 1 bálkinum eru mörg frábær kvæði. Harry Martinson var i skáld- skap okkar lengi drengurinn i galdraskóginum með lampa ris- ans i hendi, söngvari daggar- dropa og snigils, flakkarinn á góðvildargöngu um heiminn. 1 Aniara brýst hann út úr þvi jafn- vægi sem hann hafði skapaö sér og fer yfir eigin takmarkanir.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.