Þjóðviljinn - 13.10.1974, Page 10

Þjóðviljinn - 13.10.1974, Page 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur. 13. október. 1974. Sunnudagur. 13. október. 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 Þessi galdrastafur gegn „óvinum” var borinn i göngunni gegn Nixon og Pompidou I Reykjavik f fyrra. Og galdratrúarmenn gætu spurt: Hvar eru þeir nú? Kvikmyndin Fjandafælan og viðbrögð við henni: Enn eru djöflar reknir út í stórum stíl víða um hinn kristna heim... • Búist er við þvi að bandariska kvikmyndin Fjandafælan, sem lýsir þvi er djöfullinn tekur sér bólfestu i 12 ára gamalli stúlku, verði vinsælli og gróðavænlegri en nokkur önnur kvikmynd til þessa. • Menn segja að hér sé um að ræða eitthvert glæfralegasta hjónaband einstaklega nákvæmrar tækni og brasks með áhuga á þvi sjúklega og órök- visa, sem á sér bæði sálfræðilegar og félagslegar forsendur. • En umræða um myndina minnir lika á það, að svartur galdur djöflatrú og brottrekstur illra anda eru allt lifandi veruleiki miklum fjölda fólks. Að enn i dag er verið að reka út illa anda i stórum stil, og fylgir reyndar hér á eftir viðtal við eina slika fjandafælu. Linda Blair — til hægri i daglegu lifi — og til vinstri I hlut- verki stúlkunnar sem verður aðsetur and- skotans. En William Friedkin, sem stjórnað hefur gerð myndarinnar, lætur slikar vangaveltur lönd og leið: Ég er enginn hugsuður, seg- ir hann, ég er aðbúa til sölumynd. bað eru ekki til nema þrjár á- stæður fyrir þvi að búa til kvik- mynd: að fá fólk til að hlæja eða gráta, eða skelfa það. Dauðavein svína Og Friedkin er vissulega maður sem kann sitt fag i skelfinga- tækni. Satt að segja var heilsa Lindu Blair, stúlkunnar sem leik- ur aðalhlutverkið oftar en ekki I stórri hættu vegna ým- islegs óvenjulegs álags. A ein- um stað lætur leikstjór- inn rúm leika á reiðiskjálfi með hana þrælfesta við það, hún þurfti svo sannarlega ekki að lát- ast þegar hún hrópar inn i upp- tökutækin „Make it stop” — láttu það hætta! I annað skipti hafði hann breytt upptökuherberginu i einskonar frystikistu, til að andardráttur djöfulsbarnsins og fjandafælunnar verði sýniilegur og draugslegur. Friedkin lét búa til hárnákvæma eftirlikingu af likama hinnar ungu leikkonu til að geta sýnt hvernig höfuð hennar snýst heilan hring á hálsinum fyr- ir tilverknað andskotans. Sjaldan hefur jafnmikil vinna Bandariska kvikmvndin „Fjandafælan” (The Exorcist) hefur orðið öðrum hryllings- myndum frægari. Þar vestra hafa langar biöraðir myndast við kvikmyndahús hennar vegna og miðar rokið upp i 50 eða jafnvel 100 dollara á svörtum markaði. Enda þótt taugar áhorfenda séu sorfnar með svo grófum sand- pappir útsmoginnar grimmdar að þrir eða fjórir hniga ’i öngvit á hverri sýningu, algengt sé að menn séu gripnir móðursjúkum ótta og þurfi geðiækningar við eftir myndina — i einu tilviki eignaðist ólétt kona barn sitt fyrir timann. Allmargir leggja bölv- andi á flótta út úr kvikmyndahús- unum. Kvikmynd þessi fjallar um 12 ára stúlkubarn i friðsælum borgarhluta i Washington. Djöf- ullinn kýs sér bólfestu f stúlku þessari og breytir henni i full- komna ófreskju yst sem innst. Úr munni barn'sins koma fyrst for- mælingar og klám og siðar saur og annar óþverri, röddin og útlitið breytast, barnið fær i sig fitons- anda með tilheyrandi morðum og öðrum glæpum. Stúlkan er leidd fyrir læknavisindin, en þau standa ráðþrota. Lýkur siðan myndinni á mikilli svartri messu, þar sem spilaö er af kaldrifjaðri þekkingu á móðursýkisviðbrögð áhorfenda, og er djöfullinn eftir langa mæðu út rekinn — ekki þó fyrr en annar særingameistarinn býður djöflinum sjálfan sig i stað- inn fyrir stúlkuna, og tekur djöfsi boðinu. Auglýsing fyrir annað líf? Kvikmynd þessi er gerð eftir metsölubók eftir William nokkurn Blatty sem til þessa hefur i Bandarikjunum selst i tólf mil- jónum eintaka og mun það eins- dæmi. Þessi furðulega blanda af trúarvingli Blattys sjálfs og sölu- gáfu vakti tiltölulega jákvæðan á- huga ýmissa kirkjudeilda sem ætla Satan mikið rúm I tilverunni, t.d. kaþólskra manna. Sjálfur kveðst Blatty hafa ætlað bókina sem einskonar auglýsingu fyrir ó- dauðleika sálarinnar, framlag til þeirrar þróunar, að æskufólk hverfi frá visindalegri efnis- hyggju til dulfræða. Friedkin leikstjóri; maður gerir kvikmyndir af þrem á- stæðum og ein er að skelfa fólk. Hryllingsmyndin Nosferatu frá 1921; sjúk leg forvitni ágerist. Gliman við Satan; tveir sérfræðingar reyna að særa burt hinn illa anda. verið lögð i útsmogna hljóð- setningu myndar. Til þess að gera Satan heyranlegan voru hljóð- rituð hljóð þau feiknleg, sem svin gefa frá sér þegar þeim er slátrað, einnig gelt og ýlfur hunda, örvæntingarfullt krafs hamstra, sem lokaðir eru inni i trumbum. Einn tónmanna lét vinkonu sina gleypa hrá egg i stórum stil, allt þar til hún seldi upp — og tók öll þessi kokhljóð innvirðulega upp á band til notk- unar i myndinni. Gróði og háski Og það verður ekki annað sagt, en að þessi fyrirhöfn borgi sig fjárhagslega. Fjandafælan hefur þegar sett 94 miljónir dollara i kassa framleiðenda i Bandarikj- unum einum, og búist er við að þegar hún er komin á skrið i öðr- um löndum fari þessi upphæð alls upp i 220 miljónir dollara. Er það þrisvar sinnum meira en mesta metsölumynd til þessa, A hverf- anda hveli, færði sinu kvik- myndafélagi. En margir eru þeir sem telja velgengni þessarar hryllings- myndar skelfilega i sjálfu sér. Sálfræðingar hafa lýst þvi yfir, að það sé háskasamlegt „tripp” að sjá þessa mynd, og hafi þeir af þvi drjúga reynslu meira eða minna taugabilaðra manna sem hafa bókstaflega kiknað undan á- laginu. Ýmsir klerkar og aðrir sem hafa sérhæft sig i að reka út illa anda (sjá siðar) hafa óvenju mikið að gera. Séra Christofer Heil Smith, sem er mesta fjanda- fæla i Lundúnum, segir i viðtali, að myndin sýni „hve margir hafi þörf fyrir særingar... Eftir að far- ið var að sýna myndina hér I London koma til min um fimmtiu manns á viku hverri, sem haldnir eru illum öndum”. Sá gamli lygalaupur Einna reiðastir eru kirkjunnar menn eins og kannski er von. Mariusystur i Darmstadt i Þýskalandi dreifðu flugriti um myndina og stendur þetta þar m.a.: „Með þvi að Satan er sá gamli lygalaupur og pinari manna vill hann hafa sitt fram; með þessari bók og þessari kvik- mynd, vill hann freista sem mest lesanda og áhorfanda og reyna að ná þeim á sitt vald til að kvelja þá. í þvi skyni freistar hann mil- jóna manna til að fara að sjá myndina”. Það kemur nefnilega á daginn að brottrekstur illra anda úr manneskjum er ekki sjaldgæf endurminning um myrkar mið- aldir, heldur veruleiki og þáttur i trú margra kristinna manna. Þýska sjónvarpið hefur tekið saman skýrslur um þetta. Frie- drich Jussek, kaþólskur prestur, hefur alls rekið út sex illa anda, þann siðasta úr ungri stúlku 1968, og er af þvi vottfest frásögn sem komið hefur á prent. 1 janúar i fyrra rak munkurinn Konstanz Wolfsgruber (með samþykki sins biskups) púka sem nefndi sig Pluto I úr hálffertugri konu, sem læknar sögðu flogaveika, kallaði Pluto þessi hinn fróma munk „skitasvin” og kvaðst gleðjast yf- ir bæði breytingum á kaþólskri messu og pinupilsum, þvi hvort- tveggja auðveldaði verk fjandans á jörðunni. Cristiani, einn af pre- látum páfagarðs, hefur i bókinni „Nærveru Satans i nútimanum” skýrt frá fjölda andasæringa i Frakklandi og á ítaliu á seinni ár- um. Djöf latrú= guðsótti? Samkvæmt skoðanakönnun i Washington Post trúa 36% banda- rikjamanna á það, að djöfullinn geti farið i menn, og tuttugasti hver fullorðinn maður heldur að hann sjálfur eða kunningjar hans hafi verið eða séu haldnir af fjandanum. Sr. Christopher Neil Smith, sem áður var nefndur, hefur fengið umboð frá Englandskirkju til að reka út illa anda, og hann fæst við um 20 tilfelli á viku hverri. Hann kveðst alls hafa flæmt á flótta 2000 fjanda, og geri aðrir betur. Alls er talið að um 35000 manns fáist við að glima við Satan á Englandi, en það land á sér ein- mitt sterka hefð i draugagangi og svörtum galdri. En nú er ekki rétt að hlaupa heldur yfir þá staðreynd, að t.d. kaþólska kirkjan er ekki óskipt gegn kvikmynd sem „Fjandafæl- unni”. Fjórir jesúitar tóku þátt I gerö fyrrnefndrar kvikmyndar sumpart sem ráðgjafar, sumpart sem leikarar. Að minnsta kosti einn þeirra hefur iðrast þessa — vegna þess að hann er smeykur við þá móðursýki sem slikt sjónarspil vekur upp. En ka- þólska kirkjan getur verið klofin i afstöðu til málsins vegna þess, að annarsvegar er það henni nokk- urt gleðiefni að ótti manna við Satan styrkist og þar með guðs- ótti (gleymum þvi heldur ekki, að i kvikmyndinni er þvi vist haldið beinlinis fram, að kaþólsk kirkja sé hin rétta), en á hinn bóginn getur kirkjan haft áhyggjur af þvi, hve vald djöfulsins reynist mikið I þessari mynd. Hann vikur ekki af hólmi, en fer þvi aðeins úr stúlkubarninu að hann geti hrifs- að með sér annan særingamann- inn. Félagslegar forsendur Auðvitað hafa menn einnig lagt út af velgengni þessarar myndar á félagslega visu. Frumsýning hennar i fyrra kemur beint ofan i Watergate, eftirstöðvar Vietnam- striðs, oliukreppu, óvissu um framtið velferðarþjóðfélags, verðbólgu og atvinnuleysi. News- week segir að „I eins rikum mæli og hugsanlegt er i einni kvikmynd hefur Fjandafælan n£ð tökum á heildarstemmningunni og endur- speglar með miklum fyrirgangi þann ótta, hugaróra og truflanir sem brotist hafa úr djúpunum upp á yfirborð hins bandariska samfélags”. Og þessar sérstöku bandarisku aðstæður blandast saman við við- tækari áhuga á þvi óræða, hrylli- lega og sjúklega, sem virðist sækja á. Og kvikmyndamenn ætla sér bersýnilega að plægja þennan akur meðan gróðavænlegt er. Steven Spielberg er að búa til kvikmynd um hákarl ein sem tæt- ir I sig baðgesti. önnur mynd er i bígerð sem mun sýna mannát mjög innvirðulega — byggir hún á frásögn nokkurra manna sem komust lifs af úr flugslysi i Andesfjöllum með þvi að leggja dauða félaga sina sér til munns. (A.B. byggði á Spiegel) Einu sinni fann ég 1200 í einum manni... Séra van Dam fjandafæla: Hann telur mjög varhugavert að fara til spákvenna og kikja I stjörnuspádóma, þar með séu menn aö opna fjandanum leið. Þekktasta fjandafæla Hollands er tæplega fimmtugur mótmæl- endaprestur, Willem Cornelis van Dam að nafni. Hann hefur kennt kristinfræði, starfað hjá Siðvæðingarhreyfing- unni sálugu og verið herprestur. Siðan 1965 hefur hann fengist mjög við að reka út illa anda. í viðtali við Spiegel kvaðst van Dam hafa rekið út djöfla hundr- uðum saman. Hann kveðst ekki sjá þá sjálfur né heldur finna af þeim þeirra fúlu lykt. Stundum sé erfitt að vita, hvort manneskja sé haldin af fjandanum eöa ekki. En það megi ráða af vissum um- merkjum: Fjandinn er hræddur við nafn Krists, auk þess segir hann til sin meö vissum sálræn- um og líkamlegum einkennum. Van Dam telur til dæmis, að ef að I manni vakna svokallaðar dulargáfur, eins og t.d. að vita hluti fyrirfram, eða einhver óút- skýranleg tungumálakunnátta, þá sé það fjandans verk. Kukl er kölska gleði Presturinn hollenski segir, að fjandinn fái einatt aðgang að mönnum þegar þeir séu að kukla i dulrænum fræðum. É£ er til dæmis ekkert hissa, þegar ég heyri að einhver manneskja hafi komist i óeðlilegt ástand eftir aö hún leitaði til spákonu, segir van Dam. Reyndar hefur Biblian, djöfla kirkjusagan og einnig sálusorg- unarmiðstöðvar siðustu 125 árin sýnt, að það er visst samband milli dulfræðakukls og djöfla. Þetta á einnig við um stjörnuspá- dóma, sem eru I hverju blaði. Það er auðvitað, segir van Dam, um að ræða samband milli hins illa og stjörnuspádóma. Þegar menn gera ráð fyrir þvi að þeirra eigið lif ákvarðist að einhverju leyti af hóróskópum i blöðum hafa djöflar fengið vissa glufu til aðgangs. Eins og reyndar lika þegar menn leggjast i eiturlyf eða austræna hugleiðslutækni. Þá er einnig viss hætta á ferðum. Heilagur andi og stelsýki Fyrir ut'an ýmisleg einkenni gefur heilagur andi nokkra hug- mynd um það, hvort illur andi er til staðar. Heilagur andi og illir andar eru að sjálfsögðu andstæð- ur. Og þvi fyllri sem við sjálfir er- um af heilögum anda þeim mun liklegar er að viö rekum okkur beinlinis á veruleika illra anda... Van Dam sagði til útskýringar frá eigin reynslu. Hann haföi um langtskeið reynt að fá stúlkubarn til að hætta að stela. Hann hafði sett á langar tölur við hana, beöið fyrir henni, og hann hafði lika sent hana til lækna og sálfræð- inga. Þá kom heilagur andi yfir hann og læddi þeirri hugmynd að, að hér væri eitthvað demóniskt á ferð. Hann sagði við stúlkuna að sig grunaði að „eitthvað utanað- komandi” neyddi hana til að stela og spurði hvort hann mætti ekki reka þann illa kraft út i Jesú nafni. Stúlkan játaði. „Og þá tók ég á allri minni trú og leit á hana og sagði: Þú illi andi, sem neyð- ir þetta barn guðs til að stela, ég skipa þér i Jesú nafni, farðu burt, fa’-ðu þangað sem Jesús skipar fyrir og komdu aldrei aftur... Þetta tók ekki nema 20 sekúnd- ur.” Van Dam segir, að stúlkan hfi látið af stelsýki upp frá þessu. Hvað heitir þú? Van Dam segir, að stundum segi djöflarnir til sin, en stundum ekki. Þá tala þeir — ýmist með röddu fórnarlambsins eða þá annarlegri röddu og jafnvel tungu sem fórnarlambið venjulega ekki skilur. Oft snúast þeir til varnar og segja við særingamanninn: Farðu burt, af hverju lætur þú okkur ekki I friði..„ Helst vilja þeir að fjandafælan hætti að tala um blóð Jesú, það þola þeir ekki, fjandarnir. Og það kemur einnig fyrir, að ekkert miðar i glimu við púkana fyrr en spurt er hvað heiti (En i Rituale Romanum, reglum kaþólsku kirkjunnar um brott- rekstur illra anda, sem enn eru i gildi, er einmitt gert ráð fyrir slikri spurningu). Spiegel spurði: Verður fjandinn að hlýða vegna þess að hann er sköpunarverk guðs? Ég er lögreglan Van Dam: Hann verður að hlýða vegna þess að hann er mér, sem kom fram I Jesú nafni, óæðri. Ég er semsagt lögreglumaðurinn. Ég er dómarinn, málafærslumaö- urinn. Hann mun reyna að kom- ast undan. Hann mun reyna að ljúga. Hann mun segja að hann fari hvergi. En hann verður að hlýða að lokum. Stundum eru djöflarnir fleiri en einn... Spiegel: Hvernig kemst fjanda- fælan að þvi? Van Dam: Maður spyr: Hve margir eruð þið? Þá reynir hann fyrst að ljúga. En það kemur þá lika fyrir, að i bardaganum fær maður leiöbeiningar heilags anda og hann segir við mig: Hann lýg- ur. Einu sinni var það, þegar ég var að reka út illa anda, að ég spurði eftir fjölda illra anda en fékk ekkert svar. Þá heyrði ég ejtthvað i mér, sem ég kalla heil- agan anda, að þeir væru 1200. Og þá sagði ég þetta við hinn illi anda og hann sagöi: Af hverju spyrðu ef þú veist það? Spiegel: 1200 demónar? 1 einni persónu? Van Dam : Já. Og þar með verð ég að leiðrétta það sem sé sagði fyrst. Ég hef ekki rekið út hundr- uð djöfla, heldur þúsundir. Sérhæfðar hersveitir Spiegel: Þér sögðuð 1200 — ekki hafið þér getað rekið þá alla út, einn i einu? Van Dam: 1 þessu tilviki hefði það verið mögulegt að reka burt aðalforingjana. Spiegel: Eru einhverjir höfuðs- menn yfir djöflum? Van Dam: Þeir hafa með sér tignarstiga. Þetta er heill her, og þeir eru i mismunandi flokkum. Hópur af hræðsludemónum, hóp- ur af þrældómsdemónum, flokkur af sjálfsmorðsdemónum, sérhæfðir eins og stórskotalið, skriðdrekasveitir og svo fram- vegis. Og þegar maður er búinn að ná i höfúðsmanninn þá kann það að vera mögulegt að reka heilan flokk ásamt með honum... Blaðið lýkur viðtalinu með þeirri tiltölulega einföldu niður- stöðu, að vissulega séu djöflar fullkominn veruleiki séra van Dam. Rudolf Augstein, ritstjóri sama blaðs, skrifar fróðlega hug- leiðingu um þýðingu Satans fyrr og siðar. Hann kemst að þeirri gömlu niðurstöðu, að ef að kirkj- an eða kristnir menn þurrka fjandann út úr sköpunarverkinu, þá eigi þeir á hættu að missa guð almáttugan einnig. Enda sendi Páll páfi frá sér boðskap um djöf- ulinn 1972 þar sem minnt er á til- veru „fullskapaðs persónulegs valds, sem fyrir eigin skuld er illt og hefur verið útskúfað”.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.