Þjóðviljinn - 13.10.1974, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 13.10.1974, Blaðsíða 18
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur. 13. október. 1974. Grein Kjartans Framhald af bls. 3. þeim betur settu i hópi launa- fólks, gegn þvi að Framsóknar- flokkurinn féllist á það m.a., að ný vinstri stjórn gengi allmiklu harðar að hvers kyns fésýslu- bröskurum og gróðamönnum en sú fyrri hafði gert. Það var hins vegar sérstaklega undirstrikað af hálfu fulltrúa Alþýðubandalagsins i ölluni um- ræðum um stjórnarmyndun, að ekki kæmi til greina að skerða eitt eða neitt kjör hinna lægst laun- uðu, þ.e. fólksins f almennu verkalýðsfélögunum og annarra með álika kjör. Þær tillögur um að binda launa- hækkunina við 10% fram til 1. mars I vetur, sem Alþýðubanda- lagið var til viðtals um, voru al- gerlega við það miðaðar, að verð- lag hækkaði þá ekki meira en um 12.-13% og mismunurinn 2-3% yrði einnig bættur t.d. með hækkuðum fjölskyldubótum. Sú afstaða Alþýðubandalagsins, að i engu mætti skerða hlut þeirra verst settu i þjóðfélaginu var afdráttar- laus. Nú hefur verðlagi hins vegar verið hleypt upp með aðgerðum hægri stjórnarinnar um yfir 20% og kjör hinna lægst launuðu sem annarra þar með skert verulega, þegar þeir, sem höfðu 35.000,- krónur i mánaðarlaun fá 10% hækkun á móti, og aðrir þaðan af minna, eða ekki neitt. Verkföll eða nauðvörn Þvl er nú haldið fram I stjórn- arblöðununuog Alþýðublaðið tek- ur undir, að Alþýðubandalagið ætli sér að misnota verkalýðs- hreyfinguna i flokkspólitiskum tilgangi I þvi skyni að koma rikis- stjórninni á kné og spilla friði i þjóðfélaginu. Ljótt er, ef satt er. Það skal tekið fram hér, að Alþýðubandalagið litur'ekki á sig sem neinn herra yfir verkalýðs- hreyfingunni, en hitt er væntan- lega flestum kunnugt að sósial- iskar stjórnmálahreyfingar hafa löngum talið það skyldu sina að starfa sem hluti af verkalýðs- hreyfingunni i baráttunni fyrir bættum hag alþýðu, auknum rétt- indum og þvi jafnréttisþjóðfélagi, sem frá þvi fyrsta hefur verið stefnt að með starfi verka- lýðshreyfingarinnar. Nú heyrist spurt, ætlar Alþýðu- bandalagið aðefna til verkafalla? Þvi er til að svara, að verkföll eru jafnan nauðvörn verkafólks, sem ekki er gripið til fyrr en aðrar leiðir hafa verið þraut- reyndar. Verkföll hefjast ekki með þeim hætti að þrýst sé á ein- hvern hnapp á skrifstofum Alþýðubandalagsins og þar með stöðvist hjól atvinnulifsins. Það er heldur ekki á valdi neinna ein- stakra forystumanna i verkalýðs- félögunum að efna til verkfalla, þegar þeim kann að detta i hug. Það eru hinir almennu félags- menn sjálfir sem þar hafa ákvöröunarvaldið i sinum hönd- um, eins og vera ber. Geir Hallgrimsson og félagar hafa með stórfelldri kjaraskerð- ingu láglaunafólks kastað striðs- hanskanum að verkalýðshreyf- ingunni. Sú sending er geymd en ekki gleymd. Það er ekki sá rændi, sem gerist friðarspillir, þótt hann snúist til varnar gegn ræningjaflokki. Alþýðubandalagið og Þjóðvilj- inn munu hér eftir sem hingað til veita verkafólki sinn stuðning i baráttu þess og okkur er það heið- ur að vera vændir um að stuðla heldur að þvi að islenskt verka- fólk gangi upprétt, en það hneigi höfuð sin, þegar rikisstjórn fé- sýslumanna lætur skina i tenn- urnar. Dagsbrún Framhald af 13. siðu. Stofn safnsiris var gjöf Guð- rúnar Pálsdóttur, ekkju Héðins Valdimarssonar, um 3 þúsund bindi bóka og rita, en þar i var mikið af gömlu prenti og fá- gætu, svoog verulegt safn blaða og timarita. Geir Jónasson borgarskjala- vörður var safnvörður frá upp- hafi og til ársloka 1972 og fyrir hans atbeina jókst safnið veru- lega af ritum um verkalýðsmál og verklýðshreyfinguna hér og Fágætar bækur til sölu Grágás 1— II./ 1829, Hafniæ Safn til sögu l'slands I—VI KBH. og Rvk. 1853—1939. Gula- Things-Laug, Havniæ 1817 Járnsíða. Havniæ 1847 Snorre Sturluson Noregs Konungs Kronika, Kbh. 1757 Reykjavíkurpósturinn, 1.—3. ár, Rvk. 1847—1849 Snorra Edda ásamt Skáldu Stockhólmi, 1818 Arii Thorgilsis: Schedae feu Libellus de Is- landia, Havniæ 1733 N.Norrebow: The Natural History of lceland. London 1758 Sagan af Gunnlaugi Ormstungu og Skalld- Rafni, Havniæ 1775 íslenskir Annálar. Havniæ 1847 Islandske Annaler indtil 1578. Christiania 1888 Sveinbjörn Egilsson: Lexicon Poeticum. Kbh. 1931. Olaf Klose: Islandskatalog. Kiel 1931 Jón Þorkelsson: Þjóðsögur og Munnmæli. Rvk. 1899 Erik Jonsson: Oldnordisk Ordbog. Kjöben- havn 1863 Bjarni Þorsteinsson: Islenzk þjóðlög. Kbh. 1906—1909 Björn Halldórsson: Lexicon. Islandico-Latino- Danicum. I—II. bindi. Havniæ 1814. Sveinn Níelsson: Presta Tal og Prófasta. Kbh. 1869. Hervararsaga og Heidrekskongs. Havniæ 1785 Jón Árnason: Nucleus Latinitatis (Kleifsi), Havniæ 1738. KLAUSTURHOLAR Lækjargötu 2 — sími 19250 KATRÍN GUÐJÓNSDÓTTIR velur gítargrip við vinsælustu lögin TÖKUM LAGIÐ! Flestir hafa gaman af að syngja og ótrúlega viða er til gitar á heimilum til að slá undir á, þótt það gangi svo kannski misjafnlega að finna réttu gripin við lögin. Þess- vegna höfum viö á Þjóðviljan- um fengið Katrinu Guðjóns- dóttur gitarkennara til að hjálpa okkur að finna rétta hljóma og munum framvegis birta i sunnudagsblaðinu nýj- an dægurlagatexta eða vinsælt sönglag, sem þið getið svo reynt að syngja og spila undir. Katrln hefur skrifað hljóm- ana inná fyrsta erindið og teiknað skýringateikningar, sem fylgja með. Við byrjum á lagi, sem mik- iðer á dagskrá i óskalagaþátt- um útvarpsins núna, „Litlir kassar”, sem „Þokkabót” syngur á nýútkominni plötu sinni. Treystum að þið hafið heyrt lagið nógu oft til að kunna það. G-hljómur. c C-hljómur. cb D^-hljómur. D-hljómur. G Litlir kassar á lækjarbakka, litlir kassar úr dinga-iinga-Iing, L) C G d7 litlir kassar, litlir kassar, litlir kassar. allir eins. G Einn er rauður, annar gulur, þriðji fjólublár og f jórði röndóttur, D C g DT G allir búnir til úr dinga-Iinga, enda eru þeir allir cins. Og i húsunum eiga heima ungir námsmenn sem ganga i háskóla, sem lætur þá inn i litla kassa, iitla kassa, alla eins. Þeir gerast læknar og lögfræðingar og landsbankastjórnendur, og i þeim öllum er dinga-linga, cnda eru þeir allir eins. Þeir stunda sólböð og sundlaugarnar og sjússa I Naustinu, og eignast allir börn og buru og börnín eru skirð og fermd. Og börnin eru send I svcitina og siðan beint I háskólann, scm lætur þau inn I litla kassa, og út úr þeim koma allir eins. Og ungu mennirnir allir fara út i bissness og stofna heimili, og svo er fjölskyldan sett i kassa.sotla kassa, alla eins. Einn er rauöur, annar gulur, þriðji fjólublár og fjórði röndóttur, allir búnir til úr dinga-linga, enda eru þeir allir eins. Litlir kassar, litlir kassar, litlir kassar allir eins. Litlir kassar á lækjarbakka að lokum tæmast og fólk sem i þeim bjó, er að sjálfsögðu sett I kassa, svarta kassa og alla eins. erlendis, sem og þjóðfélagsmál, sögu og fl. Nú telur safnið um hálft tiunda þúsund bindi. Aukningin er mest fyrir gjafir frá ein- staklingum og stofnunum, en töluvert hefur einnig verið keypt. Safnið er ekki útlána- safn, en nokkrir einstaklingar hafa á undanförnum árum fengið þar aðstöðu til að vinna að rannsóknum i sambandi við sögu islenskrar verkalýðs- hreyfingar, auk þess sem les- salur er opinn á laugardögum og sunnudögum kl. 4-7 siðdegis. Undanfarið hefur staðið yfir málning á lesstofu og nokkrar tilfærslur á bókakosti, sagði Eyjólfur, þannig að safnið hefur verið illaðgengilegt um tima, en þegar verkinu lýkur mun Þjóð- viljinn fá tækifæri til að kynna safnið og ýmsa kjörgripi þess betur. Eyjólfur sagði, að rit á is- lensku væru rúmlega þriðjungi fleiri en rit á erlendum málum. Rúmur helmingur ritanna eru um þjóðfélags- og félagsmál, verkalýðsmál, hagfræði, stjórn- mál ofl. þh., og næststærsti flokkurinn er saga, æyisögur, ferðir og fleira skylt. Þá er tals- vert um skáldrit og rit um bók- menntir og mikið er til af tíma- ritum og dagblööum, en I gömul blöð og timarit eru þó viða eyður, vantar stök blöð og jafn- vel heila árganga. Furðu mikiö er til af ritum á esperantó i Dagsbrúnarsafninu og nokkuð um visindi og listir, trúmál, heimspeki, málfræði, atvinnu- vegina osfrv. Eyjólfur kvaðst álita að miðað við stofn safnsins og vöxt stæðist það gagnrýni um gæði, og þær kröfur sem gera verður til bókasafns verkalýðs- hreyfingarinnar sérstaklega. enda þótt ýmislegt vantaði, sem æskilegt væri að hafa þar. Margar fágætar bækur eru i safninu og peningalegt verð- mæti þess mikið og óumdeilan- legt. —vh Yisur Framhald af bls. 7. og komdu inn með mér. Vöktu báðir um nóttina og leiddist hvorugum. En þótt Arni væri hvers manns hugljúfi og vinsæll með afbrigðum gat hann átt eitur- þrunginn flein undir tungurót- um. Þessar visur eru til marks um það. Þeir, sem niðast nú mér á njóti að orðum minum. Kkrattinn sjálfur skiri þá úr skitakoppum sinum. Þó ég drekki mér I mein mun ég glaður segja: Haltu kjafti bölvað bein og berðu þig að þegja. Sennilegast hefur Arni séð eftir þvi að hafa kveðið svona fast að orði ef marka má þessa vlsu, sem við skulum láta verða þá siðustu eftir hann að sinni: Marga visu mikið ljóta um ævi. þá hóflaust geðið hreyfði sér hef ég kveðið þvi er ver. Þá skulum við áður en að fyrri partinum kemur skoða eina mjög nýlega visu sem skýrir sig sjálf: Visku þó af veittist nóg valdi slóðir grunnar, óli Jó I eiturkló ihalds-þjónustunnar. —S. Og þá er það fyrri parturinn sem við ætlum að biðja hag- orða lesendur að botna og senda okkur. Nú skal þjóðin færa fórn og fylia auðvaldskassann S.dór. Blá þoka Framhald af bls. 6. vinnuaðstöðu verkafólks þá er hún víðar fyrir hendi en hjá stór- um verksmiðjum og mikið verk fyrir hendi aö koma þvi i gott lag. Raunar verður það sennilega seint gott meðan aðalatriðið er eiginn ágóði. En með þvi að skora á fólk að láta vita finnist þvi um- bóta vant á vinnustöðum sinum mætti kannski komast framhjá þeirri hræðslu sem drepið var á i frétt Þjóðviljans og verður til að fólk þorir ekki að kvarta. Það er ekki allsstaðar að fólk hefur jafn góð samtök með sér og i einni plastverksmiðju hér, þar sem fólkið allt gekk út, þegar i ljós kom við mælingu að mengunin var aðeins hærri en núgildandi reglur leyfa. Burtu með bláu þokuna fyrir sunnan Hafnarfjörð.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.