Þjóðviljinn - 13.10.1974, Page 19

Þjóðviljinn - 13.10.1974, Page 19
Sunnudagur. 13. október. 1974. ÞJÓDVILJINN — StÐA 19 fkólaritvélcir' BROTHER skólaritvélar hafa fariö sigurför um landiö og eru nr. 1 á óskaiista allra nemenda í landinu og allra þeirra, sem þurfa aö nota ferðaritvélar. GERÐ 900 3 linubil. auóveld spassiustilling. færsla, 3 litabandsstillingar. spássiuútlausn. og lyklaútlausn. ásláttarstillir. GERÐ 1350 Vélin, sem hagar sér eins og rafmagnsritvél meö hinni nýju sjálfvirku vagnfærslu áfram. 8 stillmgar á dálka Hefir auk þess alla kosti geróar 900 Er i fallegri tosku ur gerfiefni. GERÐ 1510 Hefir alla kosti geróar 1350 og auk þess valskúplingu og lausan dálkastilh þanmg aó dálka má stilla inn eóa taka út hvar sem er á blaóinu Mjog sterkbyggó vél i fallegri leöurlikistosku BROTHER skólaritvélar eru úr stáli, eru fallegar og traustar, en kosta samt minna en allar sambærilegar vélar ábyrgð 2 ár. BORGARFELL Skólavörðustig 23, sími 11372 y Húsbyggjendur — EINANGRUNAR- PLAST Getum afgreitt einangrunarplast á Stór- Reykjavikursvæöiö meö stuttum fyrir- vara. Afhending á byggingarstaö. HAGKVÆM VERÐ. GREIÐSLUSKILMALAR BORGARPLAST HF. Borgarnesi Sími: 93-7370 AUGLYSENDUR! Um leið og breyting verður á efni og uppsetningu sunnudagsblaðsins vill auglýsingadeild blaðsins koma á móts við auglýsendur og auka þjónustu sína báðum aðilum til hagsbóta. Eins og sést á bls. 12 er auglýsingum raðað þar undir einn hatt: SUNNU- DAGSAAARKAÐ. Þar viljum við gjarn- an sjá f leiri auglýsingar í svipuðum dúr er fram líða stundir. Við leggjum á- herslu á, að með þessari breytingu ér stefnt að því að láta minni auglýsingar njóta sín, og þarna munum við birta hvers konar smáauglýsingar frá fyrir- tækjum og einstaklingum, sem vilja kaupa, selja eða birta persónulegar orð- sendingar. Auglýsingarnar á bls. 12 eru að mestu hannaðar af okkur og þær eiga að sýna hvað offsettæknin veitir mikla mögu- leika. Við erum fús til að aðstoða við myndatöku og annast snúninga vegna auglýsinganna. Auglýsendur geta pantað pláss á 12. og 13. síðu fram til kl. 5 á fimmtudögum, en tekið er á móti almennum auglýsing- um í sunnudagsblað til kl. 5 á föstudög- um. Vinsamlegast hringiö i auglýsinga- deildina, sími 17500, og spyrjist fyrir um þjónustu og kjör. a.nda-ió* aftt< J SK/i-fa. . /yafcít já Ó þú frelsi! Oröiö frelsi er mikiö brúkað þessa dagana og tekur þaö á sig ýms gervi: einstaklingsfrelsi, athafnafrelsi, fjármálafrelsi, — frjálst framtak, frjáls sam- keppni og síöast en ekki sist: frjáls menning. Allar spretta þessar frelsishugsjónir upp i skjóli blessaðrar rikisstjórnar- innar okkar nýju, sem aö sjálf- sögöu aöhyllist sem viðtækast frelsi á sem flestum sviöum þjóölifsins, bæöi útávíö og inná- viö. Frelsi er til margra hluta brúklegt, ekki hvaö sist i fund- arsamþykktum og flokksyfir- lýsingum. Og enn ryöjast „hugprúðir dátar” fram úr sviplausum óræöum röðum „þögla meiri- hlutans”, — aö þessu sinni til þess að leysa menningu þjóðar- innar úr viðjum, frelsa hana frá öllu illu, leiða menntagyöjuna út úr gjörningaþoku vinstri vill- unnar i útbreiddan faöm Sáms frænda i vestri. Tólfmenning- arnir eru að visu horfnir úr sviðsljósinu, enda búnir að bægja háskanum frá og treysta varnir landsins. Þeir biöa þess nú i hógværð sinni aö réttvisin dæmi þeim umbun fyrir erfiðið og rói samvisku þeirra. Fram- sóknarbykkjan er tamin og hleypur ekki lengur út undan sér. Búið að leggja beisli viö ut- anrikisráöherra og snúa honum öfugum vestur um haf að éta oni sig ótimabæra kokhreysti frá i vor, hinu þögla liði til þægðar og velþóknunar. Þó finnst ýmsum úr þvi liði ekki nóg að gert, una illa þessu blessaða logni. 1 þeim er enn þá glimuskjálfti. Hreggviður vill fá að starfa nokkuð. Sá mikli pappirssmali leggst nú i fornu gólfin og lætur hvergi bilbug á sér finna. Er nú heldur en ekki sláttur á kappanum. Hiklaust má likja honum við ævintýra- persónur á borð viö Jón sterka, sem ekki þóttist lakari til fylgd- ar i stórræðum en sumir tveir. Vitaskuld hefur islensk menn- ing verið i álögum þessar aldir, sem þjóöin hefur hjarað. Hefur hún ekki beðið þess ellefu aldir i útlegð að ævintýraprinsinn kæmi að frelsa hana? Þvi skyldi hún þá ekki fleygja sér i fangið á fallega rika dollaraprinsinum sinum, loks þá hann birtist henni hlaðinn gulli og gersem- um? — Svona einfalt er þetta og ef okkur væri þetta öllum jafn- ljóst og „frelsishetjunum” okk- ar þá værum viö núna lausir við öll leiðindi, sem islenskri menn- ingu fylgja. Það er von aö islending- ar, sem hafa galopnað hjá sér vesturgluggann og séð um hann alla auðlegð og ævintýri villta vestursins, skilji ekki heimaln- ingshátt hinna, sem ekki vilja opna annan skjá en þann sem veit út á hlaðvarpann. Og ekki vaxa þar nú skrautblómin, Jesús minn, i þessu lika karga- þýfi. Hefur ekki islensk menn- ing alltaf verið mest i rökkrinu? Og það litið sem sagt er allt tuldrað oni bringu. — Það er von að mörg Kleopatra gráti blessað kanasjónvarpið. — En hjálpin er nærri! 1 anda hins frjálsa framtaks og frjálsrar samkeppni smala frjálsir menningarpostular frjálsum undirskriftum frjálsra einstaklinga. — Að visu bregður svo undarlega viö að þakklæti húsbændanna er ekki fullkomn- lega einlægt aö þessu sinni. Einstaka ráðamönnum flokks- ins þykir þessi smalamennska jafnvel hálf óheppileg eins og sakir standa. Sumir geta jafnvel ekki orða bundist og vanda um við undirskriftasmala sina — og það i sjálfum Mogganum, auð- vitað þó af móðurlegri bliðu. 1 áminningu þingmannsins, sem birtist i Mogganum fyrir skemmstu er það tekið fram, aö þetta sé hið ágætasta fólk, sem þessa dagana stendur i ströngu við undirskriftir og áróður fyrir Keflavikursjónvarpinu og auð- vitað sé það rétt að hræðsla viö erlend menningaráhrif geti hæglega leitt til einangrunar og forpokunar. En það er bara eins og þingmanninum finnist þetta ekki passa, og raunar finnist honum Keflavikursjónvarpið opið eða lokað „lltilf jörlegt hégómamál”. Aumingja Hreggviður. Er þetta þakklætið fyrir allt hans strit og erfiði til framgangs flokksstefnunni! Annars liggur við að maður vikni við lestur þessarar grein- ar þingmannsins i Mogganum á þriðjudaginn, svo hrærður verö- ur maður, að hugsa til þess að svona saklaus sál, skuli fyrir- finnast i islenskri pólitik. Þingmaðurinn leggur óhindrað út i skilgreiningar á frelsi. Frelsi sé hættulegt án takmark- ana og geti hæglega snúist upp i ranghverfu sina. Þaö væri gaman að heyra þennan þingmann skýra frelsis- hugmyndir Sjálfstæðisflokks- ins. Ætli flokksforystunni þætti það ekki hastarlegur andskoti, ef gera ætti eitthvert mál úr frelsisyfirlýsingunum og farið væri aö krukka i frelsishugtök- in. Myndi kannski felast i „at- hafnafrelsi einstaklingsins” frelsi til þess að traðka á frelsi annarra einstaklinga? Og það skyldi þó ekki vera einum frjálst að skammta öðrum frelsi, samkvæmt þeim afstæðu lögmá'ium, sem við köllum lýð- ræði og frelsi? Eftir þessu lögmáli hafa girugar loppur kapitalismans teygt sig um lönd og álfur og seilst eftir frelsi einstaklinga og þjóða. Samkvæmt þessu lög- máli dansar aumingja neyslu- þjóðfélagið örþreytt og sligað, ofmett og taugaveiklað. Frjálsa menningin hans Hreggviðs og þeirra bræðra, er eðlileg afleiðing þess skolla- leiks, sem leikinn hefur verið undir yfirskini frelsis, áþreifan- legt og átakanlegt dæmi um úr- kynjaða hugmyndafræði. Blekkingin blifur. GLEFSUR I TÍÐINNI

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.