Þjóðviljinn - 03.11.1974, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 03.11.1974, Qupperneq 3
Sunnudagur. 3. nóvember 1974. ÞJÖÐVTÍ JINN — SÍÐA 3 SJONVARPS- DAGSKRÁIN í VETUR ER DAPURLEG Of margir Júdasar í fógetaræfilinn! klásrilui og íslenskir popparar fá fyrir bragðið ekki mikið inni í sjónvarpssalnum í vetur sökum fjárhagserfiðleika BORNAR í HEIM Ágætu lesendur. Margir hafa að und- anförnu klifað á því að vöntun væri á efni fyrir ungt fólk í sunnudags- blaðið og það ekki að ástæðulausu. Því var það að undirritaðir voru fengnir til að ráða bót á þessu. Strax í upphafi tókum við þá ákvörðun að takmarka efni síðunnar við innlend málefni, en ekki falla í sömu gryf ju og sum hinna dagblað- anna með því að éta upp erlenda plötugagnrýni, fyrir þunn- skipuöum salnum Síðastliðinn þriðjudag brugðu Klásúlur sér f Austurbæjarbíó á mið- næturhljóm leika. Þar áttu að koma fram Ingi Steinn og Júdas úr Kef la- vík og John Miles og fé- lagar, en þeir eru mörg- um að góðu kunnir eftir veru sina hér á landi s.l. vetur. Hljómleikarnir byrjuðu hálf- tima seinna en áætlað var, sam- kvæmt islenskri venju og voru Júdas fyrstir. Þeir voru töluvert lengi I gang en náðu sér nokkuð á strik er liöa fór á. Þó verða Klásúlur að fullyrða að þær hafa oft séð Júdas betri, einkum samspil bassa- og trommuleik- ara. En það sem mesta athygli okkar vakti var afbragðsgóður gitarleikur Vignis, sem sann- færði viðstadda um að hann sé einn besti gitarleikari landsins. Hvaö um það, þá dró þeirra framlag ekki úr þeirri skoðun Klásúlna, að Júdas sé liklega besta starfandi hljómsveit landsins um þessar mundir. stórstjörnufréttir o.fl. efni úr blöðum eins og Melody Maker, Rolling Stones o.fl. Þeim sem áhuga hafa á að fylgjast með nýjustu viðburðum úti í hinum stórapopp* heimi skal bent á aó verða sér úti um þessi blöð, þvi þar er að finna yfirgripsmeiri og betri fróðleik en við gætum nokkurn tíma miðlað. Næst var að skíra af- kvæmið og eftir mikil heilabrot urðum við sammála um að það Næstur átti að vera Ingi Steinn, en hann var forfallaður af ein- hverjum orsökum og var þaö fremur bagalegt þvi Ingi er einn af athyglisverðari poppurunum i bransanum og mjög góður lagasmiður. Þá var ekki um annað að gera en að taka pásu og fá sér kók. Eftir hlé var komið að aðal- númeri kvöldsins (næturinnar), John Miles. Þéir byrjuðu af miklum krafti á þremur göml- um og góöum stuðlögum. Síðan fóru þeir yfir i eigin tónsmiðar og kenndi þar margra grasa, en mest af frumsamda efninu virð- ist vera mjög frambærilegt. Há- punktur hljómleikanna var tvi- mælalaust er þeir tóku lag Magga Kjartans To be Grateful, frábært lag, vel flutt að undan- skyldi heita „KLÁSÚLUR". Þeim sem finnst nafngiftin tormelt, skal bent á ís- lenska orðabók og geta þeir fengið þar svölun forvitni sinnar. Að lok- um vonast Klásúlur til þess að þið, lesendur góðir, megið nokkra skemmtunaf þeim hafa ogóska um leið, sjálfum sér langlífis. Ingólfur Hannesson Sverrir Sverrisson. skyldu leiðinlegu urgi i píanó- inu, sem ekki var sök hljóm- sveitarinnar. Klásúlur eru ekki undrandi á þvi að John Miles skyldi hafa valiö lag þetta á a- hlið næstu litillar plötu hljóm- sveitarinnar þó lagið á b-hlið- inni sé skemmtilegt rokklag. Að lokum flutti hljómsveitin fáein þrumurokklög, allt var sett i botn og má mikið vera ef sumir áhorfendurnir hafa ekki þurft magnyl daginn eftir. John Miles virðist hafa náð saman ágætis hljómsveit og munar þar mikið um hinn nýja orgelleikara, þó aö hann hafi augljóslega ekki náð að sýna sinar bestu hliðar þetta kvöld. Framfarirnar frá þvi I fyrra eru mjög augljóslegar og gera Framhald á 22. siðu. Sjónvarpið er að öllum líkindum sá f jölmiðíII sem hvað best kemur til skila efniætluðu ungufólki og því var það að Klásúlur lömdu sig þangað og hittu að máli Jón Þórarinsson, dag- skrárstjóra lista- og skemmtideildar. Klásúlur: Hvað er það helsta, sem verður i vetrardagskránni fyrir ungt fólk? Dagskrárstjóri: Ja, það verð- ur með svipuðu sniði og I fyrra vetur. Uglan, en hún verður nú i breyttu formi frá þvi i fyrra og eitthvað af þáttum af léttara taginu verða keyptir frá Norðurlöndum. Vaka verður væntanlega á dagskránni. Þá verða islenskir jassþættir og er þegar búið að taka tvo upp, en þar spila þekktir jassistar, sem ekki hafa komið saman áður. Mun sá hátturinn einnig verða hafður á þeim þáttum er eftir koma. Klásúlur: Geturðu sagt okkur frá þeirri breytingu sem verður á Uglunni? Dagskrárstj.: Það verða sömu mennirnir er að þættinum vinna, en formið breytist þannig að hann verður að nokkru leyti i getrauna- formi, sem byggist á þátttöku áhorfenda er verða i salnum. Hvernig þeir verða valdir hefur ekki verið ákveðið ennþá. Það hefur nú verið ýmiss háttur á þvi, stundum er leitað til fólks á vinnustöðum og stundum ein- hvern veginn öðru visi. Klásúlur: Hvað um þætti svip- aða Júdasarþættinum sem sýnd- ur var nýlega og vakti talsverða athygli? Dagskrárstj.: Það verða ein- hverjir slikir jpættir með islensk- um popphljómsveitum, en um fjölda þeirra eða hvaða hljóm- sveitir koma fram, get ég ekki sagt um ennþá. Klásúlur: Verða þá engar breytingar frá þvi I fyrra? Dagskrárstj.: Það var nú tölu- vert rætt i sumar að það þyrfti að gera verulegar breytingar á dag- skránni, en það æxlaðist nú þrátt fyrir allt þannig, að mér sýnist hún verða með mjög svipuðu sniði. Helsta breytingin er sú að leikrit er voru á mánudögum. verða nú á sunnudögum. Klásúlur: Finnst þér persónu- lega nógu mikið af (popp)þáttum i sjónvarpinu, t.d. miöað við Rikisútvarpið (hljóðvarp)? Dagskstj: Sjónvarpið tilheyrir Rikisútvarpinu, og þvi meira sem þeir gera i hljóðvarpinu fyrir popp músik, þá má lita svo á, að þeim mun minna þyrftum við aö gera. Klásúlur: Hvað kostar t.d. að gera hálftima þátt með islenskri popphljómsveit? Dagskstj: Það er nú mjög mis- jafnt, og fer eftir þvl hvernig það er reiknað. Eins og við reiknum það innanhúss þá kosti hann sum- part I beinum kostnaði og sum- part i algjörum reikniskrónum, þ.e.a.s. föstum kostnaði sem hér er fyrir hendi, hvort sem þáttur- inn er gerður eða ekki, aldrei undir hálfri miljón. Bein útgjöld vegna þáttarins geta þó farið allt niður i 100.000 krónur. Klásúlur: Er dýrt að kaupa er- lenda skemmtiþætti? Dagskstj: Það fer einkum eftir þvi hvers lenskir þeir eru. T.d. er hagstætt verð á þáttum frá Norö- urlöndunum, en breskir skemmti- og músikþættir eru með dýrasta sjónvarpsefni, sem völ er á. Klásúlur: Verða engir slikir þættir þá keyptir i vetur? Dagskstj: Jú, það ætla ég að vona og við erum þegar búnir að kaupa nokkur prógrömm með Julie Andrews og eitthvað fleira verður keypt af sliku. Julie Andrews — léttmeti fyrir ungu kynslóðina að mati dagskrárstjóra! Of margir Júdasar I Það var og, Julie Andrews og fleiri henni likir á dagskránni i ■ vetur. Vart minnast Klásúlur I þess að hafa séð eins þreytt efni i I sjónvarpinu og það kennt við I skemmtun og ungt fólk. Þátturinn var alveg þrælleiðinlegur og sjá I Klásúlur fram á bióferðir á I sunnudagskvöldum i allan vetur. I Það helsta sem athygli vekur af þvi sem Jón segir hér að framan, I er hið rýra efnisval og hvernig I allt virðis.t vera skorið viö nögl. I Og þó, ófáar miljónirnar fóru i I Lénharð fógeta, en hefði þeim . fjármunum ekki verið hægt að I verja á skynsamari hátt? Dag- I skrárstjóri upplýsir að beinn | kostnaður viö hálftima popp- hljómsveitarþátt sé 100.000 krón- I ur og geta lesendur þá séö hve I margir Júdasar hafi farið 1 einn I fógetaræfil. Okkur er spurn hvar 1 skynsemin sé. ■ Sú skoðun Jóns að þvi meira I sem hljóðvarpiö geri fyrir ungt I fólk, þeim mun minna eigi sjón- I varpið að gera, er i hæsta máta furðuleg. Sjónvarpið notar hljóð- varpið sem skálkaskjól fyrir eigið sleifarlag; og er illt i efni> ef við megum búast við sliku af fleiri opinberum stofnunum. Ekki er þó i ástæða til örvæntingar strax i I upphafi vetrar, þvi ekki er öll nótt úti enn og best að biða og sjá I klsisrilnr Miðnæturhljómleikar í Austurbæjarbíói JÚDAS OG JOHN MILES LÉKU Vignir (t.v.) kom á óvart með frábærum gitarleik á miðnætur- hljómleikunum.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.