Þjóðviljinn - 03.11.1974, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 03.11.1974, Qupperneq 4
*íi5 >> lI ? /s# v | 1 LTP* v« * t^réint il-ííi 4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur. 3. nóvember 1974. MOÐVIUINN MÁLGAGN SÓSÍALISMA VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS Ctgefandi: (Jtgáfufélag Þjóöviljans Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Ritstjórar: Kjartan ólafsson, Skólavörðust. 19. Sími 17500 (5 línur) Svavar Gestsson Prentun: Blaðaprent h.f. ÞITT LÓÐ Á VOGASKÁLINA SKIPTIR EINNIG MÁLI Frá þeim mánaðamótum, sem nú voru að liða, eru flestir kjarasamningar i land- inu lausir og hægt að boða til verkfalla með viku fyrirvara. Það eru um 70 verka- lýðsfélög sem nú hafa lausa samninga, þar á meðal flest öll fjölmennari félögin og má segja, að innan þessara félaga sé meg- inþorrinn af félagsmönnum Alþýðusam- bands Islands. Engum blandast hugur um, að aðgerðir núverandi rikisstjórnar hafa leitt til mjög alvarlegrar kjaraskerðingar launafólks, sem nemur 10—20% a.m.k. hjá flestum nú þegar og á þó ýmislegt eftir að koma fram. Verkalýðsfélögin munu að sjálfsögðu ekki geta unað slikri árás á kjörin án mót- aðgerða, en enn hefur ekki verið gengið frá kröfugerð, og tekur það jafnan nokk- um tima. Undir lok þessa mánaðar verður haldinn fundur i sambandsstjórn A.S.Í., en i henni eiga sæti um 50 fulltrúar alls- staðar að af landinu. Þar munu fulltrúar verkafólks ráða ráðum sinum, og væntan- lega marka stefnu varðandi gagnaðgerðir heildarsamtaka verkafólks. Ýms sérsam- bönd innan A.S.Í. halda einnig þing sin nú i nóvember, og er ekki að efa, að þar verða kjaramálin og árásir rikisstjórnar Sjálf- stæðisflokksins og Framsóknar efst á baugi. Þá hefur þing Sjómannasambands íslands verði haldið nýlega og sent frá sér harðorðar ályktanir vegna stórlega skertra kjara sjómanna, og sömu sögu er að segja frá formannaráðstefnu B.S.R.B., sem haldin var fyrir skömmu. Það er sama hvert litið er, launafólk býr sig nú undir að beita samtökum sinum til að hnekkja stórárás fjandsamlegrar rikis- stjórnar, sem gerð hefur verið, eins og jafnan áður undir þvi falska yfirskyni að verið sé að bjarga atvinnuvegunum og þjóðarbúskapnum, þótt tilgangurinn sé allur annar, — sá að færa fjármuni frá lágtekjufólki og öllum almenningi til fé- sýslumanna, sem þóttust bera skarðan hlut frá borði á timum vinstri stjórnarinn- ar. 1 þeim átökum, sem framundan eru, milli verkalýðssamtakanna og fjandsam- legrar rikisstjórnar, þá er ekki nóg að ætla einstökum forystumönnum, þótt góðir séu, að fylgja baráttunni fram til sigurs. Styrkur forystumannanna verður aldrei meiri en svarar til þess hugar sem að baki býr hjá almennum félagsmönnum. Þess vegna verður hver einstaklingur i röðum verkalýðshreyfingarinnar að ætla sjálfum sér nokkurn hlut i þeirri baráttu sem framundan er. Aðeins virk og lifandi verkalýðshreyfing er nokkurs megnug i sókn og vörn gegn fjandsamlegu rikis- valdi. JÓHANNES ÚR KÖTLUM Á morgun, 4. nóvember, hefði Jóhannes úr Kötlum orðið sjötiu og fimm ára, sá maður sem Halldór Laxness i minningar- grein nefndi ,,hinn skira góðmálm og ó- brotna ljóðasmið islenskrar sósialista- hreyfingar”. Jóhannes er látinn fyrir tveim árum, en verk hans eru okkur máttug áminning um sigurför skálds og manns, sem er okkur i senn hvatning og ögrun. Oft hefur verið vitnað til þess afreks Jóhannesar skálds að hann á miðjum aldri tók ljóðlist sina til róttækrar endurskoðunar og kom nýr og ferskur úr þeirri raun. Og fordæmi hans, ástsæls skálds alþýðu, hafði hin jákvæð- ustu áhrif á sambúð almennings við nýjan skáldskap, ný viðhorf i bókmenntum. Hitt er svo ekki minna virði að hin sanna dirfska, sivökula gagnrýni, ósérhlifna hreipskilni, sem dugðu Jóhannesi svo vel til skáldlegrar endurnýjunar, einkenndu alla hans hugsun, allt hans mikla framlag i ljóði og lausu. máli til baráttu fyrir hug- sjónum sósialisma og þjóðfrelsis. Aldrei eitt andartak missti hann sjónar á hinni mannlegu hugsjón sósialismans, þótt margir brygðust — eins og Njörður Njarð- vik setur fram i greinargerð þeirri um baráttuljóð Jóhannesar, sem birt verður hér i blaðinu á þriðjudag. Liðveisla hans var og er ómetanleg i senn sem úrræða- góðs striðsmanns gegn fjandsamlegum öflum og siðameistara sem með fordæmi sinu og hreinskiptni fælir á brott frá sam- herjum sinum, þá háskalegu sjálfs- ánægju, sem lætur sér nægja að hafa fund- ið sannleikann i eitt skipti fyrir öll. Ljóð Jóhannesar úr Kötlum voru ekki ,,dæmd til að deyja” i striði mannkyns og þjóðar, eins og hann komst að orði á stund efasemda. Þau eru og verða einhver ágæt- ust samfylgd þeim sem halda út i „vorið á veginum” að vekja þá sem stungnir hafa verið svefnþorni — svo sem segir i Sóleyj- arkvæði. Sigurður Blöndal fimmtugur Fimmtugur verður hinn 3. nóvember Sigurður Blöndal, skógarvörður á Hallormsstað. 1 nafni embættis sins og áhuga- mála hefur Sigurður komið fram fjölda mörgum sinnum á opinber- um vettvangi, sem skógræktar- maður, sem þátttakandi i stjórn- málum i ræöu og riti, og viðar. Þann Sigurð hvorki þarf ég að kynna né get kynnt betur en hann hefur sjálfur gert. Varla mun t.d. snjallari né eftirminnilegriþáttur hafa verið fluttur i útvarpinu um langa hrið, en þáttur Siguröar „Um daginn og veginn”, þegar hann fjallaöi um gjaldeyrisöflun sjávarþorpa viða um land og ann- að, sem kom viö kviku nokkurra lögfræðinga og heildsala. Mig langar hins vegar að minn- ast þess við þennan áfanga Sig- urðar, að fáir menn, ef nokkur maöur, er mér eftirminnilegri i viðkynningu um dagana en hann. Hvað veldur þessu? Ýmislegt ber til, en fyrst og stærst er lifsgleði og lifsþorsti Sigurðar. Meðan við vanalegt fólk göngum i þoku hversdagsleikans, þá stendur Sigurður við hlið okk- ar i undraheimi, þar sem hver tiðindin öörum meiri eru að ger- ast. Þokan er I augum þess, sem horfir, og hversdagsleikinn er blinda vanans. Mér er það minnisstætt frá sild- arárunum á siöasta áratug að upplifa Sigurð hlusta á sildar- fréttir og rekja á eftir eigendur og útgerðarmenn báta á fjarlægum stöðum. Um sama leyti rámar mig I bréf, sem birtist einhvers staðar frá „konu úr Vesturbæn- um”, sem kvartaði yfir þessari sibylju, sem enginn nennti að hlusta á og næst yrði farið að telja upp hirðingu bænda á þurrkdög- um með sama áframhaldi. Áhugamál Sigurðar ætla ég mér ekki aö reyna að telja upp, enda visast að ég þekki ekki nema hluta þeirra. Ég hjó t.d. eftir þvi, þegar ég hlustaði á myndlistar- þátt Gylfa Gislasonar i útvarpinu i fyrravetur, að Björn Th. Björns- son, sem var gestur þáttarins, var spurður, hver hefðu verið til- drög þess að bók hans „Alda- teikn” kom út. Björn svaraði eitt- hvað á þá leiö, að hann hefði átt mikið efni i handriti frá kennslu sinni i Handfða- og myndlistar- skólanum. Svo hefði þaö gerst, að Sigurður Blöndal hafði komiö i heimsókn og hann lagöi fast að Birni að koma þessu efni fyrir al- menningssjónir og það hefði riðið baggamuninn. Ég þykist hafa þetta nokkurn veginn rétt eftir, þótt ég muni ekki orðrétt samtal- ið. En Sigurður er ekki hlutlaus á- horfandi i lifsins ólgusjó. Hann er liðsmaður og þátttakandi, sem um munar, hvar sem hann ber niður. Mér hefur sagt afar dóm- bær maður um stjórnmál á Austurlandi að andstæöingur Sig- urðar i pólitik, að Alþýðubanda- lagið eigi engum meira en Siguröi Blöndal að þakka fylgi sitt á Fljótsdalshéraði. Hið sama hef ég heyrt frá menntaskólaárum Sig- urðar á Akureyri. Sigurður vann þar rauðliðum meira fylgi með hægðinni og elskulegheitum heldur en þeir, sem böröu stór- trommurnar I ræðustól. Sjálfur getég borið vitni um, að mér hafa fáir eða engir orðið jafnlærdóms rikir I umræðum um stjórnmál á háu plani jafnt sem um dægurmál og skiptir þá ekki máli, hvort maður er sammála Sigurði eöa ekki. Skyldi fólk t.d. átta sig á þvi, hvernig það fer fram, þegar ákvarðanir eru teknar i við- v kvæmum pólitiskum málum? Sjálfsagt gerist það með ýmsu móti, en ég teldi mig sýnu fávis- ari um þaö, ef ég heföi ekki átt kost á að ræða það við Sigurð. Ónefndur er áhugi Sigurðar á náttúrunnar riki og lögmálum þess eða hæfileiki hans til upplif- unar, sem óspillt náttúra ein get- ur veitt þeim, sem við kunna að taka. Það er aö sjálfsögðu mikill styrkur i skógarvarðarstarfi, þótt mér sé ókunnugt um, að það sé reiknað til stiga i Kjaradómi. Nú á timum mengunar og auð- lindasóunar detta mér heldur ekki i hug framsýnni orð en þau orö Sigurðar, að timabært sé, aö náttúrufræðingar skipi þann sess, sem hagfræðingar hafa skipað við að stjórna alþjóðamálum. Lagarfljótsormurinn er stolt Héraðsbúa og engan veit ég um sem verðugri aðalfulltrúa hans á þurru landi en Sigurð Blöndal. Aðspurður um tilvist hans i sjón- varpsviðtali svaraði Sigurður þannig, að allar frekari umræður voru óþarfar: „Maður trúir þvi, sem maður sér”. Ég stenst ekki þá freistingu að segja frá þvi, að nokkru eftir að þetta sjónvarps- viðtal birtist, var ég dreginn út i rökkvað horn og spúrður i trún- aði, hvort ég héldi, að Sigurður Blöndal trygði þvi virkilega, að Lagarfljótsormurinn væri til. Um svör min læt ég ekkert uppi. Nú er timi til kominn, að ein- hver spyrji, hvort Sigurður sé svo glær, að hvergi stafi af honum skugga. Eitt af meiriháttar skáldum þjóðarinnar mun hafa lýst þvi yfir, að Njála sé sveita- bókmenntir henni ekki beint til hróss. Svona má sjá fleiri en eina hlið á öllum hlutum, lika Njálu. Innan skógræktarinnar hér á landi er til skammstöfunin H.A.S., sem útleggst „Hið Aust- firska Seinlæti”. Þessi skamm- stöfun kvað vera notuð, þegar það dregst, að frá Sigurði Blöndal berist reikningsuppgjör og skýrslur til aðalskrifstofunnar. Þetta er „sveitabókmenntahlið- in” á Siguröi, þegar hann er að leggja skerf sinn ósmáan af mörkum við að halda uppi menn- ingarlifi á Austurlandi og þar með islandi. Sigurði Blöndal verður ekki lýst án þess að minnst sé á söguáhuga hans og frásagnarhæfileika. Ég tel mig um dagana einungis hafa kynnst tveimur mönnum, sem nefna megi i sömu andránni, en þeir eru Ingvar heitinn Ingvars- son á Desjarmýri og Vilhjálmur Hjálmarsson, menntamálaráð- herra. Ég hef heyrt Sigurð og annan mann lýsa sama atvikinu, sem báðir upplifðu jafnt og sú lýs- ing átti ekki einu sinni nafnið sameiginlegt. Meðal kunnugra er þekktur áhugi Sigurðar á sögu heimsstyrjaldarinnar fyrri. Þá sögu hefur hann kynnt sér um áratuga skeið. Nú segja mér nýj- ar heimildir, að Sigurður sé að færa sig upp á skaftið og sé kom- innfram i seinni heimstyrjöldina, a.m.k.fram iflug RudolfsHess til Bretlands. Mál er að ljúka þessari af- mæliskveðju. Henni er ekki ætlað að vera úttekt á lifi og starfi Sig- urðar Blöndal fram að þessu, heldur upprifjun fáeinna tilvilj- unarkenndra minningarbrota. Þessi upprifjun hefur þó ekki verið tilviljunarkenndari en svo, að ég hef átt mér við hana eina fyrirmynd, sem nú skal greint frá: Það gerðist einhverju sinni, að skáldið Ernest Hemingway ákvað að láta skrá sig til herþjónustu. Hemingway var þá kominn á þroskaár og eftir hann lágu þegar nokkrar bækur. Hann fór á her- skráningarskrifstofu og gaf sig fram við starfsmann stofunnar. Sá dró fram eyðublað og tók að Framhald á 22. siðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.