Þjóðviljinn - 03.11.1974, Síða 9

Þjóðviljinn - 03.11.1974, Síða 9
Sunnudagur. 3. nóvember 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 FYRRI HLUTI JÓN HJARTARSON: kennara. Hvað þurfum við að gera i skólunum til að mæta úreldingu staðreyndanna? Aðferö og inntak Þá gerist það að upp koma nýjar greinar sem hafa að viðfangsefni sinu upplýsingu um námið sjálft. Námssálarfræði, uppeldisfræði, þroskasálfræði, sem hingað til hafa ekki skipt miklu máli fyrir skólann, segja okkur nú meira um það sem gerist við nám en sú þekking sem við áttum áður. Þá kemur upp ný þversögn til viðbótar við þann vanda sem tengdur er þekkingu, sem vex svo ört að torvelt er að sia hana inn i skólana. Þversögn milli þess sem við vitum um nám, nemendur og samskipti i kennslunni og þeirra aðferð sem við beitum enn i dag i skólunum. Við miðlum þekkingunni á tiltölu- lega ófrjóan hátt og Htt nýtan- legan, með þeim afleiðingum, að megnið af þvi sem börnin læra i skólunum gleymist fyrr en varir. Og svo kemur upp þriðja vandamálið og það sem mestu skiptir i dag: Markmið námsins eru ekki lengur sjálfsögð. Að hvaða markmiði erum við að keppa? Við hvaða þjóðfélag miðar þessi þekking sem miðlað er i skólunum, við hvaða samskipti i skólanum, og við hvaða nýtingu þekkingarinnar er miðað þegar ákvarðanir eru teknar um námsefni? Hvaða þekkingu þurfum við til að átta okkur á sjálfum okkur og til að rata um sibreytilegt þjóðfélag? Hvaða ráðgjafareðli felst i þekkingunni: Er kannski sú að- ferö, sem viðhöfö er við að afla þekkingar, meira virði en sú þekking sem aflað er á hverju stigi? Svo virðist ncfnilega sem aðferðin skeriúr um það, hvort ég held áfram að læra, hvort ég get sjálfur ratað um þekkinguna og óstuddur haldið leið minni áfram. Það er hægt að leiða að þvi góð visindaleg rök, að þekkingin sjálf sé ekki annað en niðurstaða þeirrar aðferöar, sem virkur nemandi (og sérhver virkur þegn mannkynsins) notar við að vinna úr reynslu sinni. Veitir skólinn reynslu? Eða veitir hann e.t.v. neikvæða reynslu, sem gæti orðið til þess að börnin fælist þekkinguna, en reyni i hennar stað að leggja staðreyndir á minnið sem duga til að standast samkeppnispróf að námi loknu? Að slægja fisk Þetta skiptir auðvitað miklu máli þegar vikið er að vandamáli sem mikið er rætt um i dag: Hvaða hlutverki gegna skólarnir fyrir atvinnuvegina? Það er oft talað um það, að skólarnir ali upp fólk á hvitum skyrtum sem hafi engin lifræn afskipti og engin lif- ræn viðhorf gagnvart atvinnu- vegunum. Þetta er mikilvæg írv iAnr^oP Á að safna i sarpinn eða breyta náminu i reynslu? spurning og nauðsynlegt að hún komifram. En ég held, að hún sé oft sett fram á hæpinn hátt, þann- ig að hún miðar aðeins við þá reynslu af atvinnuvegunum sem við höfum i dag. Þá er hugsað um það, hvort menn læri að slægja fisk eða splæsa kaðal, eða hvort börnin hafi jákvæð viðhorf gagn- vart landbúnaðinum. Þetta kann að vera góðra gjalda vert, en það verður að hugsa lengra, hugsa um það, hvað atvinnukerfið er i raun og veru. Það tvinnar saman mjög verkskipt samfélag þar sem almenn þekking, vinnusiðgæði, hugsunaraðferðir skipta jafn- miklu máli um framvinduna og bein þekking af kerfinu og störfum innan þess i dag. Samhengið Við vitum hve miklum breytingum t.d. islenskt fiskvinnslukerfi hefur tekið á undanförnum 20-30 árum, og þótt við vissum ekki annað hljótum við að gera ráð fyrir þvi, að það verði orðið allt annað árið 2000. Varlega sagt þá nægir ekki að nemendur fari og taki á fiski þegar fiskur berst á land ein- hverntima á veturna. Slikt þarf a.m.k. að vera hluti af námi sem nær út yfir þessi handtök, út fyrir þessa þáttöku, sýni tengslin milli þessara hluta og annarra t.d. samhengið i vélrænni vinnu. Reynslan af atvinnuþátttökunni má ekki stuðla að þvi að börnin haldi að atvinnukerfið sé aðeins það sem ber fyrir augu og hendur á liðandi stund. Hvað þýðir uppgripaafli fyrir börnin? Er at- vinnulifið þá t.d. þau uppgrip sem sjá.manni fyrir neyslufé? Þarna eru á ferðinni félagsleg vanda- mál, sem ná langt út fyrir þá ákvörðun að láta krakkana vinna i fiski. Og við þeim þurfa skólarnir að geta brugðist. Og svo er mikilvægt að menn geri sér grein fyrir þvi, að þetta nær að- eins til lítils hluta nemenda, að þetta er allsendis ónóg jafnvel fyrir þann hluta Ef staðbundnir hagsmunir og timabundin vandamál ráða úr- slitum um tengsl náms og at- vinnulifs, þá hefur atvinnuþátt- taka einstakra nemendahópa ekki varanleg áhrif á markmið og inntak námsins, né heldur á lifs- og starfsundirbúninginn, sem náminu er ætlað að þjóna. Myndin af vinnunni verður verður alltof þröng, þar myndast ekkert samhengi i huga og reynslu nemandans milli þjóðfélagskerfisins, hagþátta þess, vinnureynslu manna og viðhorf einstaklinga.Ef þetta á að gerast þarf miklu stærra átak. Námsefnið i ýmsum greinum þarf að taka mið af þeirri reynslu, sem nemendur yrðu fyrir á v i n n u m a r k a ð i n u m , og vinnureynslan að blandast al- mennri markmiðum námsins. Þvi þarf að hugsa um almennt en ekki aðeins um staðbundið fram- boð á vinnureynslu og um stöðu og þekkingu kennaranna i þeim efnum. Og ekki sist þarf að móta nú viðhorf til náms i atvinnu- kerfinu sjálfu. Þetta þýðir hvorki meira né minna en að skapa sam- ræmi milli vinnuverkefna og hins almenna náms i skólanumr af- nám hinnar hefðbundnu að- greiningar verknáms og bóknáms. Þá verður að lita á allt nám sem hluta af undirbúningi bæði einstaklinganna og þjóðarinnar undir „lifið”, — og endurmeta hina einstöku þætti þess með tilliti til þess. Það er auöséð að þetta verður ekki gert i hendingskasti — það merkir bæði almennt nám og verk- og starfs- nám og skipuleg tengsli á míllí þeirra. Til þess þarf endurskoðun á viðteknum bókmennta- sjónarmiðum — án þess að falla I freistni fyrir þeirri skjótfengnu sýndarlausn að ihlaupavinna I fiskiðjuveri breyti viðhorfum til atvinnuveganna eða færi námið nær þeim. (I seinni hluta viðtalsins sem birtist I næsta sunnudagsblaði er fjallað um það starf sem þegar hefur verið unnið að end- urskoðun námsefnis um hættu á offjölgun menntamanna svo- nefndri, um kosti og galla grunnskólafrumvarps.) LYKLAR OG LJÓSAPERUR Félagslif hvers konar skriður úr bosinu nú i skammdeginu. Menn taka að sinna andlegum hugðarefnum sinum i rökkrinu, fullsaddir orðnir á timanlegum gæðum sumarsins, sólböðum og bilifi. Skólar og námskeið tekin að sáldra fróðleiksmolum sinum yfir æskulýðinn. Margháttaður fé- lagsskapur og samkunda eldri kynslóðarinnar fellur aftur i sinn rigskorðaða farveg eftir leysing- ar sumarsins. Þjóðfélagið tekur á sig einbeittan alvörusvip. Leik- araskapur og léttúð sópast burt með sölnuðu haustlaufinu. Mönnum verður það fyrst fyrir, þegar skyggja tekur, aö tendra huga sinn einhverri blessaðri upplýsingu. Það er tiðarandinn. Nú er enginn of gamall til þess að læra, fullorðinsfræðsla, menntun er orðin heilsubótaratriði i þjóð- félaginu, heilsurækt hugans. Mik- ils ljóss er þörf i svartnættinu, hvort tveggja i hlutlægum og hug- lægum skilningi, svo notuð séu fræðslubókaorð, ljós hið ytra, ljós hið innra. Og nú er mikil þörf fyr- ir ljósaperur. Kunningi minn ágætur (viö höfð- um reyndar ekki sést um árabil) skautóforvarandis upp kollinum i húsi nokkru hér i grannbyggð borgarinnar fyrir skemmstu. Ég var þar gestkomandi, og þar sem fundir okkar urðu þarna óvæntir, gerðust húsbændur gestagleiðir, spurst var almæltra tiðinda, dæst var yfir veðurfarinu og boðið upp á kaffi. Kunningi minn færð- ist lengi vel undan kaffidrykkju, lét þó til leiðast um siðir, tyllti sér við borðshorn en geymdi vel vænnar skjalatösku, sem hann hafi meðferðis, sleppti naumast af henni hendi meðan hann saup af bollanum. Taskan var ein þeirra, sem maður trúir geymi dulmál alls efnahagsundurs okk- ar tima. Menn hafa svona töskur með sér upp metorðastiga við- skiptalifsins. Ég giskaði á hún væri skotheld. Vini minum varð einhvern veg- inn ekki rótt, sat tæpt og einatt á honum fararsnið. Mig fór að gruna hið versta. Kannski var hann búinn að ráða sig i þjónustu hins opinbera, lögtak, stefnulýs- ing? Andrúmsloftið var að verða þrúgandi, kaffið sopið i gúlsop- um. Ég fór að upphugsa einhvers konar ráð til þess að smygla mér út. Ef hið opinbera átti erindi við húsráðendur varð slikt auðvitað að hafa sinn gang. En vinurinn varð fyrri til, stendur snaggara- lega upp og rýkur á dyr. Þetta dugir ekki, segir hann, best að flýta sér, annað hvort búinn að gleyma erindinu, ellegar slá þvi á frest. Viðstaddir verða svolitið hvumsa. En viti menn, i þann mund að gesturinn er aö stiga yfir þröskuldinn — er eins og hann átti sig, snýr sér við, hampar tösk- unni góðu: Ekki vænti ég ykkur vanti ljósaperur. Það renna þarna á okkur tvær gimur. Ljósaperur? Var maður- inn að gera grin að okkur? Að það vantaði peru i kollinn á okkur? Ósmekkleg fyndni? Ég hafði aldrei áður reynt þennan mann að flimi né galgopaskap. Var hann kannski orðinn eitthvað skritinn? Ég hafði þó naumast þekkt hraustari mann, til sálar og likama — hér áður fyrr. Nei, þetta virtist vera hið mesta al- vörumál. Hann stóð þarna ein- beittur á svip og lauk upp skrini sinu, hinu skothelda. Viti menn: það var fullt af ljósaperum. Það kviknaði loks á perunni i kolli minum. — „Þið vilduð kannski hjálpa okkur við að styrkja gott málefni.” Þarna var sum sé á ferðinni margreynd fjáröflunaraðferð Lionsmanna. Samskot tiðkast hér i hinni fjöi- breyttustu mynd, flest til styrktar góðum málefnum: Happdrætti, merkjasala, jólapappirs-og peru- sala, blómasala, gotteriisfram- boð og lotteri. Allt á þetta sinn góða tilgang, sem ekki ber að hafa i flimtingum þótt svona bros lega hafi tekist til i þessu tilviki. Þetta er raunar ekki ný bóla. Tombólur voru algengar hér áður fyrroghverskynsbasar (sem nú er raunar farið að kalla flóa- markað). Kvenfélögin voru mörg hver starfrækt sem einskonar liknarstofnanir, viða um byggðir landsins. Þau stuðluðu að sjúkra- hjálp, fátækrahjálp, studdu mun- aðarlausa, aldna og bágstadda, aðstoðuðu sængurkonur, þar sem þess þurfti, stóðu fyrir jólafagn- aði, ræktuðu skrúðgarða, létu fræðslumál til sin taka og yfirleitt flest það sem til velfarnaðar mátti verða einu byggðarlagi. Þá haföi kvenþjóðin ekki fengiö upp- reisn i atvinnulifinu. Þarna fengu konur útrás fyrir starfsorku og athafnaþrá. Þetta var þjóðþrifa- starf, oft á tiðum unnið af mikilli þörf. Oldin er önnur, konurnar meira og minna uppteknar i atvinnulif- inu. Kvenfélögin hafa horfið i skuggann. Aftur á móti verða sér- stök karlfélög æ umfangsmeiri viða um byggðir. Þessi félög flagga gjarna einhverjum vel- ferðarmálum og reka góðgerðar- starf i ýmiss konar myndum. Hér eru á ferðinni samtök, sem kalla sig „alþjóðleg”, en öll eru þau sprottin upp úr samfélagi bandariska smáborgara og draga fyrst og fremst dám af hugsunar- hætti millistéttarinnar þar vestra. Hið fyrsta þessara félaga Rotary, stofnaði bandariskur lög- fræðingur i Chicago árið 1907. Kiwanisklúbburinn á rætur sinar að rekja til iðnaðarborgarinnar Detroit (1915) og Lions er stofnað i Dallas i Texas 1917. Að félögum þessum stóðu yfirleitt menn (karlar) úr viðskiptalifinu. Góð- gerðarstarfsemi þeirra hefur meira mótast af tilfinningasemi heldur en raunhæfu mati á þeim þjóðfélagsvanda sem við var að striða hverju sinni. Menn friða samvisku sina með þvi að láta gott af sér leiða og eiga um leið auðveldara með að loka augunum fyrir hróplegu misrétti, sem hvarvetna blasir við i þjóðfélag- inu, ekki sist þar sem öll sam- hjálp og almennar tryggingar hafa átt sér jafn erfitt uppdráttar og i Bandarikjunum. Þessi félög eða klúbbar hafa i stökum tilfell- um eflaust unnið mikið gagn i þeirri félagslegu vanþróun, sem rikir vestra, en þau hafa kannski frekar falið heildarvandann en leyst hann. Við köllum okkur félagsverur: Maður er manns gaman segir hið fornkveðna. Félagslií er okkur nauðsyn. Auðvitað er það sjálf- sagt að fólk stofni félag um hvað- eina, sem það tekur sér fyrir hendur. Hins vegar finnst manni það dálitið kindugt, þegar frjáls- bornir islendingar og hraustir drengir fara að punta sig upp i ameriskan smáborgaraskrúða og éta flott i hádeginu hálfsmánað- arlega. Þarna kveður einhvern veginn við falskan tón. Það er kannski skiljanlegt að litilssigldar , ,business”-blækur skyldu glepjast á þess konar en hvað eiga sjósóknarar, útvegs- bændur og máttarstólpar þjóðfé- lagsins aðrir að gera i svona klúbb? Og það verður hálf-af- káralegt þegar þessar sam- kundur bandariskrar forskriftar með ameriskum nöfnum fara að iðka þjóðrembing, éta kútmaga á hverju ári og hákarl. — Að ekki sé nú talað um fyrirbrigðið „Unior chamber” sem ku vera samtök ungra athafnamanna og hafa stigið á stokk og strengt þess heit að koma islenska fánanum inn i hverja skólastofu i landinu. Mætti ég vitna i séra Hallgrim sáluga: „Það er maður þó hann láti minna” Sist ber að lasta það sem vel er gert og i góðri meiningu til hjálp- ar bágstöddum. Hins vegar væri æskilegt að almannatrygginga- kerfi og heilbrigðisþjónustu væri þannig i skinn komið að sinnt gætu fyllilega sinum skyldum, svo að olnbogabörn þjóðfélagsins þyrftu ekki sifellt að þiggja þess- ar ölmusur amerisks smáborg- arahugsunarháttar. ■ Ef þessir klúbbar vilja láta gott af sér leiða ættu þeir þvi að styrkja tryggingakerfi rikisins. Væri ekki til dæmis ágæt byrjun að klúbbfélagar gengju á undan öðrum með góðu fordæmi og ástunduðu til hins ýtrasta heiðar- leika i öllum viðskiptum, vöruð- ust of háa álagningu, féllu ekki i þá freistni að halda eftir af sölu- skatti og gæfu að sjálfsögðu hverja krónu af tekjum sinum upp til skatts? Þannig kynnu ein- hverjir aurar, sem ella hefðu ekki skilað sér, að renna i i rikiskass- ann sem er undirstaða allrar samhjálpar og velferðar okkar, hvort heldur við erum meira heil- brigðir eða minna.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.