Þjóðviljinn - 03.11.1974, Qupperneq 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur. 3. nóvember 1974.
cTWyndir
úr sögu verkalýðshreyfingar og sósíalískra samtaka
Margt
er sér
til
gamans
gert
a6 láta okkur vita. Hætt er viö,
aö sá hópur sé oröinn fámennur
nú og þvl mikilvægt, aö þekking
hans falli ekki I gleymsku.
Um miðmyndina, nr. 4,höfum
við nú fengið þær upplýsingar
frá Elíasi Valgeirssyni, að mað-
urinn vinstra megin fánaberans
sé Brynjólfur Bjarnason, en
fánaberinn sjálfur sennilega
Loftur Þorsteinsson járnsmið-
ur. En nákvæmlega hvenær
þessi ganga var, höfum við ekki
fengið að vita. A spjöldunum má
lesa „Stétt gegn stétt” og „Lifi
kommúnisminn”. Þessar
myndir birtust I sunnudagsblaði
Þjóðviljans 20. október sl.
Að lokum hefur þekkst einn
verkamannanna á mynd nr. 2
frá aðförinni að ólafi Friðriks-
syni (birt i þættinum 13. októ-
ber.) Það var Guörún Helga-
dóttir deildarstj., sem þar
þekkti afabróður sinn, Filippus
Amundason eldsmið frá Bjólu i
Holtum, sem lengstaf hefur búið
I Brautarholti við Grandaveg.
Filippus gengur á milli tveggja
hvltliða nokkurnveginn fremst,
og er I dökkum fötum með ljósa
derhúfu.
Hafið samband
Varla trúum við öðru en les-
endur Þjóðviljans lumi á fleiri
upplýsingum um myndirnar úr
Dagsbrúnarsafninu en hingað
til hafa komið fram. Ef þið vitið
eitthvað um þessar myndir,
hafið þá samband við Eyjólf
Árnason bókavörð Dagsbrúnar,
eða, ef hann er ekki við, við Vil-
borgu Haröardóttur blaðamann
Islma 17500. — vh
Myndirnar siðast voru frá
verkföllum norðanlands og
sunnan, Krossanesverkfallinu
1930 og Kveldúlfsverkfallinu i
Vestmannaeyjum 1932, en i
þetta sinn skulum við snúa okk-
ur að átakaminni hlutum og
léttari, sameiginlegri skemmt-
un, sem lika átti sinn þátt i að
styrkja samstöðu verkamanna
og samhug. Þá fyrst þekkjum
við hvert annað vel er við höfum
staðið saman bæði i bliðu og
striðu, skemmt okkur saman og
barist saman.
Kórsöngur og einnig talkórar
tiðkuðust mjög á bernskuárum
verkalýðshreyfingarinnar hér á
landi og voru reyndar ekki að-
eins til skemmtunar, heldur lika
og ekki siður þýðingarmikið
hvatningartæki i baráttunni. Á
mynd nr. 8 sést karlakór verka-
manna á Stokkseyri, en litið
annað vitum við um myndina,
nema að á henni þekkist Jó-
hannes Ólafsson, fjórði frá
vinstri. Hvenær er þessi mynd
tekin? Hverjir eru á henni?
Hver stjórnar kórnum? Okkur
væri mikil þökk á að fá upplýs-
ingar um þetta frá lesendum.
Mynd nr. 9 gæti verið tekin i
skemmtiferð. Þó er það engan-
veginn gefið. Hún gæti allt eins
verið tekin i fundarhléi eða
álika. Við þykjumst þekkja á
henni Hallgrim Jakobsson
kennara fremst. en hverjir eru
hinir? Aftan á myndina hafa
verið skrifuð nöfnin ívar og Ar-
mann, en engin föðurnöfn við.
Hvar er myndin tekin? Af hvaða
tilefni? Og hverjir eru þetta?
Ungherjar
Og svo er það mynd nr. 10 af
islenskum ungherjum fyrir utan
Báruna. Flestir kannast við
starfsemi ungherja eöa
piónerahreyfingar i sósialiskum
löndum, en ungherjastarfsemi
hérlendis er litt þekkt, a.m.k. á
prenti. Væri gaman ef einhver
skrifaði um þetta starf hér, eða
kannast lesendur e.t.v. við, aö
grein eða bókarkafli um
islenska ungherja sé einhvers
staöar til? Tvær stúlknanna á
myndinni eru nafngreindar,
systurnar Ragnheiður og Unnur
Metúsalemsdætur fyrir miðju,
en hverjar eru hinar? Hvenær
var myndin tekin?
1. mai myndirnar
Eins og vænta mátti þekktust
ýmsir á yngstu 1. mai myndinni,
nr. 5, þótt enginn hafi enn treyst
sér til að timasetja hana ná-
kvæmlega. Er giskað á 1950 eða
upp úr þvi.
Enginn hefur gefið neinar
frekari upplýsingar um mynd-
ina frá fyrstu 1. mai göngunni
1923 (nr. 3) og skorum við nú á
þá, sem þar þekkja einhverja.
Vær
m
selvom du
erdflnsk
Afslöppuö
ættjaröarást
Svona hafa danir afslappaða af-
stöðu til ættjarðarástarinnar.
Vertu glaður þótt þú sért dansk-
ur, segir á skiltinu, sem margir
danir hafa hengt upp hjá sér.
„Hann Harry er aö setja upp
loft I í kjallaranum.“