Þjóðviljinn - 03.11.1974, Side 11

Þjóðviljinn - 03.11.1974, Side 11
Sunnudagur. 3. nóvember 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 NOKKRIR PUNKTAR UM KETTI Viðsjárverð þykir mér glyrnan gul... Ég er kötturinn sem fer minna eigin ferða, segir i sögu Kiplings. Kötturinn hefur fylgt manninum lengi og jafnlengi verið honum ráðgáta. Kettir eru t.d. furðu ratvisir. Það hefur verið reynt að fara með kött svosem 16 km. að heiman i bíl og siðan er honum sleppt. Kettir koma alltaf niöur á fæt- urna — þetta skoðuðu menn og drógu af lærdóma fyrir geimfara. Hann er kominn heim aftur eftir furðu stutta stund — enda styttir hann sér leið, þræðir ekki vegi, heldur fer beint yfir ókennilegt umhverfi. Þegar ratvisi þessi var prófuð kom á daginn að augu kattarins taka ekki aðeins við ljósi, heldur og hljóðbylgjum, sem maðurinn heyrir ekki. Þau eru einskonar „önnur eyru” og geta skilað til minnis kattarins „hljóðmynd” af heimkynnum hans, rétt eins og við höfum sjónmynd i huga okkar af einhverjum stað. Kötturinn er að þessu leyti likur flugvél sem býr sig til lendingar — hann tekur við leiðarljósgeisla úr fjarska og fylgir honum. Kettir eru til ýmissa visinda- legra hluta nytsamlegir. Þeir hafa t.d. komið geimförum að góðu haldi. Þegar kenna átti geimförum að hreyfa sig i þyngd- arleysi var tekið mið af þeim hæfileika katta að koma alltaf niður á fæturna hvernig sem þeir detta. Var fall katta kvikmyndað innviröulega og dregnir af þvi lærdómar, og voru geimfarar sfð- an látnir likja eftir hreyfingum kattarins sem best þeir gátu rófulausir — en rófan er i bókstaí- legum skilningi „stýri” kattarins við þessar aðstæður. Kötturinn hefur skarpa sjón, sex sinnum skarpari en manns- ins. Hann þekkir fólk i hundrað metra fjarlægð eins og ekkert sé. Hann getur horft i sólina án þess ab depla auga þvi að hann fann upp ljós-siu löngu fyrr en ljós- myndasmiðir. Hitt er hinsvegar ekki rétt, að kettir sjái i myrkri. En þótt sjón þeirra sé skörp eru þeir ekki háðir henni einni — heyrn þeirra er svo næm, að þeir „hlera bylgjulengd” músa i 15—20 m fjarlægð, og hér við bæt- ist það næmi i kömpum, sem ger- ir jafnvel blindum ketti fært að stunda músaveiðar með árangri. Aftur á móti geta kettir truflast á geðsmunum ef prakkarar klippa af þeim kampana. Hár þessi, sem eiga sér sterkar og blóðmiklar rætur eru könnunarfálmarar sem ekki aðeins koma i veg fyrir alla árekstra i myrkri, heldur veita þeir kettinum með einhverjum Póstsendum Fjölbreytt úrval af vönduöum og fallegum barna- fatnaöi *elfur tískuverslun æskunnar Þingholtsstræti 3. Þegar köttur bitur meö þessu móti i hnakkadrambiö á afkvæmi sinu eöa mús finnur viökomandi ekkert til; hann eöa hún stirönar blátt áfram upp meöan kisa ber þau. hætti sem menn enn ekki skilja meiri upplýsingar en nef, augu og eyru. Þau eru einskonar radar. Engin skýring hefur til þessa fengist á mali katta. Þá er tima- skyn kattarins mönnum og mikil ráðgáta: Hann dottar eða sefur 22 tima á sólarhring, en siðan getur hann á örfáum minútum iokið af svo mörgum og flóknum eldsnör- um hreyfingum, að manneskjan þyrfti margar stundir til að erfiða annað eins. Til er sú kenning að kettir hafi einskonar „innbyggða klukku” sem blátt áfram nemi staðar meðan hann klukkustund- um saman biður fyrir framan músarholu eða dormar i glugga- syllunni. Afrek katta eru margvisleg. Einu sinni var læða lokuð óvart inni i kassa með vél, sem skipað var út i Chicago og opnuð 41 degi siöar i Kairó. Út úr henni spratt læban hin hressilegasta og meö henni fjórir kettlingar sem hún hafði gotið á leiðinni. Hún hafði haldið lifinu i fjölskyldunni með þvi að sleikja koppafeitina af hin- um ýmsu hlutum vélarinnar. w SKÝRING: Vegna sérstaks og timabundins samnings við CANDY verk- smiðjurnar hefur okkur tekist að fá verðlækkun á CANDY uppþvottavélinni C-184. Vél þessi hefur reynst mjög vel, en við höfum haft hana á boðstólum i nokkur ár. Candy er ódýr vinnukraftur Verð í dag kr. 64,500 Sími26788 Kostir vélarinnar: 1. Notar eingöngu kait vatn. 2. Tveir spaðar með mis- munandi miklum vatnsþrýst- ingi. 3. Tvær hurðir (opnast þar af leiðandi ekki eins langt fram og ein stór hurð). 4. Sex þvottakerfi. 5. Innra byrði úr ryðfriu stáli. Minjagripir frá Alþingishátiöinni 1930 eru verömætir ættargripir nú. Ef aö likum lœtur, eiga minjagripir Þjóöhátíöarnefndar 1974 einnig eftir aö margfaldast aö verömæti meö árunum. Veggskildirnir sem Sigrún Guöjónsdóttir listamaöur hannaöi og hlaut verölaun fyrir, kosta i dag kr. 7.494.-. Þeir eru framleiddir meö sérstakri áferö hjá Bing og Gröndahl. Tryggiö yöur þessa kjörgripi á meöan tækifæri er til. Þeir fást i helstu minjagripaverslunum um land allt. _ Þjóöhátíöarnefnd 1974

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.