Þjóðviljinn - 03.11.1974, Síða 18

Þjóðviljinn - 03.11.1974, Síða 18
18 SIÐA — ÞJ6ÐVILJINN Sunnudagur. 3. nóvember 1974._ VENJULEG VIKA SMÁSAGA EFTIR N. BARANSKAJA FJÓRÐI ÞÁTTUR — MIÐVIKUDAGUR Það er eins og allir séu feimnir eftir „markaðsþrætu” gærdags- ins. Alíir gera sér far um að vera kurteisir og vinna af einbeitni. Ég safna saman tilrauna- skýrslum og geng yfir á raf- magnsstofuna þar sem Ljúsa bíð- ur eftir mér. Hún daðrar við nýja tæknimanninn og andvarpar djúpt um leið og hún horfir á að- vörunarskiltið „HASPENNA LIFSHÆTTA” rétt eins og hún sj'ái það i fyrsta skipti. Hér erum við ekki heima hjá okkur, við erum bara i heimsókn. Sýnin, sem i gær voru hita- og rakaprófuð, eru nú sett i tæki sem prófa rafmótstöðu þeirra. Ljúsa lætur sem hún sé hrædd — ”hún slær enn” — hún þokast nær dyrunum og er horfin án þess að eftir verði tekið. Ég er hissa: Hún er lagin i höndunum, ef henni hefur verið sýnt eitthvað einu sinni, þá man hún hvernig að skal fara. Hún hefur engan hug á þvi að komast að kjarna málsins. Ég hefi reynt að tosa henni inn i útreikningana, útskýra fyrir henni formúlurnar. Hún segir sem svo: „Ég veit nóg — hitamótstaða til að leiöslurnar bráðni ekki, eldingavarnir til að eldingum slái ekki niður um þak- ið”. Henni finnst miður að hún byrjaði i iðnskóla. Hún hefur gaman af að sauma, ætlaði i klæðskeranám, en var hrædd um að „enginn vildi giftast sauraa- konu”. Það er komið að mér að fara i bæinn i matarhléinu Það er ekki einfalt verkefni að kaupa inn fyrir okkur allar. Ekki aðeins vegna þess að það sé erfitt aö drattast með þennan varning. Heldur vegna þess fyrst og fremst, að all- ir rifast, jafnvel i minnstu biðröð. Maður biður konuna við kassann um pylsur fyrir þessa upphæð og svo fyrir aðra upphæð og þá byrja athugasemdirnar. „Hver eruð þér, eruð þér að kaupa fyrir heila matstofu?” „Hún er með heila húsasamstæðu á bakinu og svo verðum við að standa hér . .” öll- um liggur jafnmikið á i Moskvu. Jafnvel þeim sem ekki eiga i nein hús að venda. Annrikið er smit- andi. Þvi er best að halda sér saman I búðum. Með dapurlegri einbeittni i svip kaupi ég i matvörudeildinni þrjú pund af smjöri, sex flöskur af mjólk, þrjár af súrmjólk, tiu brædda osta, tvö kiló af pylsu og tvisvar sinnum 300 gr. af osti. Biðröðin biður þolinmóð, en þeg- ar ég er rétt búin þá andvarpar einhver: — Og svo eru allir að kvarta yf- ir að þeir nái ekki endunum sam- an. í deildinni sem selur hálftilbú- inn mat treð ég fjórum tylftum af litlum kjötbollum og sex kjöt- sneiðum i töskuna. Með allt þetta hlass beygi ég fyrir næsta horn, villist I húsaþyrp- ingu og stend allt I einu fyrir framan hárgreiðslustofu. Ég hefi tuttugu minutur aflögu. Ég ætla að láta klippa mig. Það fór mér einu sinni vel að vera stuttklippt. Það er engin biöröö. Ég skil innkaupatöskuna eftir undir snagaröðinni, þótt fatagæsian maldi i móinn, fer upp og sest I stól frammi fyrir unglegri konu með reittar augabrýr. — Hvað getum við gert fyrir yöur? spyr hún. Hún herpir sam- an varirnar þegar hún fréttir að ég vil bara láta klippa mig. „Við skellum bara af þvi . . .” og það gerir hún. Ég sé I speglinum, að klippt hárið stendur út frá eyrum og hvirfli og aö höfuð mitt likist jafnhliða þrihyrningi. Mér liggur við gráti, en einhverra hluta vegna gef ég 30 kópeka i drykkjupeninga og fer niður að ná i kápuna. Fatagæslan hristir höfuðið kumrandi þegar ég rétti henni númerið og kallar: — Komdu hingað, Lenja. Ungur maður i hvitum sloppi kemur fram. — Það var verið að klippa þessa ungu konu uppi, segir hún með samúð. Geturðu ekki gert eitthvað i málinu? Lenja virðir mig fyrir sér dökk- um augum og bendir mér með höfðinu á auðan stól i herradeild- inni. Ég veiti ekki mótspyrnu — það getur ekki orðið verra. — Ég sting upp á drengjaklipp- ingu sem mundi fara vel við yðar andlit. Hafið þér nokkuð á móti þvi? — Klippið mig bara, hvisla ég og loka augunum. Lenja lætur glamra i skærun- um, muldrar eitthvað i barm sér, snýr höfði minu á ýmsa vegu með léttum fingrum, hann notar vél- klippur á litlu hárin i hnakkanum, túperar hárið, sviptir af mér lak- inu og segir: — Nú getið þér opnað augun. Ég opna augun og hann brosir á móti. Ég hlæ og Lenja brosir. Ég lit til hans og sé að hann dáist að handaverkum sinum. — Hvað finnst yður? spyr hann — Stórkostlegt. Þér eruð galdramaður. — Ég er réttur og sléttur meistari, svarar hann. Ég sting rúblu að Lenja, lit á klukkuna og styn — hún er tutt- ugu minútur gengin i fjögur. — Verðið þér of sein? spyr Lenja með samúð. — Komið dá- litið fyrr næst. — Það geri ég, kalla ég. Þökk fyrir. Ég kem másandi og blásandi á rannsóknastofuna, og auðvitað hefur stjórinn spurt eftir mér. Hann er á bókasafninu og hefur beðiö mig að koma þangað. Allir andvarpa þegar þeir sjá á mér höfuðið, en ég hefi ekki tlma til að bregöast við þvi, ég grip blýant og blokk og hleyp út úr herberginu. A leiðinni fram ganginn hugsa ég um það, hverju ég geti logið að yfirmanni minum, ef hann spyr hvar ég hafi verið. Þá rennur það upp fyrir rpér, að það væri þýð- ingarlaustj hann þarf ekki annað en að lita á mig. Hann situr á lestrarsalnum með bók og skrifar. — Jakob Petrovitsj, spurðuð þér eftir mér? — Já, Olga Nikolaévna, fáið yður sæti. Hann gýtur á mig aug- um og brosir: Þér hafið yngst, ef að hægt er að segja annað eins við konu á yðar aldri. . . Mig langar til aö biðja yður, ef það kemur sér ekki illa, að þýöa þessa slðu fyrir mig meðan ég skrfa niður mér til minnis. Hann réttir mér bókina. Ég byrja aö þýða greinina upp- hátt, en hann biður mig að lesa enska textann lika. Hann vill að ég endurtaki nokkrar setningar. Svo kem ég auga á Ljúsu handan við glerdyrnar. Hún sendir mér einhver óskiljanleg tákn, en ég bendi henni aö fara. Mér er samt ekki rótt — liklega hefur eitthvað komiö fyrir. Hægt og bitandi er- um við komin að kaflalokum (siö- urnar voru ekki ein,heldur þrjár), en yfirmaðurinn biður mig að endurtaka allt frá byrjun á reip- rennandi rússnesku. Ég er sem á nálum, ég þarf aö skreppa til Völu á mekanisku stofunni og ég verð að komast að þvi, hvað Ljúsa vildi mér. Loksins erum við búin, sjeffinn þakkar fyrir sig, ég sömuleiðis og hleyp ánægð yfir i gömlu álmuna. Ljúsa biður eftir mér á ganginum. Hún flytur slæmar fréttir: Hún hefur frétt þaö eftir „mjög áreiðanlegum heimildum” að mekaniska stofan eigi að gera nokkrar tilraunir utan dagskrár i þessari viku. — Hvaðan veistu það? — Ég veit það bara, segir Ljúsa og setur upp leyndardóms- svip. — Æ, Ljúsa, ætli ég þekki þig ekki. En það skiptir ekki máli, ég hleyp beint niður til Völu. — Berðu mig ekki fyrir neinu, kallar Ljúsa á eftir mér. Ég er neydd til að leggja fastar að Völu, annars stöndum við föst og það er dauöinn sjálfur að fest- ast I desember, áramót I nánd, uppfylling áætlana, reikningsskil og annaö i þeim dúr. En til að þokast úr sporunum verðum við að vita, hvernig síöasta efnasam- setning hefur reynst, hvort traustleiki glertrefjaefnisins hef- ur aukist. Það er hressandi hávaði á mekanisku stofunni. I stað Völu situr Gorfinkel litli frá trjáplöntu- rannsóknastofunni á skrifstof- unni. Hann er reyndar ekki að vinna heldur að leita að gleraug- unum sinum, rauðhært höfuð hans er alveg komið ofan I boröið meðan hann rótar með stuttum höndum I blaðabúnkum eins og skjaldbaka i heystakki. Ég finn gleraugu hans og rétti honum. En hann veit ekki hvar Valja er, hún er farin. — Er langt siðan? - Já. Ég sný aftur til okkar herbergis en skima eftir Völu á leiðeinni. Hvar hefur hún falið sig? Korter fyrir um kvöldið hópast fólk saman i okkar stofu. Ziaaida er að selja miða I leikhús, menn ætla að sjá „Flóttann” I Ermola- évuleikhúsinu. Menning — hún er hvorki mér ætluð eða Dimu. Ég verð döpur — ekki man ég lengur' hvenær við siðast vorum i leikhúsi. Flón var ég að panta ekki miða. Dima hefði getað fariö einn. Við getum hvort sem er ekki farið saman. Móðir Dimu gætir barna systur hans og auk þess býr hún hinummegin við Moskvu. Móðir min er dáin. Vera frænka, sem ég flutti til þegar faðir minn kvænt- ist aftur, býr enn I Leningrad og Sonja frænka, sem býr i Moskvu, er afskaplega hrædd við börn. Það er enginn til að létta undir með okkur, hvaö eigum við að taka til bragðs .... Það er nýhætt að snjóa þegar ég kem út. Gatan er hvit. það er komið kvöld. Rauðgulir ferningar glugganna hanga út yfir garð- ræmurnar fyrir framan húsin. Loftið er ferskt og tært. Ég ákveð að fara hluta leiðarinnar fótgang- andi. Götuljósin kasta bjarma á snævi þaktar greinar i garðinum hjá Donskojklaustrinu. A bak viö trjákrónurnar sér i mjúkan boga mánans. Allt i einu er ég gripin dapur- legri ósk um að ganga áfram án farangurs, án byrða, án mark- miðs. Ganga i hægðum minum eftir trjágöngunum um göturnar, nema staðar við búðarglugga, skoða myndir, bækur, skó og lesa plakötin, flýtislaust, hugsa um það, hvert ég vildi helst fara, leyfa mér að njóta eins Eskimóa og standa á torgi undir klukku og skima eftir Dimu I mannhafinu. Þannig var þaö einu sinni, en það er langt siðan, svo langt að mér finnst það hafi ekki veriö ég heldur einhver önnur. HÚN. Það var mikil hátið i bygginga- verkfræðiskólanum — gamlir stúdentar hittu nýútskrifaða, kátt kvöld með leikjum, orðaþrautum, grlmum, djassi, knöllum, dansi og hlýlegum þrengslum i salnum. Hún sýndi fimleika, snerist i kringum gjörð, stökk, hringaði sig saman og hringsnerist. Félag- ar hennar klöppuðu lengi og hróp- uðu Ol-ga, Ol-ga, og á eftir keppt- ust þeir við að bjóða henni upp. Hann dansaði ekki en stóð eins og hlekkjaður við vegginn, stór og herðabreiður og fylgdi henni eftir með augunum. Hún tók vel eftir honum; en sá glópur og klunni. Og næst þegar hún fór fram hjá honum: hverjum llktist hann? Hvltabirni? Eða sel? Og 1 þriðja skiptið: hvitum sel, hann likist hvitaselnum úr ævintýrinu. Hann horföi bara á hana en bauð henni ekki upp. Hún svaraði augnaráði hans með hreyfingum sinum, hún var kát og glöð og gat ekki þreyst. Þegar boðað var dömufri hljóp hún til hans. Pappirsræmurnar hrisluðust niður úr stuttklipptu hári hennar. Hann dansar áreið- anlega ekki. Vist dansaði hann, létt og leikandi. Félagar hennar reyndu að skilja þau, þeir kölluðu Olga, Olga, komdu til okkar. Þeir veiddu hana i pappirssnörur, en þau fléttuðust saman inni I þeim. Hann fylgdi henni heim, vildi hitta hana á morgun, en hún þurfti til Leningrad. Eftir friið birtist hann á degi hverjum I ganginum, beið þar eft- ir henni við stóra spegilinn og fylgdi henni til Púsjklngötu þar sem hún bjó hjá frænku. Svo gerðist það einu sinni að hann kom ekki. Heldur ekki dag- inn eftir. Þegar hann hafði ekki birst á venjulegum stað I fjóra daga var hún reið og móöguð. Hún gat ekki stillt sig um að hugsa um hann. Að nokkrum dögum liðnum stóð hann aftur við spegilinn eins og venjulega. Hún roðnaöi, fór að tala við vinkonur sinar og flýtti sér til dýra. Hann náði henni út á götu, greip um öxl hennar, sneri henni viö, og þrýsti andlitinu að loðhúfunni hennar án þess að hugsa um þá, sem framhjá gengu. „Ég var sendur i ferðalag, ég hef þráð þig svo mikið, ekki vissi ég simanúmerið þitt, held- ur ekki heimilisfang . . . Komdu með mér heim, eða þá við förum heim til þin — hvert sem þú vilt.” Leigubill deplaði grænuljósi á næsta horni, þau settust inn, óku þegjandi af stað og héldust i hendur. Hann bjó i stórri ibúð með mörgum öðrum. Við útidyrn- ar stóð hægindastóll með snjáðu áklæði undir simanum. Um leið og þau komu inn opnuðust næstu dyr, gömul kona með handklæði um höfuðið gægðist fram, mældi hana augum og hvarf aftur. Það skrjáfaði i einhverju við hinn enda gangsins, en ljósið frá daufri og rykugriperu náði ekki þangað. Hún fór dálitið hjá sér, það lá við hún iðraðist þess að hafa farið með honum, en svo hugsaði hún til heimilis frænku sinnar þar sem allt var i röð og reglu, tedrykkja undir gamalli ljósakrónu og al- mennt hjal undir borðum . . . Þau giftu sig I aprfllok. Hún flutti búslóð sina inn i hálftómt herbergi hans þar sem fyrir var sófi og teikniborð; kofort, sæng og bókastafli. Aður hafði hún I draumum sin- um imyndað sér allt annað: marmarastigann i giftingarhöll- inni, brúðarmars Mendelsohns, hvitan kjól, rósir og iburðarmikla veislu, gesti sem hrópa gorko! (Gorko — bókstaflega „beiskt er það” er hefðbundið hróp brúð- kaupsgesta sem hvetja með þvi brúðhjónin til að kyssast) En það varð ekkert af þvi. Brúðkaupsveislu? spurði hann undrandi. Til hvers? Við skulum heldur fara i fri, eitthvað langt I burt . . . Snemma morguns skrifuðu þau undir hjúskaparskjöl — hún kom á hjónabandsskrifstofuna með vinkonu sinni, hann með félaga sinum. Hann færði henni hvitar nellikur. Heima beiö frænka hans eftir þeim með morgunverð. Þau lyftu glösum fyrir brúðhjónunum og óskuðu þeim til hamingju. Félagarnir fylgdu þeim til strætisvagns sem ók þeim út á Vnúkovoflugvöll. Sex timum sið- ar voru þau komin til Alúpka. Þau settust að I litlu, gömlu húsi, sem hallaðist upp að kletta- vegg. Þangað lá þröngur stígur, sem höggvinn var i klettinn. Mjór garður var umluktur vegg úr óhöggnum steini, sem vafinn var vinviði. 1 garðinum stóð einmana tré, hálfvisnað hnetutré. Nokkrar greinar þess voru naktar og gráar og minntu á vetur og köld héruð, á öðrum greinum sátu þétt græn og sepótt blöð. Blómin við gluggana fylltu garðinn höfgum, sætum ilmi. Það var dimmt og rakt inni i húsinu. Ofninn hafði bersýnilega ekki verið i notkun lengi. Húsráð- andi, gömul úkrainsk kona, færði þeim á hverju kvöldi kolaglæður i þrifættum potti frá ofninum i kofa sinum, „til að ykkur verði ekki kalt”. Af þeim stafaði bláleitur logi. Þau opnuðu dyrnar á viða gátt og gengu út I garðinn. Það var dimmt og kyrrt. Götu- ljósin náðu ekki þangað uppeftir og tunglið var ekki enn komið upp. Þau stóðu og hlustuðu á and- vörp hafsins við stóra steina. 1 fjarska brá fyrir daufu ljósi — kannski var það ljósker á fiski- bát. Vindur blés af fjöllum og bar meb sér ilm af skógi og mold og sólbrenndu grasi. Kolin i pottin- um dökknuöu og huldust ösku. Þau settu pottinn út i garðinn. Svartur himinn, stjörnum sett- ur, breiddist yfir húskofana. Dökkar greinar hnetutrésins vörpuöu skuggum á leirþakið og hálfhruninn reykháf. Hrörlegt Framhald á 22. siðu. Við skellum af þvi, sagðihún. Og gerði þaö.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.