Þjóðviljinn - 03.11.1974, Síða 20
20 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Sunnudagur. 3. nóvember 1974.
um helgina
Dæmisaga
frá
Grindavík
,,Fiskur undir steini",
mynd þeirra Ólafs Hauks
Símonarsonar og Þorsteins
Jónssonar, verður á
dagskrá í kvöld. Eins og
fram kom í viðtali við þá
félaga hér í Þjóðviljanum
fyrir helgi, þá er þessi
mynd þeirra ein af f jórum,
sem sjónvarpið fól þeim að
vinna.
Allar myndirnar veröa þrjátiu
minútna langar og tvær þeirra
teknar i lit.
Myndin, sem I kvöld verður
sýnd, gerist i Grindavlk.
Höfundarnir nefna hana
dæmisögu — dæmisögu úr
Islensku sjávarplássi, saga um
ókunnan mann sem kemur
þangað til að hitta fólk, athuga
mannlif og menningu á slikum
stað.
Ólafi Hauki og Þorsteini hefði
vart dottið i hug að gera mynd um
slæmt ástand menningar i
Grindavlk, hefðu þeir ekki haft
grun um það fyrir, að myndavélin
gæti leitt eitthvað i ljós, sýnt fram
á eitthvað.
1 viðtalinu, sem Þjóðviljinn
birti við höfunda „Fisksins”,
segir Þorsteinn m.a., aö það geti
komið nýju lifi i sjónvarpið, að
halda áfram á þessari braut, þ.e.
aö velja utanstofnunarmenn til
þess að gera myndir um ákveðin
verkefni. 1 stofnuninni sjálfri, þar
sem sitja menn á ævibás, ráðnir
eftir hinni venjulegu klikuaðferð
islenskra rikisstofnana, fer ekki
hjá þvi, að menn fái leiða á að
vinna sams fconar verkefni aftur
og aftur; menn vinna þar „jafnvel
með hangandi hendi”, sagði Þor-
steinn, og taldi éðiilegt, að
lausamenn sem fengju verkefni
við sitt hæfi, verkefni sem þeir
hafa áhuga á að gera vei, verði
þáttagerð sjónvarpsins til
framdráttar.
Dæmisaga? Heimild?
Lygi?
Það er kannski ekki hyggilegt
að tala mikiö um mynd ólafs og
Þorsteins áöur en hún er sýnd, en
þeir hafa þó skýrt rækilega frá
hvernig myndin verður til. Hún á
að fjalla um möguleika fólks i
islensku sjávarþorpi til að njóta
menningar.
Þeir búa til sögu, dæmisögu, og
gegnum hana m.a. komast þeir
fljótt að þvi, að fólk hugsar ekki
um svokallaða menningu i
isiensku sjávarþorpi, þvi að það
er aö hamast við að vinna 18 tima
á sólarhring meðan hægt er af þvi
það þarf að borga einbýlishús. Og
útgerðarstjórinn vill ekki hafa
fólk sem fer I fri, þvl „það þarf aö
bjarga verðmætunum”. Hvaða
verömætum? Verömætum hvers?
Nú er það ljóst, að höfundar
myndarinnar hafa farið til
Grindavíkur og haft meðferðis
ákveðna afstöðu, ákveðna
skoöun. Sennilega velja þeir
Grindavík vegna þess þeir vita aö
einmitt þar mun þeim best takast
að gera mynd sem verður heimild
um vinnuþrælkun i islenskri
fiskvinnslu (verðmætabjörgun?)
og þann sauöshátt sem af
þrælkuninni leiðir.
Getur mynd orðið heimild, ef
höfundar hafa ákveðna skoðun,
vilja ná ákveðnum hlutum fram?
Vissulega. Og hefðu þeir ekki
áður vitneskju um hvað það er
sem á að nást, þá yröi sennilega
engin mynd — aðeins venjuleg
„svipmynd”, sem islenska
sjónvarpið færi létt með að gera á
einum eftirmiðdegi.
Heimild um ástand. Saga af
ákveðnum harnleik — það er allt
annað en „hlutlaus” kvikmynd.
Dæmisagan, heimildamyndin,
felur I sér ákveðinn tilgang, hún á
að vera kennslustund, hún á að
opna mönnum sýn.
Ef þeir Þorsteinn og Ólafur
Haukur ganga ekki til verks með
þessu hugarfari, hugarfari
áróðursmannsins, kennarans —
þá hafa þeir ekki átt erindi til
Grindavikur.
Engin afstaöa — svipmynd
Hugsum okkur að fræðsludeild
sjónvarpsins vilji gera
„fræðandi” mynd um islenskt
sjávarþorp. Grindavik verður
fyrir vaiinu, og kvikmyndarinn
fylgir fiskinum eftir með mynda-
vélinni af önglinum og ofan i
dós.
Og hann sýnir hvar Salka Valka
stormar léttilega meö
bitakassann að heiman i
morgunsárið og heim siðla
kvölds, þreytt, en ánægö eftir vel
unnið dagsverk (Hverjum til
góðs? Henni? Útgerðarmannin-
um?) og um helgina er ball.
Svona gengur það nú fyrir sig i
Grindavlk.
Hvað er veriö að gera, þegar
myndavélinni er sveiflað I til-
gangsleysi yfir kolla fólksins og
þorskanna og þuldar tölur um
aflamagn á vixl við músik?
Afstöðuleysið, hlutleysið er
haröpólitisk stefna.
Sá sem býr til „svipmynd frá
Grindavlk” er hugsanlega að
ljúga. Hann lýgur, þar eð hann
segir ekki allt. Um vissa hluti
ræðir maður ekki.
Vonandi fjallar mynd Ólafs
Hauks og Þorsteins um „vissa
hluti sem maður talar ekki um”.
—GG
/unnudciguf
18.00 Stundin okkar. 1 þessum
þætti kemur Tóti litli aftur
við sögu, og sama er að
segja um söngfuglana og
dvergana, Bjart og Búa. Þá
dansa nokkrar stúlkur úr
Dansskóla Eddu Scheving
japanskan dans og drengir
úr júdódeild Armanns sýna
júdó, sem er þjóðaríþrótt
japana. Einnig heyrum við
japanskt ævintýri um dans-
andi teketil og þýskt ævin-
týri um litla stúiku, sem
villist I stórum skógi. Um-
sjónarmenn Sigriður
Margrét Guðmundsdóttir og
Hermann Ragnar Stefáns-
son. Stjórn upptöku Kristin
Pálsdóttir.
18.50 Skák. Stuttur, banda-
rískur skákþáttur. Þýðandi
og þulur Jón Thor Haralds-
son.
19.00 Hlé.
20.00 Fréttir.
20.25 Dagskrárkynning og
auglýsingar.
20.35 Fiskur undir steini.
Kvikmynd og umræðuþátt-
ur. Fyrst verður sýnd
mynd, sem Þorsteinn Jóns-
son og Ólafur Haukur
Simonarson hafa gert fyrir
Sjónvarpið, og er I henni
fjallað um menningarlif og
llfsviðhorf fólks I islensku
sjávarþorpi.
21.05 Umræður. Að myndinni
lokinni hefjast I sjónvarps-
sal umræður um efni henn-
ar. Umræðunum stýrir dr.
Kjartan Jóhannsson, en auk
höfunda myndarinnar taka
þátt i þeim þeir Guð
laugur Þorvaldss, háskóla-
rektor og Magnús Bjarn-
freðsson, fulltrúi.
21.40 Akkilesarhællinn.
Breskt sjónvarpsleikrit.
Höfundur Brian Clark.
Aðalhlutverk Martin Shaw.
Þýðandi Heba Júliusdóttir.
Aðalsöguhetjan er knatt-
spyrnusnillingurinn Dave
Irvin. Hann er hátt metinn
atvinnumaðurog getur veitt
sér flest, sem hugurinn
girnist. Hann á þó við sln
vandamál að striða. Frægð-
in er honum stöðugt til ama,
og jafnframt óttast hann, að
knattspyrnuferill sinn sé
senn á enda.
22.40 Að kvöldi dags. Séra
Marteinn P. Jakobsson,
prestur við Landakots-
kirkju, flytur hugvekju.
mónudciguf
20.00 Fréttir.
20.30 Dagskrárkynning og
auglýsingar.
20.40 Onedin skipafélagið.
Bresk framhaldsmynd. 5.
þáttur. Hart á móti hörðu.
Þýðandi Óskar Ingimars-
son. Efni 4. þáttar: James
reynir enn að finna ódýra
vörugeymslu, og loks fréttir
hann af skemmu sem er I
eigu ekkju nokkurrar. Hann
gerir tilboð i vöruskemm-
una, en Callon hyggst spilla
áætlun hans og býður þvi
hærra verð. James kemst
nú að þvi af tilviljun, að
skransalinn, sem ekkjan
hefur léð skemmuna til af-
nota, kaupir og selur stolna
muni. Hann hótar að ljóstra
þessu upp, og kemst þannig
að hagstæðari kjörum en
ella. A meðan þessu fer
fram veðsetur Webster
skipstjóri hús sitt. Callon
kemst yfir skuldabréfið og
tekur húsið I sina vörslu, og
James og kona hans verða
að gera sér að góðu að setj-
ast að i hinni nýfengnu
vöruskemmu, sem er væg-
ast sagt heldur óvistlegur
bústaður.
21.35 íþróttir. Meðal annars
svipmyndir frá iþróttavið-
burðum helgarinnar. Um-
sjónarmaður ómar
Ragnarsson.
22.05 t leit að Eden. Bresk
fræðslumynd um fornleifa-
rannsóknir i Austurlöndum
nær. Breski fornleifafræð-
ingurinn Geoffrey Bibby
hefur um margra ára skeið
unnið að rannsóknum sinum
austur við Persaflóa með
aðstoð danskra og arab-
iskra vlsindamanna. Hann
telur sig nú hafa fundið hinn
týnda aldingarð Eden, og
rökstyður kenningu sina
meðal annars með frásögn-
um, sem er að finna á rúna-
töflum hinna fornu Súmera.
Þýðandi og þulur Stefán
Jökulsson.
22.50 Dagskrárlok.
Málmiðnaðarmenn
íslenska Álfélagið óskar eftir að ráða
nokkra járniðnaðarmenn og rafsuðumenn
nú þegar.
Nánari upplýsingar gefur ráðningarstjóri,
simi 52365.
Umsóknareyðublöð fást hjá bókaverslun
Sigfúsar Eymundssonar, Austurstræti,
Reykjavik og bókabúð Olivers Steins,
Hafnarfirði.
Umsóknir óskast sendar sem fyrst i póst-
hólf 244, Hafnarfirði.
ÍSLENSKA ALFÉLAGIÐ H.F.
STRAUMSVÍK
um helgina
8.00 Morgunandakt Séra
Pétur Sigurgeirsson vigslu-
biskup flytúr ritningarorð
og bæn.
8.10 Fréttir og veðurfregnir.
,8.15 Létt morgunlög
9.00 Fréttir. Útdráttur úr
forustugreinum dagblað-
anna.
9.15 Morguntónleikar.
11.00 Hátiöarguðsþjónusta I
Hailgrimskirkju I Saurbæ
(hljóðr. á sunnud. var)
Sóknarpresturinn, séra Jón
Einarsson, predikar og
þjónar fyrir altari ásamt
séra Sigurjóni Guðjónssyni
fyrrum prófasti. Kirkjukór
safnaðarins syngur sálma
eftir séra Hallgrim Péturs-
son. Sigurveig Hjaltested
syngur einsöng. Organleik-
ari. Úlrik Ólason. I lok guðs
þjónustunnar flytur forseti
tslands, dr. Kristján Eld-
járn ávarp, — og séra Sigur-
jón Guðjónsson talar við
gröf séra Hallgrims i
krikjugarðinum.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.10 Miðstöö stjórnkerfisins
14.05 A Hafnarslóð Inga Huld
Hákonardóttir talar við
tvær islenskar konur I
Kaupmannahöfn, Guðrúnu
Eiríksdóttur umsjónar-
mann húss Jóns Sigurðsson-
ar og Guðrúnu Þórðardóttur
Nielsen.
15.00 Minningardagskrá um
pianóleikarann og tónskáld-
ið Sergej Rakhmaninoff: —
þriðji hluti Arni Kristjáns-
son tónlistarstjóri flytur
inngangsorð.
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 A bókamarkaðinum
17.25 Danshljómsveit austur-
-rlska útvarpsins leikur.
17.40 Útvarpssaga barnanna:
„Hjalti kemur heim”
18.00 Stundarkorn með tékk-
ncksa sellóieikaranum
Milos Sadlo. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 „Þekkirðu land?”Jónas
Jónasson stjórnar spurn-
ingaþætti um lönd og lýði.
Dómari: Ólafur Hansson
prófessor. Þátttakendur I
fyrsta þætti: Alda Snæhólm
Einarsson og óskar A.
Glslason.
20.00 Tónlist eftir Jón Nordal
20.20 Frá þjóðhátíð Vest-
mannaeyinga 9. og 10.
ágúst. Birgir Jóhanns-
son formaður Þórs setur
hátiðina, forseti Islands, dr.
Kristján Eldjárn, og Birgir
fsleifur Gunnarsson borgar-
stjóri I Reykjavik flytja
ávörp, og dr. Richard Beck
flytur hátiðarræðu. Lúðra-
sveit Vestmannaeyja leik-
ur. Stjórnandi: Björn Leifs-
son. Unnur Guðjónsdóttir
fer með þjóðhátiðarbrag
eftir Asa i bæ og karla-
kvartett syngur lög eftir
Oddgeir Kristjánsson. Að
lokum talar Sigurgeir
Kristjánsson forseti bæjar-
stjórnar Vestmannaeyja.
Kynnir: Stefán Árnason.
21.30 Bókmenntaþáttur
Umsjón: Þorleifur Hauks-
son.
22.00 Fréttir.
22.15 Veöurfregnir. Danslög
Heiðar Astvaldsson dans-
kennari velur lögin.
23.25 Fréttir I stuttu máli.
Dagskrárlok.
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10 10
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. landsmálabl.), 9.00
og 10.00. Morgunbæn kl.
7.55: Séra Ólafur Skúlason
(a.v.d.v.) Morgunieikfimi
kl. 7.35 og 9.05: Valdimar
örnólfsson leikfimikennari
og Magnús Pétursson
pianóleikari (a.v.d.v)
Morgunstund baranna kl.
9.15: Rósa B. Blöndals held-
ur áfram að lesa söguna
„Flökkusveininn” eftir
Hector Malot I þýðingu
Hannesar J. Magnússonar
(19). Tilkynningar kl. 9.30.
Létt lög á milli liða. Búnað-
arþáttur kl. 10.25: Ingóifur
Daviðsson magister talar
Um kartöflukvilla og
geymslu garðávaxta. Morg-
unpopp kl. 10.40. Morgun-
tónleikar
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan:
„Fanney á Furuvöllum”
eftir Hugrúnu Höfundur les
(3).
15.00 Miðdegistónleikar:
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphornið
17.10 Tónlistartími barnanna
Ólafur Þórðarson sér um
timann.
17.30 Að tafli. Ingvar As-
mundsson menntaskóla-
kennari flytur skákþátt.
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Mælt máljíjarni Einars-
son flytur þáttinn.
19.40 Um daginn og veginn.
Jónas Guðmundsson rithöf-
undur talar.
20.00 Mánudagslögin
20.25 Blöðin okkar Umsjón:
Páll Heiðar Jónsson.
20.35 „Við Grýluvog”, Ijóð
eftir Erling E. Halldórsson
Höfundur les.
20.50 Til umhugsunar, Þáttur
um áfengismál i umsjá
Sveins H. Skúlasonar.
21.10 Dúinka kórinn syngur
þjóðlög frá Úkraínu.Stjórn-
andi: Paul Murawski.
21.30 Útvarpssagan: „Gang-
virkið” eftir ólaf Jóhann
Sigurðsson. Þorsteinn
Gunnarsson leikari les.
22.40 Illjómplötusafniö I um-
sjá Gunnars Guðmundsson-
ar.
23.35 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.